Þjóðviljinn - 16.06.1988, Qupperneq 16
Vala Ragna Ingólfsdóttir
10 ára:
Fer til Þýskalands með mömmu
og bróður mínum að hitta ömmu,
en hún býr þar. Ég verð í fimm
vikur.
Óskar Sölvason
9 ára:
Ég fer í sumarbústað í viku og fer
einhverntíma seinna í sumar á
íþróttanámskeið hjá KR.
Kjartan Geir Kristjánsson
10 ára:
Ég ætla að heimsækja vin minn,
sem býr rétt hjá Hellu. Fer síðan
til Þýskalands í þrjár vikur með
mömmu, pabba og systur minni.
þJÓÐVIUINN
Fimmtudagur 16. júní 1988 135. tölublað 53. órgangur
-SPURNINGIN—
Hvaö ætlar þú aö gera í
sumar?
Valgerður Einarsdóttir
8 ára:
Ég fer í Vindáshlíð og upp í sum-
arbústað með mömmu og
pabba.
Sveinhildur Torfadóttir
11 ára:
Ég fer til Danmerkur með foreldr-
um mínum í tvær vikur og til Akur-
eyrar í viku í ágúst.
Kennaraháskólinn
Krakkar
í stærð-
fræði
Listahátíð
- Stærðfræðin er grein, sem
ekki á að fjalla um í tómarúmi,
heldur þarf að tengja hana við
raunveruleika barnanna. Við
óskuðum eftir 40 ungmennum
víðsvegar af landinu og þau hafa
verið með verkefni, jafnt utan
sem innan dyra með allskyns efni-
við, tæki og tól, sagði Anna Krist-
jánsdóttir dósent við Kennarahá-
skólann í viðtali við Þjóðviljann,
en hún er ein af umsjónar-
mönnum á sumarnámskeiði
kennara, sem nú stendur yfir.
Þetta er hálfsmánaðar nám-
skeið ætlað kennurum, sem
kenna 7-12 ára krökkum, sagði
Anna. Yfirskrift námskeiðsins er
stærðfræðinám, en áherslan er
lögð á umhverfi barnanna, vinnu-
brögðin, hvernig börnin tileinka
sér best námsefnið og hvernig
hægt er að vinna úr því. - Kjarni
málsins er óskin um að gera barn-
ið virkt í námi og leik. Tengja
saman athöfn og hugsun. Stuðla
að því að forvitni barnsins sé
haldið við, því að víst er hún stór
hluti af þekkingarleitinni. Börnin
eru í fjórum hópum og bera
kennarahópar ábyrgð á hverjum
barnahóp, sagði Anna.
Anna sagði, að á þessu nám-
skeiði væri lögð mikil áhersla á að
láta börnin fá viðfangsefni við sitt
hæfi, sem þau gætu unnið með og
leyst sjálf. Áhersla væri lögð á hið
meðvitaða hjá börnunum. Að
þau geri ekki hlutina hugsunar-
Íaust, eða til að þóknast öðrum,
heldur af eigin áhuga og
sköpunarmætti. Anna taldi að
þarna byði stærðfræðin uppá
óþrjótandi möguleika.
Aðspurð taldi Anna það ekki
erfitt að tengja stærðfræði við
hugmyndaheim barnanna.
- Stærðfræðin fæst við mynstur
og regluleika og við höfum gert
þónokkrar tilraunir með að
tengja stærðfræðinám við mynd-
list með nokkuð góðum árangri
og flestir þekkja skyldleika
stærðfræði og tónlistar, sagði
Anna.
-gjh
ídag
Meðal þeirra dagskrárliða sem
Listahátíð býður uppá í kvöld er
sýning Black Ballet Jazz í Þjóð-
leikhúsinu, kl. 20.00 og popptón-
leikar The Christians í Laugar-
dalshöll sem hefjast kl. 21.
í íslensku óperunni verða
kammertónleikar þar sem ungir
íslenskir tónlistarmenn verða alls
ráðandi. Meðal þeirra sem koma
fram verða Hákon Leifsson sem
stjórnar frumflutningi á tveirnur
íslenskum verkum, - klarinettu-
konsert eftir Hauk Tómasson og
Capriccio fyrir píanó og hljóm-
sveit eftir Leif Þórarinsson. Ein-
leikarar í þessum verkum verða
Guðni Franzson klarinettuleikari
og Þorsteinn Gauti Sigurðsson
píanóleikari. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.30.
í Listasafni íslands flytur Folke
Lalander fyrirlestur um konkret-
list í Svíþjóð og hefst hann kl.
20.30.
-milljónir, i hverjum iaugardogi. Upplýsingasími: 686111.
Það er ekki erfitt að tengja stærðfræði við hugmyndaheim barna, segir Anna Kristjánsdóttir dósent við
Kennaraháskólann. Hópur ungra stærðfræðinema fylgdist af áhuga með því sem fram fór. Mynd E.OI.
SÍMI681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663