Þjóðviljinn - 21.07.1988, Síða 11

Þjóðviljinn - 21.07.1988, Síða 11
IÞROTTIR Optimist og Topp- er íslandsmót í siglingum var haldiö í Fossvogi um helgina. Keppt var á Topper og Optim- istbátum og fór keppnin mjög vel fram. Úrslit urðu þessi: Optimistflokkur B: 1. Ragnar M. Steinsen, Ými 2. Guöni D. Kristjánsson, Ými 3. Hólmfríöur Kristjánsdóttir, Ými Optimistflokkur C: 1. Ólafur Benediktsson, Vogi 2. Helgi Pétursson, Siglunesi 3. Ágúst Kristinsson, Nökkva Topperflokkur: 1. Guðmundur I. Skúlason, Ými 2. Bjarki Arnórsson, Ými 3. Guðjón Jóhannesson, Siglunesi -þóm Magni Blöndal brýtur hér á besta manni leiksins, Arnljóti Davíðssyni, Baldursson reyna að verja skalla Ómars Torfasonar. dauöafæri en ekkert var dæmt. A litlu myndinni sést Guðmundur Mjólkurbikarkeppnin Ogþettalíka... Aldur segir ekki alltaf til um hversu frískur maður er, það fengu tveir íslenskir blaðamenn að reyna í A-Þýskalandi í liðinni viku. Blaðamennirnir, sem kenna sig við málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreifingar annars vegar og blað allra lands- manna hins vegar, skoruðu á Jón Hjaltalín Magnússon og Stefán Carlsson, lækni, í körfubolta og þótt- ust snáparnir nokkuð vissir um sigur. Gömlu mennirnir voru nú ekki á þeim buxunum að gefast upp og fóru leikar þannig að „gömlu mennirnir" sigruðu í leiknum. Ungu mennirnir voru síður en svo ánægðir með úrslitin en vildu engu að síður helst ekki taka annan leik... Áróðurs- fræðingar íslenska landsliðsins létu til sín taka gegn Sovétmönnum. Þeir létu ís- lensku leikmennina dreifa myndum af liðinu meðal áhorfenda rétt fyrir leikinn og vakti það mikla athygli meðal þeirra. Færri fengu en vildu og var ísóknin mikil og furðulegt var að sjá fullorðið fólk rífast um myndirnar eins og um fræga leikara væri að ræða. Tvöfaldi draumurinn búinn Dómaratríóið í aðalhlutverki á Hlíðar- enda í gœr. Valur vann 3-1 eftir framlengdan baráttuleik Það munu eflaust margir Framarar kenna einhverjum öðrum en sjálfum sér hvernig fór gegn Val í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær. Eftir jafntefli, 1-1, að loknum venjulegum leiktíma var leikurinn framlengdur og áfram hélt sama baráttan og einkennt hafði leikinn fram að því. En þegar framlengingin var rétt tæplega hálfnuð var Valsmönnum færð vítaspyrna á silfurfati. Sigurjón Kristjánsson átti þá skot að marki og boltinn skall í læri eins hinna mörgu Framara í teignum. Eftir nokkurn umhugsunarfrest dæmdi slakur dómari leiksins, Friðgeir Hallgrímsson, vítaspyrnu og allt ætlaði um koll að keyra. Úr vítaspyrnunni skoraði Atli Eðvaldsson af miklu öryggi og Valsmenn höfðu pálmann í höndunum. Valsmenn fengu sannkallaða óskabyrjun í leiknum og náðu forystu strax á 5. mínútu leiksins. Markið kom eftir slæm varnar- mistök Framara, Ómar Torfason átti misheppnaða sendingu beint í fætur Tryggva Gunnarssonar sem var í upplögðu færi. Tryggva brást ekki bogalistin heldur þakkaði pent fyrir sig með ör- uggu marki. Eftir markið kom mikið fát á leikmenn Fram og voru þeir mjög óöruggir í leik sínum. Ekki bætti úr skák að Valsmenn voru sér- lega fastir fyrir og komu greini- lega til leiks með aðeins eitt í huga. Sigur, hvað sem það kost- ar. Framar áttu erfitt með að leika sitt vanalega spil en komust smám saman meira inn í leikinn. Á 23. mínútu fékk Ómar upp- reisn æru þegar hann náði að jafna leikinn. Framarar fengu þá aukaspyrnu á miðjum vellinum og lyfti Pétur Ormslev knettinum inn á vítateig Vals. Þar kom Ómar aðvífandi, skallaði hátt í loft upp í átt að markinu, og inn fór boltinn þó að flestir reiknuðu með að Guðmundur markvörður Baldursson hefði þetta í höndum sér. Litlu munaði að Ómar næði að bæta öðru marki við að- eins þremur mínútum síðar þegar hann komst inn fyrir vörn Vals eftir glæsilega sendingu Péturs Ormslevs, en yfir fór boltinn. Þá átti Pétur gott skot utan vítateigs eftir góðan undirbúning Arn- ljóts, en Guðmundur varði vel í horn. Á markamínútunni frægu, 43. mínútu munaði síðan litlu að Atla Eðvaldssyni tækist að skora en hann fékk sendingu ínn í víta- teiginn þar sem hann var skyndi- lega einn og óvaldaður. Atli tók vel á móti boltanum en Birkir varði gott skot hans í slá og yfir markið. f síðari hálfleik héldu liðin áfram að sækja á víxl en fram- Mjólkurbikarinn Suðumes lögðu Skagann lengingin varð líklegri með hverri mínútu. Á 13. mínútu komst Jón Grétar skemmtilega í gegnum vörn Fram og náði að renna bolt- anum framhjá Birki, en ómar kom á fleygi ferð og bjargaði naumlega. Aðeins mínútu síðar gerðist umdeilt atvik. Besti mað- ur leiksins, Arnljótur Davíðsson, plataði Valsvörnina upp úr skónum og var kominn í ágætt færi þegar hann féll við (sjá mynd). Framarar heimtuðu vít- aspyrnu en Friðgeir sá ekki ást- æðu til að dæma enda þótt áhorf- endur virtust á sama máli og Framarar. Fátt markvert gerðist næsta hálftímann og framlenging því staðreynd. Að vísu tók Eyj- ólfur línuvörður syrpu með flagg- ið og lét sem það væri 17. júní og voru leikmenn gjarnan dæmdir rangstæðir á ólíklegustu augna- blikum. í framlengingunni skoraði Atli sem áður segir úr vítaspyrnu og reyndu Framarar árangurslaust að jafna metin. Rétt fyrir leikslok gulltryggði Jón Grétar síðan Valssigur með fallegu marki eftir aukaspyrnu á vallarhelmingi Vals. Framarar voru heillum horfnir og játuðu sig sigraða. Valsmenn komast því í fjögurra liða úrslitin eftir tæpan en verðs- kuldaðan sigur á verðandi ís- landsmeisturum Framara (?). Var þetta ekki öfugt í fyrra? —þóm I kvöld Mjólkurbikarkeppnin: kl. 20.00 FH-Víkingur 2.d.kv. kl. 20.00 UBK-Afturelding Siglingar Þorsteinn Bjarnason með stórleik í 0-1 sigri Keflvíkinga Úrslitin voru frekar ósann- gjörn þegar Keflvíkingar unnu Ákumesinga í Mjólkurbikar- keppninni í gær. Þorsteinn Bjamason bjargaði liði sínu frá tapi með sérdeilis góðri mar- kvörslu. Fyrri hálfleikur var frekar jafn Mjólkurbikarinn Akranes 19. júlf fA-ÍBK O-l (O-O) 0-1 Guömundur Sighvatsson......72.mln Dómari: Guðmundur Haraldsson Maður leiksins: Þorsteinn Bjamason (BK -*te og lítið var um hættuleg tækifæri. Það voru helst heimamenn sem sóttu en lítið kom út úr sóknar- leik þeirra. Síðari hálfleikur var skemmti- legri á að horfa. Skagamenn sóttu af fullum krafti og áttu tvö alger dauðafæri þegar Ólafur Þórðar- son lét Þorstein verja frá sér af stuttu færi og Haraldur Ingólfs- son fór nákvæmlega eins að enda átti Þorsteinn alla bolta sem komu inn í teiginn. Keflvíkingar áttu samt nokkrar sóknir og þeg- ar 18 mínútur vom til leiksloka fengu þeir hornspymu sem end- aði hjá Guðmundi Sighvatssyni er sendi hann í markið, 0-1. Skagamenn börðust allt hvað af tók og ætluðu greinilega að jafna. Þegar 8 mínútur vora til leiksloka kom há sending inní vítateig Keflvíkinga þar sem boltinn virt- ist fara allgreinilega í hönd Sig- urðar Björgvinssonar. Dómarinn Guðmundur Haraldsson var ekki fjarri staðnum og lét leikinn halda áfram sem var vafasamt. Eftir það var barist af fullum krafti og heimamenn sóttu oft meira af kappi en forsjá. Undir lokin minntu sóknarmenn Suður- nesjamanna á sig og Grétar átti hörkuskot að marki sem rataði þó ekki í markið. Hjá Skagaliðinu bar mest á Sigurði B. Jónssyni sem var bar- áttuglaður en Karl Þórðarson og Öm Gunnarsson vora einnig nokkuð góðir. Sá eini sem eitthvað kvað að í Keflavíkurlið- inu var Þorsteinn markvörður Bjamason en var tvímælalaust besti maður vallarins og bjargaði liði sínu algerlega frá tapi. Mjólkurbikar, Hlíðarenda 20. júlí 1988 Valur-Fram...........3-1 (1-1) 1 -0 Tryggvi Gunnarsson.5. mfn. 1- 1 ÓmarTorfason.......23. mfn. 2- 1 Atll Eðvaldsson...101. mfn. 3- 1 JónGrótar Jónsson.118.mfn. Uð Vals: Guðmundur, Þorgrímur, Sigur- jón, Magni Atli, Sævar, Guðni, Guðmund- ur, Valur, Ingvar (Steinar 94.), T ryggvi (Jón Grétar 46.). Uð Fram: Birkir, Þorsteinn, Jón (Steinn 59.), Pétur O., Viðar, Kristinn, Pétur A. (Kristján 82.), Guðmundur, Ómar, Amljót- ur, Ormarr. Gul spjðld: Atli og Þorgrfmur I Val og Guð- mundur i Fram. Dómarl: Friðgeir Hallgrímsson, slakur. Maður leiksins: Arnljótur Davlðsson, Fram. Flmmtudagur 21. jútí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.