Þjóðviljinn - 16.11.1988, Síða 14
/fDAG^f
Mynd-
birtingar
í blöðum
Það hvessti heldur betur í heita
pottinum í gærmorgun þegar
einn af fastagestunum kom móð-
ur og másandi upp úr lauginni
eftir sundsprettinn og virtist ekki
hafa hugsað um annað en nýliðið
réttarhald Jóns Óttars á Stöð 2 í
fyrrakvöld. Þar var réttaö um það
hvort birta ætti myndir af kynferð-
isglæpamönnumíblöðum.
Niðurstaða kviðdómenda var
samhljóða um að birta ætti
myndir af|þessum ólánssömu
mönnum þrátt fyrir að myndbirt-
ing gæti skaðaö hans nánustu og
væri nánast hefnd í garð að-
standenda fórnarlambsins.
„Ég var alveg sammála
kviðdómendum um að birta eigi
myndir af þessurh glæpa-
mönnum. Ekki bara einu sinni
heldur oft,“ sagði sá móði eftir að
hafa kastað kveðju á viðstadda.
„Með því móti þekkjast þessir
menn og verða öðrum víti til varn-
aðar. Að ekki sé talað um að oft-
ast nær ganga þessir menn
lausir áður en dómur er kveðinn
upp í máli þeirra vegna seina-
gangs ídómskerfinu. Við höfum
brennt okkur alltof mikið á þess-
ari manngæsku að hlífa afbrota-
mönnum um að þeir sjái að sér.
Mælirinn er bara f ullur og nauð-
syn að taka á þessum málum af
festu," sagði þessi aðdáandi
myndbirtingará kynferðisaf-
brotamönnum.
„Ertu frá þér,“ sagði annar.
„Við búum í svo fámennu landi
að myndbirting er nánast kross-
festing fyrir alla aðstandendur
glæpamannsins sem ekki hafa
unnið til neinnar refsingar. Á að
hegna þeim fyrir það eitt að
þekkja viðkomandi sem drýgði
eitthvert ódæði?" Við þessari at-
hugasemd kom ekkert svar en
viðstaddir kinkuöu kolii til sam-
þykkis síðasta ræðumanni.
Málið var rætt nokkra stund
fram og til baka í heitapottinum
og virtust í fljótu bragði flestir vera
á móti myndbirtingu. Sérstaklega
ef það ætti að vera blöðunum í
sjálfvald sett að ákveða það upp
á eigin spýtur hvenær það væri
gert. Fannst mörgum að blöðun-
um væri gefið of mikið vald í
þessum efnum sem tæki fyrst og
fremst mið af sölumöguleikum
viðkomandi blaðs en ekki af
neinu réttlæti.
í umræðum fastagestanna um
málið voru menn á einu máli um
að of mikillar hefndargirni gætti í
þessari umræðu og að tilfinn-
ingahiti réði mikið afstöðu manna
til myndbirtingar kynferðisaf-
brotamannafremuren haldgóð
rökfyrirhenni. -grh
ÍDAG
er 16. nóvember, miðvikudagurí
fjórðu viku vetrar, tuttugasti og
sjötti dagur gormánaðar, 321.
dagur ársins. Sól kemur upp í
Reykjavík kl. 10.00 en sest kl.
16.24. Tungl hálft og vaxandi.
UM UTVARP & SJONVARP
Mýsla í Glaumbæ
Sjónvarp kl. 18.00
Fröken Mýsla Hansen frá
Glaumbæ er á ferli í kvöld og lítur
nú inn til leikhúsrottu. Jafnframt
því, sem við fáum að skyggnast
inn í hugarheim Mýslu verða
sýndar vinsælar teiknimyndir.
Kári köttur og félagar hans lenda
í þrumuveðri og í teiknimyndinni
um Samma brunavörð fremur
Nonni litli ýmis prakkarastrik,
svo sem hann þykir eiga vanda til.
- Og í dag byrjar svo ný þáttaröð
um björninn Paddington, sem
börnum er að góðu kunnur og
rekst hann þegar á fólk, sem
tekur hann Undir sinn verndar-
væng. - En fleira er í pokahorn-
inu hjá Mýslu í dag. Til dæmis
teiknimyndaflokkurinn um tusk-
udúkkurnar. Þær eru mjög sam-
hentar og nú finna þær leikfanga-
flugvél. Síðan kemur svo Rubbi
hundur og sullar allt út í málningu
þegar hann er að hressa upp á
útlit hússins síns. - Og loks er það
svo Myndglugginn, með
Stöð 2, kl. 20.45
í þættinum Heil og sæl í dag er
„áfengi og lífsnautn" á dagskrá.
Leitast verður við að svara ýms-
um spurningum um áfengisvand-
amálið og er þar vissulega úr
mörgu að moða. Meðal þeirra
spurninga, sem leitað verður
svara við, eru þessar: Á að ráð-
leggja unglingum hófdrykkju eða
bindindi? Hvort eru veikir drykk-
teikningum eftir yngstu áhorf-
endurna. - Umsjónarmaður þátt-
arins um Mýslu og vini hennar er
Árný Jóhannsdóttir. -mhg
ir eða sterkir heppilegri fyrir þá,
sem á annað borð neyta áfengis?
Hvernig er ástandið í forvarn-
armálunum? Hversu miklar líkur
eru á þvf að maður, sem fer í á-
fengismeðferð nái áttum og haldi
sig síðan frá drykkju? Það er Sal-
vör Nordal, sem leitar svara við
þessum spurningum en handritið
er Jóns Óttars Ragnarssonar,
sjónvarpsstjóra. -mhg
Heil og sæl
Páll Heiðar Jónsson
Eyðing
regn-
skóganna
Rás 1 kl. 22.30
f kvöld er á Rás eitt þáttur, sem
nefnist „Samantekt um regn-
skóga og fleiri atriði, er áhrif hafa
á ósonlagið“... Þar verður fjallað
um hina stórfelldu og geigvæn-
legu eyðingu regnskóganna um
miðbik jarðar og að hverju muni
reka ef svo fer fram um hana sem
verið hefur. Þá verður og um það
rætt hvaða ráð menn eygja helst
til úrbóta. Umsjónarmaður þátt-
arins er Páll Heiðar Jónsson. -
Bent skal á að þættinum verður
einnig útvarpað á morgun kl.
15.03. -mhg
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Reikistjarnan Kalli
erásveimiísólkerfinu.
Enginn verður hennar var fyrr en
hún er mitt á milli sólar og jarðar.
FOLDA
VIÐBURÐIR
Fæddur Jónas Hallgrímsson
náttúrufræðingurog skáld 1807.
Fæddur Jón Sveinsson, Nonni,
prestur og rithöfundur 1857.
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50ÁRUM
Verklýðsflokkarnirfrönsku
snúast einhuga gegn árásum
stjórnarinnar. Þing verklýðs-
sambandsins mótmælir eindreg-
ið tilskipunum stjórnarinnar um
verklýðsmál.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. nóvember 1988
I