Þjóðviljinn - 06.07.1988, Page 13
ERLENDAR FRÉTTIR
Persaflói
Hefði þotan verið bandarísk...
Tildrög árásarinnar enn óljós. Varlegviðbrögð yfirsterkari ííran,krafist fundar i Öryggisráðinu. Thatcher gagnrýnd
Hugsið ykkur viðbrögð Thatc-
her ef Iranir hefðu skotið niður
bandaríska farþegaþotu, sagði
talsmaður Verkamannaflokksins
breska í utanríkismálum í gaer. -
Þá hefði reiði og fordæming ráðið
ríkjum í yfirlýsingu hennar.
Thatcher hefur verið gagnrýnd
í Bretlandi fyrir afar hófsamlega
yfirlýsingu um árásina á Persa-
flóa á sunnudag þarsem banda-
ríska herskipið „Vincennes"
skaut niður íranska þotu og með
henni 290 manns, þaraf 66 börn.
Gerald Kaufman sagði einnig
að ástandið á Flóanum hefði ver-
ið „stórslys að bíða eftir að
verða“, og sýndi réttmæti aðvar-
ana um tilgangslitla og ögrandi
veru Bandaríkjaflota í Persaflóa.
Hann bætti við að atburðurinn
vekti alvarlegar spurningar um
tæknilegan áreiðanleik í banda-
rískum herbúnaði, og er afstaða
breska jafnaðarmannsins nokk-
uð dæmigerð um viðbrögð um
heiminn við atburðinum.
í Bandaríkjunum hafa bæði
ráðamenn, demókratar og fjöl-
miðlamenn verið á lágu nótunum
og talað um „hræðileg mistök“
(Dukakis). Reagan forseti og
Bush frambjóðandi hafa lýst því
yfir að atburðurinn breyti engu
um stefnu Bandaríkjanna á Pers-
aflóa, en búist er við talsverðum
umræðum á þinginu sem kemur
saman í dag eftir hlé, og þá um
það fyrst og fremst hvort Reagan
beri ekki að bera undir þingið
hernað sinn í Persaflóa sam-
kvæmt lögum sem sett voru eftir
Víetnamstríðið um áhrif þingsins
á stríðsrekstur forseta.
íranar hafa ekki gripið til
neinna hefndarráðstafana ennþá
og virðast fremur ætla að vinna
sér pólitísk prik í hlutverki fórn-
arlambsins. Eftir mjög harkaleg
viðbrögð klerksins Montazevi,
sem er opinber arftaki Khom-
einis en virðist fallinn í ónáð,
sagði æðstiklerkurinn að íranar
ættu að berjast gegn Bandaríkja-
mönnum og bandamönnum
þeirra - á vígvellinum gegn ír-
ökum, og Rafsanjani herstjóri og
þingforseti sagði í gær í þingræðu
að menn yrðu að forðast bráð-
ræði í viðbrögðum. Bandaríkja-
menn hefðu vonast til klaufalegra
viðbragða af írönum til að þrýst-
ingur snerist yfir á Teheran-
menn, og það ætti ekki að láta
eftir Reagan. íranar afsöluðu sér
ekki rétti til hefndar en ætluðu að
velja tímann sjálfir. Síðar í gær
kröfðust íranar fundar í Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna, og
sendiherra þeirra í Genf sagði að
Bandaríkjastjórn yrði að borga
skaðabætur og stefna hinum
ábyrgu á herskipinu fyrir rétt.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1981
sem íranar vilia fund í ráðinu, en
síðari ár hafa Iranar lítið beitt sér
á vettvangi SÞ.
Þessi viðbrögð frá Teheran
létti að mestu ótta um að árásar-
innar yrði hefnt með aftöku
bandarískra gísla í Beirút eða
hermdarverkum í bandarískum
farþegavélum.
Enn er óljóst hver tildrög árás-
arinnar á sunnudaginn voru. í
skýrslu sem Reagan sendi þing-
inu í gær segir að árásin hafi verið
gerð í framhaldi af afskiptum
tveggja bandarískra herskipa af
hópi íranskra hraðbáta sem búist
hafi til að ráðast að kaupskipum í
flóanum, skotið hafi verið á her-
þyrlu frá öðru skipinu og eltinga-
leikur orðið milli „ Vincennes" og
fjögurra hraðbáta íranskra þegar
vart varð við þotuna.
Um þetta er ekki deilt, en hins-
vegar efast um að bandaríska
herstjórnin hafi haft rétt fyrir sér
iim það að þotan hafi lækkað
flugið í stefnu að herskipinu.
Flugsérfræðingar á svæðinu teija
útí hött að þotan lækkaði sig átta
mínútum eftir flugtak, - og telja
að hún hefði enn átt að vera að
hækka flugið. Fulltrúi fram-
leiðanda Airbus-vélanna í Frakk-
landi tekur í sama streng í samtali
við Reuters-menn.
Breskur aðmíráll segir að ef tii
vill hafi hávaði um borð.í banda-
rísku freigátunni haft sitt að
segja. Aðmírállinn kom fyrir
skömmu um borð í „Vincennes"
og segist svo frá að tjáskipti fari
fram með gjallarhornum og sé
ekki víst að kafteinninn hafi feng-
ið nægar upplýsingar eða réttar
áður en hann skaut að vélinni.
íranskur byssubátur einsog þeir sem komu við sögu áður en „Vinc-
ennes“ skaut niður farþegaþotuna.
Iranar halda því helst fram að
ráðist hafi verið að farþegaþot-
unni með köldu blóði, en flestir
aðrir fallast á þá skýringu Banda-
ríkjahers að þeir hafi talið vera
um orrustuþotu að ræða, þótt
óljóst sé um ástæðuna.
Bandarísk þingmannanefnd er
komin af stað til að kanna tildrög,
og íranir hafa beðið um
rannsóknarnefnd frá ICAO, Al-
þjóðlegu flugmálastofnuninni,
sem er ein af undirstofnunum
Sameinuðu þjóðanna. Perez de
Cuellar framkvæmdastjóri hefur
tekið vel því erindi.
Júgóslavía
Verkfallsmenn í kröfugöngu
5000 verkamenn í Vukovar mótmæla efnahagsstefnu stjórnvaiaa
Um 5000 verkamenn marser-
uðu fylktu liði um miðborg Kró-
atíubæjarins Vukovar í gær og
mótmæltu efnhagsstefnu stjórn-
valda og kröfðust launahækkana
og annarra réttindabóta sér til
handa.
Frá því að sambandsstjórnin í
Belgrad samþykkti efnahagsað-
gerðir í maí s.l. sem m.a. fela í sér
launalækkanir og að verðlag
verði gefið frjálst, hafa verka-
menn víðsvegar um landið mót-
mælt kröftuglega.
Fremstir í flokki í mótmælaað-
gerðunum í gær stóðu um 2000
verkamenn Borovo leður- og
skóverksmiðjunnar er verið hafa
í verkfalli frá því á laugardag.
Meðal þeirra krafna sem þeir
héldu á lofti var að slakað yrði á
stjórnun og eftirliti með verk-
smiðjunni, dregið yrði úr launa-
mismun og hverskyns sporslum
sem embættismenn eru aðnjót-
andi.
Að sögn Tanjung - opinberrar
fréttastofu Júgóslavíu - hefur
komið til 129 verkfalla í Króatíu
undanfarna fimm mánuði og ver-
kfallsdögum hefur fjölgað til
mikilla muna síðan sambands-
stjórnin greip til hinna illa þokk-
uðu efnahagsaðgerða. Verð-
bólga í Júgóslavíu er sögð um
120%. Fjölmörg fyrirtæki eiga i
rekstrarerfiðleikum og hjá mörg-
um þeirra hefur komið til þess að
ekki hefur verið hægt að greiða
laun og orlof í tíma.
-reuter/rk
Holland
Drottningu sendur tónninn
Elísabet Bretadrotning og Fil-
ipus prins fengu kaldar kveðjur
þegar þau komu til Amsterdam í
gær, en þau eru á ferð um Hol-
land í tilefni þess að þrjár aldir
eru liðnar frá því að Vilhjálmur
af Óraníu sigldi til Englands og
tók þar við konungdómi sem Vil-
hjálmur III.
- Það er ekkert að því að vera
samkynhneigður, hrópaði hópur
mótmælenda sem hafði komið
sér fyrir á Dam-torginu í miðborg
Amsterdam þegar Elísabet og
Filipus voru viðstödd hátíða-
samkomu í tilefni tímamótanna.
Hinir samkynhneigðu vildu
með þessu koma mótmælum á
framfæri vegna nýlegrar laga-
klásúlu í breskum lögum sem ger-
ir sveitarstjórnum kleift að snið-
ganga samkynhneigða þegar
ráðið er í stöður hjá bæ og borg.
Óvenjumiklar öryggisráðstaf-
anir hafa verið gerðar í Hollandi
vegna komu Bretadrottningar til
landsins. Um tveir mánuðir eru
liðnir frá því að breskir hermenn
voru felldir í Hollandi í tilræði
félaga í írska lýðveldishernum og
eru hollensk lögregluyfirvöld á
varðbergi hyggist Lýðveldisher-
inn láta til skarar skíða á nýjan
leik meðan heimsókn hinna tignu
gesta stendur yfir.
-reuter/rk
Harðnandi deilur Ungverja og Rúmena
Aður óþekkt tíðindi í sögu sam-
skipta ríkja Varsjárbanda-
lagsins hafa átt sér stað í Ung-
verjalandi og Rúmeniu. í Búda-
pest fóru 50 þúsund Ungverjar í
mótmælagöngu gegn áformum
Ceaucescus Rúmeníuforseta um
að leggja niður 700 rúmensk þorp
- og eru mörg hundruð þeirra
byggð Ungverjum. Rúmenar
svara með því að loka ræðis-
mannsskrifstofu Ungverja í Cluj
og menningarmiðstöð þeirra í
Búkarest.
Hér er um tvennt að ræða: ann-
arsvegar sögulegar deilur um
yfirráð yfir Transylvaniu, sem nú
er innan landamæra Rúmeníu en
að verulegu leyti byggð Ungverj-
um. Hinsvegar eru þessi
grannríki tvö um svo margt ólík
að menn gætu um stund gleymt
því að bæði hafa um fjörtíu ára
skeið lotið stjórn kommúnista-
flokka, sem eiga völd sín að
þakka framsókn Rauða hersins
sovéska í lok heimsstyrjaldarinn-
ar.
Réttur
minnihlutans
Ungverjar hafa áður kvartað
yfir því að Rúmenar hafi skert
mjög réttindi ungverska minni-
hlutans í landinu - skáldið Gyula
Illyes líkti þeirri meðferð reyndar
þegar fyrir tíu árum við apart-
heidkerfið í Suður-Afríku. Til
dæmis að taka hefur mörgum
menntastofnunum / Ungverja
(sem eru hátt á aðra miljón í
Rúmeníu) verið lokað, og bann-
að er að nota nema rúmensk nöfn
á bæjum þeirra og þorpum. Upp-
ræting 7000 sveitaþorpa telja
Ungverjar muni greiða rothögg
ungverskri menningu í héruðum
sem þeir hafa lengi byggt.
Meðan Ungverjaland hefur
verið einna opnast austurevr-
ópskra þjóðfélaga stjórnar Ce-
aucescu Rúmeníu með aðferðum
geðþóttastjórnar og persónu-
dýrkunar $em engu líkist meir en
stjórnarháttum Stalíns. Efna-
hagsástand í landinu er bágborið
og þá kemur sér það ekki illa fyrir
hann að reyna að fljóta sem
lengst/á rúmenskri þjóðrembu.
Vísar Ceaucescu frá sér öllum að-
finnslum Ungverja sem óleyfi-
legurn afskiptum af innanlands-
málúm. Og að því er varðar þorp-
in 7000, þá sé þar um allsherjar
umbtetur að ræða - minnka eigi
mun á borgum og sveitum með
því að jafna þorpin við jörðu,
stækka akurlendi og flytja íbúana
í blokkir í „landbúnaðar- og iðn-
aðarbyggðum". Eitt sinn voru
Sovétmenn á svipuðum buxum
og Ceaucescu nú - rann það allt
út í sandinn.
Ættland Dracula
Þrætueplið gamla og nýja,
Transylvania (sem er reyndar
ættjörð sjálfs Dracula greifa hins
grimma), tilheyrði Ungverja-
landi í 900 ár. Arið 1919, þegar
austurfísk-ungverska keisara-
dæmið var leyst upp, fengu Rúm-
enar landið í laun fyrir síðbúna
liðveislu sína við bandamenn í
heimsstyrjöldinni fyrri.
Rúmenía og Ungverjaland
börðust svo bæði með Hitler í
heimsstyrjöldinni síðari. En Hitl-
er lét Ungverja fá drjúgan hluta
Transylvaniu aftur að launum
fyrir liðveislu ríkisstjóra þeirra,
Horthys aðmíráls. (Hann reyndi
svo að hugga Rúmena með því að
stinga upp í þá Bessarabíu, sem
tekin var af Sovétríkjunum).
Eftir lok seinna stríðs var svo
ákveðið að Transylvania skyldi
Transylvania er í norðvesturhorni Rúmeníu og tilheyrði ungverska
ríkinu í níu aldir.
aftur heyra undir Rúmeníu.
Ungverjar hafa ekki gert tilkall
til þess að landamærum sé breytt:
en þeir telja að vonum að sér sé
skyit að taka málstað samlanda
sinna í erfiðri minnihlutastöðu.
Þeim mun fremur sem innan Var-
sjárbandalags hefur nú risið
flóttamannavandamál: þegar
hafa 20 þúsund Ungverjar flúið
yfir landamærin frá Rúmeníu og
allar líkur benda til þess að þeim
muni fjölga á næstunni.
áb tók saman.
Mlðvikudagur 6. júlí 1988 ÞJÓOVILJINN - SÍÐA 13