Þjóðviljinn - 03.05.1989, Page 1
Miðvikudagur 3. maí 1989 80. tölublað 54. órgangur
ísafjörður
Tímamót í
safnaðarstarfi
Safnaðarstjórn borin ofurliði íalmennri
atkvœðagreiðslu um staðsetningu nýrrar
kirkjubyggingar. 75% á móti en aðeins 25 %
með. Framhaldsaðalfundur safnaðarins á
sunnudag
Hugmyndutn stjórnar ísafjarð-
arsafnaðar að byggja kirkju á
lóð fyrir framan nýja Fjórðungs-
sjúkrahúsið í stað þeirrar gömlu
sem skemmdist illa í eldi sumarið
1987, var hafnað í almennri at-
kvæðagreiðslu safnaðarins um
málið á laugardag. Af þeim sem
greiddu atkvæði voru 75% á móti
en aðeins 25% með.
Þessi atkvæðagreiðsla markar
að mörgu leyti viss tímamót í
safnaðarstarfi innan kirkjunnar
því hingað til hefur það verið
Íenska að stjórn viðkomandi
safnaðar hafi úrslitavald í málefn-
um hans en ekki að deilumál séu
útkljáð með lýðræðislegum kosn-
ingum. Svo ekki sé minnst á fyrir-
hugaðar staðsetningar annarra
bygginga í öðrum sveitar- og
bæjarfélögum sem deildar
meiningar eru um hvar eigi að
vera. Á kjörskrá voru 2076 og þar
af greiddu 1169 atkvæði. 290
sögðu já en 896 nei og 10 seðlar
voru auðir.
Að sögn Gunnlaugs Jónas-
sonar formanns sóknarnefndar
ísafjarðarsafnaðar verður fram-
haldsaðalfundur safnaðarins á
sunnudag þar sem fjallað verður
um niðurstöðu kosningarinnar og
spáð í framhaldið. Gunnlaugur
sagði að það hefði verið ljóst frá
byrjun að skiptar skoðanir væru
innan safnaðarins um staðsetn-
ingu nýrrar kirkju en það hefði
þó komið honum á óvart hversu
mikill munurinn hefði verið.
Hann sagðist búast við fjöl-
mennum safnaðarfundi á sunnu-
daginn í ljósi þess hversu margir
hefðu tekið afdráttarlausa af-
stöðu í málinu.
Ljóst er að söfnuðurinn er
margklofinn í afstöðu sinni til
kirkjumálsins. Sumir vilja láta
endurbyggja gömlu kirkjuna,
aðrir að hún verði rifin og ný
byggð á grunni hennar og svo eru
þeir til sem vilja láta reisa nýja
kirkju inní Firði.
-grh
1. maí, dagur samstöðu og samninga. Á bls. 3 er fjallað um samn-
ingana og viðbrögð við þeim. Á bls. 4-5 eru samningarnir birtir ásamt
yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar og bókunum. Þar eru líka fleiri myndir
eftir Jim Smart frá baráttudegi alþýðu, 1. maí.
Foss vogsdeilan
Hefnd Davíðs til vansæmdar
DeilurReykjavíkur ogKópavogs um Fossvogsbraut verða ekki leystar með einhliða
aðgerðum, segir Sigurjón Pétursson
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti samhljóða á fundi í
gær að mótmæla einhliða upp-
sögn bæjarstjórnar Kópavogs á
samningi Reykjavíkur og Kópa-
vogsbæjar um land undir hugsan-
lega Fossvogsbraut. Hefrndarað-
gerðir Davíðs Oddssonar með
neitun á framlengingu á samningi
sveitarfélaganna um sorphirðu
voru ekki ekki lagðar fyrir borg-
arráð á fundinum í gær, en Sigur-
jón Pétursson lagði fram bókun,
þar sem segir að „slíkar hefndar-
aðgerðir framkvæmdar í fljót-
ræði og af vanstillingu séu
Reykjavíkurborg til vansæmdar,
verði þær staðfestar af meirihluta
borgarstjórnar“.
Heimir Pálsson, forseti bæjar-
stjórnar Kópavogs, sagði í sam-
tali við Þjóðviljann í gær, að það
væri stórpólitískt alvörumál ef
þjónustusamningum milli sveit-
arfélaga væri fyrirvaralítið sagt
upp í hefndarskyni út af
óskyldum málum. Þegar svo við
bættist að um öryggismál íbúanna
eins og heitt vatn eða brunavarnir
væri að ræða, eins og Davíð
Oddsson hefði látið í veðri vaka,
þá væri um svo alvarlegt mál að
ræða að spurning væri hvort lög-
gjafarvaldið þyrfti ekki að grípa
inní til þess að tryggja öryggi íbú-
anna.
Heimir sagði hins vegar að
Kópavogsbúar væru fullfærir um
að leysa sín sorphirðumál sjálfir,
og þegar væru hafnar athuganir á
því, hvernig þeim málum yrði
best fyrir komið. Verður meðal
annars gerð gaumgæfileg athug-
un á því, hvort ekki sé fram-
kvæmanlegt að hefja flokkun
sorps í heimahúsum. Ákveðið
fyrirtæki hefði þegar boðist til
þess að taka við öllum pappírsúr-
gangi frá Kópavogi, og breyta
honum í pappírsmassa.
Heimir sagði að ákvörðun
bæjarstjórnar Kópavogs hefði
ekki þurft að koma neinum á
óvart, hún væri efnislega sam-
hljóða þeirri ályktun sem bæjar-
stjórn hefði gert um málið fyrir 10
árum, þegar hugmyndum um
Fossvogsbraut var hafnað af
.
Heimir Pálsson: Höfum ekki leyfi til að loka augunum fyrir nýrri þekk-
ingu um umhverfismál við skipulagningu borgarinnar. Ljósm. Jim
Smart.
hálfu Kópavogs. „Með uppsögn
þessa hluta samningsins erum við
að árétta að þessi dalur sé ekki
lokaður fyrir öllu skipulagi um
alla framtíð. Við teljum líka að
upphaflegu forsendurnar fyrir
Fossvogsbraut séu brostnar, þar
sem hugmyndin um framleng-
ingu hennar um Elliðaárdalinn
upp á Suðurlandsveg hefur verið
lögð á hilluna. Þá teljum við ekki
síður mikilvægt að taka tillit til
breyttrar þekkingar og breyttra
viðhorfa til umhverfismála frá því
hugmyndin um Fossvogsbraut
var sett fram 1964. Við höfum
ekki leyfi til þess að láta sem sú
þekking sé ekki fyrir hendi,"
sagði Heimir Pálsson.
Allir stjórnmálaflokkar í Kóp-
avogi, Fossvogssamtökin, íþrótt-
afélögin í Kópavogi og fleiri aðil-
ar munu standa fyrir baráttufundi
um verndun Fossvogsdalsins í
Snælandsskóla næstkomandi
laugardag kl. 14.
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
Reykjavíkurborg beitti sér fyrir
könnun á þýðingu Fossvogs-
brautar fyrir umferðarkerfi höf-
uðborgarsvæðisins og áhrif henn-
ar á umhverfi Fossvogsdalsins.
Samþykktin var gerð með at-
kvæðum meirihlutans, án mótat-
kvæða.
-ólg