Þjóðviljinn - 05.07.1988, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 05.07.1988, Qupperneq 13
ERLENDAR FRÉTTIR Persaflóaárásin Fordæmd um allan heim Bandaríkjamenn skjóta niður farþegaflugvél með 290ferðamönnum. Héldu sig skjóta á F-14 orustuflugvél. Hefur engin áhrifá samskipti stórveldanna Óttast var í gær að íranir eða aðrar Arabaþjóðir óvinveittar Bandaríkjunum myndu grípa til hefndaraðgerða vegna þess að bandarískt herskip skaut niður íranska farþegaflugvél á sunnu- daginn yfir Persaflóa. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Javier Per- ez De Cueilar, fordæmdi athæfi Bandaríkjamanna. Hann skoraði Alþjóðaverslun Bömtil kynlífs- afþreyingar Frjáls verslun lœtur ekki að sérhœða. Enginn samdráttur ísölu barna á milli landa. Hagnaður fyrir h vert selt barn á fceti nemur hundruðum þús- unda króna Verslun með börn er ein ábat- asamasta grein alþjóðaverslunar um þessar mundir. Svo mikill er hagnaðurinn að hann nemur billjónum dollara á ári hverju og kemst einna helst í samjöfnuð við vopna- og eiturlyfjaverslun sem hingað til hafa verið taldar meðal ábatasömustu greina alþjóðavið- skipta. Líflegust er barnaverslun- in milli þriðja heimsins og Vestur- landa, en börnin eru aðallega keypt til kynlífsafþreyingar full- orðinna ýmist í hórukössum eða heimahúsum. Innkaupsverð barns er tæpar 2000 íslenskar krónur og gang- verðið og í endursölu á Vestur- löndum fást um 460.000 til 920.000 krónur fyrir barn á fæti. Þessar upplýsingar komu m.a. fram á fundi ráðherra aðildar- ríkja Evrópuráðsins í Lissabon. Til marks um hversu arðvæn- leg verslun er hér á ferðinni, benda sérfræðingar sem láta sig þessi mál varða, að á kynlífs- markaðnum sé unnt að krefjast allt að fimm sinnum hærri þókn- unar fyrir „næturgreiða" sem veittur er af börnum, en þegar fullvaxnar vændiskonur og karlar eiga í hlut. - Þegar hagnaðurinn er slíkur eins og í barnavændinu, er ekki nema von að svona fari. Þessi verslun er hliðstæð eiturlyfja- og vopnaversluninni. Það virðist enginn skortur á fólki sem lítur á börn fyrst og fremst sem verslun- arvöru, segir hollenski þingmað- urinn Stoffellen og einn af sér- fræðingunum á Lissabonfundin- um. Stoffelen bendir á að börnum sé rænt í löndum þriðja heimsins og þau flutt á laun eða á fölskum pappírum til Vesturlanda. Jafn- framt er ekki óalgengt að fátækir foreldrar selji börnin til Vestur- landa í þeirri vissu að þannig verði þeim tryggð björt framtíð. -rk/reuter á alla aðila að fara varlega í þessu spennuástandi sem nú ríkti á Persaflóa. Iranir og aðrar óvinveittar þjóðir Bandaríkjunum kröfðust þess að áhöfn herskipsins, Vinc- ennes, yrði dregin fyrir dómstóla og að greiddar yrðu bætur fyrir flugvélina sem hún grandaði og það saklausa fólk sem hún drap. Þá voru uppi háværar kröfur um að Bandaríkin drægju herflota sinn út úr Persafóa þar sem hann gerði ástandið aðeins ótryggara og yki hættuna á því að styrjald- arátökin mögnuðust og dreifðust út. Að sögn Sovétmanna hefur þetta hörmulega slys enga breytingu í för með sér á hlý- legum og batnandi samskiptum Sovétríkjanna og Bandaríkjanna að undanförnu. „Þetta hins vegar undirstikar það sem við höfum sagt að undanförnu: Að aukin umsvif bandaríska hersins á þess- um slóðum koma í rauninni í veg fyrir að möguleiki sé á að semja um pólitíska lausn í þessari deilu. Bandarísku herskipin valda því aðeins að það kviknar fyrr í þess- ari púðurtunnu. Ef hlustað hefði verið á okkar varnaðarorð í tíma þá hefði þessi hræðilegi atburður ekki átt sér stað þann 4. júlí,“ sagði í yfirlýsingu Sovétmanna. Þeir þvertóku fyrir það að þetta atvik væri á einhvern hátt sambærilegt við það þegar Sovét- menn skutu niður farþegavél frá S-Kóreu fyrir nokkrum árum. „S- kóreanska vélin flaug ljóslaus í myrkri og var komin langt út fyrir venjubundna flugleið inn í okkar lögsögu og í nánum tengslum við njósnaflugvél. Þessi vél var hins vegar skotin niður yfir sínu heimalandi ein á ferð á hefð- bundinni flugleið um hábjartan dag í góðu skyggni." Bandaríkin voru fordæmd um allan heim í gær fyrir að skjóta vélina niður, einnig af helstu bandamönnum sínum. Með flug- vélinni voru 290 manns þar af 57 börn. Stjórnendur bandaríska herskipsins, Vincennes, héldu að farþegavélin sem var af Airbus A-300 gerð væri óvinveitt F-14 orustuflugvél frá íran. Bandaríkjamenn voru á varð- bergi gegn hefndarráðstöfunum í sendiráðum sínum um allan heim í gær. Óttast var að vestrænir gísl- ar í Mið-Austurlöndum fengju ef til vill að kenna á framferði bandarísku hermannanna á Pers- aflóa. Fyrstu viðbrögð í Washington þóttu nokkuð klaufaleg og víst er að þau ollu mikilli reiði í íran. í fyrstu báru Bandaríkjamenn því við að flugvélin hefði verið komin langt af hefðbundinni flugleið. Þess vegna hefðu viðbrögð stjórnenda bandarísku freygát- unnar verið eðlileg. Síðar kom í ljós að þetta var rangt. Þá var það aðeins olía á eldinn að lýsa yfir samúð með fjölskyldum þeirra sem voru drepnir. Reagan Bandaríkjaforseti hefur þó viður- kennt að hér hafi verið um slys að ræða og það verið staðfest að bandarísku hermennirnir héldu sig vera að skjóta niður orustu- flugvél. Reuter/-gís. Moskva Sigur fyrir Gorbatsjov Búin tilforsetastaða, endurnýjunarregla tekin upp, minnismerki umfórnarlömb Stalínstímans reist í Moskvu Flokksráðstefnan í Moskvu var sigur fyrir glasnost og perest- rojku að sögn Gorbatsjovs aðal- ritara í fundarlok, og er undir það tekið af hlutlægari vitnum, - koma þar bæði til umræður á ráðstefnunni, atkvæðagreiðslur í alvöru í lok hennar og samþykktir hennar, sem gætu leitt til tals- verðrar uppstokkunar í Sovét. Meginbreytingar felast í til- flutningi valda frá flokknum til ráðanna sem nú eiga að verða að raunverulegum þingum en hafa hingaðtil verið fyrst og fremst til skrauts. Kjósa á í ár til embætta í flokknum og endurskipuleggja hann með tilliti til nýrra valda- skipta mili flokks og ráða. Æðsta ráðið á að fjalla um stjórnkerfis- breytingar í haust, og í apríl á næsta ári á að koma saman ríýtt þing þarsem 2250 fulltrúar kjósa forseta æðstaráðsins. Sá forseti skipar síðan forsætisráðherra, kemur fram fyrir hönd ríkisins, er æðsti stjórnandi hersins, og minnir um margt á bandaríska forseta eða franska. Aðalritari flokksins virðist eiga að verða sjálfkrafa forseti, og sú regla gildir einnig í hverju lýð- veldi. Þetta ákvæði vakti and- stöðu á flokksþinginu og greiddi hópur fulltrúa atkvæði gegn því, - sem varð reyndin með fleiri til- lögur og er einsdæmi í síðari tíma sögu Kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna. Meðal breytinga innanflokks er einna mikilvægast að sam- þykkt var regla sem bannar meira en tíu ára setu í sama starfi innan flokksins og tekur það til allra stiga. Bannið er ekki afturvirkt og gefur til dæmis Gorbatsjov færi á að vera aðalritari flokksins til 1999. í lokaræðu sinni á flokksráð- stefnunni hét Gorbatsjov því að í Moskvu yrði reist minnismerki um fórnarlömb ógnarstjórnar Stalínstímans sem mjög bar á góma á ráðstefnunni. Gorbatsjov lagði ennfremur mikla áherslu á að Sovétmenn létu hendur standa frammúr ermum og tækju strax til við þau verk sem hin einstæða ráðstefna vísaði á. Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla Við Menntaskólann við Sund er laus til umsóknar stundakennara- staða í eðlisfræði. Upplýsingar eru veittar í símum: 35519, 33419, 44705 og 32858. Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti eru lausar kennarastöður í íþróttagreinum, stærðfræði og hálf staða í matvælagreinum. Þá vantar stundakennara í íslensku, rafeindavirkjun, rafvirkjun og ýms- um öðrum greinum. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans eftir 10. ágúst. Við Flensborgarskóla í Hafnarfirði eru lausar stundakennara- stöður í eftirtöldum greinum: eðlisfræði, stærðfræði, vélritun, bók- færslu, fjölmiðlun og latínu. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 20. júlí næstkomandi. Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum viðkomandi skóla. Þá er umsóknarfrestur á áður auglýstri kennarastöðu í ensku við Flensborgarskóla í Hafnarfirði framlengdur til 8. júlí. Menntamálaráðuneytið íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu íþróttafulltrúa. Umsóknir, er m.a. greini menntun og fyrri störf skulu berast á bæjarskrif- stofuna, Strandgötu 6 eigi síðar en 14. júlí n.k. Nánari upplýsingar gefa bæjarritari og íþróttafull- trúi. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Baðvörður Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu baðvarðar við Sundhöll Hafnarfjarðar. Um- sóknir skulu berast á bæjarskrifstofuna, Strand- götu 6 eigi síðar en 14. júlí n.k. Nánari upplýsing- ar veita íþróttafulltrúi og forstöðumaður sundhall- ar. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði Blaðburðarfólk | r 4 * ress. Efþúert morgunh Hafðu þá samband við afgreiðslu Þjóðviflans, sími 681333 Laus hverfi víðsvegar um borgina Þriðjudagur 5. júlí 1988 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.