Þjóðviljinn - 16.08.1988, Page 9
I ÍÞRÓTTIR
Viðar Þorkelsson einbeittur á svip þegar hann skallar knöttinn frá Ragnari Margeirssyni sem reynir eftir mætti að ná til knattarins. Viðar
hefur leikið mjög vel í sumar og átt stóran þátt í velgengni Framara í Islandsmótinu. Mynd: E. 01.
Staðan
Fram .13 12 1 0 27-2 37
Valur . 13 8 2 3 22-12 26
ÍA . 13 7 3 3 23-18 25
KR . 13 7 1 5 20-16 22
KA . 13 6 2 5 21-22 20
Þór .. 13 4 5 4 18-18 17
Víkingur .. 13 3 3 7 10-19 12
ÍBK ,. 13 2 5 6 14-23 11
Leiftur .. 13 1 4 8 8-17 7
Völsungur . 13 1 2 10 8-24 5
Markahæstir
10 Guðmundur Steinsson, Fram
7. Pétur Ormslev, Fram
7. Sigurjón Kristjánsson, Val
6. Halldór Áskelsson, Þór
5. Anthony Karl Gregory, KA
1. deild
Leiftur á
niðurieið
Víkingur vann
botnslaginn
Leiftur frá Ólafsfirði virðist
ætla að staldra stutt við í 1. deild
en liðið hefur ekki áður leikið
þar. í gær beið liðið ósigur gegn
Víkingum sem rifu sig þar með
frá fallbaráttunni, í bili a.m.k.
Sigur Víkinga var nokkuð
sanngjarn þó að heimamenn
hefðu átt heldur meira f síðari
hálfleik. Sóknarlotur þeirra ým-
ist runnu út í sandinn eða enduðu
á Gumundi markverði Hreiðars-
syni. Björn Bjartmarz skoraði
eina mark leiksins þegar um 15
mínútur voru til leiksloka og litlu
munaði að hann næði að bæta
öðru við á lokamínútunni. Þetta
mikilvæga mark Björns gæti
bjargað liðinu frá falli í haust en
staða Leifturs er slæm eftir tapið.
-þóm
1. deild
Fastir liðir
Framarar halda uppteknum hœtti en Keflvíkingar glíma við
falldrauginn
Ekkert lát er á sigurgöngu
Framara og í gærkvöldi urðu
Keflvíkingar fórnarlamb þeirra
en ÍBK er einmitt eina lið deildar-
innar sem náð hefur stigi úr
viðureign við Fram í sumar. For-
ysta Fram er þá áfram 11 stig þeg-
ar aðeins flmm umferðum er ó-
lokið í deildinni og er markatala
þeirra ein sú glæsilegasta sem sést
hefur, 27 mörk skoruð en aðeins
tvisvar sinnuin hefur andstæðing-
um liðsins tekist að skora í mark
þeirra. Keflvikingar eru hins veg-
ar í bullandi fallhættu því þeir eru
Laugardalsvöllur, 15. ágúst
1988
Fram-ÍBK......................2-0
1 -0 Sjálfsmark............55. mín.
2-0 Ómar Torfason...........63. min.
Llð Fram: Birkir Kristinsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Ómar Torfason, Pétur
Ormslev, Viðar Þorkelsson, Kristinn Jóns-
son, Pétur Arnþórsson (Jón Sveinsson
78.), Guðmundur Steinsson, Steinn Guð-
jónsson (Kristján Jónsson 68.), Arnljótur
Davíðsson, Ormarr Örlygsson.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjarnason, Jóhann Júl-
íusson, Guðmundur Sighvatsson, Daniel
Einarsson, Einar Ásbjörn Ólafsson, Árni
Vilhjálmsson, Gestur Gylfason, Sigurður
Björgvinsson, Grétar Einarsson, Ragnar
Margeirsson (Jón Sveinsson 78.), Óli Þór
Magnússon.
Gult spjald: Viðar Þorkelsson, Fram
Maður loiksins: Ómar Torfason, Fram
nú í 8. sæti eftir sigur Víkinga á
Leiftri í gær.
Fyrri hálfleikur var fremur jafn
og tíðindalaus en Framarar voru
heldur meira með boltann án
þess að skapa sér dauðafæri. Þeir
hafa þó oft leikið betur og voru
nokkuð kærulausir í leik sínum.
Framarar reyndu talsvert að
skjóta langskotum utan vítateigs
sem flest fóru langt framhjá
markinu ellegar beint í fang Þor-
steins Bjarnasonar. Keflvíkingar
sköpuðu á stundum hættu við
Frammarkið en aftasta vörnin að
Birki markverði meðtöldum var
vel á verði þannig að ekki varð
mark úr. Leikmenn beggja liða
áttu erfitt með að fóta sig á hálum
vellinum og var ekki auðvelt að
leika á andstæðinginn án þess að
renna á rassinn í leiðinni.
Framarar komu mun ákveðn-
ari til síðari hálfleiks og ætluðu
sér greinilega ekkert nema sigur í
leiknum. Lfndirritaður þurfti
mun meira á pennanum að halda
fyrir vikið því marktækifærin létu
ekki á sér standa. Á 55. mínútu
náðu Framarar síðan forystunni,
að vísu með aðstoð Keflvíkinga.
Arnljótur Davíðsson lék þá
skemmtilega upp hægri kant, inn
í vítateig Keflvíkinga og gaf þá á
Guðmund Steinsson sem var í
færi á vítapunkti. Guðmundur
skaut föstu skoti sem virtist
stefna framhjá en boltinn fór í
Jóhann Keflvíking Júlíusson og
þaðan í markið. Sjálfsmark!
Aðeins átta mínútum síðar
bættu Framarar öðru marki við,
aftur eftir sendingu frá hægri. Nú
var það Pétur Arnþórsson sem
lék inn í teig, gaf háa sendingu á
fjærstöng, hvar Ómar Torfason
kom aðvífandi og skallaði yfir
Þorstein markvörð. Eftir þetta
var öll spenna farin úr leiknum
(ef var þá nokkur) og hefðu
Framarar jafnvel getað bætt
mörkum við. Þorsteinn bjargaði
t.a.m. glæsilega þegar Guð-
mundur skaut frá vítateig og bolt-
inn stefndi efst í markhornið en
Þorsteinn kastaði sér sem köttur
og varði. Keflvíkingar virtust
hins vegar játa sig sigraða og
sýndu lítil tilþrif.
ÓmarTorfason, ArnljóturDa-
víðsson og Guðmundur Steins-
son áttu allir ágætan leik með
Fram en flestir áttu þokkalegan
leik. í ÍBK stóð enginn upp úr,
Þorsteinn Bjarnason stóð fyrir
sínu en annars var liðið fremur
jafnt.
-þóm
Þrlðjudagur 16. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9