Þjóðviljinn - 24.12.1988, Qupperneq 17
UM ÚTVARP & SJONVARP
Haraldur, Nonni og Manni.
Nonni
og Manni
Sjónvarp, Jóladag kl. 20.30
f kvöld verður sýndur fyrsti
þátturinn af sex í framhalds-
myndaflokkunum um Nonna og
Manna. Verkið er byggt á bókum
Jóns Sveinssonar rithöfundar, og
segir frá æsku hans og uppvaxtar-
árum. Bræðurna, Nonna og
Manna, leika þeir Garðar Þór
Cortes og Einar Örn Einarsson.
Útisenur eru ailar teknar hér-
lendis. Leikstjóri er Ágúst Guð-
mundsson.
—mhg
Halldór Laxness
Guðný, dóttir skáldsins, leikur ömmu sína og Halldór, dóttursonur
þess, leikur afa sinn tveggja ára.
Stöð tvö, Jóladag kl. 20.45.
Þetta er heimildarmynd í
tveimur hlutum, sem Stöð tvö
hefur látið gera um líf og störf
Halldórs Laxness, í samvinnu við
Vöku-Helgafell. Miklu efni var
safnað víða að, bæði innanlands
og utan. Fyrri hlutinn fjallar um
æsku, uppvöxt og þroskaár
skáldsins. Síðari hlutinn verður
sýndur á nýársdag. - Með hlut-
verk Halldórs fara: dóttursonur
hans, Halldór Halldórsson
tveggja ára, Orri Huginn Ágústs-
son, 7 ára, Lárus Grímsson, ung-
lingsárin og síðan Guðmundur
Ólafsson. Mestan þátt í gerð
handritsins á Pétur Gunnarsson
rithöfundur. - Þorgeir Gunnars-
son sá um upptöku og leikstjórn.
-mhg
Þingvellir
Sjónvarpið Jóiadag kl. 21.25.
í kvöld sýnir Sjónvarpið nýja
íslenska heirpildarmynd um hinn
forna þingstað að Þingvöllum. f
þættinum er fjallað um hlutverk
Þingvalla fyrr og nú en einnig um
samspil manns og náttúru.
-mhg
Góövinafundur
Rás 1, Jóladag kl. 14.45.
Þessi vinsæli þáttur Jónasar
Jónassonar verður í Hallgríms-
kirkju og stendur í hálfan annan
klukkutíma. Rúrik Haraldsson
og Ragnheiður Steindórsdóttir
rifja upp minningar frá þátttöku
sinni í flutningi söngleiksins „My
fair Lady“, sem sýndur var í
fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu fyrir
nærri þremur áratugum. Þau
munu ræða við Jónas og syngja
söngva úr leiknum, við píanó-
undirleik Agnesar Löve. Jónas
ræðir og við Þuríði Pálsdóttur,
söngkonu m.a. um æskuminning-
ar á jólum og þegar hún söng í
Dómkirkjunni við undirleik
föður síns, Páls ísólfssonar.
Mótettukór Hallgrímskirkju
syngur undir stjórn Harðar
Áskelssonar, kunn jólalög og
jólamótettur. Þættinum lýkur
með því, að kórinn syngur, ásamt
Þuríði Pálsdóttur, jólakvæði Ein-
ars Sigurðssonar í Eydölum,
„Nóttin var sú ágæt ein“, við lag
Sigvalda Kaldalóns. -mhg
Dómkirkjan á Hólum.
Hólakirkia
Rás 1, annan jóladag, kl.
21.00.
í tilefni af hátíðarguðsþjónust-
unni í Hóladómkirkju 4. des. sl.
hefur Jón Gauti Jónsson tekið
saman dagskrá, sem flutt verður
kl. 21.00 í kvöld. Rakin verður
byggingarsga kirkjunnar og gerð
grein fyrir endurgerð hennar.
Rætt verður við Þorstein Gunn-
arsson arkitekt, sem stjómað
hefur uppbyggingarstarfinu og
sr. Sigurð Guðmundsson, vígslu-
biskup um þá gripi, sem varð-
veittir eru í kirkjunni. Inn á milli
verða felldir þættir úr hátíðar-
messunni. Lesari með Jóni Gauta
er Haukur Þorsteinsson. - Þátt-
urinn vérður endurtekinn á
þriðjudag kl. 15.03. -mhg
Jólavaka
Rás 1 Aðfangadag kl. 20.00.
Jólavakan verður með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Anna Ing-
ólfsdóttir kynnir jólasöngva og
les kveðjur frá ýmsum löndum.
Laust fyrir kl. 21.00 flytur biskup
íslands, hr. Pétur Sigurgeirsson,
ávarp sitt og jólaljósin verða
kveikt. Síðan hefst dagskrá um
jól í íslenskum skáldskap á 20.
öld, sem nefnist „Kveikt er ljós
við ljós“. Gunnar Stefánsson tók
saman efnið en lesarar eru Edda
Heiðrún Backman og Þór H. Tul-
inius. Lesin verða 14 ljóð eftir
jafnmarga höfunda, ein smásaga
og einn sögukafli.
-mhg
Hr. Pétur Sigurgeirsson biskup.
„Vetrar-
morgunn"
Rás 1 Aðfangadag, kl. 16.20
í dag verður lesinn á Rás 1 kafl-
inn „Vetrarmorgunn", úr Sjálf-
stæðu fólki eftir Halldór Laxness.
Róbert Arnfinnsson leikari les.
Þessi kafli var birtur sem sjálf-
stæð saga í tímaritinu Iðunni 1933
en kom síðan út sem fyrsti kafli
annars hluta Sjálfstæðs fólks ári
síðar. Kaflinn segir frá skynjun
lítils drengs á vetrarmorgni á af-
skekktum bæ.
-mhg
Laugardagur 24. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17