Þjóðviljinn - 16.07.1988, Síða 3
FRETTIR
Byggingamenn
Kannast ekki við hækkun
Útseld vinna trésmiða hefur hœkkað um allt að 29%. Grétar Þorsteinsson: Kaup
mest hœkkað um 16%. Meistarar segjast ekki hafa hœkkað álagningu
Verð á útseldri vinnu trésmiða
hefur hækkað á bilinu
16,33% til 28,41% á tímabilinu
október 1987 tU 19. maí 1988.
Grétar Þorsteinsson formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur
segir kjarasamninga sem gerðir
voru í maí í mesta lagi hafa gefíð
16% launahækkun. En Valgerð-
ur Marinósdóttir hjá Verðlags-
stofnun segir launin hafa hækkað
meira en menn vilji kannast við.
Þann 27.júní barst Félagi
starfsfólks í húsgagnaiðnaði svar
við fyrirspurn til Verðlagsstofn-
unar um hversu mikið útseld
vinna meistara í húsasmíði hefði
hækkað við kjarasamninga bygg-
ingarmanna 19.maí. í svari Verð-
lagsstofnunar kemur fram að
hækkunin er á bilinu 16,33% til
28,41% en meðaltalshækkunin er
í kring um 20% .
Grétar Þorsteinsson segir upp-
hafshækkun trésmiða hafa verið
11,47% við undirritun samnings
og sé þá reiknað með áfanga-
hækkunum júní- og september-
mánaðar. í það heila hefði hækk-
unin verið á bilinu 15 til 16%.
Lægsti taxti sé nú 307,05 krónur á
tímann og hæsti taxti sé 367,55
krónur og væri þá ekki tekið tillit
til desemberuppbótar. Samsvar-
andi tölur í útseldri vinnu eru
575,79 krónur og 658,61 krónur.
Gunnar Björnsson hjá
Meistara og verktakasamband-
inu sagðist ekki kannast við þær
tölur sem koma fram í svari Verð-
lagsstofnunar. Álagning meistara
á útseldri vinnu hefði í raun lækk-
að um 5% vegna ákvæða bráða-
birgðalaga sem heimiliðu ekki
hærri hækkun en 10%. En annars
vildi Gunnar ekki tjá sig um þess-
ar tölur fyrr en hann hefði séð
þær.
Mismunurinn á kauptaxta og
taxta útseldrar vinnu verður ekki
bara skýrður með álagninu
meistara. í mismuninum felast
einnig launatengd gjöld. Gestur
Steinþórsson Skattstjóri í
Reykjavík sagði Þjóðviljanum að
engar breytingar hefðu orðið á
þeim sem leitt gætu til hækkunar
á útseldri vinnu.
Rúnar Guðjónsson hjá Hag-
stofu íslands sagði Þjóðviljanum
að byggingarvísitala hefði hækk-
að um 8,4% þann l.júlí og að
5,2% þeirrar hækkunar væru
vegna samninga byggingar-
manna.
Hvorki meistarar né smiðir
kannast við hækkun á bilinu
16,33% til 28,41% . Allt að 8% af
hækkun útseldrar vinnu trésmiða
eru því óútskýrð.
-hmp
Mönnum ber ekki saman um hvað útseld vinna smiða hefur hækkaö.
Þessir tveir virðast engar áhyggjur hafa af þeim málum. Mynd: Sig.
Stjórnarliðar
Fjáimála-
spekingar
á eftirlaun
- Auðvitað er margt erfitt og
öfugsnúið í efnahagsmálunum, en
sárgrætilegast er þó að mesti
verðbólguvaldurinn,
lánskjaravísitalan fær alltaf að
leika lausum hala og skrúfa upp
vextina, sagði Eggert Haukdal,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
samtali við Þjóðviljann, en í gær
ritar hann hvassyrta grein í DV
um stjórn peningamála.
- Ég er ekki fyrsti maðurinn til
að finna að peningastjórninni til
margra ára, sagði Eggert, sem
ræðst að Jóni Sigurðssyni, við-
skiptaráðherra, Jóhannesi Nor-
dal, Seðlabankastjóra og minni
sá fyrrnefndi í orði og æði meira á
blaðafulltrúa þess síðarnefnda en
yfirmann bankamála.
„Jóhannes Nordal og Jón Sig-
urðsson hafa stýrt hrunadansi
verðbólgunnar í áratugi, enda
verið aðalráðgjafar allra ríkis-
stjórna samkvæmt eigin sögn.
Bezta efnahagsaðgerðin, sem við
íslendingar gætum gert, væri lík-
lega að koma þessum tveim
mönnum á eftirlaun“, segir m.a. í
grein Eggerts. _rk
Lúðvík Jósepsson
Oeðlileg
r
Eg vísa til þeirrar bókunar sem
ég lagði fram fyrr á árinu þeg-
ar gengið var frá ráðningu Sverr-
is Hermannssonar, þar sem ég
mótmælti harðlega greinilegum
afskiptum ríkisstjórnarinnar af
ráðningu bankastjóra Lands-
bankans þar sem samið var um
tiltekna menn í stað þeirra Jónas-
ar og Helga, sagði Lúðvík Jóseps-
son bankaráðsmaður Alþýðu-
bandalagsins í bankaráði Lands-
bankans í samtali við Þjóðvilj-
ann.
afskipti
Lúðvík sat einn hjá við kosn-
ingu Vals Amþórssonar í stöðu
bankastjóra á fundi bankaráðs í
fyrradag. Það voru bankaráðs-
fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks sem lögðu til
að Valur yrði ráðinn og greiddi
bankaráðsfulltrúi Alþýðuflokks-
ins atkvæði með tillögunni.
- Ég mótmæli því að banka-
ráðsmenn fái ekki að vinna sitt
verk heldur sé það ákveðið ann-
ars staðar og því sat ég hjá, sagði
Lúðvík Jósepsson.
Eyjólfur Sigurjónsson
Fagleg sjónarmið réðu
Iþessu máli giltu sömu sjónarm-
ið af minni hálfu og þegar
Sverrir Hermannsson var ráðinn.
Þá voru reyndar tveir umsækj-
endur um stöðuna og afstaða mín
réðst þá af faglegum sjónarmið-
um eins og reyndar nú.
Ég studdi ekki Sverri af þess-
um ástæðum og ég styð nú Val
Amþórsson af sömu ástæðum.
Ég hef alltaf látið fagleg sjónar-
mið gilda og tók reyndar ekki
ákvörðun mína fyrr en eftir að ég
sá greinargerð Seðlabankans um
málið, sagði Eyjólfur Sigurjóns-
son fulltrúi Álþýðuflokksins í
bankstjórn Landsbankans.
„Valur mun láta af öllum öðr-
um störfum í fyrirtækjum þeim
sem hann hefur komið nálægt
enda kveður svo á í lögum um
bankastjóraráðningar sem okkur
ber að fara eftir,“ sagði Eyjólfur
að lokum. -gís.
Málning
Allt að 80% verðmunur
Litavermeð dýrustumálningu og viðarvörn. BYKO, Gosog Byggtog búið
r
Iverðkönnun sem Verðlags-
stofnun gerði í byrjun júlí kom í
|jós að alit að 25% verðmunur er
á innlendri málningu í verslunum
á höfðuðborgarsvæðinu. Þá kom
fram að allt að 80% verðmunur
er á innfluttum viðarvarnarefn-
um sem að nokkru leyti er vegna
þess að sumar verslanir eru enn-
þá að selja vörur síðan í fyrra.
Könnunin náði til 26 verslana á
höfuðborgarsvæðinu og náði til
21 tegundar innlendrar útimáln-
ingar og viðarvarnarefna. í ljós
kom að verslunin BYKO á Ný-
ódýrastir
býlavegi var oftast með ódýrustu
vörurnar eða í 7 tilvikum af 17
vörutegundum sem þar fengust.
Verslanirnar Gos við Nethyl og
Byggt og búið í Kringlunni voru
með lægsta verðið á 6 vöruteg-
undum af 9 sem hjá þeim fengust.
Verslunin Litaver Grensásvegi
var aftur á móti oftast með dýr-
ustu vörurnar. Þar voru 14 vöru-
tegundir dýrastar á höfuðborgar-
svæðinu af þeim 17 sem Litaver
hafði í boði. Þá var Liturinn við
Síðumúla með hæsta vöruverð á
11 tegundum af 16.
f öllum tilfellum var miðað við
staðgreiðsluverð. Flestar versl-
anirnar veita magnafslátt en mis-
jafnt er á milli verslana hvað
hann er hár og við hvaða magn
hann miðast. Aðrar verslanir
veita staðgreiðsluafslátt og er
tekið tillit til þess í könnuninni.
í tilkynningu frá— Verðlags-
stofnun segir að neytendur geti
náð hagstæðari kaupum með því
að bera saman vérð miðað við
magn og greiðsiuskilmála.
-hmp
Helgarpósturinn
Kært til ríkissaksóknara
Skattgreiðslum starfsmanna ekkiskilað til Gjaldheimtunnar. Lögfrœðingur BÍ
óskar eftir opinberri rannsókn
verður líklega tekin ákvörðun um eða óskað eftir gjaldþrota-
hvort haldið verði áfram útgáfu skiptum félagsins. _rk.
Akranes
Útilaug í brúkíð
Ný 25 metra útisundlaug vígð í dag. Langþráð bið
bœjarbúa á enda
Stjórn Blaðamannafélagsins fól
í gær lögmanni sínum Svölu
Thorlacius, að fara fram á opin-
bera rannsókn rikissaksóknara
vegna meints fjárdráttar Goðgá-
ar útgáfufélags Helgarpóstsins.
í ljós hefur komið að frá febrú-
ar sl. til mafloka þegar blaðið
hætti að koma út, hefur ekki ver-
ið staðið skil á sköttum starfs-
manna sem dregnir voru af
launum þeirra. Nemur sú upp-
hæð rúmri einni miljón á þessum
tíma. Fyrrum starfsmenn blaðs-
ins eiga enn inni ógreidd laun hjá
blaðinu uppá miljónir króna.
Goðgá hf. fékk heimild til
greiðslustöðvunar í sl. mánuði og
gildir sú stöðvun í tvo mánuði. Á
framhaldsaðalfundi félagsins sem
haldinn verður n.k. fimmtudag
Akurnesingar vígja útisund-
laug með öllu tilheyrandi í
dag. Þar með er langþráð bið
bæjarbúa eftir nýju mannvirki til
að iðka sundmenntina á enda, en
bæjaryfírvöld afréðu að leggja í
bygginguna árið 1982.
Sundlaugin, sem er staðsett á
Jaðarsbökkum, er 25 metrar á
lengdina. Að auki er vaðlaug,
fimm heitir pottar, tvö búnings-
herbergi og gufubað í hinu nýja
sundmannvirki.
Laugin verður formlega vígð í
dag kl. 11 og strax á eftir verður
laugin almenningi til sýnis.
Laugardag 16. júlí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3