Þjóðviljinn - 07.06.1989, Side 2
FRETTIR
Aðalfundur VSI
Þrekið brást er á reyndi
Formaður VSI: Sagan hefur dœmt árið 1987sem ár hinna miklu mistaka.
Efnahagsstjórn þáverandi ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins
harðlega gagnrýnd. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki leyst grundvallarvanda útflutningsatvinnu-
greina. Atvinnuleysi og landflóttifyrir dyrum verðistarfsskilyrðiatvinnuveganna ekki bætt
Saean hefur
1987 sem ár
þegar dæmt árið
hinna miklu mis-
taka. Þá jukust þjóðartekjurnar
um rúm 10%, en þjóðarútgjöldin
um nær 16%. Kaupmáttur ráð-
stöfunatekna jókst á þessu eina
ári um nærfellt fjórðung. Þetta
örlagaríka ár brast allt, sem
brostið gat í stjórn efnahagsmála
og það sem verra var; þetta var
allt fyrirsjáanlegt ef ekki yrði að
gert og ekki spöruðum við aðvar-
anir frá haustdögum 1986, þótt
kæmi fyrir lítið,“ sagði Gunnar
Friðriksson formaður Vinnu-
veitendasambands íslands við
upphaf aðalfundar þess í gær.
Það voru heldur klén eftirmæl-
in sem atvinnurekendur gáfu rík-
isstjórn Þorsteins Pálssonar for-
manns Sjálfstæðisflokksins á að-
alfundi VSÍ í gær. Efnahags-
stjórninni undir forystu hans í
ríkisstjórninni sem mynduð var
1987, mistókst með öllu að nýta
þá uppsveiflu sem varð í ytri skil-
yrðum þjóðarbúsins með lækk-
Einar Oddur Kristjánsson framkvæmdastjóri á Flateyri og guðfaðir
niðurfærslujeiðarinnar var í gær kosinn formaður Vinnuveitenda-
sambands íslands. Hann tekur við af Gunnari Friðrikssyni sem ekki
gaf kost á sér til endurkjörs. Mynd: Jim Smart.
andi olíuverði, góðum afla-
brögðum og hækkandi afurða-
verði á erlendum mörkuðum sem
tók að gæta 1986. Þess í stað var
tímabundnum tekjuauka sjávar-
útvegsins velt margföldum út í
efnahagslífið með tilheyrandi of-
þenslu og minnst af því varð eftir í
greininni sjálfri. Fyrir vikið
stendur þessi aðalatvinnugrein
landsmanna mun verr eftir en
áður og á síðasta ári er talið að
fiskvinnslan hafi verið rekin með
10% halla. Þá harmaði formaður
atvinnurekenda að þáverandi
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
skyldi ekki telja fært að fara
niðurfærsluleiðina eins og til-
lögur forstjóranefndarinnar
gerðu ráð fyrir á sínum tíma.
Þá gagnrýndi formaður VSÍ
núverandi ríkisstjórn fyrir úr-
ræðaleysi í efnahagsmálum. f
stað þess að horfast í augu við
vandann og taka á honum greip
hún, að mati VSÍ, til gamalk-
unnra smáskammtalækninga,
millifærslna og gengisfalsana. Þó
svo að gripið hafi verið til um-
fangsmikilla skuldbreytinga í sjá-
varútvegi sem hafi hjálpað fjölda
fyrirtækja um stundarsakir, eru
útflutningsgreinarnar enn reknar
með tapi og sem mestu skiptir að
grundvallarvandi atvinnu-
greinanna er enn óleystur. Til að
mæta hinum almenna samdrætti í
þjóðfélaginu hafa atvinnufyrir-
tæki hinsvegar gripið til marg-
háttaðra aðhaldsaðgerða og
endurskipulagt rekstur sinn á
sama tíma og ríkissjóður hefur
aukið skattheimtu sína um 7 milj-
arða á þessu ári. Hluti þeirrar
skattaukningar snýr beint að
fyrirtækjunum, bæði í formi
hækkaðra tekju- og eignarskatta,
skerðinga á skattalegum heimild-
um til uppbyggingar eigin fjár í
atvinnufyrirtækjum, tvöföldunar
á sérstökum eignaskatti á
skrifstofu- og verslunarhúsnæði,
auk þeirra breytinga sem gerðar
voru á vörugjaldinu.
í ræðu sinni krafðist formaður
VSÍ að bætt verði starfsskilyrði
atvinnuveganna ef takast á að
snúa frá þeirri óheillabraut sem
farin hefur verið undanfarin
misseri. - Ef okkur tekst ekki að
koma böndum á verðbólguna,
grynnka á erlendum skuldum og
skapa skilyrði fyrir heilbrigðan
atvinnurekstur er atvinnuleysi og
landflótti fyrir dyrum, sagði
Gunnar Friðriksson formaður
VSÍ.
-grh
Peking
íslending-
amir flutlir
á brott
Danska sendiráðið í Peking
hefur látið flytja þá tvo íslensku
námsmenn sem stundað hafa nám
við Pekingháskóla á brott úr
háskólahverfinu vegna ótta við
innrás kínverskra hermanna inn
á háskólasvæðið.
Á sunnudagskvöld leggur af
stað flugvél frá SAS - flugfélaginu
áleiðis til Peking til að sækja þá
sem æskja þess að yfirgefa landið
af ótta við yfirvofandi borgara-
styrjöld.
-grh
ABR
Að gefnu tilefni
Stjórn ABR ályktar um birtingu
Þjóðviljanum barst í gærkvöld
eftirfarandi ályktun sem sam-
þykkt var á fundi stjórnar Al-
þýðubandalagsins í gær:
í tilefni af blaðaviðtölum við
Árna Pál Árnason og fleiri vegna
síðustu atburða í Alþýðubanda-
laginu í Reykjavík, svo og vegna
yfirlýsinga Ólafs Ragnars Gríms-
sonar formanns Alþýðubanda-
lagsins, telur stjórn ABR
nauðsynlegt að gera eftirfarandi
ályktun:
1. Það er í fullu samræmi við
lög og stefnu Alþýðubandalags-
ins að stofna málefnahópa innan
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
(ABR). Ýmsar yfirlýsingar
nokkurra félaga í AB R undanfar-
ið sem varða stofnun nýs pólitísks
félags í Reykjavík eru hins vegar
villandi og ósæmilegar. Niðrandi
ummæli um ABR félaga og meint
ólýðræðisleg vinnubrögð í ABR
verða vart flokkuð undir annað-
en klofningsiðju. Stjórnin bendir
framkvæmdastjórn og miðstjórn
á hversu alvarlegir atburðir það
eru, þegar minnihlutahópur í pól-
itískum efnum gengur úr
flokksfélagi í því yfirlýsta skyni
að leysa ágreiningsefni utan
flokksfélagsins með aðstoð utan-
flokksmanna.
2. Röksemdir hópsins fyrir að-
gerðum sínum eru rangar og
ósannar. Forystumenn hópsins
segjast ekki hafa getað „rætt pó-
litík“ í flokksfélaginu þótt
augljóst sé að þeir hafa þar sama
málfrelsi og aðrir flokksfélagar.
Hitt er svo annað mál að ýmsar
skoðanir forystumanna þessa
hóps hafa ekki hlotið hjómgrunn
eða þeim hafnað í lýðræðislegri
umræðu á vettvangi ABR. Al-
þýðubandalagið í Reykjavík vill
gott og málefnalegt samstarf við
Alþýðuflokkinn á flokkslegum
jafnréttisgrundvelli bæði í hreyf-
ingu launafólks sem og í ríkis-
stjórn og borgarstjórn, þar sem
það er til hagsbóta fyrir launafólk
í landinu en hafnar skipulags-
legum ruglingi við Alþýðuflokk-
inn undir núverandi forystu þess
flokks. í því samstarfi á ABR að
halda á lofti pólitískum stefnu-
miðum Alþýðubandalagsins eins
og þau hafa verið ákvörðuð af
landsfundum og miðstjórn
flokksins.
3. Stjórn ABR furðar sig á því
að formaður flokksins Olafur
Ragnar Grímsson skuli hafa
reynt að gera aðalfund og löglega
kjörna stjórn ABR tortryggilega
og tekið afstöðu og jafnvel hvatt
til stofnunar nýs félags hér í
Reykj avík - ef marka má ummæli
sem höfð voru eftir honum í DV.
4. Þær aðgerðir og yfirlýsingar
sem hér hefur verið lýst, eru ekki
til þess fallnar að auka samheldni
í Alþýðubandalaginu eða styrkja
það til að vinna að framgangi
mikilvægra stefnumála flokksins.
5. Stjórn ABR hefur í undir-
búningi viðamikið starf og um-
ræðu í félaginu og hvetur alla fé-
laga ABR til að taka virkan þátt í
því.
Samþykkt á fundi stjórnar 6.
júní 1989.
Hjúkrunarkonur
samþykktu
Félagsmenn í Hjúkrunarfélagi ís-
lands hafa samþykkt nýgerðan
kjarasamning félagsins við fjár-
málaráðherra, Reykjavíkurborg
og St. Jósefsspítala. AIls voru
1.490 hjúkrunarfræðingar á kjör-
skrá. Atkvæði greiddu 1.148. Af
þeim söguðu 690 eða rúm 60% já
en 490 eða tæp 36% sögðu nei.
Ríflega 3,3% skiluðu ógildu eða
auðu.
Nýr hjartaþegi
Helgi Einar Harðarson, 16 ára
Grindvíkingur, fékk grætt í sig
nýtt hjarta aðafararnótt mánu-
dags á Brompton sjúkrahúsinu í
London. Það var hinn þekkti
hjartasérfræðingur prófessor
Magdi Yacoub sem framkvæmdi
aðgerðina, en hann græddi einnig
nýtt hjarta í Halldór Halldórsson
úr Kópavogi á sl. ári. Talið er að
aðgerðin í fyrrinótt hafi heppnast
vel.
Slæmt atvinnuástand
á Akranesi
Verkalýðsfélag Akraness hefur
áhyggjur af slæmu atvinnu-
ástandi í bænum en yfir 100
manns eru þar nú á atvinnuleysis-
skrá. Þá er ljóst að ástand mun
versna þegar skólafólk er komið
út á vinnumarkaðinn. Hefur
verkalýðsfélagið skorað á bæði
bæjaryfirvöld og ríkisstjórn að
stuðla að því að bæta úr atvinnu-
ástandi í bænum.
Traust á
lífeyrissjóð
Verkalýðsfélag Akraness hefur
einnig lýst furðu sinni á frétta-
flutningi undanfarinna vikna um
reikningshald Lífeyrissjóðs Vest-
urlands. Segir félagið að undir-
skriftasöfnun nokkurra verka-
lýðsfélaga á Vesturlandi vegna
bókhaldsmála sjóðsins sé ekki á
vegum félagsins á Akranesi.
Jafnframt lýsir félagið yfir fullu
trausti á stjórn og starfsmenn
sjóðsins og endurskoðunarskrif-
stofu Jóns Þórs Hallssonar.
Verðlaunuð fyrir ritgerðasmíð
Þessir unglingar hlutu á dögunum verðlaun fyrir þátttöku í ritgerðas-
amkeppm er Verslunarbankinn stóð fyrir meðal nemenda 9. bekkjar,
en ritgerðarefnið tengist skoplegum lýsingum úr íslendingasögunum.
Fjölmargar ritgerðir bárust í samkeppnina og segir í áliti dómnefndar
að verðlaunaritgerðirnar beri vott um auðugt ímyndunarafl sigur-
vegaranna og næma tilfinningu þeirra fyrir móðurmálinu og þekkingu
á menningararfi þjóðarinnar.
Drengur drukknar
í Glerá
7 ára gamall drengur féll ofaní í
Glerá á Akureyri og drukknaði
seint í fyrrakvöld. Björgunar-
menn leituðu að drengnum og
fundu hann látinn í ánni skömmu
eftir miðnætti.
Mótmælt við
Kínverja
Settur sendifulltrúi Kína á fslandi
var kallaður í utanríkisráðuneyt-
ið í gær þar sem þess var óskað að
hann kæmi því á framfæri við kín-
versk stjórnvöld, að ríkisstjórn
íslands og íslenska þjóðin harm-
aði mjög þá atburði sem orðið
hafa í Peking undanfarna daga,
segir í frétt frá utanríkisráðu-
neytinu.
Kvöldganga
í Búrfellsgjá
Útivist gengst fyrir léttri göngu í
Búrfellsgjá fyrir ofan Hafnar-
fjörð í kvöld. Brottför er frá BSÍ
kl. 20 og kostar 500 kr. fyrir full-
orðna en frítt er fyrir börn.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Ml&vlkudagur 7. júní 1989