Þjóðviljinn - 23.07.1988, Page 9

Þjóðviljinn - 23.07.1988, Page 9
stundaði hún nám við tónlist- arháskólann í Vínarborg en það- an lauk hún námi úr ljóðadeild og almennri söngdeild í júní 1988. Kennarar hennar þar voru meðal annarra Helene Karusso, Eric Werba og Wolfgang Gabriel. Signý hefur komið fram á fjöl- mörgum tónleikum hérlendis og erlendis, og einnig tekið þátt í óp- eruflutningi hjá „Junge Oper Wien“ í Brúðkaupi Fígarós, Töfraflautunni og Ariadne af Naxos. Einnig hefur hún tekið þátt í óperuflutningi hjá íslensku Óperunni auk þess sem hún söng einsöngshlutverkið í leikritinu Yermu við tónlist Hjálmars H. Ragnarssonar sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu í fyrra. - Auðvitað viðurkenni ég að þessi aría Beethovens er ekki al- veg sú auðveldasta sem hægt er að syngja. Það að hann samdi svo fá söngkonsertverk ber því vitni að það lá ekkert sérlega fyrir hon- um. Hann líkist Mozart samt nokkuð mikið. Kannski er ekki beinlínis um að ræða að hann sæki mikil áhrif beinlínis til Moz- arts, óperan sem form var mikið til svona á þessum tíma, en það sem líkast er með þeim er að þeir nota báðir raddsviðið út í ystu æsar. Teygja röddina alveg út að ystu endimörkum, segir Signý. - Ég kynntist þessari aríu fyrst af plötu með söngkonunni Birgit Niison og heíllaðist þá. Ég hef sungið hana í Mozart-sal í Vínar- borg, en það var stórkostlegt. Þessi aría er afar sérstök og stendur vel fyrir sínu. Öll átökin sem koma fram í henni hreyfa verulega við manni og vekja upp sérkennilegan kraft. Hún lifir al- gjorlega sínu eigin lífi. Stórkostleg og heillandi Eftir hlé er loks sinfónían, Prag-sinfónían, eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Hún ber þess greinileg merki að vera samin á miklum átakatímum í lífi Moz- arts. Það sem vekur einna fyrst athygli í verkinu er form þess. Hin klassíska sinfónía hafði fram að þessu verið í fjórum þáttum en Prag-sinfónían er í þremur. Moz- art sleppir þriðja þættinum sem átti að vera menúett og fer beint úr öðrum þætti yfir í þann fjórða. Þetta hliðarhopp Mozarts olli áheyrendum í Prag ef til vill ekki svo ýkja miklum heilabrotum en því meir hafa tónfræðingar seinni tíma velt vöngum yfir þessum frumlegheitum tónskáldsins. Hafa sumir látið þá skoðun í ljós að sinfónían hafi tekið á sig svo dramatíska mynd í fyrstu tveimur þáttunum að Mozart hafi ekki getað hugsað sér léttúðugan dans á eftir. Gunnsteinn Ólafsson stjórnar hljómsveitinni og hefur átt veg og vanda að þessum tónleikum. Verið nokkurskonar forstjóri, framkvæmdastjóri, símadama og reddari. Gert allt sumsé. Gunnsteinn er fæddur árið 1962 á Siglufirði en alinn upp í Kópavogi. Hann stundaði þar fiðlunám hjá Sigrúnu Andrés- dóttur og síðar við Tónlistar- skólann í Reykjavík hjá Rut Ing- ólfsdóttur. í TR stundaði hann einnig nám í hljómfræði hjá Jóni Ásgeirssyni og greiningu hjá Hjálmari H. Ragnarssyni. Þá var Gunnsteinn virkur í félagslífi Menntaskólans í Kópavogi þar sem hann stundaði nám, stjórn- aði meðal annars kór skólans. Ári eftir stúdentspróf hélt Gunnsteinn til Ungverjalands og settist í Franz Liszt tónlistaraka- demíuna í Búdapest. Þar stund- aði hann tónsmíðanám hjá Emil Petrovic, nam kontrapunkt hjá Zsolt Serei, píanóleik hjá Kristínu Zalan, kórstjórn hjá L MENNING Umsjón: Tómas Tómasson Myndlist Landslag sem form Sumarsýning Norrœna hússins „Landslag“ á landslagsverkum Jóns Stefánssonar í dag verður opnuð sumarsýn- ing Norræna hússins en hún hefur verið nefnd „Landslag“. Á sýn- ingunni eru landslagsmyndir Jóns Stefánssonar, en hún spann- ar allt tímabilið frá því Jón mál- aði sín fyrstu landslagsverk í sumarheimsóknum 1919 og 1920. Hann sýndi þau í fyrsta sinn í húsi KFUM í Reykjavík árið 1920 en á þeirri sýningu var eitt helsta við- fangsefni hans túlkun íslensks landslags. Jón Stefánsson hóf sitt mynd- listarnám í Teknisk Selskabs Skole, sem var almennur undir- búningsskóli í teikningu, haustið 1903. Að lokinni skólavistinni þar innritaðist hann í einkaskóla hjá Christian Zahrtman árið 1905. Þar nam hann í þrjú ár og að þeim loknum innritaðist hann í nýstofnaðan skóla Henri Mat- isse í París. Frá námsdvöl Jóns í skóla Mat- isse eru engin verk varðveitt, svo erfitt er að fullyrða um bein áhrif listar Matisse á verk Jóns á þess- um tíma. Matisse vísaði hinsveg- ar mikið í list Paul Cézanne á þessum árum í kennslu sinni og hreifst Jón mikið af list Cézann- es. Ólafur Kvaran listfræðingur segir meðal annars í sýningarskrá sumarsýningarinnar: „Það má segja með vissri alhæfíngu að sú framsetning, sem fram kemur í landslagsmyndum Jóns á þriðja áratugnum, átti eftir að verða helsta kennimark listar hans allar götur síðan. í umskrift sinni á náttúrunni leggur hann áherslu á almennt gildi formanna fremur en skynræna endur- sköpun augnabliksins eða að náttúran verði líking fyrir sálrænt eða tilfínningalegt ástand. Sýn hans á náttúruna er þannig í ætt við klassíska litsýn, hann vill ekki eltast við síbreytilega ásýnd landslagsins en þess í stað tíunda almennt form þess, skýrleika og afdráttarleysi, og hneppa það í myndbyggingu, sem lýtur allt að því lögmálsbundnu skipulagi. Þótt þessi framsetning einkenni yfirleitt verk Jóns þá tekur hún nokkrum breytingum og hefur einnig mismunandi og nýjar áherslur á listferli hans.“ Þeirri afdráttarlausu formsýn, sem svo mjög einkennir list Jóns, lýsti Þorvaldur Skúlason, í grein í Þjóðviljanum 22.2.1961 í tilefni áttræðisafmælis Jóns, á þá lund að meðan Þórarinn B. Þorláks- son og Ásgrímur Jónsson hafi túlkað „stemmningar“ landsins hafi Jón verið næmur á það sem kalla mætti „abstrakt eigindir landsins“. Jón var búsettur í Reykjavík 1924-37 en fluttist þá til Dan- merkur og var búsettur þar öll stríðsárin. Hann var kosinn félagi í sýningarhópnum Grönningen árið 1941 en hafði sýnt með hópn- um sem gestur frá árinu 1939. Hann fluttist til íslands eftir stríð og var búsettur í Reykjavík til dauðadags 1962. Á sýningunni „Landslag" má sjá um það bil 40 myndir úr eigu stofnana og einstaklinga, sem hafa verið svo vinsamlegir að lána þær, en sýningin er hengd upp í tímaröð. TT Jón Stefánsson Istvan Parkai, auk þess að læra ungversku. Eftir fjögurra ára nám breytti hann til og hélt til Ítalíu og sótti námskeið í tón- smíðum hjá Franco Donatoni. Haustið 1987 settist hann síðan að í Freiburg í Þýskalandi og stundar nú þar bæði nám í tón- smíðum og hljómsveitarstjórn. Kennarar hans eru Klaus Huber og Peter Baberkoff. Hann hefur auk þess verið þátttakandi á kórstjórnarnámskeiðum hjá Willie Gohl og Eric Ericson. Fyrir hlé eru konsertarnir þrír en þeir einsog ganga aftur í tíma- röð. - Konsertformið lifír! Um 200 ár eru milli þess fyrsta og hins síðasta en samt er einsog tón- skáldin líti á þetta form sem mjög kröftugan tjáningarmiðil. Þess- vegna held ég að konsertformið hafi verið svo langlíft sem raun ber vitni, segir Gunnsteinn. - Það var Hávarður sem upp- haflega lýsti fyrir mér „Consert- ino“ Lars Erics en sjálfur hef ég aldrei heyrt konsertinn fluttan. Það er því nokkuð sérstakt fyrir mig að stjórna verki á tónleikum sem ég hef aldrei haft neina fyrir- mynd að. - Það verk sem gerir einna mestar kröfur til hljómsveitar- innar er kannski „Konsert í D“ eftir Igor Stravinskí. Hann er svo fullur af ákafa og orku. í hverjum drætti logar persónuleiki Stravin- skís. - Fyrir mig sem hljómsveitar- stjóra er Prag-sinfónían mest spennandi. Þetta er stórkostlegt verk og það allra mest heillandi af þeim sem sem við flytjum í dag að mínu mati. Það er samið á afar þýðingarmiklum tíma í lífi Moz- arts, á hápunktinum á hans ferli. Einmitt meðan hann var að semja hana gat hann lifað af sín- um tónsmíðum og var sæll mað- ur. Gat gert nákvæmlega það sem hann langaði til. - Andinn í hljómsveitinni er sérlega góður. Það er mér mikið ánægjuefni að vinna með henni að þessu verkefni og ég vona að það sé gagnkvæmt. - Það er gott fyrir okkur öll að geta komið fram hér heima, reynt okkur. Þegar maður situr við fót- skör meistaranna útí heimi þá tekur maður við miklum fróðleik og það er mikils virði að fá tæki- færi til að sannreyna hann, einsog á þessum tónleikum. Við sjáum með þessu og þeim viðtökum sem við fáum hvar við stöndum, hvort við erum á réttri leið og hvar við þurfum að bæta okkur, grillum ef til vill í næstu vörðu og getum þá haldið göngunni áfram. AEÞÝPUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Vesturlandi Sumarferð um A-Skaftafellssýslu Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður farin um verslunarm- annahelgina, 30. júlí-1. ágúst. Farið verður til Hornafjarðar á laugardaginn. Ferðast um nærsveitir á sunnudag. Gist verður 2 nætur í Nesjaskóla og er val um svefnpokapláss eða 2ja manna herbergi. Frekari upplýsingar gefa: Olafsvík — Herbert s: 61331 Dalir - Sigurjóna s: 41175. Hellissandur - Skúli s: 66619 Stykkishólmur - Þórunn s: 81421 Borgarnes - Sigurður s: 71122 Grundarfjörður - Matthildur s: 86715 Akranes - Guðbjörg s: 12251 Munið eftir sundfötum, klæðnaði fyrir smágöngur og að hafa með nesti. Þetta er fjölskylduferð eins og áður. Gerum hana fjölmenna. Kjördæmisráð ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Framkvæmdaráðsfundur , Fundur í framkvæmdarári ÆFAB verður haldinn sunnudaginn 24. júlí kl. 17.00 að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Nauðsynlegt að allir mæti. Kaffi og kökur. Nefndin A Lóðaúthlutun í Kópavogi Kópavogskaupstaður auglýsir lóðir í D reit í Suðurhlíð til úthlutunar. Um er að ræða 26 einbýl- ishúsalóðir, 11 lóðir undir parhús, þ.e. 22 íbúðir og 2 fjölbýlishús. Gert er ráð fyrir að hefja megi byggingarframkvæmdir uppúr miðju ári 1989. Uppdrættir og nánari upplýsingar liggja frammi á tæknideild Kópavogskaupstaðar, Fannborg 2,3. hæð. Umsóknareyðublöð fást á sama stað. Um- sóknarfrestur er til 19. ágúst n.k. Bæjarverkfræðingur m ' KENNARASAMBANDÍSLANDS Kennarasamband íslands auglýsireftir starfsmanni til að vinna með kynningarnefnd og skólamálaráði, m.a. að kynningu á skólastefnu Kt. Um er að ræða 50% starf í 3 mánuði. Umsóknirsendistskrifstofu K(, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík fyrir 15 ágúst. Laugardagur 23. júlí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.