Þjóðviljinn - 06.07.1988, Blaðsíða 2
__________________FRETTIR__________________
Heilbrigðismál
Tannlæknadeild lögð niður
Samið verði við erlenda skóla um menntun tannlækna.
Sjúkraþjálfun efld. Heildsala með lyf þjóðnýtt
Ein af fjölmörgum hugmyndum
sem fram komu á heilbrigð-
ismálastefnu Alþýðubandalags-
ins i aprfl og kynntar eru í frétta-
bréfi flokksins, er að tannlækna-
deild Háskólans verði lögð niður.
Samið verði við erlenda háskóla
um menntun tannlækna en rann-
sóknir í tannlækningum flytjist til
læknadeildar. Þeim fjármunum
sem sparast með þessu verði var-
ið til eflingar menntunar sjúkra-
þjálfara við skólann.
Matthías Halldórsson læknir á
sæti í nefnd sem fjallar um
heilbrigðismál fyrir miðstjórn-
arfund Alþýðubandalagsins í
haust. Hann sagði í samtali við
Þjóðviljann að menntun tann-
lækna væri dýrust allrar
menntunar í landinu. Hann sagð-
ist hafa heyrt að hún væri jafnvel
dýrari hér en í Bandaríkjunum.
Nærtækt væri að semja við Svía
þar sem tannlæknadcildir í Sví-
þjóð stæðu hálftómar vegna mett-
unar tannlæknaþarfarinnar þar.
Jónas Ásmundsson bókari Há-
skólans sagði Þjóðviljanum að
rekstur tannlæknadeildar hefði
kostað 26 milljónir á síðasta
námsári. Alls voru 62 nemendur
skráðir í deildina en töluverður
hluti þeirra fellur út strax á fyrstu
önn. Fjárveiting til tannlækna-
deildar verður rúmar 31 milljón á
næsta skólaári.
Til samanburðar má nefna að
sjúkraþjálfunin kostaði 10
milljónir á síðasta námsári og
hækkar fjárveiting til hennar um
800 þúsund fyrir næsta ár. í
sjúkraþjálfun voru skráðir 68
nemendur á síðasta námsári. Þá
vekur athygli að hjúkrunarfræðin
kostaði svipaða upphæð og
tannlækningarnar eða 24
milljónir en í hjúkrunarfræði
Lektorsstaðan
voru 276 nemendur á síðasta
námsári.
Matthías lagði áherslu á að
rannsóknir í tannlækningum
þyrftu ekki að flytjast úr landi
með kennslunni. Rannsóknirnar
mætti flytja til læknadeildar. Þá
er heilbrigðisnefndin með til-
lögur um aukið forvarnarstarf í
heilbrigðismálum og bendir á að
til að ná markmiðum um aukið
heilbrigði þurfi að efla allt
forvarnar- og fræðslustarf. Lagt
er til að 200% skattur verði settur
á innfluttning sykurs og skattur-
inn síðan notaður til að greiða
niður samfelldan skóladag og
hollar skólamáltíðir.
Matthías sagði það skoðun sína
að þjóðnýta ætti heildverslun
með lyf. Þá ættu læknar á heilsu-
gæslustöðvum að geta séð um
lyfjasölu án ágóðahluta. Land-
læknir hefði viðrað þá hugmynd
að lyfjafræðingur yrði á hverri
heilsugæslustöð. En Matthías tel-
ur það vannýtingu á menntun
lyfjafræðinga þar sem lyfsala sé
klárt afgreiðslustarf.
Matthías er læknir á Hvamms-
tanga. Hann sagði lyfjafyrirtækin
senda sölumenn út á land til að
kynna lyf sín. En þeir gæfu varla
hlutlausa mynd af lyfjunum og
teldu bara upp jákvæðu hliðar
þeirra. Það yrði til mikilla bóta ef
lektorar og prófessorar í lyfja-
fræði færu reglulega um landið og
kynntu lyf fyrir læknum.
Sextán lyfjaheildsölufyrirtæki
eru skráð í landinu. Matthías
sagði að þeim bæri skylda til að
eiga lyf á lager en það vildi stund-
um bregðast. Á tímabili hefði td.
horft til vandræða vegna þess að
asmalyf voru ekki til á lager.
-hmp
Stöðusektir
Sektimar
lækka
Vegna óska frá samtökunum
Gamli miðbærinn var á borg-
arráðsfundi í gær samþykkt að
lækka umtalsvert sektir vegna ó-
löglegrar stöðu bifreiða og einnig
stöðumælasektir. Einnig var
samþykkt að lækka stöðumæla-
gjald úr 50 krónum á hálftímann í
50 krónur á klukkutímann.
Stöðusektir, það er ef maður
leggur ólöglega og það er ekki við
stöðumæli, eru lækkaðar úr 750
krónum í 500 krónur. Stöðumæl-
asektir breytast þannig í með-
förum að séu þær greiddar innan
þriggja daga frá því að þær eru
skráðar er upphæðin aðeins 300
krónur, en þegar meira en þrír
dagar eru liðnir hækkar sektin í
500 krónur. _tt
Iðnó
Borgin með
og ekki
Borgarstjóri vill taka þátt
í viðræðum um nýtingu
Iðnó undir menningar-
starfsemi en ekki leggja
mikið afmörkumtil
starfseminnar sjálfrar
r
Aborgarráðsfundi í gær kom
fram svarbréf borgarstjóra til
menntamálaráðherra vegna ósk-
ar hans um að borgarstjóri til-
nefni fulltrúa sinn í samstarfshóp
menntamáia- og fjármálaráðu-
neytis og borgarinnar um nýtingu
Iðnó til menningarstarfsemi.
Davíð Oddsson borgarstjóri
tilnefndi Gunnar Eydal skrif-
stofustjóra borgarinnar sem sinn
fulltrúa í viðræðuhópinn en í
bréfi sem með tilnefningunni
kom nefnir borgarstjóri að hans
álit sé að Reykjavíkurborg sé
ekki stætt á að leggja mikið fjár-
magn eða atorku í slíkt og þvflíkt
vegna hinna miklu framkvæmda
sem eru á vegum borgarinnar.
Þar var bygging ráðhúss einn af
stóru póstunum. -tt
Rekstur Tannlæknadeildar Háskólans kostaði 26 miljónir á síðasta námsári.
Styðja
deildina
Við ræddum málið og hljóðið í
stjórnarmönnum var mjög
þungt, sagði Sveinn Andri Sveins-
son formaður Stúdentaráðs. En
stjórn SHÍ kom saman til fundar
á mánudagskvöld. Sveinn sagði
stjórnina ekki hafa ályktað um
lektorsskipunina enda yrði fund-
ur í Stúdentaráði á fímmtudag
vegna málsins. Menntamála-
nefnd stúdentaráðs kom saman í
gærkveldi vegna skipunarinnar
og nemendur í stjórnmálafræði
héldu sömuleiðis fund um málið í
gærkveldi.
Sveinn sagði skipun Hannesar
Hólmsteins í lektorsstöðuna,
þvert gegn niðurstöðu dóm-
nefndar, lýsa vantrausti á Há-
skólann. „Þetta er ekki bara van-
traust á dómnefndina og félag-
svísindadeild, heldur vantraust á
Háskólann í heild,“ sagði Sveinn.
Að sögn Sveins má auðvitað
líta á ráðherra sem öryggisventil
þegar skipað er í stöður í Háskól-
anum. „Þetta á einungis við þeg-
ar um greinilegt samsæri er að
ræða en ekki er hægt að sjá að svo
hafi verið í þessu tilviki. Við hljó-
tum að standa með félagsvísinda-
deild í þessu máli. Enda er þetta
afarslæmt fordæmi sem ráðher-
rann gefur,“ sagði Sveinn.
-hmp
Ríkisstjórnin
Látum ekki beygja okkur
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra: Ekkisamstarfefeinná
að beygja sig undir vilja annars. Ekki gott afspurnar að ráðherrar beri
ágreiningsmál sín á torg
r
Eg lít ekki svo á að menn verði
að beygja sig undir vilja eins
aðila í stjórnarsamstarfi. Slíkt er
ekki hægt að segja við samstarfs-
aðila - enda væri þá ekki um sam-
starf að ræða, sagði, sagði Guð-
mundur Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra, er hann var inntur eftir
orðaskaki forsætis- og utanríkis-
ráðhcrra að undanförnu og
þrætu þeirra um það hvor þeirra
hafi fyrst kastað stríðshansk-
anum.
Guðmundur sagði það fráleitt
að einn samstarfsaðili í ríkis-
stjórn, gæti krafist þess að aðrir
gerðu stefnumið hans að sínum,
en haft er eftir Þorsteini Pálssyni í
Morgunblaðinu í gær að Sjálf-
stæðisflokkurinn geti ekki sætt
sig lengur við þá framkomu sem
ýmsir framsóknarmenn hafa sýnt
að undanförnu.
Guðmundur sagðist ekki vilja
svara fyrir þá Þorstein Pálsson og
Steingrím Hermannsson, - það
er best að þeir svari fyrir sig.
- Óneitanlega er það ekki gott
afspumar og þaðan af síður góð-
ur svipur á ríkisstjórnarsamstarfi,
að menn beri sín ágreiningsmál á
torg. Það er farsælast að menn
leysi ágreining innandyra, sagði
Guðmundur.
Hann sagði ekki síður mikil-
vægt að forystumenn flokka sem
ættu í ríkisstjórnarsamstarfi ynnu
af heilindum og eindrægni að
sameiginlegum málum.
- Við munum hlusta á þeirra
sjónarmiðog taka tillit til þeirra.
Ég býst við að ályktun miðstjórn-
arinnar verði tekin til umræðu á
næsta framkvæmdastjórnarfundi
Framsóknarflokksins, sagði
Guðmundur, aðspurður um
stjórnmálaályktun ungra fram-
sóknarmanna þar sem varað er
við afleiðingum áframhaldandi
stjórnarþátttöku Framsóknar-
flokksins.
- Það er hins vegar Ijóst að ein
stofnun í flokknum tekur ekki
ákvörðun um það hvort flokkur-
inn taki áfram þátt í ríkisstjórn-
inni eða ekki.
-rk
Dagvistun barna
Dagheimilin óhult um sinn
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum í gær að fresta enn
frekar umfjöllun um tillögu
meirihlutans í stjórn Dagvista
barna um breytingar á styrkja-
reglum borgarinnar, en þær fela
meðal annars í sér lækkun á
framlagi til dagheimila í einka-
eign.
Tillagan kom fyrir borgarráð
síðasta þriðjudag og var af-
greiðslu hennar þá frestað. Nú
hefur henni því verið frestað í tví-
gang en breytingarnar ættu að
taka gildi um næstu áramót sam-
kvæmt þessari tillögu. Þá mundu
styrkveitingar borgarinnar til
dagheimila lækka, og aðeins
nema 40% af kostnaði við fimm
tíma leikskólarekstur, en ekki
helmingi af heilsdagsplássi eins
og nú er.
Fallist var á að fresta umfjöllun
°g afgreiðslu tillögunnar með því
skilyrði að hún yrði ekki tekin
fýrir fyrr en borgarstjórn kemur
aftur saman í september, en síð-
asti fundur hennar fyrir sumar-
leyfi er á morgun. Ef svo færi að
hún yrði tekin upp fyrir þann
tíma verði að kalla saman borgar-
stjórn á aukafund.
- Mér sýnist sem fólk sé að átta
sig og sé að verða tilbúið til að
skoða þetta mál betur, því er ég
fegin, segir Kristín Olafsdóttir
varafulltrúi Alþýðubandalagsins
í borgarráði og fulltrúi í Dagvist'-
um barna, en þar greiddi hún at-
kvæði gegn tillögunni.
-tt
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mi&vikudagur 6. júlí 1988