Þjóðviljinn - 01.07.1988, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.07.1988, Blaðsíða 9
 Hermenn skjóta táragasi að börnum sem lagt höfðu steina á veginn fyrir utan flóttamannabúðirnar í Ramallah. flóttamannabúðirnar í útjaðri Ramallah sáum við hvar krakkar á aidrinum 8-10 ára voru að leggja steina á veginn eins og til þess að loka götunni. Skyndilega birtist herjeppi á fleygiferð. Einn hermannanna stóð upp og skaut táragasskotum að börnunum á meðan bíllinn var á ferð. Táragas fyllti húsagarðinn þar sem þau höfðu flúið í felur. Börnin hurfu samstundis, en hermennirnir stukku undir næsta vegg með hríðskotabyssur á lofti. Krakk- arnir komust undan og jeppinn hélt áfram för sinni umhverfis búðirnar. í kjölfarið komu ör- væntingafullar mæður í leit að börnum sínum. Skotvopnin sem hermennirnir nota gegn börnunum í flótta- mannabúðunum eru þrenns kon- ar: táragashylki, framleidd í Bandaríkjunum á þessu ári. Á hylkjunum stendur að þau geti verið banvæn, og megi aðeins notast af atvinnumönnum. Svo eru gúmmíkúlur með stálsívaln- ing inní. Kúlur þessar eru þuml- ungssverar og 1,5 sm á lengd. Síð- an nota þeir einnig föst skot og eru patrónurnar álíka stórar og notaðar eru til hreindýraveiða hér á landi. Táragashylkin hafa orðið mörgum Palestínumönnum að bana á undanförnum mánuðum og valdið fósturláti hjá þunguð- um konum. Gúmmíkúlurnar eru hins vegar til þess fallnar að skapa mikla áverka, og sem dæmi má nefna að auga var skotið úr 9 mánaða stúlkubarni með gúmmí- kúlu á Vesturbakkanum á meðan ég dvaldi þar. Föst skot eru líka notuð, þegar hin vopnin þykja ekki duga nægilega vel. Þau eru yfirleitt banvæn. Pegar herjeppinn var horfinn komu mæðurnar skelfingu lostnar og kölluðu á börn sín, en fundu ekki. Þetta var dagleg reynsla flestra mæðra um öll hernumdu svæðin. Flóttamannabúðunum í Am- ari hafði verið lokað með því að steypa eða hlaða upp á milli húsa- sunda alls staðar nema á þrem stöðum. Tveir staðir voru minna áberandi, en þaðan gat herinn komist inn í búðirnar með her- jeppa sína og brynvagna. Aðal- innganginum var hins vegar lok- að með tvöföldum steyptum tunnuvegg og aðeins skilið eftir metershaf til þess að ekki kæmust fleiri en einn í einu út. Þannig voru allar flóttamannabúðir sem ég sá á herteknu svæðunum um- girtar, og þetta gerir yfirvöldum mögulegt að setja útgöngubann á búðirnar og loka fólkið þannig inni. Slíkum refsiaðgerðum er mikið beitt, einkum á Gaza- svæðinu. Ekkja og limlest börn Þegar við gengum inn um aðal- inngang Amari-búðanna var her- maður með hríðskotabyssu uppi á næsta húsi og fylgdist með okk- ur. Við gengum að miðstöð UNWRA (Flóttamannahjálpar SÞ) í búðunum til þess að biðja um leiðsögn. Þeir sem þar voru sögðust allt vilja fyrir okkur gera annað en að leiða okkur um búð- irnar, því herinn bannaði þeim það. Þessi UNWRA-miðstöð var sýnu fátæklegri en sú sem ég hafði séð í Jórdaníu. Þarna voru 2 menn en engar upplýsingar að fá annað en að þarna byggju um 6000 manns. Sjúkraskýlið virtist lokað. Við fórum á eigin ábyrgð inn í búðirnar og brátt safnaðist um okkur hópur óðamála barna. Ég hefði ekki komist þarna óhultur nema vegna þess að ég hafði þarna fylgd arabískumælandi Palestínumanns sem gat kynnt erindi okkar. Börnin í flótta- mannabúðunum eru tortryggin gagnvart ókunnugum og grýta þá sem liggja undir grun um að vera á bandi hernámsliðsins. En þau vildu allt fyrir okkur gera þegar þau vissu um erindi okkar. Þau sögðu að hermennirnir myndu eyðileggja myndavélar okkar ef þeirsæju okkurtaka myndir. Þau sýndu okkur táragashylkin og gúmmíkúlurnar og skothylkin. Og þau vísuðu okkur um göturn- ar. Þetta voru ýmist moldargötur eða steyptar götur með opnu skolpræsi eftir miðri götunni. Húsin voru eins og í Jórdaníu, kofar hlaðnir úr múrsteini með lausum bárujárnsplötum ofaná, sem voru festar niður með grjót- fargi. I fyrsta kofanum sem við kom- um í var kona sem hafði orðið ekkja þann 27. janúar síð- astliðinn. Maður hennar kafnaði Þessi kona missti mann sinn frá mörgum börnum þegar hann kafnaði af völdum táragass þann 27. janúarsíðastliðinn. Hún heldur á táragashylki eins og þeim sem urðu manni hennar að bana. Þetta er bandarísk framleiðsla frá þessu ári, og stendur á hylkinu að innihaldið geti verið banvænt. Sonur hennar er meðskotsár á vinstri handlegg. Ljósm. ólg. : ■ Myndir þessar voru teknar við Amari-flóttamannabúðirnar sjáum við herjeppann inni í búðunum og sjúkrabíl sem af táragasinu. Sonur hennar, um það bil 9 ára, var með skotsár á upphandlegg eftir fast skot. Hún hafði sent hann út fyrir búðirnar að kaupa jógúrt og hann kom til baka með sundurskotinn hand- legg. Hús hennar var fullt af börnum, ég veit ekki hvað hún átti mörg þeirra. Hún sýndi okk- ur brotna spegla og brotinn skáp og brotinn vegg: hermennirnir höfðu ráðist inn í kofann hennar. Við fórum í næsta kofa við hlið- ina. Þar sýndi móðir 10 ára ga- mals pilts okkur ör á síðu hans. Hann hafði verið sleginn svo á mjóhrygginn að annað nýrað sprakk. Fleiri börn sáum við sem höfðu fengið sár og krakka- skarinn sem safnaðist í kringum okkur var svo óðamála að erfitt var að athafna sig. Strákarnir vildu ólmir láta ljósmynda sig og tróðust hver fram fyrir annan upp að vélinni. Þeir gerðu sigurmark- ið og héldu steinum á lofti. Það var áberandi að andrúmsloftið í þessum búðum var allt annað en í Jórdaníu. Ójafn leikur Taugaspennan var gífurleg og ofbeldið lá í loftinu. Enda leið ekki á löngu þar til ungir menn um tvítugt komu til okkar og sögðu að innan skamms myndu hermennirnir gera innrás í búð- irnar og það yrði barist. Þeir ráð- lögðu okkur að fara út. Tíu ára piltur fylgdi mér út úr búðunum en félagi minn varð eftir fyrir innan. Ég fór í kringum búðirnar að aðalinnganginum þar sem ég komst inn í húsasund á bak við þvottasnúrur. Þaðan hafði ég yfirsýn yfir aðalgötuna í búðunum. Fjórir herjeppar ogéinn trukk- ur tóku þátt í árásinni á búðirnar. Einn eða tveir bílar biðu við aðal- innganginn á meðan hinir keyrðu inn í búðirnar og skutu táragasi og gúmmíkúlum að íbúunum. Táragasský lagðist yfir búðirnar. Ég sá börn og unglinga á hlaupum í táragassvækjunni kast- andi grjóti að herjeppunum. Þessi börn kunna ekki að hræðast í Ramallah þann 13. júní sl. ísraelskir hermenn gera innrás í flóttamannabúðirnar, sem lokað er með steyptum tunnuveggjum. Reykurinn á götunum er táragas. Á 3. myndinni kominn er á vettvang. Myrtdirnar eru teknar í skjóli af þvottasnúru í nálægu húsasundi. Ljósm. ólg. lengur. Áhlaupið stóð með stutt- Þeir fóru með jarðýtur á veggina alvarlegt kemur fyrir. Sért þú ar- um hléum í tæpa klukkustund. Sjúkrabíll kom að aðal- innganginum, en enginn var tek- inn í hann. Þegar herbílarnir voru farnir gekk ég inn í búðirnar. Á fólkinu var að sjá að þetta væri eins og daglegur viðburður. Eng- inn hafði hlotið alvarleg sár í þetta skipti og mér var vísað til félaga míns sem var í góðum fé- lagsskap inni í búðunum. Þegar við kvöddum Amari-búðirnar voru herjeppar á sveimi allt um kring. Umsátur í Kafir Malik Ofangreindir atburðir gerðust á öðrum degi mínum á Vestur- bakkanum. Sama dagfór égeinn- ig til bæjarins Kafir Malik. Þetta er um 2000 manna þorp sem liggur á milli Ramallah og Jeríkó. Inni á torginu í bænum voru allir veggir útmálaðir í slagorðum og ábúðarmiklir menrt sátu hljóðir í skugganum undir þakskeggjum. Það ríkti hatursþrungið andrúms- loft þarna á torginu og grjót- slöngur og tætlur af fána PLO héngu í símastrengjum. Þessir menn virtust reiðubúnir í stríð. Brátt fengum við að heyra sögu þeirra: í þrjá mánuði höfðu ísraelsku hermennirnir gert allmargar til- raunir til þess að komast inn í þetta þorp, bæði til þess að heimta skatt af fólkinu og einnig til þess að leita eftirlýstra manna. Átta sinnum höfðu þeir orðið frá að hverfa vegna vegatálma og grjótkasts þorpsbúa. í þessum átökum höfðu yfir 30 herjeppar verið skemmdir. Þá greip herinn til þess ráðs að loka bænum. í 30 daga var skrúfað fyrir vatn og raf- magn og engum hleypt inn í bæ- inn eða út úr honum. 30 dagar án aðfanga, 30 dagar án sjúkraþjón- ustu. Síðan var bærinn umkringd- ur með yfir 2000 manna herliði og ráðist var inn í þorpið með bryn- vörðum bílum og þyrlum. Einn maður var skotinn á færi, trúlega úr þyrlu, í þessari innrás. Her- mennirnir settust að í skólanum. sem umluku skólalóðina. Þeir eyðilögðu bækur í skólanum og ég sá hvar þeir höfðu notað eitt hornið á skólalóðinni til þess að gera þarfir sínar. Víðar sáum við verkummerki eftir jarðýtur í bænum, sem höfðu meðal annars valdið skemmdum á fallegum mörghundruð ára gömlum olívu- lundi. Vitni á torginu Maður á torginu: „Bróðursonur minn var á gangi með vini sínum hér fyrir utan bæ- inn. Þeir gengu samhliða, en skyndilega fær vinur hans skot í höfuðið og liggur dáinn í götunni. Hinn hljóp inn í næsta hús, en hermennirnir hlupu á eftir hon- um, drógu hann út, börðu með kylfu í höfuðið. Börðu hann síð- an á skrokkinn með stórum planka, handjárnuðu síðan og settu í fangelsi í 2 daga. Meðan á umsátrinu stóð vorum við ljós- lausir og allslausir í 30 daga. Við fundum að við gátum vel haldið út eitt ár í viðbót ef því er að skipta. Við höfum engu að tapa.“ Annar maður: „Hér í nágrenninu var 45 ára maður, 4 barna faðir, drepinn með skoti í höfuðið, þar sem hann stóð álengdar og var að horfa á óeirðir. I fréttum var sagt að þetta hefði verið tvítugur mað- ur og að hann hefði verið að kasta bensínsprengju.“ Læknir úr bænum Efraím sem þarna var staddur: „Þeir grófu tvo bræður í jörð hér skammt frá þannig að aðeins andlitin stóðu uppúr og spörkuðu í þá. Síðan drógu þeir þá upp og tvíbrutu á þeim handleggina. Ég hef líka fengið staðfest að her- mennirnir hafi brennt ungan mann í ofni hér skammt frá og kastað síðan líkinu í kalt vatn. Ég veit ekki hvort sagan af barninu sem kastað var úr þyrlu er sönn, en hún er ekki ótrúlegri en margt annað sem ég hef séð... Eitt get ég líka sagt þér, að sjúklingar mínir hér, þeir hafa ekki efni á að borga læknisþjónustu ef eitthvað abi færð þú enga þjónustu á sjúkrahúsunum hér nema þú greiðir fyrirfram...." Bóndi á torginu: „Og sért þú arabi er þér bannað samkvæmt lögum að bora eftir vatni. Vatnið skiptir öllu máli við landbúnað- inn hér. Sérðu þorpið þarna uppi á hæðinni? Þetta er nýlenda gyð- ingalandnema. Þeir taka landið okkar og þeir taka vatnið frá okk- ur. Gyðingur sem býr í New York hefur meiri rétt á vatninu okkar og landinu okkar heldur en við...“ Á leiðinni frá Kafir Malik mættum við mörgurn herjeppum sem voru á eftirlitsferðum um sveitirnar. Landslagið þarna koin kunnuglega fyrir sjónir. Það var sama landslagið og ég hafði séð á biblíumyndunum sem mér voru gefnar þegar ég gekk til prests sem barn. Fjárhirðarnir litu meira að segja eins út og hirðarn- ir á Betlehemsvöllum. Enda eru þetta heimahagar Krists og bibl- íulegir sögustaðir í hverju þorpi. En eitthvað hafði breyst. Það var uppreisnarástand í Landinu helga. Daginneftirfórum viðá Gaza- svæðið. Ég átti erfitt með að ímynda mér það á þessari stundu að næsti dagur yrði ennþá erfið- ari. En sú varð raunin. Meira um það á miðvikudaginn kemur. -ólg Ungur piltur í bænum Kafir Malik á Vesturbakkanum sýnir okkur stoltur teygjubyssuna sína sem hann notar til þess að skjóta steinvölum að ísraelskum hermönnum. Ljósm. ólg. Intifada - uppreisn í landinu helga Intifada - uppreisn í landinu helga Intifada - uppreisn í landinu helga Intifada - uppreisn í landinu helga Intifada - uppreisn í landinu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.