Þjóðviljinn - 23.07.1988, Page 6
þlÓÐVIUINN
Mátgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Hin þrotlausa
þolinmæði
„Mín þolinmæöi er hvergi nærri á þrotum“ hefurTíminn
eftir Jóni Sigurössyni viðskiptaráðherra, og er ekki Ijóst af
frásögn blaðsins hvort hann er að tala eingöngu um
típrósent misgengi launa og lánskjara frammá næsta vor
eða um efnahagsmálin og ríkisstjórnarsamstarfið í heild
sinni.
Þessi þolinmæðisviðhorf bera þess Ijósan vott að hin
lútersk-evangelíska þjóðkirkja heyrir undir ráðherrann á
sama hátt og viðskiptalífið. Afstaða ráðherrans minnir í
einfaldleik sínum helst á frumkristna tíma. Hin þrotlausa
þolinmæði var einmitt eitt einkenna á píslarvottum krist-
innar kirkju, - og í bréfinu til Títusar segir Páll postuli um
aldraða menn að þeir skuli vera „bindindissamir, siðp-
rúðir, hóglátir, heilbrigðir í trúnni, kærleikanum og þolg-
æðinu.“
Þolinmæðishyggja Jóns Sigurðssonar á sér sumsé
fornar og virðulegar rætur. Nú er ráðherrann að vísu enn í
fullu fjöri á miðjum aldri og því ekki í markhópi Títusar, -
og hann er að því leyti ólíkur píslarvottunum að þeirra
þolinmæði beindist að eigin þjáningum, en þolinmæði
Jóns Sigurðssonar snýst aðallega um þær kárínur sem
aðrir en Jón verða fyrir.
Það voru á sínum tíma eðlilegar og jákvæðar breytingar
að búa þannig í haginn að sparifjáreigendur væru ekki
lengur hlægilegir á Islandi og færa aðgang fyrirtækja og
almennings að fjármagni úr pólitískum skömmtunar-
skorðum. Neikvæðir raunvextir eru auðvitað einsog hvert
annað krabbamein í hagkerfinu.
Undir forystu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
var hinsvegar tekin upp öfgastefna í efnahagsmálum
undir áhrifum af íhaldskreddu nýfrjálshyggjunnar, og
þeirri stefnu varfram haldið af öllum kröftum þegar Alþýð-
uflokkurinn bættist í stjórnina. En þá gerðist það einmitt
að einn helsti efnahagsráðunautur fyrri stjórnar í varð
viðskiptaráðherra í nýju stjórninni.
Vextir voru gerðir svo frjálsir og óháðir að orðið okur
var þurrkað burt úr lagabálkunum, en launin voru bundin
niður með lögum. Fjármagnseign var tryggð með vísit-
ölum fyrir öllum minnstu áföllum en tryggingar launa allar
færðar úr lagi og afbakaðar. Skattheimta á launatekjur
hefur stóraukist, með beinum sköttum en þó einkanlega
óbeinum, - þar á meðal sérstökum skatti á matvælakaup.
Á sama tíma er fjármagnsgróði algerlega óskattaður.
Þessi stefna hefur valdið miklum þrengingum hjá
skuldurum, einstaklingum - til dæmis fólki í húsnæðis-
kaupum, og fyrirtækjum sem mörg hver búa við skugga-
lega krappa stöðu vegna okursins á fjármagni.
Þolinmæði viðskiptaráðherrans væri aðdáunarverð ef
hann einn ætti í hlut. Það væri líka hægt að virða þolin-
mæðina við ráðherrann ef hann væri ekki búinn að sitja
heilt ár í ráðuneyti sínu og bíða eftir að þolinmæðin ynni
þrautina, verðbólgan lækkaði og vextirnir með, einsog
hann hefur margoft lofað.
Þetta hefur bara ekki gerst. Verðbólgan eykst þrátt fyrir
þolinmæði viðskiptaráðherrans. Vextirnir hækka þrátt
fyrir þolinmæði viðskiptaráðherrans. Þrátt fyrir þolinmæði
ráðherrans þarf launamaðurinn að vinna sífellt lengur
fyrir afborgun af húsnæði sínu, og þolinmæði ráðherrans
kemur ekki í veg fyrir að heil byggðarlög séu komin útá
ystu brún vegna peningastefnunnar.
Þolinmæðin á greinilega að ná líka til gjaldþrota,
byggðaflótta, harmleikja í fjölskyldum, kannski líka til
atvinnuleysis og erlendra yfirráða í atvinnulífinu.
Þá er bara að vona að þolinmæðin ráðherrans nái
einnig til þess óþols sem stundum kemur upp hjá hæst-
virtum kjósendum þegar hinir kjörnu reynast of þrotlausir.
STRÍÐSLYNDI
Égverðaðsegjaþað ^
að nýju stríðshanskarnir
frá PLO pössuðu mér
ágætlega. Mér finnst að ,
Porsteinn ætti A
að skila mér þeim^^/k
-m
Þjóðviljinn
Síðumúla 6 -108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Útg«fandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
RiUtjórar: Ámi Bergmann, Mörður Ámason, Ottar Proppó.
Fréttaatjórl: Lúövík Geirsson.
Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hiörleifur
Sveinbjörnsson, KristóferSvavarsson, Magnfríður Júlíusdóttir,
Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, Ólafur Gíslason, Ragnar
Karlsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Stefánsson (íþr.), Sævar
Guöbjömsson, Tómas Tómasson, Þorfinnur ómarsson (íþr.).
Handrita- og prófaricaleatur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
LJóamy ndarar: Einar Ólason, Siguröur Mar Halldórsson.
Útlitateiknarar: Kristján Kristjánsson, Kristbergur Ó. Pótursson
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifatofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Símavarsia: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Katrín Bárðardóttir, ÖlafurBjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 70 kr.
Helgarblöð:80kr.
Áskriftarverð á mánuði: 800 kr.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. júlf 1988