Þjóðviljinn - 21.07.1988, Page 4

Þjóðviljinn - 21.07.1988, Page 4
FRETTIR FLÖAMARKAÐURINN Gerist áskrifendur að Tanzaníukaffinu frá Ideele Im- port. Áskriftarsími 621309. Goft mál í alla staði. Kaffið sem berst gegn Apartheid. Ford Escort GL 1300 Fallegur, vel útlítandi Ford Escort GL 1300 árg. '83 til sölu. Innfluttur frá Þýskalandi fyrir ári. Ekinn 52.000 km. Ný sumardekk og ágæt nýleg vetrardekk fylgja. Útvarp. Bíll í toppstandi. Verðtilboð. Upplýsing- ar í síma 681310 eða 681331 á daginn. Ki&afeil í Kjós Hestaleiga Skemmtilegur reiðtúr á góðum hestum í fallegu umhverfi. Opið alla daga. Barnagæsla. íbúð til leigu til styttri dvalar á staðnum. Góð fyrir ferðafólk. Sími 666096. Bækur, bækurl Þeim sem eru að taka til í bóka- skápnum eða á háaloftinu er bent á að bækur bráðvantar til nota við gerð nýrrar, stuttrar kvikmyndar. Alls kyns bækur koma til greina, ókeypis eða gegn mjög vægu gjaidi. Bækurnar verða að sjálf- sögðu sóttar. Þeir sem hafa undir höndum aflóga bækur eru beðnir um að hringja i síma 19506 eftir klukkan sjö á kvöldin. íbúð óskast Eldri maður, snyrtimenni sem reykir ekki óskar eftir lítilli íbúð á Reykja- víkursvæðinu. Skilvísar mánaðar- greiðslur. Upplýsingar í síma 651686 eftir kl. 20.00. Ró&skonustaða Óska eftir ráðskonustöðu eða hús- hjálp gegn húsnæði. Er með 2 stálpaðar stúlkur, snyrtilegar og reglusamar. Upplýsingar í síma 29713. Hú8næ&l óskast fyrir tónlistarkennslu Upplýsingar í síma 29105. Tll sölu eldhúsborð og 4 stólar á 5.000, skrifborð á 1.000 og barnaskrif- borð. Upplýsingarísíma 24974 eftir kl. 17.00. Nlssan Sunny 1500 SLX árg. ’87 ekinn 18.000 km. til sölu. Bíllinn er hvítur að lit, 5 dyra, með útvarpi/kassettu, sílsalistum og grjótgrind. Upplýsingar í síma 681310 kl. 9-5 og 13462 á kvöldin. Húsnæði óskast Ung og reglusöm snyrtileg og reyk- laus hjón með 2 börn, 8 og 11 ára, óska eftir að taka á leigu 4-5 her- bergja íbúð frá 1. okt. n.k. Upplýs- ingar í síma 16249 á kvöldin og 11640 á daginn. Margrét. Tll sölu 4 sumardekk á felgum fyrir T rabant. Mjög ódýr. Upplýsingar í síma 18648. Lltsjónvarp til sölu. Selst á góðu verði. Einnig tvöfaldur svefnsófi frá IKEA. Vel með farinn. Sími 688561. íbúð óskast 3 herbergja íbúð óskast. Fyrirfram- greiðsla, reglusemi. Upplýsingar veitir Adda, vs. 83366 hs. 675358. Tll sölu Skoda Amigo 120 LS, árg. 78. Upplýsingar í síma 93-12912. Litmynd af útifundl kvenna á Lækjartorgi 1975 Á einhver í fórum sínum litmynd af útifundí kvenna á kvennafrídaginn 1975? Ef svo er þá vinsamlegast hafið samband við Hildi Jónsdóttur í síma 30504 eða 20136. Óskast keypt - til sölu Óskum eftir að kaupa Hokus Pokus barnastól. Til sölu Datsun 220 dies- el, árg. 73. Góð vél, mælirog hitari. Upplýsingar í síma 685679. Stórt furuborð til sölu. Upplýsingar í síma 40022. Til SÖlu Maclean baggy regnhlífarkerra á 2.000. Upplýsingar í síma 674047. Óskast keypt Eldavél, 50 cm breið, óskast keypt. Hámarksverð kr. 7.000. Sími 43294. Tll sölu flauelskerruvagn með burðarrúmi og góður svalavagn. Sími 21647. Óska eftir að kaupa , vel með farnar kojur og notaðan eldhúsvask ásamt blöndunartækj- um. Upplýsingar í síma 30528. Ferð til Bandaríkjanna á 30.000 Apex miði til sölu. Upplýsingar í síma 10686 á kvöldin. Citroön CSA Pallas árg. ’81 skoðaður '88, til sölu. Selst ódýrt við staðgreiðslu. Upplýsingar í síma 42094. Grjótgrind á Citroén Axel Ársgömul grjótgrind á Citroén Axel til sölu. Selst ódýrt (1500). Upplýs- ingar í síma 44429. ísskápur til sölu mál: breidd 55, dýpt 51,5, hæð 125. Verð 4.000. Upplýsingar í síma 622912. Tll sölu - fæst gefins Til sölu hringlaga palisander borð- stofuborð, fyrir 4, stækkanlegt, sófasett 2+1 (selst ódýrt), stofu- skápur, 170x145 cm. Eldhús- innrétting, gömul Rafha eldavél og 2 lítil borð, annað með skúffum, fæst gefins gegn því að vera tekið niður og sótt. Einnig til sölu Nor- dmende útvarp með kasettutæki, plötuspilari og kaffivél o.fl. Upplýs- ingar í síma 42347 eftir kl. 19.00 í kvöld. Plötuspilari fæst geflns Upplýsingar í síma 52842. Fást gefins Kettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 21465. Selst ódýrt á gó&um kjörum Saab 99 GL árgerð 1978 ekin 113 þús. km. Bíllinn er nýskoðaður og í góðu lagi og selst á mánaðar- greiðslum. Upplýsingar í síma 37426. Nissan Sunny 1500 SLX árg. ’87, ekinn 17.000 km til sölu. Bíllinn er hvítur að lit, 5 dyra, með útvarpi/kassettu, sílsalistum og grjótgrind. Upplýsingar í síma 681310 kl. 9-5 og 13462 á kvöldin. Til sölu 4 sumardekk áfelgumfyrirT rabant. Mjög ódýr. Upplýsingar í síma 18648. Húsnæði óskast Ung og reglusöm, snyrtileg og reyk- laus hjón með 2 börn, 8 og 11 ára, óska eftir að taka á leigu 4-5 her- bergja íbúð frá 1. okt. nk. Upplýs- ingar í síma 16249 á kvöldin og 11640 á daginn. Margrét. íþróttakennarar Grenivíkurskóla vantar íþróttakennara sem einn- ig getur tekið að sér kennslu í öðrum greinum. Frítt húsnæði í boði. Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 96-33131 eða 96-33118. Auglýsið í Þjóðviljanum Mývatn Nær alveg mýlaust Arnþór Garðarsson:Erfitt að tengja mýleysið mengun. Almennt átuleysi skýring á ungadauða. Endurnar mjög aðlögunarhœfar Skortur á fæðu veldur því að endur við Mývatn hætta við að sitja á hreiðrum og yfírgefa þau. Arnþór Garðarsson prófessor í dýrafræði segir mýflugnastofn- ana hafa gengið í gegnum miklar sveiflur. Erfitt sé að rekja mý- leysið nú til mengunar við Mý- vatn þar sem það nái til fleiri vatnasvæða í nágrenninu. Arn- þór segir að smákrabbategundir í vatninu séu einnig í lægð um þess- ar mundir og auki það á fæðuleysi andanna. í samtali við Þjóðviljann sagði Amþór að venjuleg meðalönd í meðalgóðæri verpti um 10 eggj- um. Hún kæmi þó ekki upp nema um tveimur ungum. Það þyrfti því ekki mikið að bregða út af til að hún kæmi engum ungum upp. Arnþór sagði mýflugnastofnana hafa verið mjög sveiflukennda. Lægð hefði komið í mýið 1983 þó ekki eins mikið og nú og einnig 1970-1971 og 1976. Mýið væri hins vegar ekki nema hluti af át- unni. Kornáta, sem er 3-4 mm. langt krabbadýr, hefði einnig verið sveiflukennd og virtist vera í lágmarki nú. Að sögn Arnþórs eru nokkrar tegundir mýflugna við Mývatn. Breytileiki stofnstærðanna væri ekki í sömu átt. Magn algengustu tegundarinnar hefði fallið 1983 og aftur nú en hinar tegundirnar hefðu farið í aðra átt. Þess vegna væri erfitt að tengja ástandið mengun. Arnþór sagði þessar tegundir anda vera langlífar. Ef þeim lík- aði ekki aðstæður flyttu þær sig og kæmu jafnvel ekki til baka. Vissum tegundum gæti því fækk- að tímabundið. Dæmi væri um að Rauðhöfðaendur flyttu sig allt frá íslandi til Síberíu. Arnþór telur að mýleysið jafni sig á einu til tveimur árum. Sveiflur sem þessar væru einnig þekktar til dæmis í Víkingavatni í Keldukverfi. -hmp Það er hald sumra að mýleysinu sem leitt hefur til stórfellds unga- dauða við vatnið, megi kenna um mengun og átroðningi ferðamanna. Arnþór Garðarsson, líffræðingur segir slíkt tæplega skýringuna því mýleysi hafi komið fyrir áður. Myndin er frá Reykjahlíð. Status Quo tónleikarnir Misheppnað ævintýri í Reiðhöllinni Gylfi Geirssonframkv.stj. Reiðhallarinnar: Höfum ekki gertþetta upp ennþá. Það er Ijóst að tapið er mikið. Óljóst hvernig eigendur koma til með að brúa bilið „Það er ekki búið að gera dæm- ið upp ennþá en það er ljóst að tapið er mikið. Það komu 1500- 2000 manns en við þurftum að fá flmm þúsund manns til a ð dæmið gengi upp. Hljómsveitin kostaði 4 milljónir þessi tvö kvöld og kostn- aðaráætlun okkar hljóðaði upp á 8 milljónir króna þannig að þetta lítur illa út. Við erum ekki farnir að ræða neitt ennþá um það hvernig við brúum þetta bil og ég get því ekkert sagt um það á þessu stigi“, sagði Gylfl Geirsson fram- kvæmdastjóri Reiðhallarinnar. Hljómsveitin Status Quo átti mjög vinsælt lag hér á vinsældar- listum í fyrra sem glumdi daginn út og inn. Nú virðist það löngu gleymt og íslenskur æskulýður lætur ekki bjóða sér gamla skalla- poppara sem dúkka öðru hverju upp á vinsældarlista hinna frjálsu útvarpstöðva. Eigendur Reiðhallarinnar verða fyrir nokkru fjárhagslegu tjóni og erfiðlega virðist ganga hjá þeim að koma þessari höll í þá notkun sem ætlað var í upphafi. Húsið hentar vel til sýninga- og tónleikahalds en virðist langt frá því að vera eftirsótt til þess háttar nota. Að Reiðhöllinni standa Stétt- arsamband bænda, Búnaðarfé- lagið, Félag hrossabænda, Landsamband íslenskra hesta- manna, Reykjavíkurborg og mörg smærri félagasamtök ásamt einstaklingum. Ekki hefur enn tekist að láta notkunarmögleika hússins standa undir kostnaði við byggingu þess. Vesturland Lífeyrismálin enn óuppgerð BárðurD. Jensson, verkalýðsfélaginu Jökli Ólafsvík: Langþreyttur á vífillengjum til margra ára - Mér finnst vera komin ástæða tU að málefnum Lífeyris- sjóðs Vesturlands verði komið í rétt horf, sagði Bárður D. Jens- son, formaður verkalýðsfélagsins Jökuls á Ólafsvfk, en stjórn og trúnaðaráð ályktaði nýlega um málefni sjóðsins, en reikningar sjóðsins hafa ekki verið lagðir fram siðan 1984, sem stafar að sögn sjóðsstjórnar af skekkjum í tölvuvinnslu á bókhaldi sjóðsins. Bárður sagði að viðkvæðið væri alltaf hjá starfsmönnum sjóðsins að leiðréttingarnar væru að koma þegar þeir væru inntir eftir málinu. - Þetta eru þau svör sem við höfum fengið í þrjú ár og finnst því mörgum vera tími kom- inn til að leiðréttingunum ljúki, sagði Bárður. Ekki tókst í gær að ná tali af formanni sjóðsstjórnar Valdimar Indriðasyni, fyrrverandi alþing- ismanni. -rk -gís. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 21. júlí 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.