Þjóðviljinn - 22.06.1988, Síða 1
Hvalkjöt
Srfellt víðar úthýst
Finnarsenda kjötsendingu til baka. Finnsk lögfrá íjanúar banna umskipun. Endurtekning atburðarásar
íÞýskalandií fyrra. GrœnfriðungarfylgjastvelmeðaðgerðumHvalshf. Hefst hvalvertíðin í dag?
Starfsmenn íslenska utanríkis-
ráðuneytisins og stjórnendur
Hvals hf höfðu rangt fyrir sér er
þeir töldu að umskipun á hval-
kjöti í finnskri höfn bryti ekki í
bága við finnsk lög. Finnski um-
hverfismálaráðherrann tilkynnti í
gær að kjötið, sem til stóð að færi
um borð í lest til Sovétrfkjanna,
yrði sent aftur til íslands. Það
væri í samræmi við lög sem sett
hefðu verið í Finnlandi síð-
astliðinn janúar.
Grænfriðungar hafa látið í ljós
óánægju með að finnsk
stjórnvöld skuli ekki gera kjötið
upptækt.
Þetta er í annað sinn að kjöt-
sending héðan til Japan er stöðv-
uð í umskipunarhöfn. í fyrra
urðu keimlíkir atburðir í Þýska-
landi.
Ekki er talið ólíklegt að næst
reyni Hvalur hf þá leið að senda
hvalkjötið með skipi beint til So-
vétríkjanna og þar verði því kom-
ið með lest austur að Kyrrahafi
og síðan með skipi til Japan.
Boðað hefur verið að hvalver-
tíðin hefjist í dag en búist er við
að bátarnir fari ekki út fyrr en
eftir blaðamannafund sem Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra hefur boðað í dag. Á þeim
fundi mun koma í ljós hvort sand-
reyður verður veidd þetta árið,
en talið er að þrýst hafi verið á
íslensk stjórnvöld að hætta
veiðum á henni.
Sjá síðu 3
Djass
Hundrað
tíma
Fyrsta hljómplata hljóm-
sveitarinnar Súldar er nýkomin
út og heitir Bukoliki. Platan er
tekin upp á hundrað tímum í
Stefi, nýju stúdíói í Kópavogin-
um.
Súldverjar hafa nú lagt upp í
tónleikaferð til Kanada þar sem
sveitin spilar á djasshátíðum víðs-
vegar um landið. Súld spilar á
djasshátíðum í Toronto, Calgary
og Montreol, en fer síðan til
Winnipeg og spilar fyrir íslend-
inga þar.
Hér í blaðinu ér að finna viðtal
við einn af meðlimum Súldar,
Steingrím Guðmundsson, sla-
gverksleikara.
Sjá síðu 7
Verðbólgan
163%
Byggingarvísitalan
œðir upp. Hvernig á
að mœla verðbólg-
una?
Samkvæmt mælingum Hag-
stofunnar í fyrri hluta þessa mán-
aðar hafði byggingarvísitalan
hækkað á einum mánuði úr 111,9
stigumí 121,3 stig eða um8,40%.
Sé þessi hækkun framreiknuð til
12 mánaða verður hún 163,2% á
ári.
Sé hækkun byggingarvísitöl-
unnar síðustu þrjá mánuði fram-
reiknuð til 12 mánaða mælist
verðbólgan 55,1%. En sé litið á
þróun hennar síðustu 12 mánuði
hefur hún hækkað um 21,3%.
Miðað við ákveðnar reiknings-
forsendur er verðbólgan því
komin yfir 163%. Þeir, sem lang-
minnugir. eru á verðbólgutölur,
minnast þess að á tímum ríkis-
stjórnar Gunnars Thoroddsen
mældist verðbólgan, þegar beitt
var slíkum reikningsforsendum,
meira en 100%. Það var rifjað
upp af ýmsum frambjóðendum
við síðustu alþingiskosningar.
Hér má sjá glatt fólk syngja við varðeldinn sem kveiktur var í Fossvogsdalnum í gærnótt. (slensk sumarnótt hljómaði glaðværlega er
Ijósmyndari Þjóðviljans, Einar, hlýjaði sér við eldinn.
Sólstöðugangan
Meðmælaganga meo lífinu
Sumarsólstöður voru í gær og þar sungið og leikið um stund.
gekk fjöldinn allur af fólki Sól- Göngufólkið horfði á sólar-
stöðugönguna í því tilefni. upprásina frá Vatnsendahvarfi
Gangan hófst í næturhúminu klukkan 2.54 og var sólstöðumín-
stuttu eftir miðnætti og um útan klukkan 3.59. Þegarhún var
klukkan 1 var kveikt upp í mið- liöin hélt fólk af stað í gönguna
næturbáli í Fossvogsdalnum og sjálfa. Hópum skipt niður í A og
B hluta og hvor um sig hélt í sína upp á Seljafjall, síðan niður í Ell-
áttina. A hópurinn gekk niður í iðaárdal að Árbæjarsafni. Þaðan
Elliðaárvog, var selfluttur útí seinna um daginn um Grafar-
Viðey og þaðan í Gufunes. Gekk vogsbyggðina og áfram um Mos-
upp Mosfellsdal, Seljadal og upp fellsbæ og upp á Helgafell, þar
á Helgafell. Hinn hópurinn, B sem hóparnir sameinuðust
hópurinn, gekk upp í Heiðmörk, klukkan 23 og göngu lauk.
Svíþjóð
Vopnasmyglarar
fyrír dómstóla
Fjórir forstjórar Bofors- málsins að sænsk stjórnvöld
fyrirtækisins hafa verið kærðir héldu illa á málum gagnvart fyrir-
fyrir milljóna vopnasmygl til tækinu og hreinlega létu plata sig.
landa sem eru á svokölluðum
svörtum lista í slíkum við- -------:—
skiptum. Fram kom við rannsókn Sjá síðu 13