Þjóðviljinn - 18.08.1988, Blaðsíða 11
Úlfar og Sigurður
eiga möguleika
Forkeppni Norðurlandamótsins verður
haldin í dag
Norðurlandamótið í golfi verð-
ur haldið á Hólmsvelli við Leiru
um helgina. 54 keppendur, 33
karlar og 21 kona, taka þátt í mót-
inu og eru leiknar 72 holur á laug-
ardag og sunnudag, 36 hvorn
dag. I dag og á morgun eru æfing-
ardagar en völlurinn við Leiru er
mjög góður umn þessar mundir.
Hann er rcyndar erfiðari en áður
en það gerir keppnina bara
skemmtilegri.
íslendingar mæta með sitt
besta lið og er ekki loku fyrir það
skotið að tveir keppendanna,
Úlfar Jónsson og Sigurður Sig-
urðsson eigi nokkra möguleika í
einstaklingskeppninni. Úlfar er
alltaf mjög seigur og hefur 0 í for-
gjöf og Sigurður er í góðu formi
Og þetta
líka...
Knattspyrnuáhugi
Hollendinga ætlar nú allt um koll að
keyra þar í landi. Ettir hinn frækna
sigur landsliðsins í Evrópukeppninni í
sumar hafa Hollendingargripið íþrótt-
ina á lofti og kemst varla annað að hjá
Niðurlendingum. Fyrsti leikur lands-
liðisins í undankeppni heimsmeistar-
akeppninnar verður gegn Wales 14.
september og er þegar uppselt á
leikinn. „Venjulega koma um 30 þús-
und áhorfendur á svona leik en nú
hefðum við getað selt inn á fjóra eða
fimm knattspyrnuvelli, slík er eftir-
spurnin,“ sagði Rob de Leede hjá
knattspyrnusambandinu. Þá verða
eflaust margir Hollendingar í Munc-
hen í október þegar liðið leikur við
V-Þjóðverja í sömu keppni, en Hol-
lendingar urðu einmitt Evrópumei-
starar í Munchen, 25. júní sl.
um þessar mundir og leikur á
heimavelli. Sigurður hefur 1 í for-
gjöf en þess má geta að allir
sænsku keppendurnir eru með 0 í
forgjöf þannig að róðurinn verð-
ur erfiður.
Svíar eru reyndar sigurstrang-
legir á mótinu en Danir eru ekki
langt undan. í kvennaflokki
stöndum við íslendingar ekki
eins vel og þurfa stúlkurnar að
eiga sérlega góðan dag eigi vel að
takast upp.
í dag, fimmtudag, verður for-
keppni á vellinum, svoköllað
„Par þrjú holu mót“, en það er
kynningarmót fyrir keppnina.
Eingöngu eru leiknar 9 holur og
er par 3 á þeim öllum. Á þessu
móti verða allir fyrrverandi ís-
landsmeistarar og golfarar úr
Golfklúbbi Suðurnesja. Þá mun
Tómas Árnason seðlabankastjóri
slá fyrsta högg mótsins, sem hefst
kl. 15.00 í dag.
-þóm
Fótbolti
Austri vann
á markatölu
Austri Eskifirði vann sig upp í
3. deild í gærkvöldi með því að
gera jafntefli við Leikni frá Fá-
skrúðsfirði, 3-3. Liðin eru jöfn að
stigum en Austri hefur hagstæð-
ari markatölu og því nægði þeim
jafnteflið. Nokkrir leikir voru í 3.
deild og urðu úrslit þessi:
Víkverji-Njarðvík.................2-1
Grindavík-fK......................4-1
Leiknir-Stjarnan .................1-5
-þóm
Handbolti
Unglingar keppa
ísland, Bretland og Fœreyjar taka þátt
HSÍ og Flugleiðir hafa nú efnt
til handboltamóts 17 ára og yngri
og fer það fram samhliða Flug-
leiðamótinu. Mótið kallast Atl-
antic mótið og er stefnt að því að
þátttökuþjóðir í framtíðinni
verði frá öðrum löndum sem
liggja að Atlantshafinu, s.s.
Bandaríkin, Kanada, Grænland
og fleiri.
Mótið sem verður haidið að
Varmá í Mosfellssveit er sem sagt
hið fyrsta í röðinni og hefur verið
ákveðið að Englendingar haldi
mótið að ári, Færeyjar 1990 og
Skotland 1991. Þátttökuþjóðir að
þessu sinni eru aðeins þrjár, ís-
land, Bretiand og Færeyjar, og
senda íslendingar fjögur lið til
keppni en hin löndin tvö hvort.
Keppt er bæði í kvenna- og karla-
flokki og verður leikin tvöföld
umferð. Mótið stendur dagana
19.-24. ágúst og eru leiknir fjórir
leikir á dag, 24 alls. Dagskráin
verður sem hér segir:
Fðstudagur, 19.08
Island A-Bretland ka. kl. 17.45
I kvöld
Landsleikur f Laugardal
f5kl. 18.30 Ísland-Svíþjóð
1. d.kv. kl. 19.00 fBÍ-KA
2. d.kv. kl. 19.00 Afturelding-UBK
Island B-Færeyjar kv. kl. 18.55
Island B-Færeyjar ka. kl. 20.05
fsland A-Bretland kv. kl. 21.15
Laugardagur, 20.08
Bretland-Færeyjar kv. kl. 10.00
Island A-lsland B ka. kl. 11.10
Island A-lsland B kv. kl. 14.00
Bretland-Færeyjar ka. kl. 15.10
Sunnudagur, 21.08
Island B-Bretland ka. kl. 10.00
Færeyjar-lsland A kv. kl. 11.10
Færeyjar-lsland A ka. kl. 13.30
Island B-Bretland kv. kl. 14.40
Mánudagur, 22.08
Bretland-lsland A kv. kl. 17.00
Færeyjar-lsland B ka. kl. 18.10
Færeyjar-lsland B kv. kl. 19.20
Bretland-fsland A ka. kl. 20.30
Þrlbjudagur, 23.08
Færeyjar-Bretland ka. kl. 18.00
(sland B-lsland A kv. kl. 19.10
Island B-lsland A ka. kl. 20.20
Færeyjar-Bretland kv. kl. 21.30
Ml&vlkudagur, 24.08
Bretland-ísland B kv. kl. 14.00
Island A-Færeyjar ka. kl. 15.10
Island A-Færeyjar kv. kl. 16.20
Bretland-lsland B ka. kl. 17.30
Flugleiðir gefa minnispeninga
til allra þátttakenda og auk þess
sigurverðlaun í keppni pilta og
stúlkna. Þá verða þeir sem fram
úr skara heiðraðir sérstaklega, og
verða verðlaun veitt fyrir besta
markvörðinn, besta leikmann-
inn, besta varnarmanninn og
markahæsta leikmanninn, bæði
meðal pilta og stúlkna. Einnig
verður prúðasta liðið heiðrað.
Þátttakendum, sem eru um 120,
verður boðið á Flugleiðamótið á
meðan keppni sendur.
-þóm
ÍÞRÓTTIR
Bjarni Sigurðsson og Gunnar Gíslason koma í landsleikinn gegn Svíum en verða vonandi sammála um
hvað gera skal við knöttinn.
Fótbolti
Allir á völlinn
Svíar mœta til leiks með sterkt Ólympíulandslið sitt
í kvöld fer fram landsleikur ís-
lands og Svíþjóðar á Laugardals-
velli og er þetta fyrsti landsleikur
þjóðanna síðan 1983, en þá léku
Svíar íslendinga grátt og sigruðu
4-0. Leikurinn er liður í undir-
búningi Islendinga fyrir undan-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar en fyrsti leikurinn í henni verð-
ur við Sovétmenn 31. ágúst.
Svíar koma hingað með Ólym-
píulandslið sitt en þeir unnu sér
einmitt rétt til þátttöku á leikun-
um í Seoul. Þeir eru því á fullu í
lokaundirbúningi sínum og verða
vafalaust erfiðir viðureignar. Lið
Svía er skipað eftirtöldum leik-
mönnum:
Markverðir:
Sven Andersson, Örgryte IS
Bengt Nilsson, IK Brage
Aðrir leikmenn:
Göran Arnberg, IK Brage
Roger Ljung, Malmö FF
Peter Lönn, IFK Norrköping
Roland Nilsson, IFK Göteborg
Ola Svensson, IFK Göteborg
Sulo Vaattavaara, IFK Norrköping
Leif Engqvist, Malmö FF
Joakim Nilsson, Malmö FF
Anders Palmer, Malmö FF
Stefan Rehn, Djurgardens IF
Jonas Thern, Malmö FF
Jean-Paul Vonderburg, Hammerby
IF
Martin Dahlin, Malmö FF
Jan Hellström, IFK Norrköping
íslenska landsliðið lék oft mjög
skemmtilega knattspyrnu í síð-
asta leik sínum gegn Búlgaríu.
Vamarknattspyrnan sem löngum
hefur loðað við liðið vék fyrir
léttleikandi sóknarbolta og voru
þeir mjög óheppnir að tapa
leiknum. Liðið er nánast óbreytt
frá Búlgaríuleiknum nema hvað
Friðrik Friðriksson og Sigurðarn-
ir Jónsson og Grétarsson komast
ekki í leikinn. Bjarni Sigurðsson
og Gunnar Gíslason koma frá
Noregi og em örugglega í góðri
æfingu og þá kemur Þorsteinn
Þorsteinsson úr Fram inn í hóp-'
inn.
Áhorfendur voru allt of fáir
þegar liðið lék við Búlgaríu og
ættu hinir fjölmörgu áhugamenn
um knattspyrnu hér á landi að
fjölmenna á völlinn. íslenska lið-
ið leikur vonandi til sigurs og því
útlit fyrir góðan leik á Laugar-
dalsvelli í kvöld. Leikurinn hefst
kl. 18.30 og kostar kr. 600 í stúku,
kr. 400 í stæði og kr. 150 fyrir
börn. Góða skemmtun!
-þóm
1. deild kvenna
Valur íslandsmeistari
Kvennaknattspyrnu ýtt til hliðar
Stjarnan-KR................1-1
Stjarnan og KR gulltryggðu
Valsstúlkum íslandsmeistaratit-
ilinn með jafntefli í innbyrðisieik
sínum í Garðabænum í gær-
kvöldi. Staðan í hálfleik var 0-0
en á 10 mín. síðari hálfleik kom
Laufey Henn Stjörnunni yfir með
marki beint úr aukaspymu.
KRingar jöfnuðu ekki fyrr en 20
mín. síðar, og var þar á ferðinni
Helena Ólafsdóttir eftir stungu-
sendingu inn fyrir vörnina.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu sem leiddist jafnvel út í
þó nokkra hörku í lokin en úrslit-
in verða að teljast sanngjörn.
ÍA-Fram....................4-0
Skagastúlkur sigruðu Framara
nokkuð örugglega á Akranesi í
einstefnuleik, og ótrúlegt að ekki
skuli hafa verið skorað fleira en
eitt mark í fyrri hálfleik. Jónína
Víglundsdóttir skoraði það úr vít-
aspyrnu. Öllu betur gekk Skag-
astúlkum í síðari hálfleik, enda
tekið að draga af andstæðingn-
um, og bættu þá Magnea Guð-
laugsdóttir, Halldóra Gylfadóttir
og Ásta Benediktsdóttir við sínu
markinu hver.
Valur-ÍBK..................4-0
Ekki áttu Valsstúlkur í vand-
ræðum með Keflvíkinga að Hlíð-
arenda í gærkveldi. Þær sóttu nær
stanslaust allan leikinn og sigr-
uðu næsta auðveldlega með
mörkum Ragnheiðar Víkings-
dóttur, Bryndísar Valsdóttur,
Sigrúnar Ástu Sverrisdóttur og
Guðrúnar Sæmundsdóttur.
Valsstúlkur hafa því nú þegar
tryggt sér íslandsmeistaratitilinn
þegar tvær umferðir eru eftir, og
leika gegn núverandi íslands-
meisturum f A í úrslitum Bikar-
keppni KSÍ næstkomandi sunnu-
dag. Ekki er enn ljóst hvar leikur-
inn fer fram, því þótt ótrúlegt
megi virðast hefur vallarvörður
knattspymuvalla Laugardals enn
ekki gefið leyfi fyrir því að úr-
slitaleikur Bikarkeppni KSÍ fari
fram á aðalleikvanginum. Er
það hin mesta hneisa að kvenn-
aknattspyman skuli ekki fá einn
leik, og það stórleik sem þennan,
á viðeigandi velli. Greinilegt er
að ráðamönnum þótti ekki nóg
að leggja niður A-landslið
kvenna, nú á að ýta deildarliðum
íslenskrar kvennaknattspymu til
hliðar.
Staðan
Valur......12 10 2 0 36-3 32
KR.........13 8 3 2 31-16 27
Stjarnan..12 7 3 2 31-11 24
ÍA.........11 5 4 2 22-8 19
KA.........11 4 1 6 20-21 13
ÍBK........11 3 2 6 14-22 11
lB[.......12 1 1 10 6-43 4
Fram......12 10 11 6-42 3
-kb/þóm
Flmmtudagur 18. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11