Þjóðviljinn - 07.12.1988, Side 13

Þjóðviljinn - 07.12.1988, Side 13
ÖRFRÉTTIR Tugþúsundir manna eru á vergangi í stórborgum Bandaríkjanna og fer þeim ört fjölgandi, þökk sé Rónaldi Reag- an og hirðmönnum hans, grimmum kapítalisma og skeytingarleysi alþýðu manna. Maður er nefndur Mitch Snyder og er í forsvari samtaka sem kosta kapps um að liðsinna „götulýðnum'1 og öðrum berfætl- ingum sem eiga undir högg að sækja í „guðs eigin landi“. Sny- der þessum finnst ekki ná nokk- urri átt að Míkhaíl Gorbatsjov skuli ekki fá að sjá með eigin 'augum þá Ameríku sem ekki ber fyrir sjónir í kokkteilboðum Hvíta hússins og einkahíbýlum höfð- ingja. Því hefur hann boðið hon- um í ökuferð um New York „súp- ueldhúsanna11 og hreysanna. 6.600 lögregluþjónar munu gæta öryggis Gorbatsjovs í New York og má því vera Ijóst að hali sovétleiðtogans verður næsta langur kjósi hann að þekkjast boð Snyders þess er að ofan er getið. Lögreglustjórinn í heimsborginni sagði í gær að hann myndi senda innanríkisráð- uneytinu reikning uppá miljón dollara fyrir þriggja og hálfs dags vinnu. Þetta eru mestu öryggis- ráðstafanir í New York frá því Frelsisstyttunni var haldið veg- legt afmælishóf í hittiðfyrra. Þá voru 32 þúsund löggur og örygg- isverðir látnir gæta „boðsgesta", mannmergöarinnar á götum oq strætum. Bandaríkjamenn eru ekki á eitt sáttir um það hvort George Bush eigi að bjóða Gor- batsjov efnahagsaðstoð og stuðla með þv( að bættum hag fólksins sem hokrar á jörðinni eystra. Þetta er niðurstaða við- horfskönnunar Gallúp samtak- anna, 2.002 menn voru inntir álits. 45 af hundraði eru andvígir „marsjal-aðstoð" í austurveg en þó ívið fleiri hlynntir eða 47 af hundraði. Hinsvegar kváðust 65 af hundraði vissir í sinni sök um þau ágætu nýmæli öll sem Gor- batsjov hefði haft forgöngu um í átthögunum. Gyðingar og Armenar á Bretlandi hyggjast leggja so- véskum frændum sínum lið með uppákomum ýmsum á meðan Gorbatsjov er gestur Margrétar og Elísabetar. Hann kemur til Lundúna á mánudag. Þá verða samtökin „Konur berjast fyrir so- véskum gyðingum" með aðgerð- irvið aðalstöðvar Aeroflot. Maður sem líkist aðalritaranum í sjón mun útbýta „brottfararleyfum". Armenarnir hafa komið að máli við starfsmenn sovésku ræðis- mannsskrifstofunnar í höfuð- borginni og óskað eftir því að fá áheyrn aðalaritarans og eigin- konu hans. Hafa þeir hug á aö ræða ástand mála í Armeníu og Azerbajdzhan. Tvær heimildamyndir sovéskar hafa ekki fengið grænt Ijós menningarmálaráðuneytisins í Mos- kvu enda sagðar reyna til hins ítrasta á þolrif „glasnosts". Engu að síður bar þær fyrir sjónir útvalinna gesta starfsmanna í kvikmyndaiðnaði, tveggja þúsunda, í samkomusal nokkrum í fyrradag. Fyrri myndin fjall- ar um miðaldra húsmóður, bersögla og óraga. Áhorfendur fögnuðu gífur- lega er hún mælti einhverju sinni: „Hvaða gagn er af perestrojku að hafa, verslanir standa jafn auðar og forðum daga.“ Seinni myndin snérist um afgamla „babúsku" eða ömmu. Ekki hlaut mál hennar minni hljóm- grunn meðal áhorfenda, einkum er hermt að þessi orð hennar hafi vakið lukku: „Jæja, perestrojka, hvað er nú það? Þeir skammta alla hluti og ég hef ekki bragðað eftirlætis sælgætiö mitt í áraraöir. Helgar bækur herma að einn góðan veðurdag hefjist í há- sæti keisara maður einn að nafni Mík- haíl og muni hann kollvarpa mörgu og bæta hag alþýðunnar...kannski var átt við þennan?" ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Gestur boðar jól Avarpar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í dag og heldur þvínœst rakleitt á fund þeirra Reagans og Bush Míkhaíl Sergejevítsj Gorbat- sjov og frú Raísa lentu heilu og höldnu í New York í gær- kveldi. Þar hyggjast þau dvelja um þriggja daga skeið með fríðu föruneyti og hafa ýmsir á orði að heimsóknin muni marka tímamót í skiptum þjóða heims og binda endi á tortryggni og úlfúð milli ríkja austurs og vesturs! Það er alkunna að sovét- leiðtoginn sótti Rónald Reagan heim fyrir réttu ári gagngert í þeim erindagjörðum að undirrita með honum samning um eyði- leggingu meðaldrægra kjarn- flauga risaveldanna, samning sem markaði þáttaskil í sögu af- vopnunarmála. Þetta er því öðru sinni að þeir félagar hittast á bandarísku láði. Hinsvegar hefur Gorbatsjov aldrei fyrr ávarpað Allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna en það gerir hann í dag. Bíða menn ræð- unnar í ofvæni enda hafa sovéskir embættismenn óspart gert því skóna að forseti sinn muni boða mikinn fögnuð, eiginlega nokk- urskonar „jólaguðspjall“. Strax að þessu loknu gengur Gorbatsjov á fund núverandi og bráttverðandi forseta Bandaríkj- anna. Stefna sú verður á ey nokk- urri skamman spöl undan höfn heimsborgarinnar. Sem fyrr getur draga Sovét- menn hvergi úr heimssögulegu mikilvægi farar þessarar. Full- yrða þeir að aðalritarinn hyggist freista þess að fá aðildarríki Sam- einuðu þjóðanna til liðs við sig að skapa heim sem byggður verði þjóðum sem vinna saman og hafi hagsmuni gjörvallrar skepnu að leiðarljósi. Þeir kveðast enn- fremur binda miklar vonir við spjall „forsetanna þriggja“. Maður er nefndur Georgí Ar- batov, sovéskur og handgenginn Gorbatsjov. Hann er mikill sér- fræðingur í alþjóðlegum efnum og er þekkingu hans á Bandaríkj- unum við brugðið. Arbatov þessi lét svo ummælt í fyrradag að for- seti sinn hygðist leggja kennisetn- inguna um baráttu sósíalisma og kapítalisma fyrir róða. í staðinn myndi hann leggja sig í fram- króka um að efla samvinnu ríkja með ólíkt stjórnarfar að lausn þeirra vandamála sem ógnuðu heimsbyggðinni. Þetta yrði kjarni máls hans á Allsherjar- þinginu. Einn af óæðri utanríkisráð- herrum Sovétríkjanna, Vladimir Petrovskíj, gerði fréttamönnum grein fyrir dagskrá forsetafundar- ins. Hann kvað vígbúnaðarmál verða á baugi, „svæðisbundnar" deilur yrðu ræddar, svo sem í Af- ganistan og Mið-Ameríku, mannréttindi bæri á góma sem og kaupskap Sovétmanna Qg Bandaríkjamanna. Nær víst væri að tríóið ræddi hvar og hvenær forsetarnir Gorbatsjov og Bush héldu sinn fyrsta „raunverulega" leiðtogafund. Reuter/-ks. Afganistan Fjendur þinga enn á ný Fulltrúar Sovétmannafámálir umfundinn með Afgönum í Sádí- Arabíu en þó er víst að frekari fundarhöld eru í bígerð Sovétmenn hafa fallist á að eiga fleiri fundi með forkólfum af- ganskra skæruliða og hefur það glætt vonir manna um að komast megi hjá skálmöld í Afganistan. Fulltrúar erkifjenda þessara þinguðu sem kunnugt er í Sádí- Arabíu um helgina. All mikil leynd hvíldi yfir fundinum. Að honum loknum voru fulltrúar leyndardómsfullir á svipinn en þó urðu fréttamenn þess skjótt áskynja að þeir hygðust koma saman til viðræðna á ný. Höfuð sovésku sveitarinnar er Júlí Vorontsov. Fréttastofa Sádí- Arabíu segir honum hafa mælst á þessa lund: „Frekari viðræður eiga að stuðla að endalokum styrjaldar og friði í Afganistan og ennfremur að myndun ríkis- stjórnar margra aðila.“ Sovétmenn hafa ekkert látið uppi um viðræðurnar í Sádí- Arabíu, hvorki hvað bar á góma né hvað látið var ósagt. Hinsveg- ar var frásögn afgönsku fulltrú- anna gerð heyrinkunn í gær. Þeir eru áfram um frekari fundarhöld og segjast hafa gert Sovétmönnum tilboð; þeirfengju að fara óhultir ferða sinna úr landi svo fremi þeir létu sveitir skæruliða óáreittar og lykju heimkvaðningu liðs síns fyrir 15. febrúar. Sovéskir stríðsfangar yrðu látnir lausir í skiptum fyrir fangna uppreisnarmenn. Hinsvegar væri tómt mál að tala um einhverskon- ar „þjóðsáttastjórn'1 með óhræs- inu honum Najibullah og hyski hans í Kabúl. Hann væri óalandi og óferjandi og yrði að hverfa á braut. Reuter/-ks. Spánn Lýðræði Spánverjar minntust þess með margvíslegu móti í gær að ára- tugur er liðinn frá því þeir féllust, formlega á umskipti frá einræði til lýðræðis. Viðhorfskannanir gefa til kynna að þorra þjóðar- innar þyki það verið hafa breyting til batnaðar, nú geti menn um frjálst höfuð strokið hvað þeir gátu öldungis ekki á valdaskeiði fasistaforingjans Franciscos Francos. Kóngurinn Jóhann Karl minntist hinna merku tímamóta í í áratug hátíðarræðu á þingi. Hann þakk- aði sérstaklega þegnum er lagt höfðu hönd á plóginn við hin friðsamlegu skipti. Stjórnarskrá lýðveldisins Spánar er sköpunarverk lög- fróðra félaga úr öllum helstu stjórnmálaflokkum landsins. Þjóðin samþykkti hana í allsherj- aratkvæðagreiðslu þann 6. des- emberárið 1978. Þá hafði Franco legið nár í gröf um þriggja ára skeið. Reuter/-ks. Svíþjóð Arafat hittir gyðinga Jassír Arafat kom til Svíþjóðar í gær og var tckið með kostum og kynjum af ráðamönnum. Markmið ferðalagsins var þó ekki að þinga með þeim heldur hópi bandarískra gyðinga. Ala margir þá von í brjósti að orðaskipti leiðtoga Frelsissam- taka Palestínumanna og fimm nafntogaðra gyðinga valdi straumhvörfum í skiptum erki- fjendanna í Austurlöndum nær. En hvað sem líður óskum og draumum þá vildu menn ekkert láta uppi um viðræður sínar éftir 6 klukkustunda fund í gær. Arafat boðaði hinsvegar til fréttamannafundar í dag. f hópi Davíðsniðjanna fimm er maður að nafni Menachem Ros- ensaft en hann var í heiminn bor- inn í sjálfu helvíti á jörðu: Bergen-Belsen útrýmingarbúð- um nasista. Rosensaft er stofn- andi og formaður „Alþjóðasam- taka barna er lifðu af helförina". Reuter/-ks. Miðvikudagur 7. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Azerbajdzhan Mannfall í Bakú A rmenar deyja og A zerar einnig Þrír menn létust í róstum í So- vétlýðveldinu Azerbajdzhan í gær, tvcir Armenar og einn Az- eri, fórnarlömb þjóðrembufuna sem logar glatt þar um slóðir. Frétt þessi var höfð eftir út- varpinu í Bakú við Svartahaf, höfuðborg lýðveldisins. Sagðist þuli þess svo frá að flokkar ungra manna hefðu fylkt liði um miðbik borgarinnar, barist við öryggis- sveitir, velt bifreiðum, borið eld að mannvirkjum og látið greipar sópa í verslunum og á einka- heimilum manna. Alls hefur nú 31 maður beðið bana undanfarnar tvær vikur í vargöldinni í Azerbajdzhan og Armeníu. Að minnsta kosti 60 hafa látist af völdum þjóðernis- deilnanna frá því þær blossuðu upp fyrir tíu mánuðum. Utvarp Bakú hafði eftir her- stjóra borgarinnar að mannfallið í gær hefði orðið vegna misskiln- ings. Fólk hefði lagt trúnað á staðhæfulausan orðróm um mannsbana þegar lögregla leysti upp fjöldafund á sunnudag og ákveðið að gjalda yfirvöldum rauðan belg fyrir gráan. Áður en Míkhaíl Gorbatsjov lagði uppí langför í gær sendi hann frá sér yfirlýsingu um ástand mála sunnan Kákasus- fjalla. Kvaðst hann vara embætti- smenn í Armeníu og Azerbajd- zhan við því að gera sig seka um að „hrekja fólk frá heimilum sín- um og í útlegð vegna þjóðernis síns.“ Hefði sér borist til eyrna að átt hefðu sér stað „miklir fólksflutn- ingar milli lýðvelda" af þessum sökum og yrði að skera upp herör gegn „gerræði forystumanna“ sem hefðu forgöngu um slíkt. Yfirlýsing þessi var undirrituð af þeim báðum Gorbatsjov og Nikolaj Ryzhkov forsætisráð- herra einsog önnur í sama dúr um sömu mál sem gerð var heyrin- kunn í fyrradag. Eru báðar mjög harðorðar og gera þeir ýmist að höggva eða leggja til „óhæfra embættismanna sem vanrækja þá skyldu sína að koma á lögum og reglu og uppræta undirróðurs- starfsemi öfgaafla." Reuter-ks.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.