Þjóðviljinn - 07.06.1989, Qupperneq 3
_____FRETTIR___
Bœndur
Blórabögglar
að ósekju
Landssamband kúabœnda mótmœlir mjólk-
uraðgerð samtaka launafólks. Guðmundur
Þorsteinsson: Skiljum vel óánœgjufólks, en
óttumst langtímaáhrifafþessari aðgerð þar
sem óánægjunni er beint gegn ákveðnum
vörutegundum en öðrum sleppt
Landsamband kúabænda sendi
forystu ASÍ og BSRB í gær á-
lyktun þar sem tilmælum verka-
lýðshreyfingarinnar til launa-
fólks um að það kaupi ekki mjólk-
urvörur í þrjá sólarhringa er mót-
mælt.
„Við skiljum vel óánægju fólks
en teljum ekki rétt að henni sé
beint sérstaklega að þessum
vörum,“ sagði Guðmundur Þor-
steinsson, bóndi á Skálpastöðum
í Lundareykjardal, við Þjóðvilj-
ann í gær, en Guðmundur er rit-
ari í stjórn Landssambandsins.
Guðmundur sagði að bændur
fögnuðu allri viðleitni til þess að
halda verðlagi niðri og tók undir
að þessar hækkanir sem nú dynja
á þjóðinni væru slæmar.
„Við viljum gjarnan eiga sam-
starf við samtök launafólks í þá
átt að reyna að halda verði lágu,
en þegar ASÍ og BSRB taka ein-
hliða ákvörðun um að hvetja
fólks til þess að kaupa ekki
mjólkurvörur er slíkt gert án þess
að tekið sé tillit til þess að það
kemur illa niður á kúabændum.
Með þessari aðgerð er skorað á
fólk að kaupa ekki innlendar
vörur sem allir þurfa á að halda,
en látið ógert að hvetja fólk til
þess að kaupa ekki bensín, að-
gerð sem snertir fáa aðra en
olíufélögin. Ef samtök launafólks
vilja beita sér fyrir einhverju sem
snertir fjárhag ríkissjóðs á beinan
hátt ættu þau að hvetja fólk til
þess að kaupa ekki áfengi í eina
til tvær vikur, en slík aðgerð væri
holl fyrir alla aðila.“
Guðmundur sagðist óttast
mest þau langtímaáhrif sem þessi
aðgerð hefði, þar sem með þessu
væri óánægju fólks beint að
ákveðnum vöruflokkum og slíkt
gæti komið fram í samdrætti til
lengri tíma litið, sem kæmi niður
á útreikningum um fullvirðisrétt,
en fullvirðisréttur hækkar á
landsvísu ef sala á landbúnaðar-
afurðum eykst.
„Það veit enginn hvaða áhrif
þessi aðgerð hefur til lengri tíma
á markaðinn. Þar er hlutunum
teflt í tvísýnu," sagði Guðmund-
ur. -Sáf
Búseti
Övíst um framkvæmdir
Engin viðbrögð við lánsumsóknum Búseta
frá síðasta ári. Reynir Ingibjartsson: Kerfið er
nœr gjaldþrota eins og er
Aaðalfundi Búseta í Reykjavík
sem var haldinn á dögunum
komu fram harðorð mótmæli
vegna dráttar sem orðið hefur á
ákvörðunum um lánveitingar til
félagslega húsnæðiskerfísins.
í tillögum sem fráfarandi
stjórn Búseta samþykkti, kemur
m.a. fram að umsóknir um lán-
veitingar fyrir 180 félagslegar
íbúðir hafa frosið í kerfinu og
engin jvör hafa borist.
Þessi dráttur getur valdið því
að öll undirbúningsvinna félags-
ins t.d. samningar um lóðir, for-
hönnun og verksamningar, séu í
algerri óvissu, og að sögn Reynis
Ingibjartssonar hjá Búseta gæti
það farið svo að þetta ár dytti út
hvað framkvæmdir varðar. Það
væri það langt liðið á árið og enn
væri beðið eftir svörum, að það
verði erfitt að hefja framkvæmdir
þótt lánsloforð fengist.
í tillögunum kemur einnig
fram að fráfarandi stjórn Búseta
skorar á stjórnvöld að standa við
þau loforð sem voru gefin í ný-
gerðum kjarasamningum um að-
gerðir á þessu ári. Svo og að gerð
verði áætlun til næstu 3-5 ára um
mikið átak í byggingu félagslegra
íbúða, og að félagslega íbúða-
kerfið verði tekið til endurskoð-
unar og sett verði lög um húsnæð-
issamvinnufélög og búseturétt
fyrir lok þessa árs. Það sé kominn
tími til, því nú eru liðin fimm ár
frá því fyrrverandi fél-
agsmálaráðherra skipaði nefnd
til að semja slíka löggjöf.
-ns
Súgandafjörður
Togarinn innsiglaður
Atvinnulífi þorpsins stefnt í hœttu
Sýslumaðurinn á ísafirði Pétur
Kr. Hafstein innsiglaði í
fyrradag togarann Elínu Þor-
bjarnardóttur ÍS vegna vangold-
inna staðgreiðsluskatta Hlaðsvík-
ur hf. sem gerir togarann út. Elín
lá enn bundin við bryggju í gær
þegar síðast fréttist.
Að sögn Randvers Eðvarðs-
sonar skrifstofustjóra hjá Fiskiðj-
unni Freyju hf. á Suðureyri við
Súgandafjörð, en eigendur þess
og Hlaðsvíkur hf. eru að mestu
þeir sömu, mun frystihúsið stöðv-
ast á næstunni ef ekki mun
greiðist úr þessu máli. Um 15
manns eru á togaranum og 90
manns eru á launaskrá hjá Freyju
hf. Togarinn kom úr síðustu
veiðiferð að sinni um miðja síð-
ustu viku með 150 tonn af grá-
lúðu og mun það hráefni duga til
vinnslu út þessa viku. Eftir það
verður lítið að gera ef togarinn
verður þá enn bundinn við
bryggju.
Pétur sýslumaður innsiglaði
ekki aðeins togara þeirra Súgfirð-
inga í fyrradag heldur og einnig
rækjutogarann Hafþór ÍS vegna
skulda útgerðar hans. Hún sá þá
sitt óvænna og greiddi skuld sína
og var þá innsiglið rofið.
-grh
Guðjón B. Ólafsson: SÍS
stefnir ekki ígjaldþrot.
Breyta þarfþeirri
efnahagstefnu sem hér
hefur ríkt síðastliðin
misseri. Sambandið
íhugar hvernig það getur
losaðfjármuni ígegnum
Regin. Tilgangslaust að
reikna háan
vaxtakostnað áfyrirtœki
sem ekki stendur undir
honum. Hugsa ekkiþá
hugsun til enda efKRÓN
hœttir samstarfi við
verslunardeildina.
Efnahagsstefnan
þarf að breytast
Aðalfundi Sambands íslenskra
samvinnufélaga lauk í gær.
Ólafur Sverrisson hlaut kosningu
sem stjórnarformaður og fékk 86
atkvæði af 114 greiddum eða um
75% greiddra atkvæða. Þröstur
Ólafsson, kaupfélagsstjóri
KRON hafði verið orðaður við
stjórnarformennsku en stuðn-
ingsmenn hans létu sér greinilega
nægja að veita honum mála-
myndastuðning til þess embættis
og greiddu honum 14 atkvæði.
Valgerður Sverrisdóttir,
stjórnarmaður í SÍS fékk síðan
eitt atkvæði til formanns.
Fundarmenn höfðu hins vegar
greinilega fallist á að veita Þresti
stuðning til stjórnarkjörs og fékk
Þröstur 91 atkvæði og kom þar
fast á hæla Gunnars Sveinssonar,
frá Keflavík.
Kjörtími þriggja stjórnar-
manna var útrunninn, þeirra
Gunnars Sveinssonar sem hlaut
endurkosningu sem fyrr segir,
Ingólfs Ólafssonar frá KRON
sem stóð upp fyrir Þresti Ól-
afssyni og Þórarins Sigurjóns-
sonar frá Selfossi, en Þórarinn
var endurkjörinn með 62 at-
kvæðum. Gunnar, Þröstur og
Þórarinn voru kosnir til þriggja
ára, en þar sem Valur Arnórsson
hafði hætt sem stjórnarformaður
og Óiafur Sverrisson komið í
hans stað losnaði enn eitt sæti, en
þá til eins árs. Kom þar inn í
stjórnina Helga Vilborg Péturs-
dóttir Kaupfélagi Þingeyinga,
með 55 atkvæðum en hún hafði
áður setið sem varamaður Vals.
Varamenn í stjórn voru kosin
Birna Bjarnadóttir frá KRON og
Þórólfur Gíslason og fengu bæði
60 atkvæði. Réði hlutkesti því að
KRON fékk fyrsta varamann,
Þórólfur varð annar varamaður,
en Dagbjört Höskuldsdóttir varð
þriðji varamaður.
Þessar breytingar á stjórn telj-
ast vart stórvægilegar jafnvel þó
vitað væri að ýmsir ætluðu sér
stærri hlut, svo sem Skagfirðing-
ar. Vægi KRON verður þó að
teijast meira en áður og áhrifa
Þrastar kann að eiga eftir að gæta
meir en fyrirrennara hans. Guðj-
ón B. Ólafsson, forstjóri SÍS seg-
ist þó alls ekki eiga von á neinum
meiriháttar breytingum á stefnu
stjórnarinnar. En hvað segir
Guðjón um þær áherslur sem
KRÓN-menn lögðu á aukið
frjálsræði frá Verslunardeild
sambandsins og um þá hótun að
þeir yrðu að „sprengja sig frá
verslunardeildinni“, yrði ekki
komið til móts við þá með hag-
stæðari kjörum frá Verslunar-
deildinni?
„KRON er auðvitað stærsti
viðskiptaaðili verslunardeildar
og að sjálfsögðu verðum við að
taka tillit til hagsmuna KRON.
KRON hlýtur náttúrlega að hafa
verulega að segja og við höfum
verið að reyna ýmislegt til að gera
verslunardeildina samkeppnis-
hæfari fyrir KRON og önnur
kaupfélög. En mér dettur ekki
hug að hugsa þá hugsun til enda
ef KRON hættir að starfa með
okkur í verslunarmálum, enda tel
ég augljóst að samstarf sé hag-
kvæmt fyrir báða,“ sagði Guð-
jón.
Fjárhagsstaða SÍS hefur verið
rækilega tíunduð í fjölmiðlum,
enda tapið gífurlegt og fyrirtækið
það stærsta hér á landi. Telur
forstjórinn að stefni í gjaldþrot ef
fer fram sem horfir? „Nei, nei ég
er algjörlega ósammála því og við
höfum trú á að hægt sé að vinna
sig út úr þessum vanda. Vandinn
er sá sami og flest íslensk fyrir-
tæki eiga við að glíma. Ég vil
halda því fram að um leið og ís-
í BRENNIDEPLI
lenskt efnahagslíf verður lagað
muni hagur Sambandsins batna.“
Sagði Guðjón að ein frumfor-
senda þess að útflutningsatvinnu-
vegirnir gætu starfað með eðli-
legum hagnaði væri að gengi væri
rétt skráð. Eins þarf verðbólga að
vera innan sömu marka og er í
okkar viðskiptalöndum og fjár-
magnskostnaður sambærilegur,
og þá þarf sambandið engu að
kvíða. Sagði Guðjón að menn
yrðu að trúa því að ekki væri hægt
til lengdar að framkvæma þá
efnahagsstefnu sem hefði verið í
framkvæmd undanfarin misseri.
En vill Guðjón raunverulega
taka upp neikvæða vexti og
hverfa aftur til þeirra tíma þegar
sparifé brann upp og fjárfestingar
voru nánast gefnar? „Ég hef ekki
talað um upptöku neikvæðra
vaxta sem slíkra, en það er
augljóst að fjármagn stendur
ekki undir neinum öðrum kostn-
aði en þeim sem arður af atvinnu-
rekstri stendur undir. Það er til-
gangslaust að vera að reikna háan
vaxtakostnað á fyrirtæki sem
ekki standa undir honum, þau
fara þá á hausinn eða eyða upp
eigin fé og þeim verður þá bara
að hjálpa úr öðrum vasa á sama
líkama. Það eina sem ég óska
eftir að sjá á íslandi er það sama
og gildir í öðrum löndum Evrópu
ogNorður-Ameríku. Þarerverð-
bólga frá núlli upp í 5% og þetta
er hægt hér. Um leið og verð-
bólgu er haldið niðri, þá stýrir
það gengi gjaldmiðils og ræður
öðrum lykilþáttum í þjóðfé-
laginu,“ sagði Guðjón.
En var ekki tekin upp verð-
trygging lána til þess að ná verð-
bólgunni niður? „Jú, en það
verður að stjórna öllum þáttum í
efnahagskerfinu, það er ekki
hægt að láta einstaka þætti færast
úr takt við raunveruleikann, sér-
staklega ekki ef þeir eru sjálfvirkt
tengdir með vísitölubindingu."
En skuldastaða SÍS er svo slæm
að bætt efnahagsumhverfi eitt og
sér hrekkur ekki til og sambandið
þarf að selja frá sér eignir. En af
hverju að selja frá sér gullgæs
eins og Samvinnubankann? „Það
er rétt að Samvinnubankinn er
ágætlega stæður. Bankarnir hafa
hins vegar allir tapað fé á fyrri
hluta árs og miklu meira en á
sama tíma í fyrra. Þarna er um að
ræða hagræðingu í bankakerfinu
sem við erum sammála að eigi að
gerast. Þar fyrir utan mun sala á
hlut Sambandsins í bankanum
bæta fjárhagstöðu Sambandins
og lækka rekstarkostnað." Guð-
jón sagði það reyndar rétt að
Landsbankinn hefði átt frum-
kvæðið að því að bankarnir sam-
einuðust.
En ætlar SÍS að selja fyrirtækið
Reginn, sem á fjórðung í íslensk-
um aðalverktökum og hlut í Sam-
einuðum verktökum? „Reginn er
út af fyrir sig ekki fyrirtæki sem
hægt er að hugsa sér að gangi
kaupum og sölum. Það er eignar-
haldsfyrirtæki sem á hlut í ís-
lenskum aðalverktökum og mál-
ið er ekki einfalt.“ Sagðist Guðj-
ón ekki vita hvort hægt væri fyrir
Sambandið að selja hlutabréf
fyrirtækisins. „Við erum að velta
fyrir okkur að ná út hluta a.m.k.
af þeim fjármunum sem Sam-
bandið eða Reginn á þar, en
þetta er nokkuð sem ég get ekki
tjáð mig nánar um.“
Deilur þær sem urðu svo áber-
andi í stjórn Sambandsins milli
núverandi forstjóra annars vegar
og forvera hans og fyrrum
stjórnarformanni virðast ekki al-
veg gleymdar. Valur Arnþórs-
son, fyrrum stjórnarformaður
hélt kveðjuræðu á aðalfundinum
og lét þar orð falla um nauðsyn
þess að það hefði verið skylda sín
að grennslast fyrir um ef grunur
léki á að einhver starfsmaður
Sambandsins fengi greitt umfram
samninga. Vildu ýmsir túlka
þetta sem lítt dulbúna sneið að
Guðjóni. Þá vildi einn ræðu-
manna á aðalfundinum að þeir
Erlendur Einarsson og Valur
Arnþórsson yrðu látnir svara
fyrir það að hafa rægt núverandi
forstjóra opinberlega, Samband-
inu til stjórtjóns eins og hann orð-
aði það. Hvert er álit Guðjóns á
' orðum þessa ræðumanns? „Ég
held að það væri hyggilegast fyrir
mig að segja sem allra minnst um
þau,“ var svarið.
phh
Mi&vikudagur 7. júní 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3