Þjóðviljinn - 16.08.1988, Síða 6
FRÉTTIR
Myndin er af þátttakendum á námskeiðinu áður en haldið var utan.
Björgunarnámskeið
Fjallabjörgun
í Skotlandi
Það finnst...
Framhald af síðu 5
létt af markaðslögmálunum, en
það kom í ljós að íslenski mark-
aðurinn er ekkert módel úr hag-
fræðibókum. Hann er í fyrsta lagi
of lítill til að samkeppnin geti
orðið.að því afli sem fræðibækur
segja, og í öðru lagi takmarkast
gildissvið hans af þáttum sem
liggja utan hagfræðilegra módela
en móta hinn einfalda mekan-
isma framboðs og eftirspurnar á
afgerandi hátt. Ég er hér að tala
um mannlega eiginleika eins og
ást á átthögum og atvinnu sinni,
löngun til að vera eigin herra og
njóta hæfileika sinna í vinnunni
o.s.frv.
íslenskt samfélag er orðið ansi
flókin blanda af náttúrulegum
stærðum, kapítalísku hagkerfi og
ýmsu því sem mennirnir hafa
mótað. Ruglingslegar stjórnun-
araðgerðir út frá kreddum frjáls-
hyggjunnar hafa síður en svo
greitt hér úr heldur aukið enn á
sambúðarvanda kapítaiísks hag-
kerfis við mannfólkið í landinu.
Hvernig getum við stokkað
upp sjávarútveginn, fækkað
frystihúsum og fiskiskipum og
aukið framleiðnina, án þess að
slátra heilum byggðarlögum?
Hvernig gerum við frumfram-
leiðslu arðbærari en verslun og
þjónustu? Hvernig jöfnum við
tekjurnar? Það er stórt spurt, en
vandi íslenska samfélagsins er
kominn á það stig að menn verða
að tengja saman skammtímaað-
gerðir og langtíma. Til lausnar á
efnahagsvandanum duga ekki
efnahagsaðgerðir einar sér, held-
ur allsherjaruppskurður á
efnahags- og atvinnulífinu, með
víðtækum félagslegum afleiðing-
um sem verður að taka inn í dæm-
ið líka.
Stjórnarandstaðan rís ekki
undir hlutverki sínu, ef hún
undirbýr ekki nú þegar á mark-
vissan hátt þær aðgerðir, sem hún
mun grípa til, fái hún forystu í
næstu ríkisstjórn. Hún verður að
kveðja tii alla tiitæka sérfræð-
inga, setja þeim markmið á borð
við þau sem nefnd eru hér að
ofan, og hún verður ekki síst að
virkja hugvit og þekkingu hinna
almennu stuðningsmanna stjórn-
arandstöðuaflanna. Einstaka
stjórnmálamenn geta ekki samið
neinar hókus-pókus lausnir,
heldur hlýtur að vera hlutverk
þeirra að verkstýra starfi sér-
fræðihópa og tengja það öflugu
grasrótarstarfi.
Ef stjómarandstaðan tekur
ekki upp svona vinnubrögð,
verður hún gripin með buxurnar
og pilsin niðrum sig eftir næstu
kosningar og getur fátt annað
gert en að taka undir með ber-
rössuðu ráðherrunum og Bubba.
Það getur ekki veriðl að hingað
upp á skeriðt sé kominn sumar-
blús.
Deyr Stalín?
Framhald af 7
gat rifið sig undan því stranga eft-
irliti hinna pólitísku „kommís-
ara“ og farið á eigin spýtur að
stjórna sér og öllu þjóðfélaginu
sem ríkjandi stétt.
Barnið og baðvatnið
Það er mikill siður að spyrða
saman öll neikvæð sérkenni sov-
étstjórnarfarsins fyrr og síðar í
eina kippu og kalia stalínisma. Ég
vil þó aðallega leita skýringa á
sérkennum sovésks sósíalisma í
ýmsum ytri og innri aðstæðum
hans sem mikið til mörkuðu hon-
um farveg, fremur en í skapgerð
Stalíns, þótt auðvitað skipti hún
máli. Stalín var mikill byltingar-
leiðtogi með galla, eins og Maó
sagði. Veikasta hliðin í pólitískri
hugsun hans (reyndar ekki bund-
in við Stalín) var mjög einhliða
áhersla á efnahagsmálin, sú trú
að með uppbyggingu sósíalísks
efnahagsgrunns kæmi sósíalísk
þróun samfélagsins nánast af
sjálfri sér.
Það er meginnauðsyn fyrir
Sovétbúa að gera upp við margt í
arfleifð Stalíntímans. Hættan er
þó sú að barninu verði hellt út
með baðvatninu, eins og einhver
hefur orðað það, og að ýmsum
dýrmætum ávinningum þeirra
tíma verði einnig hafnað. Það á
ekki síst við hér vestur um því við
höfum heyrt meir en nóg ljótt um
Stalín.
Það var yfir höfuð einkenni á
Stalíntímanum að þá gerðust
samhliða stórkostlegir samfélags-
legir ávinningar á flestum sviðum
(líka menningu og listum!) og svo
aðrir hlutir afar ljótir og dapur-
legir. í vestrænni sögutúlkun hef-
ur hið síðara orðið alveg'ráðandi
og fólk fær mynd af hörmungar-
ástandi undir „alveldi óttans“
sem Árni nefnir. Fyrir alþýðu
sovétríkja umræddra tíma (meiri-
hlutans) var hið jákvæða þá höf-
uðhliðin.
Þórarinn Hjartarson
Höfundur er stálsmiður á Akureyri
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Fjórtán björgunarsveitarmenn
úr sex björgunarsveitum fóru í
júlí sl. á fjallabjörgunarnámskeið
í þjálfunarmiðstöðinni Glenmore
Lodge í Skotlandi. Ferðin var vel
heppnuð og komu allir
reynslunni ríkari heim.
Björgunarskóli LHS hafði for-
göngu um þetta námskeiðahald
og var reynt að höfða til þeirra
björgunarsveita sem ekki hafa
sent menn á slík' námskeið áður
til að efla áhugann á þessum þætti
starfsins. Þátttakendur voru allir
af landsbyggðinni og komu þeir
frá Reykjadal, Egilsstöðum,
Vopnafirði, ísafirði, Akranesi og
Hrunamannahreppi.
Á námskeiðinu voru kennd frá
grunni björgunarstörf í fjalllendi
og til flókinna björgunaraðgerða
þar sem reyndi á útsjónarsemi og
markvisst samstarf allra þátttak-
enda.
Þjálfunarmiðstöðin í Glen-
more Lodge, sem rekin er af The
Scottish Sports Council, er ís-
lenskum björgunarsveitarmönn-
um að góðu kunn. Björgunar-
skóli LHS hefur eflt tengslin við
skoska skólann, enda eru skosku
leiðbeinendurnir mjög hæfir og
er mjög almenn ánægja hjá þeim
sem farið hafa á námskeið hjá
þeim.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við framhaldsskóla
Að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vantar stundakennara í- ís-
lensku, myndlist, rafeindatækni, viðskiptagreinar, efnafræði oa
stærðfræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir 20 áqúst
næstkomandi.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ.
Kennarar
Grunnskólann í Grindavík vantar kennara fyrir
starfsdeild, svo og í almenna kennslu og stuön-
ingskennslu. Staðaruppbót og gott leiguhúsnæöi
í boði. Nánari upplýsingar veita yfirkennari í síma
92-68481 og formaður skólanefndar í síma 92-
68304.
FLUGMÁLASTJÓRN
Útboð
Flugmálastjórn ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð
flugstöðvar á Sauðárkróki. Útboðið nær til bygg-
ingarinnar allrar, utanhúss sem innan. Húsið er
timburhús að grunnfleti 241 m2. Útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu flugmálastjórnar, 3.
hæð, flugturninum, Reykjavíkurflugvelli, gegn
skilatryggingu kr. 10.000. Tilboðin verða opnuð á
sama stað miðvikudaginn 31. ágúst kl. 10.00.
Hraðakstur er orsök margra slysa. Miðum
hraða alltaf við aðstæður, m.a. við ástand
vega, færð og veður.
Tökum aldrei áhættu!
ÚUMFERÐAR
I
Iráð
4LÞÝÐUBANDALAGIÐ
ísland - herstöð eða friðarsetur
Ráðstefna á Hallormsstað 27.-28. ágúst
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi og Norðurlandi
eystra gangast í sameiningu fyrir opinni ráðstefnu helgina 27.-28.
ágúst um baráttuna gegn erlendum herstöðvum og hlutdeild fs-
lands í baráttu fyrir friði og afvopnun.
Ráðstefnan verður haldin í Hótel Eddu á Hallormsstað þar sem
þátttakendur geta fengið gistingu og fæði á sérkjörum. Sólarhrin-
gurinn með fqði og gistingu í eins manns herbergi kostar kr. 3.500,-
en kr. 3.100,- á mann, ef gist er í 2ja manna herbergi. Einnig er
svefnpokapláss til reiðu.
Væntanlegir þátttakendur í ráðstefnunni eru beðnir að skrá
sig hjá Hótel Eddu Hallormsstað, sfmi 11705, fyrir 22. ágúst.
Dagskrá ráðstefnunnar
Laugardagur 27. ágúst:
Kl. 13-18:30 Setning: Hjörleifur Guttormsson. Ólafur Ragnar
Grímsson: Afvopnunarmál og erlendar herstöðvar. Albert Jóns-
son, starfsmaður öryggismálanefndar: Island og hernaðarstaðan
á Norður-Atlantshafi. Svavar Gestsson: Alþjóðamál - ný viðhorf.
Tómas Jóhannesson, eðlisfræðingur: Geislavirkni í höfunum og
kjarnorkuvetur. Fyrirspumir milli erinda. Kynnt drög að ávarpi ráð-
stefnunnar. Almennar umræður.
Kl. 20.30 Skógarganga og kvöldvaka.
Sunnudagur 28. ágúst:
Kl. 09-12 Gegn herstöðvum og hernaðarbandalögum: Steingrím-
ur J. Sigfússon: Staðan á Alþingi og í þjóðfélaginu. Sólveig Þórðar-
dðttir, Ijósmóðir: Nábýli við herstöð. Ingibjörg Haraldsdóttir: Bar-
átta herstöðvaandstæðinga. Ávörp fulltrúa frá Norðurlandi eystra
og Austurlandi.
Kl. 13-15 Framhald baráttunnar, næstu skerf. Umræður og niður-
stöður.
Ráðstefnustjórar: Sigríður Stefánsdóttir og Magnús Stefánsson.
Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki.
Fjölmennum (Hallormsstað.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Norðurlandi eystra og Austurlandi
ÆSKULÝÐSF YLKIN GIN
Úthafsrækja á úrvalsverði
Erum að selja úthafsrækju, stóra og girnilega. Frábært verð. Sendum heim.
Upplýsingar í síma 17500 á skrifstofutíma.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins