Þjóðviljinn - 16.08.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 16.08.1988, Blaðsíða 13
—ÖRFRÉTTIR— Repúblikanar byrjuöu sitt flokkshúllumhæ í hinni suölægu borg New Orleans í gær. 5.000 fulltrúar hvaðanæva að úr Bandaríkjunum munu þinga í fjóra daga og útnefna Ge- orge Bush leiðtoga sinn og for- setaframbjóðenda flokksins. Þingmenn kváðu fyrst og fremst eiga að púrra Gogga greyið svo- lítið upp og dubba uppá ímynd hans. Það er kunnara en frá þurfi að segja að niðurstöður þorra fylgiskannana benda til þess að keppinautur Bush um forsetat- ign, Michael Dukakis, njóti mun meiri hylli en varaforsetinn sem í augum fjölmargra er „núll og nix“. Þjóðarráð Palestínumanna, sem er eins- konar löggjafarsamkunda PLO, mun koma saman til fundar í lok þessa mánaðar og mynda út- legðarstjórn fyrir herteknu svæð- in í Palestinu. Fundurinn verður haldinn í Alsír. Þetta kom fram í máli Bassams Abu Sharifs, stjórnmálaráðgjafa Jassírs Araf- ats, í spjalli við íraska ríkisútvarp- ið í gær. „Andsovéskum" mótmælagöngum verður héðan- ífrá tvístrað. Þetta verður í verka- hring lögreglunnar samkvæmt nýjum reglum um hegðan manna á almannafæri eystra sem tóku gildi í gær. Samkvæmt þeim verður að sækja um leyfi fyrir mótmælaaðgerðum með minnst tíu daga fyrirvara (!). Það er því til lítils fyrir Armena að flykkjast útá götur hundruðum þúsunda sam- an og krefjast nýrra landamæra að Azerbædsjan (en mótmæli þeirra í fyrra mánuði eru talin helsta orsök þess að nýju regl- urnar voru settar). Nei, félagar! Þið verðið að leggja fram umsókn hyggist þið láta reiði ykkar í Ijós með þessum hætti og vona jafn- framt að hún renni ekki af ykkur á þeim tíu dögum sem líða uns skriffinnarnir taka ákvörðun. Alexander Dubcek fær brátt vegabréf og heimild stjórnvalda í Tékkóslóvakíu til þess að ferðast til útlanda, þ.á .m. til Vesturlanda. Frá þessu greindu ráðamenn í Prag í gær. Dubcek var sem kunnugt hæst- ráðandi í landi sínu fyrir réttum 20 árum og beitti sér fyrir umbótum af ýmsu tagi og af sama toga og margfræg perestrojka og glas- nost. Ef allt fer að óskum mun Dubcek hleypa heimdraganum í næsta mánuði og halda til Bo- lognu á Ítalíu. Þar hefur hann ver- ið sæmdur heiðursdoktorsnafn- bót ásamt leiðtoga þeldökkra manna í Suður-Afríku, Nelson Mandela. Lögregla Suður-Kóreu handtók í gær um 1.200 námsmenn sem hugðust eiga fund með kollegum sínum og frændum að norðan. Þetta gerðist fáeinum klukkustundum eftir að Roh Tae Woo, forseti þeirra fyrir sunnan, flutti ræðu í tilefni sigursins yfir Japönum í síðari heimsstyrjöld. í henni kom Roh þeirri frómu ósk sinni á fram- færi að Kim II Sung, alfaðir þeirra fyrir norðan, kæmi að máli við sig hið fyrsta. Það er því greinilegt að ekki er sama Jón og séra Jón þegar Suður-Kóreumenn vilja taka Norður-Kóreumenn tali. Hæstiréttur Noregs telur aö það væri alger tímasóun að taka mál njósnarans Arne Treholts fyrir að nýju. í þá veru úrskurðaði dómurinn í gær en Treholt hafði sótt stíft að fá ný réttarhöld í máli sínu og fært fyrir því ýms rök. Kveðst hann aldrei hafa gengið erinda Sovétmanna né njósnað fyrir þá, þvert á móti hafi hann einvörðungu reynt að bæta samskipti þeirra og Norð- manna með því að vingast við sendiráðsmenn að austan. Tre- holt þarf vart að kynna en hann var dæmdur í 20 ára fangelsisvist árið 1985 fyrir njósnir í þágu Kremlverja. ERLENDAR FRÉTTIR Afganistan Kunduz lýtur Kabúl á ný Helmingur sovéska herliðsins kominn heim. Hekmatjarspáirþvíað Sovétmenn verði allir á brott fyrr en samið var um í Genf Najibullah, leiðtogi Afgani- stans, kvaddi fréttamenn á sinn fund í gær og skýrði þcim hróðugur frá því að hermenn stjórnar sinnar hefðu náð héraðs- höfuðborginni Kunduz á sitt vald að nýju. A meðan Najibullah lét gamminn geisa skullu eldflaugar uppreisnarmanna til jarðar vítt og breitt um Kabúl. Þær fréttir bárust síðar að þær hefðu grandað sex mönnum hið minnsta. Sovéskir hermenn yfirgáfu Kunduz í öndverðri fyrri viku en tveim dögum síðar var bærinn á valdi uppreisnarmanna! Að sögn vestrænna sendimanna í Kabúl lögðu skæruliðar til atlögu við „varnarlið" Kunduz fljótlega eftir að Sovétmenn voru á brott. „Verjendurnir“ voru 2 þúsund talsins og flúðu allir í dauðans of- boði allnokkru áður en fjendurn- ir komust í augsýn! En Najibullah sendi þá til baka og góðan liðstyrk í ofanálag. Eftir harða bardaga í nokkra daga heimti stjórnarherinn bæinn úr höndum skæruliða. „Uppreisnar- menn hafa verið þurrkaðir út úr Kunduz. Kunduz er nú á valdi Afganistanhers,“ sagði höfuð- paur Kabúlstjórnarinnar í gær. Tass fréttastofan í Moskvu greindi frá því í gær að helmingur sovéska herliðsins, 50 þúsund manns, væru á brott frá Afganist- an. Sem kunnugt er var kveðið á um það í Genfarsáttmála Afgana og Pakistana frá því í apríl að þessum áfanga skyldi náð áður en degi hallaði þann 15. ágúst. I íslamabad, höfuðborg Paki- Götumynd frá Rangún. Þar var allt með ró og spekt í gær. Burma Logn á undan stormi? Námsmenn bíða átektaþvínú eiga valdsherr- arnir leik. Leggiþeir ekki einrœðifyrir róða og stuðli að lýðrœðifer allt í bál og brand Námsmenn hafa sem kunnugt er verið í fylkingarbrjósti uppreisnarhreyflngarinnar í Burma undanfarnar þrjár vikur. Þeir juku mönnum kjark með fordæmi sínu og blésu í glæður óánægju og gremju alþýðu manna. Fyrr en nokkurn varði logaði landið í mótmælum, hin dagfarsprúða þjóð sýndi mátt sinn og megin með því að draga tvo einræðisherra niður úr valda- stólum, hinn þaulsetna Ne Win og hinn skammvinna Sein Lwin. Eftir fall Lwins „skall“ kyrrðin á jafn snögglega og uppreisnin fyrr, en erlendir sendiráðsmenn í höfuðborginni, Rangún, fullyrtu í eyru fréttamanna í gær að lognið nú kæmi vísast á undan stormi enn frekari mótmæla. Höfðu þeir eftir forystumönnum náms- manna að þeir hygðust efna til friðsamlegra andófsaðgerða víðs- vegar um landið á morgun, mið- vikudag, og krefjast þess að landslýður fengi að hafa hönd í bagga með landsstjórninni. I stað einræðis eða flokksræðis (svo- nefnds sósíalistaflokks) yrði að koma lýðræði. Á morgun fundar herforingja- og flokksbroddaklíkan sem situr yfir hlut manna í Burma. Er haft fyrir satt að hún muni útnefna einhvern úr sínum hópi í embætti formanns sósíalistaflokksins og ríkisleiðtoga. Hver „hnossið“ hneppi er gersamlega á huldu að sögn sendiráðsmanna að vestan. En námsmenn hafa ekki í hyggju að láta staðar numið fyrr en gerðar hafa verið róttækar breytingar á stjórnarfari öllu í Burma. Á fimmtudag og föstu- dag þinga fulltrúar á lögjafarsam- kundunni með forystumönnum flokksins. Námsmenn segja að verði ekki undinn bráður bugur að því að færa stjórnkerfið í nú- tímalegt horf og boðað til frjálsra kosninga innan hálfs árs fari allt í bál og brand á nýjan leik í Burma. Reuter/-ks. Þrlöjudagur 16. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Sovéskir hermenn á heimleið frá Afganistan. Helmingur, 50 þúsund, kominn heim. stans, kvaddi sér hljóðs af þessu tilefni Gulbuddin nokkur Hek- matjar en hann er einn af forystu- mönnum uppreisnarhreyfingar- innar. í gær var Hekmatjar venju fremur fáorður um hermdarverk Sovétmanna en benti á að þeir hefðu fram að þessu hagað heimflutningi herliðsins með öðr- um hætti en ráð var fyrir gert í Genf. Þar hefðu fulltrúar Kremlverja staðhæft að herfylking þeirra í Afganistan yrði smátt og smátt þynnt með þeim hætti að fáeinir dátar úr hverri herdeild yrðu sendir heim. Raunin hafi hins- vegar orðið sú að allir sovéskir hermenn í átakahéruðum austurs og suðurs hefðu verið fluttir heim fyrst. Kremlverjar vildu sem sagt umfram allt forðast frekara mannfall og því væru afganskir stjórnarhermenn víða skildir eftir á köldum klaka. Hekmatjar klyk- kti út með því að spá því að Sovét- menn lykju heimkvaðningu her- liðs síns áður en þeim væri það skylt samkvæmt Genfarsamn- ingnum. Reuter/-ks. DAGVIST BARIVA FORSTÖÐUMENN Stöður forstöðumanna við eftirtalin heimili eru laus til umsóknar. Leikskólinn Árborg — Hlaðbæ 17 Skóladagheimilið Völvukot — Völvufelli 7 Skóladagheimilið Langholt — Dyngjuveg 18 Fóstrumenntun áskilin! Upplýsingar veita umsjónarfóstrur og fram- kvæmdastjóri á skrifstofu Dagvistar barna, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu eða í síma 2 72 77.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.