Þjóðviljinn - 01.07.1988, Blaðsíða 2
Banaslys
Lést vegna
hraðaksturs
85 ára gamall maður varð fyrir
bifreið af gerðinni Mercedes Bens
á Miklubrautinni í gær. Maður-
inn lést samstundis.
Aðdragandi siyssins var ein-
hvern veginn á þann veg að bif-
reiðinni var ekið austur Miklu-
brautina, á vinstri akrein. Gamli
maðurinn hefur hinsvegar verið
að ganga norður yfir götuna,
gegnt húsum númer 26 og 28.
Um frekari smáatriði er ekki
hægt að fræðast enn sem komið
er en vitni sem tjáði sig við frétta-
mann Bylgjunnar í gær sagði um-
ferðina hafa verið „hraða og
stressaða" og að Bensinn hafi
verið á „mikilli ferð“.
-tt
FRETTIR
Ráðhúsið
Pólitískt þrekleysi
Mikil gremja og reiði ríkir meðal íbúa við Tjarnargötu sem og annarra
unnenda Tjarnarinnar vegna staðfestingarfélagsmálaráðherra á
byggingarleyfi ráðhússins
Staðfesting Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra á
áður útgefnu byggingarleyfi
Byggingarnefndar Reykjavíkur
fyrir byggingu ráðhússins í
Tjörninni, hefur vakið mikla
gremju og reiði meðal íbúa við
Tjarnargötu og félaga í samtök-
unum Tjörnin lifi sem og annarra
unnenda Tjarnarinnar. Helst er
talið að ráðherrann hafi ekki haft
pólitískt þrek til að ógilda bygg-
ingarleyfið.
Að sögn Inga Gunnars Jó-
hannssonar landfræðings og íbúa
við Tjarnargötu þykir úrskurður
ráðherrans harla undarlegur svo
ekki sé meira sagt. Ingi bendir á
að í álitsgerð félagsmálaráðu-
neytisins um staðfestingu á bygg-
ingarleyfinu séu vinnubrögð
borgaryfirvalda talin ámælisverð
og sagt að borgin hafi sýnt fljót-
færni og vanvirðingu við skipu-
lags- og byggingarlög.
„Þrátt fyrir þetta allt tekur ráð-
herra á málinu með silkihönskum
og vísar kæru okkar á bug. Þegar
litið er í álitsgerðina les maður á
milli línanna að framferði borgar-
yfirvalda í ráðhúsmálinu hafi
ekki verið löglegt en sleppum
þeim í þetta sinn. Óneitanlega
hlýtur sú spuming að vakna hvort
hér hafi ekki verið um pólitískt
baktjaldamakk að ræða,“ sagði
Ingi Gunnar.
Ibúar við Tjamargötu hafa
sent Byggingarnefnd Reykjavík-
ur bréf þar sem borgin er beðin
um óyggjandi gögn um eignarrétt
hennar á lóð ráðhússins og ef svör
borgaryfirvalda verða loðin, ó-
skýr eða engin, munu íbúarnir
kæra málið til félagsmálaráðu-
neytisins. Þeir telja að ekki hafi
hingað til komið fram afdráttar-
laust gögn frá borginni sem sanni
eignarheimild hennar á ráðhúss-
lóðinni. Kæmfrestur um hver eigi
byggingarlóð ráðhússins rennur
út í lok júlímánaðar. -grh
Vélsmiðjan Klettur
Fyrirvaralausar
uppsagnir
Öllum starfsmönnum sagt upp. Sigurður Örn
Karlsson forstjóri: Hefekkert um málið að
segja. Jóhann G. Bergþórsson Hagvirki:
Rekstrarvandrœði vegna vanda
fiskvinnslunnar
Igær fengu allir starfsmenn
vélsmiðjunnar Kletts uppsagn-
arbréf fyrirvaralaust. Ekki hafði
verið rætt um neitt slíkt við
starfsmennina eða trúnaðar-
mann þeirra áður en uppsagnar-
bréfunum var dreift.
- Ég hef ekkert um málið að
segja núna, ég er að fara út, pant-
aðu bara viðtal, var svarið sem
blaðamaður Þjóðviljans fékk hjá
Sigurði Erni Karlssyni nýráðnum
forstjóra Kletts er staðfestingar á
þessum tíðindum var leitað.
hjá
Jóhann G. Bergþórsson
Hagvirki, sem á Klett nú, var
hinsvegar mun viðmótsþýðari og
upplýsti að um væri að ræða
endurskipulagningu á fyrirtæk-
inu. Hagvirki keypti Klett fyrir 3
árum og verulegt tap síðasta árs
hefur að sögn Jóhanns hvatt þá til
að endurskoða starfsemina og
einbeita sér að ryðfríu stáli.
- Okkar verkefni hafa að
miklu leyti verið í viðgerðum og
allskyns lagfæringum fyrir fisk-
vinnsluna, sem kaupir einnig af
okkur tæki og tól, en eins og allir
vita er hún á hausnum. Við eigum
engra annarra kosta völ en að
breyta starfseminni á þann veg að
við þurfum ekki að reiða okkur
eins á fiskvinnsluna. Svona er að
fara fyrir mörgum fyrirtækjum í
bransanum, við verðum bara að
bregðast rétt við því, sagði Jó-
hann.
18-30 manns vinna hjá Kletti
og sagði Jóhann að auðvitað yrði
hluti af þeim ráðinn aftur en að
einnig væru örugglega einhverjir
sem þyrftu að fara. - Það er
skortur á mönnum í járniðnaði
núna sem gerir það að verkum að
þessir menn geta örugglega feng-
ið störf fljótlega aftur, sagði Jó-
hann.
Ekki náðist í fulltrúa starfs-
manna vegna þessa máls í gær.
-tt
Núverandi sorphaugar í Gufunesi verða fullir eftir tvö ár. Mynd -sig
Höfuðborgarsvœðið
Sovpið stefnir í Selöldu
Gufunes tekurvið ítvö ár enn. Tvœr móttökustöðvar reistar. Ingi U.
Magnússon: Óvíst hvað verðurgert við bílhræ og annað brotajárn í
framtíðinni
Allt bentir nú til þess að að sorp
frá höfuðborgarsvæðinu
verði í framtíðinni urðað í Sel-
öldu við Krísuvík. En sá staður er
einn af þremur sem stjórn byggð-
arsamlagsins Sorpeyðing höfu-
ðborgarsvæðisins hafði í huga
sem framtíðar sorphauga þegar
hætt yrði að taka móti sorpi í Guf-
unesi.
- Sorphaugarnir í Gufunesi
taka ekki við nema í tvö ár í við-
bót svo það er mjög þarft að fara
að huga að þessum málum. Fari
svo að Selalda verið valin sem
framtíðar sorphaugar, eftir að
Kjalnesingar höfnuðu beiðni fé-
lagsins um að fá að urða sorp í
Álfsnesi, verður að koma upp
móttökustöðum þar sem sorpið
verður bögglað og flutt þannig í
Selöldu, sagði Ingi Ú. Magnús-
Neskaupstaður
Ráðning ræðst af kynferði
Ráðning sparisjóðsstjóra kærð tilJafnréttisráðs. Meirihluti
stjórnarinnar horfðifram hjá settum stjóra með 15 ára starfsreynslu
Jafnréttisnefnd Neskaupstaðar
hefur harmað ráðningu Sveins
Árnasonar í stöðu sparisjóðs-
stjóra á staðnum. Nefndin telur
ráðninguna vera skýlaust brot á
jafnréttislögunum og hefur vísað
máUnu til Jafnréttisráðs íslands.
Klara ívarsdóttir sem sóttist eftir
stöðu sparisjóðsstjóra á að baki
15 ára starfsferil hjá sjóðnum og
hafði gegnt stöðu sparisjóðsstjóra
frá því í febrúar. Hún fékk 2 at-
kvæði hjá sjóðstjórn en Sveinn 3.
Jafnréttisnefndin bendir á og
tekur undir orð Ásdísar Rafnar á
ráðstefnu í Norræna húsinu í fe-
brúar sl., að það sé hagur þjóðfé-
lagsins, ekki síður en kvenna, að
hæfileikar þeirra fái notið sín. Afl
þeirrar óánægju sem safnast hafi
upp meðal kvenna sé ófyrirséð.
Lýðræðislegt þjóðfélag sé reist á
jafnrétti og frelsi til að velja sér
lífsstarf og að mat á hæfileikum
fólks verði að byggjast á rökum
en ekki fordómum og tilfinning-
um.
Þorgerður Malmquist á sæti í
jafnréttisnefnd Neskaupstaðar.
Hún sagði í samtali við Þjóðviij-
ann að því miður virtist kynferði
umsækjenda eitt hafa ráðið ferð-
inni við ráðninguna, alla vega
hefðu engar aðrar skýringar
komið fram.
Fimm manna stjórn Spari-
sjóðsins greiddi atkvæði um um-
sækjendur. í stjórninni sitja
Reynir Zoéga formaður, Sigrún
Þormóðsdóttir, Björn Bjöms-
son, Friðrik Vilhjálmsson og Jó-
hann Sigurðsson. Tveir þeir síð-
ast töldu sátu ekki fund stjórnar-
innar þegar valið var á milli
umsækjenda. Jón Einarsson og
Þórður Jóhannsson komu inn
sem varamenn fyrir þá.
Kosningin á milli umsækjenda
var leynileg. En almennt er talið
að Reynir og Sigrún hafi greitt
Klöru sín atkvæði og að Björn og
varamennimir hafi greitt Sveinii
sín. Jóhann Sigurðsson var í
sumarfríi og kom tveimur dögum
eftir að ákvörðunin var tekin.
Margir telja að hann hefði greitt
Klöru sitt atkvæði en ekki Sveini
eins og varamaður hans gerði.
Hann sagði Þjóðviljanum að mál-
ið væri afgreitt hvort sem
mönnum þætti niðurstaðan súr
eða sæt. „Umsækjendur voru
báðir hæfir í starfið og ég hef ekk-
ert meira um málið að segja “
—hmp
son en hann á sæti í stjórn félags-
ins.
Ingi sagði að ljóst væri að hér
þyrfti að koma upp aðstöðu til að
pressa bflhræ og annað brota-,
jám, þannig að hægt verið að
senda það úr landi til endurvinns-
lu. - Við leituðum eftir samstarfi
við fyrirtækið Sindra sem fengis
hefur við svona lagað áður, við
vomm jafnvel tilbúnir að borga
með þessum rekstri. Þeir gerðu
okkur ákveðið tilboð sem við
höfnuðum. íslenska stálfélagið
hefur líka verið inni í myndinni,
sagði Ingi, en bætti við að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar
um hvað ætti að gera við brota-
járnið.
Fari svo að Selalda verði valin
verða þeir sorphaugar ekki opnir
almenningi eins og nú er heldur
verða reistar tvær mót-
tökustöðvar, önnur væntanlega á
lóð gönilu sorpeyðingarstöðvár-
innar í Ártúnshöfða. Þar verður
sorpið pressað og síðan ekið með
það út í Selöldu við Krísuvík. -sg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. júlí 1988
Blöðin
hækka enn
Frá og með 1. júlí verður verðlag
Þjóðviljans sem hér segir: Mán-
aðaráskrift kr. 800. Grunnverð
dálksentimetra auglýsinga kr.
530 á virkum dögum en kr. 560 á
sunnudögum. í lausasölu kr. 70
eintakið.