Þjóðviljinn - 03.09.1988, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Mikil barátta var í toppslag FH og Fylkis á nýja grasvellinum í Árbænum í gær. Bæði liðin hafa þegar tryggt
sér sæti í 1. deild. Mynd: E. Ól.
2. deild
Fylkir í fyrstu deild
s ^
Arbœjarliðið er nú ósigrað Í35 leikjum í röð í Islandsmótinu
Það sem hefur einkcnnt aðra
deildina öðru fremur í ár er yfir-
burða staða tveggja efstu lið-
anna, FH og Fylkis, og hefur
spennan á toppnum sjaldan eða
aldrei verið jafn skýr og greinileg.
Liðin áttust við í gærkvöld á gras-
velli þeirra Árbæinga og var
fjöldi áhorfenda á staðnum. FH
hafði þegar tryggt sér sæti í 1.
deild að ári en Fylki nægði jafn-
tefli til að láta drauminn rætast.
Svo fór að liðin gerðu jafntefli,
1-1, og er Fylkir því komið í 1.
deild í fyrsta skipti í sögu félags-
ins.
Leikurinn var mikill baráttu-
leikur og sóttu bæði liðin talsvert
þannig að mörkin hefðu gjarnan
getað orðið fleiri. FH náði foryst-
unni strax á fyrstu mínútunum
þegar Pálmi Jónsson skoraði af
stuttu færi. Markið virkaði sem
vítamínsprauta á Árbæinga og
sóttu þeir stíft að marki FH-inga
allan hálfleikinn. Þeir náðu þó
ekki að nýta marktækifærin fyrr
en Jón Bjarni Guðmundsson
skoraði með skalla skömmu fyrir
leikhlé.
Siðari hálfleikur var sífelld bar-
átta og voru FH-ingar ívið sterk-
ari enda þótt Fylkir hefði náð
hættulegum sóknum. Litlu mun-
aði að heimamönnum tækist að
bæta við marki þegar Gísli
Hjálmtýsson skallaði að marki
FH-inga en þeim tókst að bjarga
á línu. Undir lok leiksins fékk
Hörður Magnússon gott færi hin-
um megin á vellinum en tókst
ekki að skora svo að úslitin urðu
jafntefli, 1-1.
Fylkisliðið er enn ósigrað í
sumar og jsað sem meira er, liðið
hefur ekki tapað leik í íslands-
mótinu í tvö ár, þ.e. 35 leikir í röð
án taps! Marteinn Geirsson hefur
verið með liðið allan þennan tíma
og hefur þjálfaraferill hans verið
lygasögu líkast. Óvíst er hvort
hann verði með liðið að ári en
altént verður spennandi að fylgj-
ast með gengi liðsins á sínu fyrsta
ári í 1. deild svo og ferli krafta-
verkamannsins Marteins Geirs-
sonar í framtíðinni.
-þom
Fótbolti
Samstarf erkifénda
Valur og Fram heyja samvinnu um kynningu á Evrópu-
leikjum sínum
Þrír leikir verða í Evrópu-
keppnunum í næstu viku en Val-
ur, Fram og ÍA taka þátt í kepp-
nunum þremur eins og venjulega.
Reykjavíkurfélögin og erkifénd-
urnir leika bæði gegn þekktum
liðum, Valur gegn Monaco og
Fram fær Barcclona í heimsókn,
og hafa félögin sameinast um
kynnigarherferð fyrir leikina.
M.a. er boðið upp á stúkumiða
með afslætti, séu keyptir miðar á
báða leikina, sameiginlega leik-
skrá og fleira.
Það er ánægjulegt að félögin
skuli vinna saman að undirbún-
Síðasti leikur íslands-og bika-
rmeistara Vals var þeim sérlega
léttur en Framstúlkur urðu þeim
að bráð á Hlíðarenda í gærkvöld.
Leikurinn var einstefna allan tím-
ann eins og lokatölurnar gefa til
kynna en I. knum lauk með stór-
sigri Vaí 10-0, en staðan í
leikhléi va. -0.
Guðrún -mundsdóttir kom á
ingnum því oft hefur ríkt mikil
samkeppni milli liða um áhorf-
endur. Pað er greinilega von for-
ráðamanna félaganna að fólk
fjölmenni á báða leikina, en það
er ekki ólíklegt að svo verði þar
sem frægar stjörnur leika með
báðum aðkomuliðum, og ekki
dregur árangur landsliðsins gegn
Sovétmönnum úr aðsókninni.
Varla þarf að kynna hið fræga
félag Barcelona, en liðið er með-
al allra stærstu íþróttafélaga
heims. Knattspyrnan er þar lang
vinsælust og eiga þeir Börsungar
óvart í leiknum með því að skora
3 mörk, en hún lék í sókninni nú í
stað vamar í allt sumar. Arney
Magnúsdóttir skoraði einnig 3
mörk, Bryndís Valsdóttir 2 og
þær Magnea Magnúsdóttir og
Kristín Briem sitt markið hvor,
en Bryndís er nú markahæst í
deildinni með 12 mörk.
kb/þóm
myndarlegan heimavöll sem
rúmar um 110 þúsund áhorfend-
ur. Með liðinu koma væntanlega
nokkur hundruð manns og þá
verður leiknum lýst beint á 9 út-
varpsrásum á Spáni og lýsa tvær
útvarpsrásanna bæði á spænsku
og katalónsku. Frægasti leikmað-
ur Barcelona, Gary Lineker,
kemur ekki hingað til lands en
hann hefur átt við veikindi að
stríða í allt sumar.
Lið Monaco varð Frakklands-
meistari síðastliðið vor og lék
mjög skemmtilega knattspyrnu
allt árið. Liðið státar af tveimur
breskum stjörnum, þeim Glenn
Hoddle og Mark Hateley, en auk
þeirra eru leikmenn eins og Man-
uel Amoros og Patrik Battiston
öllum kunnir. Óvíst er hvort Ra-
inier Monacofursti komi til lands-
ins en það þykir ekki ólíklegt
vegna hins mikla knattspyrnu-
áhuga gamla mannsins.
Valsmenn leika sinn leik á
þriðjudag kl. 18.15 en Framarar á
sama tíma daginn eftir. Forsala
stendur yfir í Kringlunni í dag og
á mánudag og í Austurstræti á
mánudaginn. Stúkumiðar á báða
leikina kosta aðeins kr. 1200 en
kr. 750 á annan leikinn. Stæðis-
miðar eru á kr. 500 og barnamið-
ar á kr. 200. Fyllum stúkuna á
báða leikina!
-þóm
1. deild kvenna
10-0 á Hlíðarenda
Valsstúlkur gengu yfir Framara
Laugardagur 3. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
SKÓLARITVÉLIN
BROTHER AX-15
Srother AX-15 er með dálkastilli, síbylju á
öllum stöfum, gleiðritun, miðjustillingu,
sjálfvirkri undirstrikun og endurstaðsetn-
ingu, leiðréttingaminni, leiðréttingu heilla
orða og lína eða flesta kosti fullkomnustu
skrifstofuvéla.
Skoðið allar skólaritvélar, sem eru á mark-
aðnum. Við vitum að BROTHER AX-15
verður fyrir valinu.
BORGARFELL.Skólavörðustíg 23, simi 11372
''/v/Æ Útboð Brú á Dýrafjörð I - undirbúningsframkvæmdir W Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint ~ verk, sem felst í gerð vegar að brúarstæði og efnis- námum og gerð vinnusvæðis. Efnismagn 30.000 m3. Verki skal lokið 1. desember 1988. Útboðsgöng verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. september n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 19. september 1988.
Vegamálastjóri
tÓnUstaráíÓlÍnn ármúla44 sími:392lO nno:66Z7-4446
Frá
Nýja tónlistarskólanum
Innritun fyrir skólaárið 1988-9.
Aðalkennslugreinar, forskóli, 6-8 ára börn, pí-
anóleikur, orgelleikur, öll strokhljóðfæri, flautu-,
gítar- og klarinettuleikur, söngur.
Nemendur frá sl. skólaári mæti á mánudag eða
þriðjudag 5. og 6. sept. kl. 5-7 og staðfesti um-
sóknir sínar með greiðslu á hluta skólagjaldsins.
Innritun nemenda í forskóla fer fram á sama
tíma.
Inntökupróf fyrir nýja nemendur byrja 7. sept.
Nýir nemendur tilkynni sig í síma 39210 kl. 3-6.
Söngpróf verða 1. og 12. sept.
Nýi tónlistarskólinn
Tónlistarskóli
Garðabæjar
Smiðsbúð 6, sími 42411
Forskóli, hljóðfæradeildir, söngdeild.
Tekið á móti umsóknum um skólavist til 8. sept-
ember.
Skrifstofan er opin virka daga kl. 14-18.
Skólastjóri