Þjóðviljinn - 05.07.1988, Side 6

Þjóðviljinn - 05.07.1988, Side 6
SKAK Kasparov sigraði með tæp 80% Jóhann Hjartarson hafnaði í 14.-16. sœti Garrí Kasparov vann landa sinn Andrei Sokolov í síðustu um- ferð heimsbikarsins í Belfort í Frakklandi. Hann gat tryggt sér sigur á mótinu með jafntefli en tefldi til þrautar og vann sannfærandi sigur. Vinningshlut- fall Kasparovs, 11 V2 v. af 15 mögulegum er stórglæsilegt og ætti hann að bæta sig a. m. k. 10 Elo-stigum sem vill þýða að hann er alveg við að ná Fischer sem var með 2785 Elo-stig eftir „einvígi aldarinnar" í Reykjavík. Kaspar- ov er vel að sigrinum kominn enda tefldi hann langbest kepp- enda. Aðeins tapið fyrir Karpov skyggir á. Þetta er fjórða mótið sem Kasparov tekur þátt í eftir að hann varð heimsmeistari haustið 1985 og hefur orðið í efsta sæti í þeim öllum og raunar unnið sigur í hverju því móti sem hann hefur tekið þátt í síðan í Tilburg 1981. Aðeins tvisvar hefur hann mátt deila efsta sætinu með öðrum og langflest mótin hefur hann unnið með miklum yfirburðum. Anatoly Karpov vann Boris Spasskí í síðustu umferð með svörtu og hlaut 10Vi vinning úr 15 skákum og má vel við árangur sinn una. Spasskí lék af sér manni í eilítið betri stöðu og tapaði þar sinni einu skák. Þriðji maður, Eistléndingurinn Jaan Ehivest, kom á óvart með góðri taflmennsku sinni. Hann var um nokkurt skeið einn í efsta sæti en tapaði. Úrslit í síðustu umferð sem tefld var á sunnudag- inn urðu þessi: 15. umferð Kasparov - Sokolov 1:0 Short - Jusupov 1:0 Ehlvest - Nogueiras 1/2:1/2 Beljavskí - Ribli 1/2:1/2 1. Andersson - Húbner V2.V2 Ljubojevic - Timman Vr.Vz 2. Jóhann - Speelman 1/2:V2 3. Spasskí - Karpov 1:0 4. Lokaniðurstaðan varð þá þessi: 1. Kasparov IIV2 v. (af 15) 2. Karpov 10'/2 v. 3. Ehlvest 9 v. 4.-7. Ribli, Húbner, Sokolov og Spasskí allir með 8 vinninga. 8. Short 7‘/2 v. 9. Speelman 7 v. 10,- 13. Ljubojevic, Andersson, Nog- ueiras og Beljavskí 6V2 v. hver. 14. -16. Jóhann, Jusupov og Tim- man 5*/2 v. hver. Jóhann náði bestum Sonneborg-Berger stigum þre- menninganna. Jóhann er tæplega ánægður með frammistöðu sína enda af- hjúpuðust hvað eftir annað gloppur í skákstíl hans. Það er mikið verk framundan þar til ein- vígið við Karpov hefst í Seattle í Bandaríkjunum í janúar á næsta ári. Næsta heimsbikarmót fer fram í Reykjavík í október-mánuði nk. og þá mætir Kasparov til leiks. Ég hef lagt mikið uppúr skákum hans frá mótinu Belfort og ekki að ástæðulausu, því hann er í raun sérstök „deild“ í skák- heiminum og því sannkölluð veisla fyrir skákunnendur að sjá hann að tafli. Skákir hans gneista hreinlega, hraðinn og krafturinn er slíkur að hrein unun er á að horfa. Ég læt fylgja hér tvær af skákum hans frá Belfort. Fyrri viðureignin er úr 9. umferð en þar mætir hann júgóslavneska stórmeistaranum Ljúbojevic. Júgóslavinn hefur hárbeittan skákstíl en fær ekki staðist leiftrandi taflmennsku heims- meistarans. Kasparov skiptir strax í fluggír, 13.-19. leikur! Ljubojevic nær þó að mynda sér mótvægi á kóngsvæng, 22. Bf6 sem Kasparov svarar á rólegan hátt, 22... Bf8. Eftir að Ljúboje- vic stofnar til uppskipta í 24. leik má hann verjast peðaframrás svarts á drottningar væng. Hann reynir að halda jafnvæginu með 26. Bd6 og 28. e5 en í 29. leik fellur sprengjan. Kasparov fóm- ar hrók (sjá stöðumynd). 30. Hxd6 strandar á 30. .. Bf5+! 31. Kcl-bxa2! og vinnur eða 30. Dxd6-Bf5+ 31. Kcl-bxa2 32. Da3-De4. 33. Bd3-Df4+ 34. Kc2-He2+! o. s. frv. Eftir að svartur hefur unnið peð ræður hvítur ekki neitt við neitt og Kasparov knýr fram uppgjöf með glæsilegum lokahnykk, 38. .. Bh3! Stórkostleg skák. Lubomir Ljubojevic - Garrí Kasparov Sikileyjarvörn 6. g4-Rc6 7. g5-Rd7 7. Hgl-Be7 9. Be3-0-0 10. Dd2-a6 11. 0-0-0-Rxd4 12. Bxd4-b4 13. f4-b4 14. Re2-Da5 15. Kbl-e5 16. Bf2-Rc5 17. De3-Be6 18. Rcl-exf4 19. Dxf4-Hac8 20. Bd4-Hfe8 21. Rb3-Da4 22. Bf6-Bf8 23. Hg3-Dc6 24. Rxc5-dxc5 25. Be5-c4 26. Bd6-b3 27. c3-Hcd8 28. e5-Bxd6 29. exd6 abcdefgh opnast fá biskuparnir að njóta sín. Sokolov býður hrókakaup en Kasparov er ekkert að flýta upp- skiptunum, heldur hirðir peð í leiðinni. 35. Bxe4!, og það kemur á dag að hrókurinn á hvergi grið- land. Þetta er klassískt dæmi um opna stöðu þar sem riddarinn má sín lítils gegn biskupi og Andrei Sokolov leggur niður vopnin þeg- ar hann sér fram á að geta ekki varið veikt a-peð sitt. Garrí Kasparov - Andrei Sokolov Enskur leikur 1. c4-Rf6 2. Rc3-e6 3. e4-c5 4. e5-Rg8 5. Rf3-Rc6 6. d4-cxd4 7. Rxd4-Rxe5 8. Rdb5-a6 9. Rd6+-Bxd6 10. Dxd6-f6 11. Be3-Re7 12. Bb6-Rf5 13. Dc5-d6 14. Da5-De7 15. 0-0-0 0-0 16. f4-Rc6 17. Da3-e5 18. g4-Rfd4 19. Rd5-Df7 20. f5-g6 21. Hgl-gxf5 Þeir báru höfuð og herðar yfir aðra þátttakendur í Beljavskí. Kasparov hlaut 11!/2 v. úr 15 skákum og Karpov (sitjandi) 101/2 v. Ljósm.: C. Jaeg. 29. .. Hxd6 30. Hcl-Dc5 31. Kal-Hed8 32. He3-Hdl 33. Hel-Hxel 34. Hxel-Da5 35. a3-Dd5 36. Be2-g6 37. h4-Dd2 38. Dfl-Bh3 39. Dgl-He8 - og Ljubojevic gafst upp. Skák Kasparovs og Sokolovs úr síðustu umferð er ekki ósvipuð þessari. Sokolov fær að bragða á þeim meðulum sem Kasparov hafði sullað saman á rannsókna- stofu sinni áður en hann hélt til einvígisins við Karpov. Peðfórn- in í 6. leik er þekkt en 13. Dc5 er nýstárlegur leikur. Kasparov þenur stöðu sína til hins ítrasta, 16. f4, 18. g4, 20. f5 en Sokolov bregst hart við með 20. .. g6. 22. leikur Kasparovs, g4-g5, g5 er stórskemmtilegur. Pegar taflið 22. g5-Kh8 23. gxf6-Be6 24. Dxd6-Bxd5 25. cxd5-Dxf6 26. Dxf6-Hxf6 27. Kbl-Rd8 28. Bc5-Hc8 29. Be7-HÍ7 30. Bd6-Rf3 31. Hg3-e4 32. Be2-Hf6 33. Be2-Hf6 34. Bxf3-Hxg3 35. Bxe4-fxe4 36. hxg3-Kg7 37. Hd4-Rf7 38. Hxe4-Hd8 39. He7-Hxd5 40. Hxb7-h5 42. Ha7-a5 42. a4 - og Sokolov gafst upp. heimildir stjómar hennar til hækkunar raforkuverðs eru eins og hjáróma skvaldur í ljósi þess sem stjórnarformaðurinn er að undirbúa í umboði ríkisstjórnar- innar þessa dagana. Pjóðhagsleg úttekt bannorð Þegar óbreyttir alþingismenn gerast svo djarfir að gera á Al- þingi tillögur sem taldar eru hafa kostnað í för með sér, er þeim skylt að lögum að láta fylgja mat frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun á líklegum útgjöldum vegna hug- mynda sinna. Þegar hins vegar stjórnvöld eru að innsigla samning við útlend- inga um hagkvæmniathugun á nýju risaálveri er það gert án þess nokkur þjóðhagsleg úttekt hafi farið fram á þessum áformum. Tillaga sem við þingmenn Al- þýðubandalagsins fluttum á síð- asta Alþingi um slíka úttekt fékk engar undirtektir stjórnarliða. í umræðu um tillögu okkar sagði Friðrik Sófusson iðnaðarráð- herra m.a.: „Málið kemur hingað til þings- ins þegar það er komið á það stig að Alþingi þarf að taka afstöðu til málsins og þá gefst tími til að fara ofan í alla þætti þess. Það sem skiptir öllu máli er að við verðum ekki að vingsast með þetta mál fram og til baka. Það er komið nóg af því að hika í þessum efn- um... Það er sjálfsagt þegar sá tími kemur að gefa upplýsingar um þessi mál. Sá tími er ekki kominn. Það geta liðið ár þangað til ástæða er til þess að menn fylg- ist með málum ofan í kjölinn. Auðvitað verður að gefa þeim aðilum frið til að fara með þetta mál sem nú gera það á ábyrgð iðnaðarráðuneytisins.“ Gagnstætt því sem iðnaðarráð- herrann heldur hér fram, verður það að teljast skylda fram- kvæmdavaldsins að veita Alþingi upplýsingar um þessi áform. Þingið sjálft ætti auðvitað að fjalla um þau og það hið fyrsta, þar eð hugsanlega kemur til þess kasta um ákvarðanir innan árs. Grandskoða verður alla þætti þessa máls, m.a. af óháðum aðil- um, eins og venja er til annars staðar, í stað þess að láta örfáa trúnaðarmenn stjórnarflokkanna eina um það. Stórfelld áhrif á byggðaþróun Það þarf ekki hagspekinga til að sjá að framkvæmdir af því tagi sem hér um ræðir munu hafa gíf- urleg áhrif á þjóðarbúskapinn og allar efnahagsstærðir á meðan á þeim stendur og til frambúðar. Þær kalla á mikil umsvif á peninga- og vinnumarkaði, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu, til viðbótar við það ástand sem þar hefur ríkt um skeið. Ef efnahags- kerfið á ekki að fara gersamlega úr böndunum, þar á meðal verð- bólga og vaxtastig, hlýtur að koma til stórfelldur samdráttur í öðrum fjárfestingum um allt land. Meðal þess sem rækilega þyrfti að athuga eru áhrifin sem bygg- ing álbræðslu og virkjana eru lík- leg til að hafa á byggðaþróun í landinu. Þar hafa menn m.a. til samanburðar byggingu álvers fsal á sjöunda áratugnum, en hér er um margfalt meiri umsvif að ræða. Líklegt er að mannafli sem á einn eða annan hátt yrði bund- inn við þessar framkvæmdir geti skipt þúsundum þegar mest yrði umleikis. Þessar framkvæmdir í þágu er- lendrar stóriðju munu þrengja mjög að þróun innlendra at- vinnuvega, m.a. sjávarútvegsins. Þær eru því bein ögrun við alla viðleitni til að koma á jafnvægi í byggð landsins og til að stöðva þann mikla fólksflótta, sem nú á sér stað frá landsbyggð til höfuð- borgarsvæðis. Um raforkuverðið og væntan- lega samninga um það verður svo fjallað síðar. 4 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. júlí 1988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.