Þjóðviljinn - 28.12.1988, Síða 1
Miðvikudagur 28. desember 1988 277. tölublað 53. órgangur
Atvinnutryggingarsjóður
GunnarHilmarsson:Ákaflega smekklaus áróður að Ríkisendurskoðun hafigertathugasemdir
við afgreiðslu sjóðsstjórnartilGrandahf. Umsóknir20fyrirtœkja verða afgreiddarjákvœtt
fyrir 750 miljónir króna. Heildarumsóknir ríflega 170
Bréf Ríkissendurskoðunar tii
stjórnar Atvinnutryggingar-
sjóðs er aðeins fyrirspurn um
tækniiegar upplýsingar og ekkert
annað. Að ýja að öðru er ákaflega
smekklaust og bitnar mest á þeim
fyrirtækjum sem sótt hafa um en
ekki á sjóðnum sjálfum sem er
trúlega skotspónn þessara pólit-
ísku skrifa,“ sagði Gunnar Hilm-
arsson stjórnarformaður At-
vinnutryggingarsjóðs.
Að undanförnu hefur verið
fullyrt að Ríkisendurskoðun hafi
með bréfi til stjórnar Atvinnu-
tryggingarsjóðs fundið að af-
greiðslu hennar til Granda hf. í
Reykjavík og fyrirtækið hafi ekki
nægilega mikla framleiðni til að
geta staðið undir endurgreiðslu á
láni því sem sjóðurinn veitti fyrir-
tækinu.
Svo rammt hefur kveðið að
þessum áróðri að Ríkisendur-
skoðun neyddist til að gefa út
sérstaka tilkynningu um að áður-
nefnt bréf til Atvinnutryggingar-
sjóðs „var eingöngu skrifað til
þess að Ríkisendurskoðun gæti
framkvæmt verkefni það sem
Það eru ekki nema fjórir dagar
fram á gamlárskvöld og vissara
að taka til hendinni og safna í
bálköst ef hann á að lifa lengi
fram á nýársnótt. Þessi myndar-
legi köstur er við Hrafnistu í Hafn-
arfirði og mun trúlega loga glatt í
honum á gamlárskvöld. Mynd
Jim Smart.
henni var falið með setningu laga
og reglugerðar um Atvinnutrygg-
ingarsjóð útflutningsgreina. -
Bréfið er á engan hátt athuga-
semd við afgreiðslu sjóðsstjórnar
á láni til Granda hf.“
Að sögn Gunnars Hilmars-
sonar hefur sjóðsstjórnin afgreitt
jákvætt umsóknir 20 fyrirtækja
fyrir samtals 750 miljónir króna
en ríflega 170 fyrirtæki hafa sótt
um aðstoð frá sjóðnum. Gunnar
sagði að með sama áframhaldi
mætti gera ráð fyrir að búið yrði
að afgreiða stærsta hlutann í
febrúarlok nk. -grh
Bílpróf
2300 ferðir til Reykjavíkur
*
Oánœgja með nýja skipan bílprófa. Hafnfirskir ökukennarar:
Kostar2300 viðbótarferðir suður. Kynning lítil. Hjalti
Zóphóníasson: Nýja kerfið til reynslu
Mikil óvissa ríkir um fram-
kvæmd bflprófa nú eftir ára-
mótin þegar Bifreiðaeftirlitið
verður lagt niður og dómsmála-
ráðuneytið tekur til við að annast
bílprófin.
Að sögn Hjalta Zóphónías-
sonar hjá dómsmálaráðuneytinu
hafa verið ráðnir prófdómarar til
að sjá um bflprófin. í Reykjavík
verða fimm slíkir og sjá að auki
um alit Suðurland, Vestmanna-
eyjar og Suðurnes. Einn próf-
dómari verður á Vesturlandi 'og
sér jafnframt um Vestfirði. Einn-
ig hefur verið ráðinn einn próf-
dómari fyrir Norðurland, og gert
er ráð fyrir að prófdómari verði í
hlutastarfi á Austfjörðum. Hjalti
sagði að hugmyndin væri að próf-
dómarar ferðuðust um sín svæði
eftir þörfum.
Mikil óánægja er með þetta
fyrirkomulag hjá mörgum öku-
kennurum. Þannig hafa öku-
kennarar í Hafnarfirði sent ráðu-
neytinu bréf þar sem þeir mót-
mæla þessari nýju skipan mála,
lýsa furðu sinni á þessari ákvörð-
un og segjast ekki skilja hvers
vegna ekki verður áfram hægt að
taka bflprófin í Hafnarfirði þar
sem öll aðstaða sé fyrir hendi.
Þeir segja að þessi breyting muni
kosta a.m.k. 2300 ferðir á ári inn
til Reykjavíkur, og ljóst sé að það
sé verið að gera Hafnfirðingum
/
mjög erfitt fyrir með þessari
breytingu.
Að sögn Arnfinns Friðriks-
sonar ökukennara í Vestmanna-
eyjum er ljóst að nýja kerfið mun
hafa töluvert óhagræði í för með
sér bæði fyrir kennara og ne-
mendur. Hann sagði að það væri
mikið áhugamál hjá öllum ne-
mendum sínum að fá bflprófið
þegar þeir verða 17 ára, en með
þessu nýja kerfi gæti reynst erfitt
að uppfylla þá ósk.
Undir þessi sjónarmið
Arnfinns tók Kristmann Guð-
mundsson ökukennari í Keflavík.
Nýja prófkerfið sem taka ætti í
notkun eftir nokkra daga hefði
ekkert verið kynnt og mikil
óvissa ríkti meðal ökukennara á
Suðurnesjum um framkvæmd
þess. Hann taldi nauðsyn að
prófa að minnsta kosti tvisvar í
viku í Keflavík ef bjóða ætti upp á
svipaða þjónustu eins og nú er.
Það er álit flestra þeirra öku-
kennara sem Þjóðviljinn ræddi
við í gær að þetta nýja kerfi væri
meingallað, og að þeirra sögn
ljóst að ókostir þess myndu fyrst
og fremst bitna á þeim sem búa
úti á landi.
Hjalti sagði að þetta nýja fyrir-
komulag ætti að reyna í eitt ár til
að byrja með og að nefnd væri
starfandi sem ynni að endur-
skoðun þessara mála.
-«g
Skattur
RétUætinu
fullnægt
Fjármálaráðuneytið sá að
sér í innheimtu skatta
Fjármálaráðuneytið ákvað rétt
fyrir jólin að endurgreiða þeim
einstaklingum sem höfðu orðið
fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu
að missa allt desemberkaupið sitt
í skattinn vegna of mikilla tekna
miðað við greidda staðgreiðslu.
Að sögn Guðmundar H. Guð-
mundssonar launaskrárritara í
launadeild ráðuneytisins má
segja að launadeildin hefði stolið
jólunum frá viðkomandi ef
nauðsynleg leiðrétting hefði ekki
komið til á síðustu stundu og
fólkinu endurgreitt það sem tekið
hafði verið af því í skattinn. Hér
var um að ræða nokkra tugi ein-
staklinga og upphæð hvers og
eins nálægt 17 þúsund krónum að
meðaltali.
Þá ákvað fjármálaráðuneytið
einnig að viðkomandi geti samið
um greiðslu eftirstöðva skattsins
til allt að 4. mánaða með jöfnum
afborgunum. _grh