Þjóðviljinn - 07.12.1988, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 07.12.1988, Qupperneq 7
BÆKUR Sjóslysabálkur íslands Út er komið hjá Erni og Örlygi 19. bindi björgunar- og sjóslysa- ,sögu íslands, Þrautgróðir á raunastund, eftir Steinar J. Lúð- víksson. Þetta nýja bindi fjallar um árin 1972, 1973 og 1974. Á þessum árum gerðust margir stórviðburðir og má þar m.a. nefna er togarinn Hamranes sökk út af Jökli í júnímánuði 1972, en mikil réttarhöld fylgud í kjölfar þess atburðar, hörmuleg sjóslys er urðu í skaðaveðrum í febrúar 1973 en þá fórust vélbátarnir María og Sjöstjarnan með allri áhöfn. Stóð leitin að Sjöstjörn- unni tíu daga og mun vera um- fangsmesta leit á sjó við ísland. Fjölmargar aðrar frásagnir eru í bókinni. í formála höfundar kemur fram að þetta er næstsíðasta bind- ið í bókaflokknum, a.m.k. í bili. Verið sé að vinna nafnaskrá bindanna nítján og sé ætlunin að sú bók komi út að ári. Rússnesk Ijóð á íslensku Út er komin hjá Máli og menn- ingu ný bók með ljóðaþýðingum úr rússnesku eftir Geir Kristjáns- son. Nefnist hún Undir hælum dansara. Bókin geymir geymir 37 ljóð eftir 10 höfunda sem sumir hafa verið taldir með merkustu skáldum aldarinnar. Lesandinn kynnist þarna hin- um íhygla Pasternak, hinum frakka og kjaftfora Majakovskí og fíngerðum og fögrum ljóðum Önnu Akhmatovu. í bókinni er líka hið afdrifaríka ljóð Osip Mandelstam um Stalín, en fyrir það var hann handtekinn og er talinn hafa endað ævina í fanga- búðum í Síberíu. Þá eru í bókinni ljóð eftir höfuðskáld rússneska symbólismans, Alexander Blok, sveitaskáldið Sergei Esénín, Marínu Tsvétajevu, Evgéni Evt- usjenko, Andrej Voznésénskí og nóbelsverðlaunahafann Jósef Brodskí. Þýðandinn, Geir Kristjánsson, er löngu virtur og kunnur fyrir þýðingar sínar úr rússnesku. í bókarlok gerir hann grein fyrir skáldunum, sem mörg hver máttu þola ótrúlegar raunir fyrir það eitt að yrkja. Undir hælum dansara er 70 bls. að stærð og gefin út bæði inn- bundin og í kilju. Kápuna gerði Ingibjörg Eyþórsdóttir. Senuþjófar gegn sósíalisma Hannes H. Gissurarsun MarkaSsöfl og miðstýring BSE 1988 Sá svarti senuþjófur, Hannes H. Gissurarson, sendi nýverið frá sér bók sem ber heitið „Markaðs- öfl og miðstýring." Já, lesandi góður, þú átt kollgátuna, bókin fjallar um frjálshyggju! Hannes ræðir fremur um stjórnmálahag- fræði en stjórnspeki, ver frjáls- hyggju en vegur að sósíalisma, eins og hans er von og vísa. í fyrsta kafla ræðir hann um sér- eignaskipulagið, í öðrum kafla gagnrýnir hann áætlanabúskap, í þeim þriðja er markaðssósíalismi Oskars Langes krufinn, og svo er blandaða hagkerfið vegið, metið og léttvægt fundið. í lokin ræðir Hannes ýmis dægurmál og gagnrýnir m.a. kvenréttindakon- ur með athyglisverðum hætti. Sósíalismi/ markaðskerfi Á blaðsíðu 83-84 vitnar Hann- es í þau ummæli Ólafs Björns- sonar að atburðirnir í Tékkó haustið 1968 sýni að frjáls gagnrýni og sósíalismi geti ekki farið saman. En Prögu-vorið sýnir hið gagnstæða, Dubcek aflétti ritskoðun að kalla án þess að hætta áætlanabúskap. Innrás Rússanna var algerlega ótengd gangvirki tékkneska efnahags- lífsins. En við megum ekki gleyma því að tékkneski komm- únistaflokkurinn hélt valda- einokun sinni, við vitum ekki enn hvort fjölflokkakerfi og áætlana- búskapur getur farið saman. Við vitum heldur ekki hvort hægt er að framkvæma hugmyndir pólska hagfræðingsins Oskars Langes um markaðssósíalisma. Lange smíðaði líkan að hagkerfi þar sem ríkið á framleiðslutækin og áætl- anaráð gegnir hlutverki markað- ar (bls-. 88). Ráðið setur fyrir- tækjum reglur sem eiga að tryggja að þau hegði sér sem einkafyrirtæki er stefna að há- markshagkvæmni. Ríkið á að koma í veg fyrir atvinnuleysi og kreppur en neysluval og starfsval er frjálst. Hannes gagnrýnir svo þetta líkan með fulltingi erlendra fræðimanna. Hætt er við að efna- hagsstarfsemin staðni, hvaðan kemur hvati til nýsköpunar ef engin er gróðavonin? Áuk þess getur kerfið orðið alltof stirt, því ekki má breyta verði á fram- leiðslutækjum nema á ákveðnum tíma sem ráðið tiltekur. Verð sem myndast af völdum fram- boðs og eftirspurnar veita einka- fyrirtækjum stöðugar upplýsing- ar um hagkvæmni, þau eiga auðveldara með að aðlaga sig breyttum aðstæðum en áætlana- ráðið hans Langes. Svo má spyrja sig að því hvort við þurfum ný- sköpun. Hví ekki að una glaður við sitt? En hræddur er ég um að áætlanaráðið yrði helsti fyrir- ferðarmikið í kerfi Langes, kom- ist það í gagnið. En þótt markaðskerfið sé að öllum líkindum skilvirkara en áætlanakerfið þá hef ég rnínar efasemdir um mátt ósýnilegu handarinnar (bls. 16-26). Hvern- ig getum við vitað með öruggri vissu að frjáls markaður leiði til efnalegrar kjörstöðu? Rökin fyrir því eru aðallega sótt í líkön sem eru svo sértæk að þau snerta vart jörðina. Og minnir ekki hug- myndin um styrk ósýnilegu hand- arinnar á lífsskoðun þess sæla dr. Pangloss sem Voltaire hæðist að í Birtingi sínum? Ætli blessaður doktorinn sé ekki sameiginlegur forfaðir öfgafullra frjálshyggju- manna og þeirra marxista sem STEFÁN SNÆVARR trúa því að fullsæla kommún- ismans muni koma, hvað sem tautar og raular? Tekjujöfnun í fjórða kafla ræðir Hannes ýmis rök gegn tekjujöfnun. Ro- bert Nozick, bandarískur heimspekingur, segir að tekju- jöfnun fyrir atbeina ríkisins verði ekki framkvæmd nema með vald- beitingu. Nozick hugsar sér samfélag þar sem menn hafa komið á algerlega jafnri tekjusk- iptingu eða einhverri annarri tekjuskiptingu eftir gefnu mynstri sem þeir telja réttlátt). Köllum þessa tekjuskiptingu Tt. Nú heldur einn samfélagsþegn- inn, Garðar Hólm að nafni, söng- skemmtun. Samborgarar hans flykkjast á tónleikana og borga sig inn, dýrum dómum. Hluti af aðgangseyrinum rennur í vasa söngvarans og við fáum nýja tekjuskiptingu, T2, sem ein- kennist af því að Garðar er orð- inn miklu ríkari en allir aðrir. Nozick spyr nú hvort eitthvað sé ranglátt við þessa tekjuskiptingu. Borguðu menn sig ekki inn á tón- leikana af fúsum og frjálsum vilja? Og er þá ekki ranglátt að þvinga söngvarann til að láta féð af hendi, t.d með skattlagningu, svo tekjuskiptingin megi verða jöfn að nýju? En hér er galli á gjöf Njarðar. Hugsurn okkur nú að allir þeir sem borguðu sig inn á söng- skemmtun Garðars séu eindregn- Hannes Hólmsteinn ir fylgismenn T, og hafi einfald- lega ekki gert sér grein fyrir því að atferli þeirra myndi raska tekjuskiptingunni. Kannski hélt hver og einn þeirra að engin ann- ar myndi mæta þannig að tekj- uskiptingin myndi ekki raskast að ráði. Eigum við aðeins að virða markaðsatferli þeirra, ekki pólit- ískan vilja? Réttlæting markaðsf- relsis hlýtur að byggja á sam- þykki upplýstra borgara (pólit- ískum vilja), markaðsatferli út af fyrir sig réttlætir hvorki eitt né neitt. Ef pólitískur vilji manna er í andstöðu við afleiðingar mark- aðsatferlis hafa þeir rétt til að breyta tekjuskiptingunni með lýðræðislegum hætti. Marx Ég felli mig ekki alls kostar við Marxskilning Hannesar (bls. 50- 59). Hannes tínir til ívitnanir í Marx þar sem hann talar eins og sögulegur nauðhyggjumaður. En Marx var tvístígandi í þessum efnum, samanber bréfið fræga til Veru Sassjúlitsj þar sem hann hafnar slíkri nauðhyggju. Marx var nauðhyggjumaður þegar byltingarsinnum vegnaði vel, gagnhrifasinni þegar illa áraði fyrir byltinguna. En gleymum því ekki að Marx var fyrsti dólg- marxistinn, hvað sem 68-liðið kann um það mál að halda! Hannes segir að bæði Platon og Marx hafi litið fjölskylduna horn- auga (bls. 131). En Platon hafn- aði fjölskyldunni af því hann vildi miðstýrt samfélag, Marx af því hann taldi fjölskylduna kúgunar- tæki. Marx var eins konar stjórnleysingi sem var illa við öll bönd, fjölskyldubönd sem önnur. Hannes segir að það brjótist fram gyðingahatur í grein Marx um gyðingavandann. En Han'nes skilur ekki að gyðingur- inn Marx tileinkaði sér öfgafullt og ögrandi orðfæri unghegel- sinna. Aukinheldur barðist Marx fyrir frelsi öllum mönnum til handa. En slík frelsun hefur af- nám stéttasamfélagsins að for- sendu, segir hann. Smælki Hannes bendir réttilega á að markaðsþjóðfélög A-Asíu hafi náð betri efnahagsárangri en kommúnistaríkin austur þar. En hann gleymir þeirri staðreynd að Tævanbúar og Suður- Kóreumenn búa við blandað hagkerfi, ekki alfrjáisan markað. Suður-kóreska ríkið hóf gerð fimm ára áætlana árið 1962 og efldi fimm stórfyrirtæki með skipulegu átaki. Til skamms tíma voru ýmsar hömlur á innflutningi til S-Kóreu. Hannes segir að við höfum ekki fundið óbrigðula aðferð til að finna þá sem vita hvað öllum er fyrir bestu. En er ekki frjáls markaður öllum fyrir bestu? Vita þá ekki frjálshyggjumenn best? Og eru þeir þá ekki forsjár- hyggjumenn? Hannes fordæmir aðskilnaðar- stefnu og rekur hana til ríkisaf- skipta (bls. 204). Hann uppá- stendur að svertingjar í Suður- Afríku búi við betri kjör en blökkumenn annars staðar í Afr- íku. Þessi skoðun er umdeild; í júlíhefti tímaritsins „South“ árið 1985 segir að svertingjar í ekki færri en tíu Afríkuríkjum hafi það betra en blakkir S- Afríkumenn. Á blaðsíðu 97 kallar Hannes Michael Polanyi hagfræðing. En Polanyi var hreint ekki hagfræð- ingur, hann hóf feril sinn sem efnafræðingur og sneri sér síðan að heimspeki og félagsvísindum. Lokaorð Bók Hannesar er læsileg og giska lipurlega skrifuð. Hann hefur losað sig við gyllinæða- og blöðruselsstílinn sem skemmir skrif margra íslenskra mennta- manna og lýtti fyrstu texta Hann- esar. Hvað sem öllum iðrasjúkdóm- um líður treysti ég mér ekki til að dæma um hagfræðiþekkingu Hannesar. En mér virðist bókin snöggtum vandaðri en annað það sem Hannes hefur ritað á ís- lensku. Megi kverið verða kveikja að frjórri umræðu! Víðir Sigurðsson íslensk knatt- spyrna 1988 íslensk knattspyrna 1988 er áttunda bókin í þessum bóka- flokki, sem hóf göngu sína árið 1981. Eins og nafnið gefur til kynna er hér um að ræða árbók knattspyrnunnar og í henni er rakinn gangur mála í íslands- móti, bikarkeppni, landsleikjum og Evrópuleikjum á árinu 1988, auk annarra þátta sem viðkoma íslenskri knattspyrnu. Bókinni er skipt niður í kafla. Fremst eru viðtöl við Ásgeir Elíasson, þjálfara íslands- meistara Fram, og Sigurjón Kristjánsson úr Val, sem var markakóngur 1. deildar og knattspyrnumaður ársins. Þar fjallar einnig Steinn Helgason um knattspyrnu kvenna á árinu. í kafla um 1. deildarkeppnina er gangur hennar rakinn, urnferð fyrir umferð, á ítarlegan hátt og þar er að finna allar helstu upp- lýsingar um liðin og leikmennina. Einnig eru sérstakir kaflar um 2., 3. og 4. deild og um kvenna- deildirnar, svo og um yngri flokk- ana á íslandsmótinu. Bikar- keppnin er í sérstökum kafla, og ennfremur landsleikirnir og Evr- ópuleikir félagsliða. Þá er sér- staklega fjallað um þá íslensku knattspyrnumenn sem leika er- lendis. í bókinni er einnig fjórði kafl- inn í sögu íslenskrar knattspyrnu og að þessu sinni er sagt frá tíma- bilinu 1955-1962. Að vanda eru í bókinni lit- myndir af meisturum í öllum deildum og flokkum íslands- mótsins, 16 að tölu, og einnig heilsíðulitmyndir af átta einstakl- ingum, auk þess níunda sem er á bókarkápu. Hún er einnig prýdd miklum fjölda svart/hvítra mynda. Bókina skrifar Víðir Sigurðs- son íþróttafréttamaður og útgef- andi er Skjaldborg. Hún er 160 blaðsíður í stóru broti. Ótíöindi á okkar öld Frjálst framtak hefur sent frá sér bókina Harmsögur og hildar- leikir á 20. öld eftir bresku blaða- mennina Nigel Bundell og Roger Boar í íslenskri þýðingu Björns Jónssonar skólastjóra. Bókin heitir „The World’s Worst Dis- asters of the Twenthieth Cent- ury“ á frummálinu og fjallar hún um ýmsa atburði sem væntanlega munu fá sitt rými í mannkynssög- unni. Allar frásagnir bókarinnar eru sannar og í bókinni er fjöldi mynda. Atburðirnir sem raktir eru í bókinni eru m.a. þessir: Eldgosið í Mont Pelée 1902, Jarðskjálftinn í San Francisco 1906, Titanic- slysið 1912, Jarðskjálftinn í Tokyo 1923, Loftförin R 101 árið 1930 og Hindenburg 1937, Svartamarkaðshraðlestin frá Napoli 1944, Lundúnaþokan þétta 1952, Jarðskjálftinn í Aga- dir 1960, Bandarískir og sovéskir geimfarar 1967 og 1971, Jarð- skjálftinn í Perú 1970, Eitrunar- fár í írak 1971, Flugslysið í Ermonville-skógi 1974, Eitrun- arslys í Sevesco 1976, Flugslysið í Tenerife 1977, Hitabylgjan mikla 1980, Oliuborpallur sekkur á Norðursjó 1980, Eldgos í St. He- lenu 1980 og Skógareldar í Ást- ralíu 1983. Miðvikudagur 7. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.