Þjóðviljinn - 16.08.1988, Qupperneq 3
FRÉTTIR
Laugavegurinn
Malbikað yfir miljónimar
Gatnamálastjóri: Enginn dreginn til ábyrgðar vegna mistakanna við hellulögnina sl.
vetur. Malbikað yfir mistökinfyrir 2,2 miljónir. Portúgalska hellugrjótið í geymslu
Við ákváðum að malbika yfir
þennan vegarspotta á Lauga-
veginum á milli Frakkastígs og
Klapparstígs til þess að vera
fljótari með viðgerðina en ella og
einnig til þess að valda sem
minnstri röskun hjá kaup-
mönnum. En það verður enginn
sérstakur dreginn til ábyrgðar
vegna þeirra mistaka sem urðu
við verktakaframkvæmdirnar sl.
vetur vegna þess aðj>etta var röð
óhappa, sagði Ingi U. Magnússon
gatnamálastjóri við Þjóðviljann.
Grœnfriðungar
Mótmæla í
60 borgum
Mestu mótmœlaaðgerðir
Grœnfriðunga gegn hval-
veiðum íslendinga í
Bandaríkjunum tilþessa.
Munu einkum beinast
gegn veitingahúsum
LongJohn Silvers og
Burges
I dag standa Grænfriðungar í
Bandaríkjunum fyrir mestu mót-
mælaaðgerðum sem þeir hafa
nokkru sinni staðið í áður gegn
hvalveiðistefnu íslendinga og
munu þær fara fram í 60 borgum.
Mótmælin munu einkum beinast
gegn veitingahúsakeðjum Long
Johns Silvers sem er einn aðal-
fiskkaupandi Coldwater Seafood
og gegn Burgers veitingahúsak-
eðjunni sem verslar aðallega við
Iceland Seafood Corporation.
Að sögn talsmanns Grænfrið-
unga í Boston er tilgangur mót-
mælanna einkum sá að þrýsta á
neytendur og veitingahúsakeðj-
urnar til að hætta að kaupa og
neyta fisks frá íslandi á meðan
íslendingar fara í kring um hval-
veiðibann Alþjóða hvalveiðir-
áðsins með því að veiða hvali í
vísindaskyni.
Aðspurður afhverju hval-
veiðum íslendinga hafi ekki verið
mótmælt þegar Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra var í opinberri
heimsókn hjá Reagan forseta í
síðustu viku, sagði hann að ekki
hefði þótt ástæða til þess á sama
tíma sem undirbúningur stóð yfir
vegna mótmælaaðgerðanna í
dag.
Stjórn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hefur samþykkt að
ekki sé fórnandi viðskiptahags-
munum á Bandaríkjamarkaði
vegna hvalveiðanna og Sigurður
Markússon framkvæmdastjóri
sjávarafurðadeildar Sambands
íslenskra Samvinnufélaga sagði
við Þjóðviljann að ef til þess
kæmi að velja á milli hvalveiða og
freðfisksölu vestra, sé ekki annað
hægt en að fórna hvalveiðunum
vegna þeirra miklu hagsmuna
sem séu í húfi á Bandaríkjamark-
aði.
-grh
Alla helgina hafa starfsmenn
borgarinnar unnið við það í næt-
urvinnu að rífa upp portúgalska
sértilhöggna hellugrjótið sem
lagt var á þennan vegarspotta sl.
vetur og áætlaður kostnaður
þessara framkvæmda er um 2,2
miljónir króna sem er pottprís
miðað við hvað það kostaði að
umturna þessum vegarspotta
þegar hann var hellulagður. Sá
kostnaður nam um 22 miljónum
króna.
Aðspurður hvað gert verður
við portúgalska hellugrjótið
sagði gatnamálastjóri að það yrði
fyrst um sinn sett í geymslu þang-
að til fundið verður eitthvert
svæði eða gata þar sem hægt yrði
að notast við það á nýjan leik.
f ár er unnið að gatna- og hol-
ræsaframkvæmdum á vegum
borgarinnar fyrir 1,2 miljarð
króna og sagði gatnamálastjóri
að þær framkvæmdir hafi hingað
Vegarspottinn á milli Klapparstígs og Frakkastígs á Laugaveginum hefur nú verið malbikaðurog opnaðurá
ný tyrir umferð. Portúgalska hellugrjótið sem þar var fyrir, var rifið upp og sett í geymslu til seinni tíma nota.
Mynd: Ari.
til gengið eftir áætlun. Mikið af
skólafólki hefur unnið hjá borg-
inni og verktökum hennar við
pessar framkvæmdir og er fyrir-
sjáanlegt að skortur verði á
starfsmönnum þegar líða tekur á
haustið þegar skólafólkið hverfur
á ný til fyrri starfa innan veggja
skólanna.
„Þetta dettur alltaf eitthvað
niður á haustin vegna manneklu
þegar skólarnir byrja, því við og
verktakarnir höfum lifað á vinn-
uframlagi skólakrakkanna á
sumrin og þá vantar okkur fólk í
vinnu. En ég kvíði samt ekkert
haustinu þó það fækki eitthvað í
starfsliðinu og við munum halda
okkar striki,“ sagði Ingi Ú.
Magnússon gatnamálastjóri.
-grh
Hafrannsókn
Dökkar verb'ðaihorfur
Tillögur um afla nœsta árs: Aflahámarkþorsks skorið niður Í300þúsund tonn. Óbreytt hámark
íýsu- ogufsaveiðum. Samdrátturí veiðum karfa og grálúðu. Aukning í síld og rœkju
Hafrannsóknastofnun leggur til
að á næsta ári verði þorsk-
kvótinn skorinn niður um 60 þús-
und tonn og þá verði aðeins leyfi-
legt að veiða 300 þúsund tonn af
þorski. Þá verði heimilað að
veiða jafn mikið og nú af ýsu eða
60 þúsund tonn og 80 þúsund tonn
af ufsa sem er sama magn og í ár.
Sérfræðingar stofnunarinnar
telja að aflahámark karfa minnki
úr 90 í 75 þúsund tonn og að
aflahámark af grálúðu úr 48 í 30
þúsund tonn. Jafnframt að
aukning verði heimiluð í sfld-
veiðum og rækjuveiðum á næsta
ári.
Þessar tillögur Hafrannsókna-
stofnunar voru kynntar á blaða-
mannafundi í gær þegar stofnun-
inn lagði fram skýrslu sína um
ástand nytjastofna og aflahorfur
1989.
í skýrslunni kemur fram að
ástand sjávar í hlýja sjónum fyrir
Suður- og Vesturlandi sé ágætt en
miklar breytingar hafi orðið á
norður- og austurmiðum frá því
sem var á árunum 1984-1987.
Mælingar á þeim slóðum sýndu
aðstæður sem svipar til köldu
áranna hér við land, 1975, 1977,
1979 og 1981-1983. Versnandi
umhverfisaðstæðna gætir ekki
eingöngu hvað varðar hita og
seltu sjávarins heldur einnig
þörungamagn og átudreifingu á
norðurmiðum, sem voru í lág-
marki í vor eins og flest köidu
árin.
Hafrannsóknastofnun telur að
ef veidd verða 400 þúsund tonn af
þorski á næsta ári muni veiðist-
ofnin minnka úr tæpum 1.100
þúsund tonnum í ársbyrjun 1989 í
940 þúsund tonn í ársbyrjun 1990
og hrygningarstofninn muni nán-
ast standa í stað. Verði aflinn
hinsvegar takmarkaður á næsta
ári við 350 þúsund tonn, muni
veiðistofninn minnka um 100
þúsund tonn en hrygningarstofn-
inn vaxa lítið eitt.
Stofnunin segir að það muni
þýða að þær vertíðir sem fram-
undan eru verða lélegar eins og
að undanförnu. Aftur á móti við
300 þúsund tonna afla á ári muni
veiðistofninn standa sem næst í
stað. Hrygningarstofninn muni
hins vegar vaxa um 80 þúsund
tonn. En með því að lækka
aflahámark þorskveiða niður í
250 þúsund tonn 1989, yrði til
þess að veiðistofn mundi vaxa
lítið eitt næstu árin en hrygning-
arstofn talsvert. Þá mundi fisk-
gengd væntanlega aukast á ver-
tíðarsvæðinu suðvestanlands.
-grh
Vextir í endurskoðun
Eg vil taka það fram í þessu
sambandi að útlánsvextirnir
eru í endurskoðun, sagði Sig-
tryggur Jónsson starfsmaður Eft-
irlaunasjóðs Landsbankans og
Seðlabankans, en eins og greint
var frá í blaðinu fyrir helgi eru
aðeins 3% raunvextir á útlánum
sjóðsins meðan eigi er ótitt að al-
menningur og fyrirtækin greiði
9-12% raunvexti af fjárhags-
legum skuldbindingum.
Sigtryggur sagði að allir þeir
starfsmenn Landsbanka og Seðl-
abanka, sem ekki kysu að greiða í
annan lífeyissjóð greiddu iðgjöld
í Eftirlaunasjóðinn.
Stjórn sjóðsins er skipuð þrem-
ur mönnum. Bankaráð Lands-
banka og Seðlabanka tilnefna
sinn mannin hvort í stjórnina og
einn stjórnarmanna er tilnefndur
af starfsfólki.
Núverandi stjórn skipa Pétur
Sigurðsson, formaður bankaráðs
Landsbankans, Björn Tryggva-
son aðstoðarbanakstjóri Seðla-
bankans og Benedikt Guðbjarts-
son lögfræðingur í Landsbanka.
-rk
Lífeyrismál Seðlabanka
Hvað ber að geia?
Skipbrot stjórnarstefnunnar: Gjaldþrot atvinnulífs og heimila
Almennur fundur í Þinghóli í Kópavogi fimmtudag kl.
20.30.
Framsögumenn: Ólafur Ragnar Grímsson Svavar Gests-
son Svanfríður Jónasdóttir.
Allirvelkomnir. Alþýðubandalagið
Þrlðjudagur 16. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3