Þjóðviljinn - 24.11.1988, Qupperneq 5
ÞINGMOLAR
36. ÞING ASI
Miðstjórnarkjör
Grátar og Kristín efet
Vinstri menn hlutu góða kosningu. Karvel og Pórður íneðstu sætum.
Konur aðeins þriðjungur aðalfulltrúa
Boðuð kvennabylting skilaði sér ekki í miðstjórnarkjöri, en kona situr
nú í fyrsta sinn í sæti 1. varaforseta. Mynd-Jim.
Grétar Þorsteinsson formaður
Trésmíðafélags Reykjavíkur
hlaut flest atkvæði í kjöri til
miðstjórnar ASÍ í gærkvöld.
Hann hlaut 56.600 atkvæði en
næst flest atkvæði hlaut Kristín
Hjálmarsdóttur, form. Iðju, Ak-
ureyri, 55.775.
Allir þeir 18 sem kjörnefnd
gerði tillögu um hlutu kosningu í
miðstjórn, en að auki bárust til-
lögur um fjóra aðra í miðstjórn.
Þrjár konur úr forystusveit sem
gerð var tillaga um úr sal, vildu
ekki í framboð. Af þeim 21 full-
trúa sem eiga sæti í miðstjórn,
þ.e. að meðtöldum forsetum, eru
aðeins 7 konur eða þriðjungur,
þrátt fyrir samþykkt þingsins frá í
gærdag um að leitast skyldi við að
ná sem jöfnustum hlut kynja í
stjórnum og ráðum ASÍ.
Aðrir sem hlutu kjör í mið-
stjórn voru eftir atkvæðatölu;
Óskar Vigfússon form. Sjómann-
asambandsins (55.300), Þórunn
Sveinbjörnsdóttir form. Sóknar
(55.100), Hansína Á. Stefánsdótt-
ir, Verslm.fél. Árnessýslu,
(54.675), Magnús Geirsson,
form. Rafiðn.samb. (54.575),
Guðmundur Þ. Jónsson, form.
Iðju, (54.425), Jón A. Eggerts-
son, form. Vfl. Borgarness,
(54.400), Þóra Hjaltadóttir,
form. Alþýðusb. Norðurlands,
(53.925), Guðmundur Hallvarðs-
son form. Sjómannafélags Rvík.
(53.425), Halldór Björnsson var-
aform. Dagsbrúnar, (52.250),
Guðríður Elíasdóttir, form.
Framtíðarinnar, (51.400), Sigur-
laug Sveinbjörnsdóttir, VR,
(51.300 og Hrafnkell A. Jónsson
form. Árvakurs, (49.925).
í neðstu sætunum lentu þeir,
Karvel Pálmason Vlf. Bolungar-
víkur (43.275), Þórður Ólafsson,
Vfl. Boðanum, (43.125) og Sig-
urður Óskarsson, Vfl. Rangæing
(42.600). Næst á eftir kom Birna
Þórðardóttir VR, með 32.375
atkv., þá Sigurður Guðmundsson
Félagi starfsfólks í veitingahús-
um, 20.275 atkv., Sigurður T.
Sigurðsson, form. Hlífar, 19.225
atkv., og Leó Kolbeinsson, Borg-
arnesi 12.375 atkv.
Af þeim sem nú voru kjörnir
aðalmenn í miðstjórn hafa 8 ekki
setið þar áður. Kjör til vara-
stjórnar fór fram seint í gærkvöld
og voru 19 í framboði um 8 sæti.
Urslit lágu ekki fyrir þegar blaðið
fór í prentun.
-•g-
1. varaforseti ASÍ
Konur halda sínu
Ragna Bergmann: Mikill viljifyrir samstöðu og auknu samstarfi
innan hreyfingarinnar
- Það kom mér verulega á
óvart að lenda í þessari stöðu.
Þegar ég kom hingað til þingsins,
þá hugsaði ég aldrei að ég kæmi
til greina sem forsetaefni, segir
Ragna Bergmann formaður
Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar í Reykjavík sem var
sjálfkjörin í embætti 1. varafors-
eta Alþýðusambapdsins.
- Við konur hér á þinginu
höfðum ákveðið að halda hlut
okkar í forystusveitinni og það
hefur gengið eftir og ég vona að
það styrki okkar hreyfingu. Ég lít
á þessa kosningu mína einnig sem
áfangasigur fyrir okkur konur í
verkalýðshreyfingunni.
Hvernig metur þú almennt
stöðu hreyfingarinnar í dag?
- Við búum við þau ólög að
hafa ekki frjálsan samningsrétt
og kjarasamningar okkar eru
skertir hvað eftir annað. Við
verðum með öllum ráðum að
brjótast undan þessu oki.
Telur þú að þetta þing muni
styrkja samheldni og stöðu Al-
þýðusambandsins.
- Það kallar alltaf á gagnlega
umræðu um stöðu hreyfingarinn-
ar þegar verkafólk og forystufólk
í hreyfingunni kemur saman til
þinga sambandsins. Ég held að
það sé mikill vilji fyrir samstöðu
og meira samstarfi innan
hreyfingarinnar en verið hefur
undanfarin ár.
- Hverju munt þú helst beita
þér fyrir sem 1. varaforseti?
- I fyrsta lagi að við náum
strax aftur okkar samningsrétti.
Ég tel líka að það verði að leggja
mikla áherslu á kjara- og skipu-
lagsmálin og ná sem víðtækastri
samstöðu um þau mál, sagði
Regna Bergmann.
-Ig
IJttekt á stöðu
aldraðra
Þorbjörn Guðmundsson Tré-
smiðafélagi Reykjavíkur hefur
lagt til að miðstjórn skipi starfs-
hóp fyrir febrúarbyrjun nk. til að
framkvæma ítarlega úttekt á
stöðu aldraðra. Niðurstöður
slíkrar úttektar liggi fyrir eigi síð-
ar en í lok september á næsta ári
og boða skuli þá fljótlega til ráð-
stefnu þar sem niðurstöður verði
kynntar og stefna verkalýðssam-
takanna í málefnum aldraðra
mótuð.
Stuðningur við
Kvennaathvarf
Forseti Alþýðusambandsin^,
Ásmundur Stefánsson hefur lagt
fram ályktunartillögu á þingi
sambandsins þar sem skorað er á
ríkisstjórnina að gera í samstarfi
við stærri sveitarfélög, ráðstafan-
ir til þess að tryggja fjárhagslegan
traustan rekstur Kvennaathvarfs-
ins.
Reynslan sýnir að brýn þörf er
fyrir þjónustu Kvennaathvarfsins
og það er óviðunandi að stöðug
óvissa sé um áframhaldandi
rekstur. Þeirri óvissu verður að
eyða, segir í tillögu forsetans.
Málþing
um samstarf
Fimm þingfulltrúar, þau
Tryggvi Þór Aðalsteinsson,
Böðvar Pétursson, Jón Agnar
Eggertsson, Vilborg Þor-
steinsdóttir og Grétar Þorsteins-
son, hafa lagt fram tillögu þar
sem miðstjórn ASÍ er falið að
beita sér fyrir nánara samstarfi
ASÍ við önnur samtök launafólks
á komandi kjörtímabili.
í þessu skyni verði boðað til
málþings með þátttöku félags-
manna annarra stéttarsamtaka,
þar sem rætt verði um skipulag
stéttasamtakanna og samstarf
þeirra. Málþingið verði haldið
eigi síðar en árið 1990.
Birna
í fullum rétti
Birna Þórðardóttir, hefur
fengið viðurnefnið Birna fjór-
tándi á þessu ASÍ-þingi þar sem
hún er 14. varamaður á þingfull-
trúalista Verslunarmannafélags
Reykjavíkur. Það virðist hins
vegar ekki koma að sök, því
Birna er í fullum rétti á þinginu
sent aðalmaður, vegna mikilla
forfalla í aðalmannaliði VRinga
sem eiga rétt á 47 aðalfulltrúum á
þinginu.
2. varaforseti ASI
Verðum að samræma sjónarmiðin
Örn Friðriksson: Ánægður með víðtækttraust. Alþýðusambandsins
að virkja einstök félög til baráttu
- Þetta er mjög víðtækt traust
sem ég hlaut frá þingfulltrúum í
þessari kosningu og ég er mjög
ánægður með það, segir Orn
Friðriksson, formaður sambands
Málm- og skipasmiða sem kjör-
inn var 2. varaforseti ASÍ á þing-
inu í gær. Örn hlaut 73% atkvæða
en Vilborg Þorsteinsdóttir for-
maður Snótar í Vestmannaeyjum
hlaut 23% atkvæða.
- Ég er þakklátur fyrir þessa
kosningu og líka fyrir það að
þingfulltrúar séu reiðubúnir að
greiða atkvæði um sína forystu-
menn. Það er ósköp eðlilegt að
fólk geri kröfu til ASÍ um forystu,
en hið raunverulega vald liggur
ekki hjá sambandinu heldur hin-
um einstöku verkalýðsfélögum.
Það er Alþýðusambandsins að
samræma sjónarmið félaganna
og virkja einstök félög til baráttu.
Ég vona að það takist betur til í
þeim efnum framvegis en hingað
til, því það er full þörf á því.
Örn segist vera ánægður með
umræður á þinginu hingað til og
greinilegt sé að vandað hafi verið
til undirbúnings þess. - Hér liggja
mál vel skilgreind fyrir í fjöl-
mörgum málaflokkum. Þessi mál
eru lögð fram til umræðu meðal
þingfulltrúa en ekki eingöngu til
beinnar afgreiðslu, það skiptir
miklu og er jákvætt.
Það hefur verið mikil umræða
á þessu þingi um virkari sam-
stöðu innan sambandsins og einn-
ig meira samstarf og samvinnu
við önnur samtök verkafólks.
Hefur þú trú á því að hægt verði
að koma slíku samstarfl á í ríkari
mæli en verið hcfur?
- Það er ekki vafi á því að hér á
þinginu er mikill vilji fyrir
aukinni samstöðu, en mér finnst
þetta snúast fyrst. og fremst um
skipulag sambandsins og starfs-
hætti sem hafa á margan hátt ver-
ið þrándur í götu fyrir betra sam-
starf. Það þarf að breyta skipu-
lagi og starfsháttum hreyfingar-
innar í þá átt sem menn hafa verið
almennt sammála um en ekki
hefur enn tekist að koma í fram-
kvæmd.
Þú hefur sjálfur verið í forystu
fyrir starfsgreinasamningum í ÁI-
verinu í Straumsvík. Munt þú
beita þér fyrir uppstokkun í þá
veru?
- Það er ekki hægt að ganga út
frá því vísu, að þótt slíkir samn-
ingar gefi góða raun á einum stað
þá eigi þeir við alls staðar. Ég á
hins vegar von á því að ný mið-
stjórn muni fjalla ítarlega um
þessi mál á næstunni.
- Hvað telur þú brýnustu
verkefni Alþýðusambandsins og
verkalýðshreyfingarinnar nú á
næstu vikum?
- Stefnumörkun í atvinnumál-
um og kjaramálin eru þar efst á
blaði og ég vona líka að það
skýrist hér á þinginu hvaða leiðir
menn telja færar til að endur-
heimta hið fyrsta samningsrétt
okkar. Annars er þingið núna
ekki nema rétt hálfnað og ég tel
rétt að þingfulltrúar leggi sjálfir
línur í þeim málum sem brýnt er
að taka á, segir Örn Friðriksson
2. varaforseti Alþýðusambands-
ins.
-lg
Fimmudagur 24. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5