Þjóðviljinn - 16.08.1988, Blaðsíða 1
Priðjudaguf 16. ágúst 1 82. tðlublað 53. árgangur
Efnahagsmálin
Niðurfærslan fjarstæða
Ari Skúlason, ASÍ: Innantómir draumórar. Bitnaði á þeim sem eru á töxtunum og opinberum
starfsmönnum. Þórarinn V. Þórarinsson, VSÍ: Menn kunna að standiframmifyrir tveimur valkostum -
gengisfellingu eða lœkkun launakostnaðarfyrirtœkja. Forstjóranefndin nálgast niðurstöðuna.
GuðjónB. utan í dag
- Það er tómt mál að vera að
tala um efnahagsaðgerðir sem
fólgnar eru í niðurfærslu. Þar ber
ansi margt til. Fyrir það fyrsta er
engin trygging fyrir því að kaup
lækki þó stjórnvöld segi að það
eigi að lækka. Að venju verða
það þeir sem eru á töxtunum og
opinberir starfsmenn sem taka á
sig kauplækkanirnar. Um aðra
gildir öðru máli, sagði Ari Skúla-
son hagfræðingur Alþýðusam-
bandsins í samtali við Þjóðviljann
í gær, er hann var inntur eftir hug-
myndum um niðurfærslu sem
forstjóranefndin sk. hefur verið
að glíma við að útfæra.
Ari sagði að einnig væri engin
trygging fyrir því að vöruverð
lækkaði í kjölfar kauplækkunar
samfara minni eftirspurn, eins og
haft hefur verið eftir formanni
forstjóranefndarinnar.
- Ef þetta dæmi ætti að ganga
upp, þá þyrfti að koma til slíkt
verðlagseftirlit og hömlur með
valdboði og refsingum, sem
aldrei fyrr. Bráðabirgðalögin frá
því í vor eru augljóst dæmi um
það hvernig til hefur tekist með
lagasetningar í þessa veru. Að
ætla að það gangi í sviphendingu
að lækka kaup allra og Iækka
verðlag í kjölfarið eru innantómir
draumórar, sagði Ari.
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, sagðist ekki
vilja úttala sig um hugmyndir við-
víkjandi niðurfærslu. Hann sagð-
ist þó handviss um það að um
margt væri erfiðara að grípa til
þessarar aðferðar en 1959 í
stjórnartíð Emelíustjórnarinnar.
- Vel kann að vera að menn hafi
dottið niður á einhverja færa leið,
sagði Þórarinn.
- Ég ætti ekki beinlínis von á
því að það færi vel fyrir brjóstið á
okkar viðsemjendum að klipið
yrði af launum og launatöxtum.
Á hitt er að líta að menn kunna að
standa frammi fyrir tveimur kost-
um slæmum: að fella gengið til að
gefa útflutningsatvinnuvegunum
lífsmöguleika eða að draga með
einhverju móti úr launakostnaði.
Þá er ekkert sjálfgefið hvorn
kostinn menn veldu, sagði Þórar-
inn.
Ari sagði að þó unnt hefði ver-
ið að grípa til niðurfærslu í tíð
F-16 orrustuþota Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Varaherflug-
völlur fyrir NATO er pólitískt spursmál:
Emelíustjórnarinnar, væri ekki
þar með sagt að það gengi í dag.
- Hagkerfið var rígbundið alls-
konar höftum 1959. Slík niður-
færsla gengi ekki í dag.
Það skýtur ekki síður skökku
við að á sama tíma og stjórnvöld
láta þau boð út ganga að ekki sé
hægt að stjórna vöxtum með ein-
hliða aðgerðum, láta menn sér
það til hugar koma að lækka kaup
og verðlag með valdboði, sagði
Ari.
Ari sagði að líklegast væri að
niðurfærslutalið væri einkum til
þess að vinna tíma og beina sjón-
um manna frá gengisfellingu,
meðan unnið væri að öðrum að-
gerðum.
Nefndin fundaði í gær og vörð-
ust nefndarmenn allra frétta af
þeirri tillögugerð sem verið væri
að vinna að. Fastlega er gert ráð
fyrir að nefndin skili tillögum til
ríkisstjórnarinnar um eða
skömmu eftir næstu helgi. Margt
bendir reyndar til þess að nefnd-
inni hafi orðið talsvert ágengt,
því einn nefndarmanna, Guðjón
B. Ólafsson mun vera á förum
vestur um haf í dag.
Laugavegurinn
Miljotl
á miljón
ofan
Leiðréttingu á mistök-
um við Laugaveginn
lokið. Porúgalska
grjótið tekið upp og
geymt. Kostar borgar-
búa 2,2 milljónir
Flugþjónusta
Hervöllur óþarfur
PéturEinarsson flugmálastjóri: íslenskir
flugvellir fullnœgja þörfinni
-Það er ýmist búið að fullnægja
eða er verið að fullnægja þörfinni
fyrir íslenska varaflugvelli. Hvað
byggingu 300 metra flugvallar
varðar, sem NATO tæki þátt í, þá
er það alfarið pólitísk ákvörðun á.
vegum stjórnvalda, segir Pétur
Einarsson flugmálastjóri.'
I skýrslu sem sérfræðingar á
vegum Flugmálastofnunar unnu
fyrir samgöngumálaráðherra er
engin afstaða tekin til NATÓ-
flugvallar, heldur er um að ræða
hlutlausa staðreyndaupptalningu
í skýrslunni að sögn Péturs.
Á hádegi í gær lauk flokkur
manna við að malbika Laugaveg-
inn frá Klappastíg til Frakkastígs
en áður hafði sér-tilhöggvið port-
úgalskt grjót sem lagt var á ka-
flann í fyrra verið tekið upp. Lag-
færingin kostar borgarbúa 2,2
milljónir en að sögn gatnamála-
stjóra verður enginn dreginn til
ábyrgðar. Portúgalska grjótið
verður sett í geymslu þangað til
önnur not finnast fyrir það.
Þá stendur Reykjavíkurborg í
gatna- og holræsaframkvæmdum
upp á 1,2 miljarða króna í ár. En
gatnamálastjóri segir þessar
framkvæmdir vera á eftir áætlun.
Sjá síðu 3
Sjá síðu 2
Hafrannsókn
Dökkar horfur
Hafrannsóknastofnun leggur til að á nœsta ári
verði aðeins heimilað að veiða300þúsund tonn
afþorski. Þýðir niðurskurð um 60 þúsund tonn
frá því sem nú er
Ef stjórnvöld samþykkja til- verði leyft að veiða jafn mikið
lögur Hafrannsóknarstofnunar
varðandi aflahámark þorsks á
næsta ári verður þorskkvótinn
skorinn niður um 60 þúsund tonn
frá því sem nú er; úr 360 þúsund
tonn í 300 þúsund tonn.
í tillögum stofnunarinnar er
einnig gert ráð fyrir að á næsta ári
ýsu og ufsa og nú er en samdrát
ur boðaður í veiðum á karfa og
grálúðu. Aftur á móti gerir Ha
rannsóknastofnunin tillögur ui
að aukning verði heimiluð í sík
veiðum og á rækju.
Sjá síðu