Þjóðviljinn - 22.06.1988, Síða 13
ERLENDAR FRETTIR____________
Namibía
Sterkasta andóf í 15 ár
Skólar svartra lokaðirsíðan ímars. 50þúsund námumenn í
verkfalli. Vilja hersetuliðið burt úr landinu
Amnesty
Fordæmir
ógnarverk
Stjórnvöld á Indlandi hafa al-
farið neitað því að ásakanir Amn-
esty um, að indverskir hermenn
fremji ilívirki á saklausum íbúum
Sri Lanka, eigi við rök að styðj-
ast.
Amnesty hefur heimildir fyrir
því að voðaverk hafi verið framin
af hermönnum á eyjunni með
öllu að ástæðulausu. Hér er um
að ræða nauðganir, barsmíðar og
morð á konum, öldruðum og
börnum. Tamflar á Sri Lanka
berjast fyrir því að fá sjálfstæði og
indverski herinn hefur hvað eftir
annað beitt vopnavaldi til að hafa
vald á ástandinu en það virðist
duga skammt. Reuter/-gsv
Nú þegar samningaviðræður
fara fram á milli deiluaðila
um málefni Namibíu í Egypta-
landi eru verkamenn í úraníum-
og demantanámum hins víðáttu-
mikla eyðimerkurlands komnir í
verkfali. Þeir vilja sýna með því
andstöðu sína við hernaðarlegan
yfirgang stjórnar Suður-Afríku í
Namibíu.
Þetta eru umfangsmestu mót-
mæli sem átt hafa sér stað í
landinu frá 1970 og tengjast þeim
samningum sem standa yfir í Ka-
iró. Þar sitja Bandaríkin, Suður-
Afríka, Angóla, Kúba og Nami-
bía við samningaborðið. Þá hefur
kúbanskt herlið flutt sig nær land-
amærum Angóla og Namibíu og
sífellt berast fréttir af mannfalli í
átökum stjórnarhers Angóla við
hægri sinnaða skæruliða sem
studdir eru af stjórn Suður-
Afríku. í síðustu viku féllu 25
menn í átökum þessum.
Talið er að um 50 þúsund
verkamenn séu í verkfalli og að
það sé í raun skipulagt af vinstri
sinnuðum skæruliðum (Swapo) í
Namibíu sem reyna að reka her-
námsliðið úr landinu. Skólar
svartra í norðurhéruðuim lands-
ins hafa verið lokaðir frá því í
mars. Nemendur mótmæla því að
herlið Suður-Afríkumanna hefur
komið sér upp bækistöðvum í ná-
grenni skólanna.
„Það má segja að nú sé barátt-
an fyrst hafin fyrir því að koma
suður-afríska hernámsliðinu burt
úr landinu og þetta verkfall verð-
ur að skoðast sem augljós stað-
festing á því að fólkið vill þá
burt,“ sagði Ben Ulenga forseti
sambands námuverkamanna í
Namibíu.
Sameinuðu þjóðirnar hafa for-
dæmt yfirgang Suður-Afríku-
manna í Namibíu og ítrekað kraf-
ist þess að landið fái sjálfstæði.
Hvort samið verður um að draga
kúbanskt herlið frá Angóla og
suður-afríska hermenn frá Nami-
bíu á næstunni er óljóst, en yfir-
lýsingar eftir leiðtogafundinn í
Moskvu gefa jafnvel tilefni til
bjartsýni.
Reuter/-gsv.
Nígería
Sigur vinnst í
úrgangsstríði
Vestrœnirsérfrœðingarhjálpa til við með-
höndlun á geislavirkum úrgangi
Nú hafa bandarískir og breskir
mengunarsérfræðingar gengið til
liðs við stjórn Nígeríu og ætla að
rannsaka efnaúrgang þann sem
borist hefur til landsins ólöglega
að undanförnu.
Nígeríumenn hafa ásakað ítali
fyrir að hafa flutt geislavirkan úr-
gang til hafnarbæjarins Koko um
400 km suðaustur af Lagos. Þeir
hafa kyrrsett ítalskt og danskt
flutningaskip til að mótmæla
þessari framkomu ásamt því að
handtaka fjölda manns sem er
grunaður um að vera viðriðinn
þennan vafasama innflutning til
landsins.
Úrgangurinn hefur þegar verið
rannsakaður af sérfræðingi Al-
þjóða kjarnorkumálastofnunar-
innar í Vín. Þrír bandarískir sér-
fræðingar munu aðstoða Nígeríu-
menn ásamt liðsveit frá Kjarn-
orkumálastofnun Breta.
Þá hefur norski ræðismaðurinn
í Guinea verið látinn laus en hann
var sakaður um að skipuleggja
eiturefnaflutninga til landsins ný-
lega. Norðmenn ætla að sjá til
þess að úrgangurinn verði fluttur
í burtu til ótilgreinds staðar. Það
mun taka 50 manns heila viku og
fimmtán tíma vinnu á dag að
koma þessum 15000 tonnum af
úrgangi frá Ffladelfíu um borð í
skip aftur. Reuter/-gsv.
Eiturhaugur í tunnum fyrir utan bæinn Koko. Merkimiðarnir gefa til kynna að farmurinn sé frá stóru ítölsku
efnafyrirtæki sem heitir Montedison.
Svíþjóð
Boforsstjóramir kærðir
Smygluðu vopnum fyrir hundruð milljóna sœnskra króna
iðmeðíráðum. Augljóst sé þó af við Bofors að fulltrúar sænsku lega blekktir eða ótrúlega trú-
samningum þessara ríkisstjórna stjórnarinnar hafi verið auðveld- gjarnir. Reuter/-gsv.
Armenía
Blásið í glæðumar
Hóparþjóðernissinna æsa til uppþota. Forseti Armeníuþings skorará
fólk að sýna heilbrigða skynsemi
Fjórir fyrrverandi forstjörar
fyrirtækisins AB Bofors hafa
verið kærðir fyrir að smygla
vopnum fyrir milljónir króna til
ríkja sem eru á alþjóðlegum
svörtum lista yfir vopnakaupend-
ur.
Rannsókn málsins hefur staðið
í fjögur ár og forsætisráðherra
landsins, Ingvar Carlsson, sagði
að sér létti við að heyra það að
loksins hefði verið ákveðið að
kæra forstjórana. Ríkissaksókn-
ari sagði að fyrir lægju nægjanleg
sönnunargögn til að kæra menn-
ina.
Upp komst um ólöglegt athæfi
Bofors-fyrirtækisins þegar óá-
nægður tæknifræðingur sagði upp
störfum hjá fyrirtækinu og byrj-
aði að leka upplýsingum til fjöl-
miðla um smyglið. Nú er vitað að
mennirnar hafa smyglað meira en
300 leiserstýrðum róbótum og 70
varnareldflaugum að verðmæti
um 100 milljón sænskra króna til
viðskiptavina í Dubai og Bahrain
árin 1979-80. Singapore var not-
uð sem milliliður í vopnaviðskipt-
unum.
Tveir forstjóranna hafa játað
því að hafa selt vopnin en neita
því að um smygl hafi verið að
ræða. Þeir segja sænsku ríkis-
stjórnina hafa stutt vopnavið-
skiptin. Hin opinbera rannsókn
hefur hins vegar leitt það í ljós að
hvorki stjórn sósíaldemókrata né
mið- og hægriflokkanna hafi ver-
Atök urðu á milli Armena og
Azerbæjana um síðustu helgi í
þorpunum Masis og Sayat Nova
skammt frá landamærum Tyrk-
lands. Heimildum frá Moskvu og
í gær kaus ítalski Kommúnista-
flokkurinn sér nýjan formann á
miðstjórnarfundi sínum. Hann er
Achille Occhetto, 52 ára gamall.
Hann hefur í raun verið leiðtog-
inn á bak við tjöldin því fráfar-
andi formaður, Alessandro
Natta, hefur átt við langvarandi
veikindi að stríða.
Occhetto fékk 286 atkvæði og
Armeníu ber ekki saman um
hversu alvarlegar þessar óeirðir
voru.
í þorpunum tveimur búa
kristnir Armenar og múhameðs-
aðeins þrjú mótatkvæði frá hægri
vængnum í flokknum. Fimm sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna. Hinn
nýi formaður stendur frammi
fyrir því að fylgi flokksins hefur
dalað mikið á undanförnum
árum eða frá 35% fylgi á áttunda
áratugnum þegar það var mest,
niður í 21% nú í kosningum í vor.
Reuter/-gsv.
trúaðir Azerbæjanar. Upptökin
að átökunum átti hópur ungs
fólks frá Yerevan sem fór þangað
gagngert til þess að blása í glæð-
urnar. Til Moskvu bárust þær ó-
staðfestu fréttir að 12 manns
hefðu látist í átökunum.
Foringi Armena, Grant Vo-
skanyan, tilkynnti í ávarpi sínu til
þjóðarinnar á sunnudag, að sex-
tán manns hefðu slasast í átökun-
um og bar til baka þær sögusagnir
sem bárust til Moskvu að menn
hefðu látist í átökunum. Vo-
skanyan skoraði á Armena og
Azerbæjana að sýna heilbrigða
dómgreind og hafa stjórn á gerð-
um sínum. „Þjóðir okkar lifa hlið
við hlið og munu halda því
áfram,“ sagði hann í útsendingu
Muammar Gaddafi vill afnema
dauðarefsingu alls staðar og
bannar hana í Líbýu.
Amnesty
Fagnar
breytingum
Samtökin Amnesty Intcrnatio-
nal sem eru viðurkennd um allan
heim fyrir baráttu sína gegn hvers
konar mannréttindabrotum,
lýstu yfir fögnuði sínum með þær
breytingar sem orðið hafa í Líbýu
að undanförnu.
Það var London-deild Amn-
esty sem gaf út yfirlýsinguna á
mánudaginn. Hún fer miklum
lofsorðum um Muammar Gadd-
afi leiðtoga landsins en hann hef-
ur afnumið dauðarefsingu í
landinu. Þá tóku ný lög gildi þann
12. júní sem banna illa meðferð á
föngum og tryggja að allir geti
flutt mál sitt fyrir dómstólum.
Þá var því einnig fagnað að
Gaddafi lét lausa úr fangelsi
nokkur hundruð manna þann
sama dag. Hann lýsti því jafn-
framt yfir að Líbýa gæti nú stað-
fest alþjóðlega mannréttindasátt-
mála. Reuter/-gsv
Y erevan-útvarpsins.
Reuter/-gsv.
Mlðvikudagur 22. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Ítalía
Kommar kjósa foimann