Þjóðviljinn - 21.07.1988, Side 1

Þjóðviljinn - 21.07.1988, Side 1
Fimmtudagur 21. júlí 1988 164. tölublað 53. árgangur Lánskjaravísitalan Skuldafjötramir ríghertir 10% hœkkun lánskjara umfram laun vegna bráðabirgðalaganna. Lánskjaravísitalan kemur til meö aö hækka 10% umfram laun á gildistíma bráðabirgðalaganna, frá maí í vor og fram í apríl á næsta ári. Þannig hækkar skulda- byrði húsnæðiskaupenda um 100.000 krónur af hverri miljón í verðtryggðum lánum. Þannig leiða bráðabirgðalögin til mynd- unar nýs misgengishóps, en hið stórfellda misgengi lánskjara og launa í stjórnartíð Steingríms Hermannsonar leiddi til fjölda nauðungaruppboða og gjald- þrots íbúða- og húsnæðiskaup- enda. í nefndaráliti Verðtrygging- arnefndar, sem gert var opinbert í gær, er því spáð að migsgengi lánskjaravístölu og launa verði 10 af hundraði á gildistíma bráða- birgðalaganna. Nefndin, sem fal- ið var m.a. að kanna breytingar á grundvelli lánskjaravístölunnar, eða afnám verðtrygginga á fjár- hagsskuldbindingum, kemst að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til afnáms verðtryggingar, nema þá í tengslum við umfangs- miklar efnahagsaðgerðir. - Þessi niðurstaða fer illa í okkur framsóknarmenn og líkist helst pöntuðu áliti. Það er öllum ljóst að lánskjaravísitalan á sinn þátt í verðbóigunni, segir Guðni Ágústsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, en framsóknar- menn hafa lagt til að grundvelli lánskjaravísitölunnar verði breytt ellegar að verðtryggingar af fjárhagsskuldbindingum verði afnumdar. Guðni segir framsóknarmenn ekki búna að segja sitt síðasta orð í þessum efnum. - Það á eftir að ræða þetta á hinum pólitíska vett- vangi og ég trúi ekki öðru en að menn hafi burði til að taka á þessu af festu. Menn brenna sig ekki nema einu sinni á sama soðinu. Þá var ástandið hreint hörmulegt, segir Alverið Ráðheirar hætta deilum Ekki Ijóst hvort Isal þarf starfsleyfi. Fyrst um sinn þarf ísal ekki að sækja um starfsleyfi eins og önnur fyrirtæki í iðnaði. Heilbrigðisráðherra og iðnaðar- ráðherra hafa ákveðið að sá fyrr- nefndi vinni að tillögum í sam- vinnu við Hollustuvemd ríkisins um mengunarmál álversins og skili þeim til iðnaðarráðuneytis- ins. Viðræður hefjist síðan við Alusuisse og ísal í haust. Forstöðumaður Hollustu- vemdar segir í samtali við Þjóð- viljann að með þessu sé ekki ljóst hvort álverið þurfi starfsleyfi. Hollustuvemd hefði kosið að láta reyna á það. Hollustuvemd muni haga tillögum sínum eins og hún geri venjulega við starfsleyfistil- lögugerð. Sjá síðu 3 Guðni, en í nefndarálitinu er vís- að til þess að misgengi lánskjara og launa hafi aldrei verið meira en á tíð ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar á árunum 1983- 1984. Sjá síðu 5 116n 112- 108- 104-1 100- 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 Óhugnanlegar staðreyndir. Hlutfall launavísitölu og lánskjaravísitölu miðað við 100 í júní 1979. Rauðaisvæðiðámyndinnisýnirhversu gríðarlegt misgengi launa og lánskjara var á ríkisstjórnarárum Steingríms Hermannsonar 1983-1987 og nú stefnir í sömu þróun undir stjórn Þorsteins Pálssonareftirkaupskerðingarlögin frá því í vor. Margar konur hafa eflaust uppgötvað áður óþekkta leikarahæfileika við undirbúning kvennaþingsins. Hór hafa konur í BSRB brugðið sér í gervi kvenna fyrri tíma, sem unnu myrkranna á milli. Hefur vinnutíminn eitthvað styttst síðan þá? Mynd: Sig. Kvennaþing Margt á döfinni í Osló í lok júlí fara um 800 íslenskar konur á norræna kvennaþingið í Osló og hafa í farteskinu myndar- legt framlag á dagskrá þingsins, sem standa mun í 9 daga. Undaniama mánuði iiafa kon- ur á öllum Norðurlöndunum unnið af krafti við undirbúning þingsins, og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá frá morgni til kvölds. Þar er að finna umfjöllun yfir 200 málaflokka, sem konur hafa kosið að taka fyrir. Jafnréttismálin em ofarlega á baugi og sýnin er á framtíðina. Framlag kvenna til lista af öllum toga verður áberandi á þinginu og sést forsmekkurinn af því á heilmikilli opnunarhátíð í miðborg Oslóar. mj Sjá síöur 7-9 Salmonella Mengar á öllum stigum í skýrslu nefndar á vegum heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að engar reglur em til um eftirlit með slátmn kjúklinga, fóðri og starfsemi alifuglabúa. Salmonellasýkillinn eigi greiðan aðgang að fuglunum á öllum framleiðslustigum og að fram- leiðendur, verkendur og almenn- ingur séu mjög fáfróðir um með- ferð alifugla. Nefndin segir stjómvöld hafa vanrækt þessi mál og átaks sé þörf. Salmonellufaraldur eins og sá sem kom upp á Búðardal um árið sé þjóðfélaginu dýr. Þannig hafi lyfja- og aðhlynningarkostn- aðurinn í Búðardal verið um 4 milljónir. Meðal þess sem nefnd- in leggur til er að hjá Búnaðarfé- laginu starfi sérstakur ráðunaut- ur í alifuglarækt og embætti dýra- læknis í alifuglasjúkdómum verði stofnað. Sjá síðu 3 I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.