Þjóðviljinn - 27.04.1989, Side 16
-SPURNINGIN-
Hverterálit þittábið-
launagreiðslum til þing-
manna?
Hans Árnason
sér um tölvurekstur
Séu þeir ekki búnir að fá vinnu,
eiga þeir rétt á biðlaunum, rétt
eins og annað fólk, en annars
ekki. Það eiga auðvitað að gilda
sömu reglur fyrir þá og aðra.
Auður Gísladóttir
bankastarfsmaður
Mér finnst alls ekki rétt að borga
þeim ef þeir fara beint í aðra
vinnu. Þetta er líka rosaleg upp-
hæð miðað við annað.
Benedikt Kristjánsson
atvinnulaus
Mér finnst þessar greiðslur fárán-
legar, þessir menn geta unnið
fyrir kaupinu sínu eins og aðrir.
Lulia Ingvarsdóttir
húsmóðir
Ég vil helst ekkert við þá eiga, því
enga greiðslu fæ ég frá þeim.
Ætli flestir séu ekki þeirrar skoð-
unar að þetta sé rangt af þeim.
Bókmenntir
Leitinað
landinu
fagra
Pingað um íslenskar
fornbókmenntir um
helgina
Dagana 28. - 30. aprfl verður
haldin ráðstefna í ráðstefnusölum
rfldsins, Borgartúni 6, 4. hæð,
um íslenskar fornbókmenntir.
Þar munu 18 fræðimenn flytja er-
indi um ýmsa þætti íslenskra
fornbókmennta, en þó er megin-
áherslan á að skoða þær sem bók-
menntir. Af því dregur ráðstefn-
an heiti sitt og nefnist Skáldskap-
armál. í bígerð er að stofna til
tímarits um fornbókmenntir í
kjölfar ráðstefnunnar og á það
einnig að heita Skáldskaparmál.
Ráðstefnan hefst annaðkvöld,
föstudagskvöld, klukkan 20.00 á
skráningu þátttakenda og erindi
Jakobs Benediktssonar sem hann
kallar Hugleiðingu um textafræði
og miðaldarannsóknir. Jakob er
heiðursgestur ráðstefnunnar, en
hann er einn fjölmenntaðasti
fræðimaður íslendinga, bæði í
klassískum fræðum og norræn-
um.
Eftir erindi Jakobs gefst gest-
um kostur á að fá sér léttar
veitingar.
Á laugardagsmorguninn hefst
dagskrá klukkan 10.00 og stend-
ur til kl. 19.00 með kaffi- og
matarhléum. Þá talar Gísli Sig-
urðsson um Munnmenntir og
fornsögur, Örnólfur Thorsson
um „Leitina að landinu fagra“,
Halldór Guðmundsson um ís-
lendingasögur og skáldsagna-
greiningu, Úlfar Bragason um
Atburði og frásögn, Baldur Haf-
stað um Konungsmenn í kreppu,
Guðmundur Andri Thorsson
nefnir erindi sitt „Þú ert, Grettir,
þjóðin mín“, Jón Torfason talar
um Góðar sögur og vondar,
Viðar Hreinsson um Göngu-
Hrólf á galeiðunni, Torfi Tulinius
um Landafræði og flokkun forn-
sagna og Matthew James Driscoll
um Þögnina miklu.
Á sunnudaginn hefst dagskrá
enn kl. 10.00 og stendur til kl.
16.00. Fyrstur kemur Ástráður
Eysteinsson með erindi sem hann
nefnir Er Halldór Laxness höf-
undur Fóstbræðrasögu? Árni
Sigurjónsson talar um Klisjustig
íslendingasagna, Gunnar Ágúst
Harðarson Um náttúruskynjun í
dróttkvæðum, Guðrún Nordal
um Hlutverk og sérkenni vísna í
Sturiungu, Guðrún Ingólfsdóttir
nefnir erindi sitt „Hver maður
kvað fý“, Bergljót Kristjánsdótt-
ir nefnir sitt „Hvorki em eg fjöl-
kunnig né vísindakona“, og loks
flytur Sverrir Tómasson erindið
Söguljóð-skrök-háð: um viðhorf
Snorra til kveðskapar. Á eftir
verða léttar veitingar.
Til hagræðis fyrir skipuleggj-
endur ráðstefnunnar er mælst til
þess að sem flestir gestir tilkynni
þátttöku fyrirfram, án skuldbind-
inga þó, í dag kl. 3-5 í síma 13387,
" 26409 eða 21056. Ráðstefnugjald
er kr. 500.-
í undirbúningsnefnd eru Gísli
Sigurðsson, Gunnar Ágúst Harð-
arson og Órnólfur Thorsson og
verður talað nánar við þá um til-
drög ráðstefnunnar og tilgang í
Nýju helgarblaði á morgun.
SA
Magnea Magnúsdóttir
nemi
Að mínu mati ættu þeir ekki að fá
þau. Annars hef ég ekki fylgst
svo náið með þessu máli.
í Þ E S S U
H Ú S I
E R U F I M M
HÆ Ð I R
H V E R
U P P A F
ANNARRI!
Og Landsbankinn leggur grunninn með starfsemi sinni á fyrstu og annarri hæð.
Almenn afgreiðsla er á fyrstu hæðinni og hefur hlotið nafnið Múlakot.
Þar verður svokölluð opin þjónusta þar sem starfsfólk er jafnvígt á alla þætti
bankaþjónustunnar. í Múlakoti má ennfremur finna Einkaþjón,
sjálfsafgreiðslutæki fyrir útprentun reikningsyfirlita.
Verðbréfaviðskipti eru einnig á fyrstu hæð, þar veita reyndir starfsmenn ráðgjöf og
þjónustu um allt sem lýtur að verðbréfaviðskiptum.
Veðdeild er á annarri hæð, en þar fer fram afgreiðsla í tengslum við Húsnæðisstofnun
ríkisins, sem er til húsa á hæðunum fyrir ofan.
Verið velkomin í Múlakot, Landsbankann á Suðurlandsbraut 24.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
ISIMSKA AUCIÝSINGASTOFAN HF