Þjóðviljinn - 03.05.1989, Side 11
MINNING
Þorvaldur Bjömsson
Fœddur 23. maí 1901 - Dáinn 21. apríl 1989
Þorvaldur var fæddur á Illuga-
stöðum í Laxárdal í Skagafirði,
foreldrar hans voru hjónin Björn
Benoníusson bóndi á Illugastöð-
um, fæddur á Borgarlæk á Skaga
23. mars 1862, dáinn á Sauðár-
króki 22. maí 1942, og Ingibjörg
Stefánsdóttir fædd í Geitagerði
Staðarhreppi, 17. mars 1865,
dáin í Hvammkoti á Skaga 1915. í
Skagfirskum æviskrám segir um
Björn, „Hann var í hærra lagi á
vöxt, þrekinn og talinn hraustur,
hann var og greindur, glað-
lyndur, bókhneigður og minnug-
ur“. Fátækur var hann ævina alla,
en lét hana aldrei smækka sig og
bjargaðist af vegna dugnaðar og
hagsýni, stundaði sjóinn með bú-
skapnum. Þau Ingibjörg gengu í
hjónaband á árinu 1892, bjuggu
síðan á nokkrum bæjum í Skefil-
staðahreppi, lengst á Illugastöð-
um 14 ár. f>au hjón áttu tólf börn,
eitt dó í bernsku en ellefu náðu
fullorðins aldri, fimm dætur og
sex synir. Fjórir bræðurnir urðu
trésmiðir og munu hafa lært til
smíða á Sauðárkróki. Björn og
Ingibjörg voru bæði hraust lengst
af og heilsugóð og gátu því veitt
börnunum sínum gott uppeldi í
sinni heiðurs fátækt. Öll voru þau
gædd þeim eiginleikum sem
dýrmætust eru í lífsbaráttunni,
góðri skapgerð og sterkum vilja.
Þorvaldur var sjöundi í röð
systkinanna, hann ólst upp með
foreldrum sínum og lét ekki sinn
hlut eftir liggja við skyldustörfin,
var ungur fylginn sér og hagur til
handa, hann var 14 ára þegar
móðir hans dó og fylgdi föður sín-
um næstu árin. Fyrst í
Hvammkoti til 1917 og síðan á
Sauðárkróki eftir að Björn flutti
þangað, stundaði sjóinn og bjó
þar með börnunum sínum og
kom þeim öllum til manns. Elsta
dóttirin var 16 ára þegar Ingi-
björg dó frá barnahópnum, það
yngsta tveggja ára. Það sagði mér
Þorvaldur að systkinin hefðu öll
verið samhent föður sínum um
vinnu utan heimilis og aðdrætti.
Þorvaldur mun hafa verið 26
ára þegar hann hleypti til fulls
heimdraganum og flutti til Akur-
eyrar og þá í atvinnuleit. Á Akur-
eyri fékk Þorvaldur inni á Caro-
line Rest, sem lengi var greiða-
og gististaður ferðamanna og
hesta, en atvinnan var stopul og
kaupið skorið við nögl. En Þor-
valdur kom sér strax vel við Gisti-
húshaldarann og varð það honum
til heilla um verustað og vinnu.
Á Caroline Rest var Þorvaldur
þegar Laufey Emilsdóttir gerðist
þar vinnukona í ársbyrjun 1926,
og þar urðu þeirra fyrstu kynni,
sem leiddu til langra samvista.
Húsbóndi á gistiheimilinu var
Halldór, bróðir Sigþórs Jóhanns-
sonar sem þá bjó á Skarði á Ak-
ureyri. Að Skarði fluttu þau Þor-
valdur og Laufey á vordögum
1927, þar á Skarðstúni fékk Þor-
valdur að byggja sér íbúðarskúr
sem strax á því sumri var hlýleg
vistarvera. Það sama sumar
fæddist þeim Laufeyju og Þor-
valdi dóttir, þann 24. júlí 1927.
Ári seinna 16. júlí gengu þau fyrir
Akureyrarprest og fengu þar
hjónavígslu. Þorvaldur vann við
trésmíðar og varð vel til vinnu og
þá helst í nærsveitum Akureyrar.
Þorvaldur var seinni maður
Laufeyjar, hún var áður gift í
Skagafirði, Svavari Þor-
steinssyni, hann var fæddur 1902,
þau hjón áttu einn dreng, Bjarna
Garðar Skagfjörð, fæddur 10.
júlí 1922. Svavar Þorsteinsson dó
á Sjúkrahúsi Sauðárkróks 13.
júní 1924. Laufey flutti með
drenginn sinn til Akureyrar á
haustdögum 1925.
Sumarið 1928 fékk Þorvaldur
vinnu í Möðruvallasókn utan
Hörgár við húsbyggingu og var
þar fram á haust. Þá var ég bóndi í
Bakkaseli í Öxnadal og við
Steinunn og sáum um gistiskyld-
una þar. Laufey systir mín kom
fram að Bakkaseli og var hjá okk-
ur Steinunni þar í tvo mánuði um
sumarið með drenginn sinn
Bjarna Skagfjörð og dótturina
Þuríði Maríu.
Þorvaldur fékk erfðafestuland
hjá Akureyrarbæ hið næsta við
Skarðstún og þangað flutti hann
íbúðarskúrinn sinn sem hann
hófst strax handa um að stækka,
þó af sífelldum vanefnum væri.
Þarna í landi gömlu mógrafanna
reis á næstu misserum allgott
íbúðarhús, með nægu rými á hæð
og í risi og þurfti sannarlega mik-
inn eljunarþrótt til. Húsið nefndi
Þorvaldur Grafarholt, hús sem
bar hans smiðshöndum glöggt
vitni. Og það varð með fullum
sanni til fyrirmyndar jafnt utan
húss sem innan, þar sem hús-
freyjan Laufey var ekki síður hög
til handa en bóndi hennar, góð
umgengni var þeim báðum í blóð
borin.
Vorið 1941, keypti ég Skarð af
Sigþóri Jóhannssyni og flutti í ná-
grenni við Laufeyju og Þorvald
og var í því nágrenni næstu 16
árin og naut þess á erfiðum árum,
ekki síst þar sem vinátta okkar
Laufeyjar hafði aldrei rofnað,
þrátt fyrir að oft væru firðir og
fjöll milli vina. Við systkinin
höfðum oft ekki sést árum saman
en gleymdum því aldrei að við
vorum systkini og lékum okkur
saman lítil börn, hjá foreldrum
okkar í Hamarkoti á Akureyri.
Við Þorvaldur urðum vinir^rg
félagar á lífsgöngunni þessi ár og í
lífsbaráttunni, við áttum samleið
í samtökum róttækra manna og
þar fylgdi Laufey manni sínum af
heilum hug, báðir gengum við í
flokk með kommúnistum og
fylgdum verkalýðshreyfingunni
fast að málum.
Kreppan svonefnda var inn-
leidd á Akureyri sem og í öðrum
kaupstöðum landsins, með
atvinnuleysi og sárri fátækt. Bar-
áttan um brauðið var hörð og
stéttaskiptingin hvöss í orðum og
athöfnum, enda allsleysi á annan
bóginn, allsnægtir á hinn. í þeirri
baráttu tóku Grafarholtshjónin
þátt af heilum hug og tíminn leið,
tími harðrar og óvæginnar stétta-
baráttu.
Vorið 1947 skildu leiðir okkar
Þorvaldar og Laufeyjar systur
minnar, þá bjó mér söknuður í
sinni. Næstu tíu árin lá Laufey oft
á sjúkrabeði sem dró til þess sem
verða vildi. Hún dó á Sjúkrahúsi
Akureyrar 1. júlí 1957, hátt á sex-
tugsaldri. Það var Þorvaldi og
börnunum þung raun. Hann
reyndist Laufeyju sami öðlings-
maðurinn til lokadægurs, þau
hjón voru samhent í öllu sínu lífs-
stríði og studdu hvort annað í
blíðu og stríðu þau 30 ár sem
þeim auðnaðist að lifa og starfa
saman og búa sem best að sínu.
Eftir andlát Laufeyjar, seldi
Aðalfundur
Málarafélags Reykjavíkur verður haldinn að
Lágmúla 5, kl. 20.30 þann 11. maí 1989.
Fundarefni:
1. Almenn aðalfundarstörf.
2. Umræður um breytta afstöðu til stofnunar
landssambands byggingarmanna.
3. Flutt skýrsla um vinnuverndarráðstefnu
sem haldin var í Danmörku.
4. Önnur mál.
Félagar! Sýnum samstöðu og mætum allir.
Stjórnin
Yfirlýsing
Ég undirritaður segi mig hér með úr Alþýðu-
bandalaginu vegna ósanngirni fjármálaráð-
herra, Ólafs Ragnars Grímssonar prófessors,
gagnvart launafólki og hinnar kapítalísku af-
stöðu hans gegn vinnandi stéttum.
Alfreð Árnason
Þorvaldur húsið þeirra Grafar-
holt og flutti til Reykjavíkur, og
börnin fluttu öll suður, Þuríður
María, f. 1927; Bjöm Ingi,
f.1929; Emilía Svava, f. 1932;
Ásdís Gunnþóra, f. 1937 og Þor-
valdur Þorvaldsson f.1945, og
Bjarni Garðar Skagfjörð, f. 1922.
Öll þessi systkini eru vel til
vitsmuna gerð og atorku fólk, og
svo er um barnabörnin hans Þor-
valdar og var það honum sönn
lífshamingja á hans efri dögum.
Þorvaldur Bjömsson stundaði
trésmíðar í Reykjavík og þrír
drengirnir frá Grafarholti em
trésmiðir, systurnar vom allar
hagar til handa og njóta þess í
sínum lífsstörfum.
Þorvaldur Björnsson bjó síð-
ustu árin í húsi síns yngsta sonar,
þar var gott gömlum að búa við
heimilishlýju og umhyggju svo af
i bar, þeir feðgar og nafnar skildu
1 aldrei að skiptum, þeir unnu sam-
an og bjuggu í sama húsi. Nú er
Þorvaldur dáinn eftir langt og far-
sælt ævistarf. Með þessum fátæk-
legu orðum sendi ég börnum Þor-
valdar og niðjum hans öllum hug-
heilar samúðarkveðjur.
Tryggvi Emilsson
Móðir okkar
Helga Finnsdóttir
er andaðist 25. apríl verður jarðsungin frá Fossvogskap-
ellu miðvikudaginn 3. maí kl. 10.30
Fyrir hönd aðstandenda
Finnur Sigurjónsson
Ólöf Sigurjónsdóttir
Jóhanna S. Ellerup
Henný D. Sigurjónsdóttir
Pá'ína Sigurjónsdóttir
NU ER HANN TVOFALDUR
Þetta eru tölurnar sem upp komu 29. aprll
Heildarvinningsupphæð var kr. 4.940.924.-
Enginn var með fimm tölur róttar og bætist því fyrsti vinningur, sem var kr. 2.275.352,- við
1. vinning á laugardaginn kemur.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 394.908,- skiptist á 2 vinningshafa
og fær hver þeirra k r. 197.454.-
Fjórar tölur réttar, kr. 681.214,- skiptast á 118 vinningshafa, kr. 5.773,- á mann.
Þrjár tölur réttar, kr. 1.589.450,- skiptast á 4.150 vinningshafa, kr. 383 á mann.
■Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
lítasjónvaip
er Qárfestíng
ív-þýskum
gæöumog
M<
IITStum
SKIPHOLTI 7 SIMAR 20080 8 26800