Þjóðviljinn - 07.06.1989, Síða 7
MENNING
Deilurit Þorgeirs
um réttarfarið
Þorgeir Þorgeirs o n
AÐ GEFNU TILEFNI
Onnur útgúra - icstiús -1989
Leshús hefur gefið út í annarri
útgáfu ádrepu Þorgeirs Þorgeirs-
sonar rithöfundar, Að gefnu til-
efni.
Bókin fjallar um réttarfar,
valdastóla og stjórnendur okkar í
víðasta skilningi. Frá sjónarhóli
almennra mannréttinda vekur
hún spurningar sem margoft eru
fremur óþægilegar - einkanlega
fyrir þá sem með völdin fara. Er
málfrelsi virt hér? Býr hinn al-
menni þegn við réttaröryggi?
Njóta dómstólarnir þeirrg^ al-
mennu virðingar sem þeim er
nauðsynleg? Hversvegna ekki?
Eru daglega framin hér
í vor gaf Vaka-Helgafell út
nýja verðlaunabók Verðlauna-
sjóðs íslenskra barnabóka,
Alagadalinn eftir Heiði Baldurs-
dóttur. Þetta mun vera í fjórða
sinn sem sjóðurinn verðlaunar
barnabók og hafa verðlaunabæk-
ur fyrri ára verið hreinasta af-
bragð. Einna best er þó líklega
bókin sem út kom í fyrra, Fugl í
búri eftir Kristínu Loftsdóttur, að
öðrum ólöstuðum. Því var það að
þessi lesandi hugsaði sér gott til
glóðarinnar að þessu sinni líka,
en varð því miður fyrir dálitlum
vonbrigðum. Sá gæðastimpill
sem viðurkenning verðlauna-
sjóðsins var orðin er nú ekki
framar alveg samur. Álagadalur-
inn er uppkast að ævintýri. Þarna
er hrúgað saman algengum
ævintýraminnum en útkoman
minnir meira á tölvuspil á borð
við „King’s Quest“ en fantasíu.
Hvað veldur?
Það er vandratað um víðar
lendur fantasíunnar, því er ekki
að neita. Þar er villugjarnt um
krákustíga og falleg landabréf
koma að litlu gagni, jafnvel þótt
Brian Pilkington hafi dregið þau
upp af alkunnri snilld sinni. Þeir
mannréttindabrot sem fara hljótt
og fáir dirfast að nefna? Hver er
virðing stjórnmálamanna sem
þjarka um krónur og aura á með-
an grundvöllur samfélagsins er að
molna?
Fyrsta útgáfa bókarinnar kom
á markað fyrir 8 mánuðum og var
lítill gaumur gefinn af fjölmiðl-
um. Samt er hún nú uppseld fyrir
löngu og fengu færri en vildu. Er
það mál dómbærra manna sem
lesið hafa þessa bók að hún sé að
öllum líkindum komin til að vera
um sinn. Enda hreyft í henni
mörgum hugmyndum sem hljóta
bráðlega að verða til gaumgæfi-
eru ekki margir sem lagt hafa í
könnunarleiðangur um þessi ó-
kunnu svæði með góðum árangri.
Þó má nefna höfunda á borð við
Lewis Caroll, Mervyn Peake,
J.R.R. Tolkien, Michael Moor-
cock, Piers Anthony, Astrid
Lindgren og ... Guðberg Bergs-
son. Heiður Baldursdóttir leggur
því heldur betur á brattann með
frumraun sína, Álagadalinn, og
ekki eru undur þótt henni verði
fótaskortur hér og þar. Víst örlar
á mörgum góðum hugmyndum,
en þær vilja drukkna í kraðaki
hefðbundinna „hráefna" ævin -
týra. Persónur eru undarlega
bragðdaufar og ómarkvissar. Það
er helst að Heiði takist vel upp
með nornina, en hún kemur
óþarflega lítið við sögu - hún er
sú fyrsta sem kynnt er fyrir les-
endum, en hverfur síðan af sjón-
arsviðinu lengst af, einn þessara
lausofnu þráða í frásögninni. Þeir
eru of margir og reyna nokkuð á
lesandann.
Þegar aðalpersónan, unglings-
stúlkan Gígja, fer ásamt systur
sinni Krúsu í ævintýraheiminn, er
hún undarlega sinnulaus þegar
litla systir týnist og leggst bara til
legrar umræðu, ef fólki á að
verða líft hér í fyrirsjáanlegri
framtíð.
Tilefni bókarinnar var upphaf-
lega það að ríkissaksóknari hóf
mál á höfundinn fyrir skrif hans
um lögregluna. Það mál er smá-
vægilegt í margra augum og
mundi vart þykja umtalsvert ef
Þorgeir hefði ekki kosið að láta
reyna á vinnubrögð réttvísinnar
sem virðist að hafa kolfallið á
prófinu, því við blasir hrollvekja
sem höfundinum þó auðnast að
segja frá með undraverðri gam-
ansemi og skilningi sem hverjum
manni er hollt að kynnast. En
svefns heima hjá píslunum, sem
eru eins konar tilbrigði við rass-
álfana úr Ronju ræningjadóttur,
þótt þeir komist ekki í hálfkvisti
við þá. Fremur óyndislegir for-
eldrar elta þær systur inn í ævin-
ÓLÖF PÉTURSDÓTTIR
SKRIFAR UM
BARNABÆKUR
týraheiminn og eru svo meira og
minna úr sögunni. Þannig er
margt sem vel hefði mátt missa
sín og hefði frásögnin orðið
beinskeyttari og markvissari fyrir
vikið. Stíll er óþarflega sundur-
laus og óagaður. Setningar byrja
oft á „en“, janfvel margar í röð.
Sem fyrr segir eru þarna samt
margar hugmyndir sem vel hefði
mátt þróa og útfæra - þær eru
þess virði. Til að mynda hefði vel
mátt draga betur fram þá þroska-
sögu sem þarna örlar á - í upphafi
bókar er Gígja sáróánægð með
sjálfa sig en í lokin horfir hún
með velþóknun á spegilmynd
sína, enda telur hún sig hafa drýgt
Þorgeiri er það einkar lagið að
skemmta um hin óskemmtileg-
ustu efni - svo sem kunnugt er.
Hin nýja útgáfa bókarinnar er
233 blaðsíður að stærð og kostar
kr. 1.750,- í bókaverslunum en
kr. 1.250,- hjá forlaginu að við-
bættu póstkröfugjaldi.
hetjudáð og sjálfsálitið er komið í
lag. Eins finnst manni stundum
að höfundur hafi ekki hugmynd
um hvað gerist næst, hafi ekki
gert vægi persóna upp við sig frá
upphafi og sé að fikra sig áfram
allan tímann. Þessi grunur fylgir
lesanda stöðugt og truflar lestur-
inn.
Niðurstaðan verður því sú að
það þarf meira en viljann til að
skrifa góða fantasíu - það þarf
ntikla vinnu og yfirlegu, mark-
vissan stíl og einhvern tilgang.
Fantasían verður að vera fleyg
eins og blár fugl sem ber þrá höf-
undar til skýja, hið ritaða orð á að
vera í senn flug- og skrautfjöður,
fislétt og loftkennt. Það má ekki
njörva hugsunina niður, leggja á
hana álög. Þá bera skógar af
gulli, silfri og bronsi helst keim af
veraldlegum íþróttaverðlaunum
og leitin að hnossinu verður lík-
ust lífsgæðakapphlaupinu. Ég vil
hvetja Heiði til frekari ritsmíða,
þar sem hún gæfi sér tíma til að
nostra betur við hugverk sitt, því
ljóst er að hún er gædd afar frjóu
ímyndunarafli. En því miður...
Þarna skaut hún fram hjá mark-
inu.
íslenskur
flautu-
leikari
íNew
York
Áshildur Haraldsdóttir flautu-
leikari hélt á dögunum sína fyrstu
einleikstonleika í New York i
Cami Hall. Á efnisskránni var
einungis nýleg tónlist eftir íslensk
og amerísk tónskáld, þar af þrjú
verk sérstaklega samin fyrir As-
hildi.
Aðsókn var mjög góð og eink-
um fjölmenntu íslendingar, enda
tónleikarnir styrktir af Islend-
ingafélaginu.
I umsögn um tónleika Áshildar
sagði John Rockwell, aðaltónlist-
argagnrýnandi stórblaðsins New
York Times, meðal annars.
„Áshildur Haraldsdóttir er ís-
lenskur flautuleikari sem hefur
mikla tónlistarhæfileika, töfrandi
sviðsframkomu og heitir auk þess
þessu yndislega hljómfagra
nafni.... Efnisskráin var metnað-
arfull þó ekki ættu öll tónverkin
það skilið að Áshildur léki þau.
Best á tónleikunum voru verk
hinna tveggja íslensku tónskálda,
„Eco de Passato" eftir Hauk
Tómasson, samið 1988 að beiðni
Áshildar, og „Xanties“ eftir Atla
Heimi Sveinsson frá árinu 1975.
Bæði verkin tókust á við tæknileg
litbrigði sem Áshildur leysti af
hendi með miklum glæsibrag“.
Áshildur Haraldsdóttir lauk á
síðastliðnu vori Masters-prófi frá
Juilliard-skólanum í New York
og var fulltrúi íslendinga á Tvíær-
ingi Norrænna einleikara sem
haldinn var í Reykjavík síð-
astliðið haust.
Álagadalur: Væri það hálfa ekki nóg?
Logi, logi eldur mín
Gestaleikur frá Færeyjum í Þjóðleikhúsinu
Leikritið Logi, logi eldur mín
verður sýnt á Litla sviði Þjóðleik-
hússins fimmtudags- og föstu-
dagskvöld.
Þetta leikverk er leikgerð eftir
„Gomlum Götum“ færeysku
skáldkonunnar Jóhonnu Maríu
Skylv Hansen í leikstjórn Eyðun
Johannesen. Leikari er Laura Jo-
ensen. Leikritið var frumsýnt í
Þórshöfn á annan í jólum 1988 í
tilefni 100 ára afmælis hins sögu-
lega Jólafundar, þegar Færeying-
ar komu saman og strengdu þess
heit að hefja færeyska tungu og
menningu til vegs og virðingar.
Leikritið hefur verið sýnt í allan
vetur út um allar Færeyj ar og not-
ið mikilla vinsælda. Það er ein-
læg, lifandi og falleg lýsing á lífi
konu frá vöggu til grafar í litlu og
ósnortnu samfélagi, sem lifir í
sátt við sjálft sig.
Jóhonna María Skylv Hansen
(1877-1973) fór ekki að skrifa fyrr
en börn hennar voru uppkomin.
Þá var hún vitavarðarfrú í Mykju-
nesi. Ritsafn hennar er í fjórum
bindum undir samheitinu Gaml-
ar götur og kom það út á árunum
1950-1973. í því eru sögulegar
frásagnir, ljóð, þýðingar og
sögur. Frásagnir hennar eru um
líf, vinnu og atburði fyrri tíma.
Ætlun hennar sem rithöfundar
var síst að skrifa um sjálfa sig
heldur bera sögurnar þess merki
að þeim var ætlað að fræða les-
andann. Takmark hennar var að
geyma minningar um liðna tíð á
breytingarskeiði í þjóðfélaginu;
frá gamla ættarsamfélaginu yfir í
nútímann.
Leikgerðina unnu þau Malan
Simonsen, Laura Joensen og
Eyðun Johannesen. Logi, logi
eldur mín er ekki beinlínis ævi-
saga Jóhonnu Mariu Skylv Han-
sen, en leikurinn byggir á skáld-
skap hennar og gefur innsýn í ríkt
og lifandi líf hennar, sem oft var
erfitt. í leiknum er skáldkonan
látin hafa áhrif á gang leiksins.
Rödd hennar heyrist úr útvarps-
viðtali, sem tekið var við hana
árið 1969, þegar hún var 92 ára
gömul. Tónlist og hljóðmynd
Sunnleifar Rasmussen eiga stór-
an þátt í leiknum, en í þeim á
Jóhonna María líka sinn hlut.
Hún hafði alltaf óskað þess jað fá
að læra á orgel og þegar þau hjón
fluttu til Mykjuness, keypti hún
sér hljóðfærið. Hún lærði nótur
og gerðist tónskáld, en aðeins er
þekkt eitt lag eftir hana. Það lag
gerði Sunnleif Rasmussen að
stefi leiksins. Söngur og raddir
fjölda fólks setja sinn svip á
leikinn. Leikmynd og ljósmyndir
í sýningunni eru eftir lnga Joen-
sen.
Eyðun Johannesen, leikstjóri,
er í hópi merkustu leikhúsmanna
Færeyinga. Hann var fyrsti Fær-
eyingurinn sem aflaði sér leiklist-
armenntunar og starfaði síðan
með Havnar Sjónleikarfélagi
sem leikari og leikstjóri frá því
1960. Hann var leikari og leik-
stjóri við leikhúsið í Árósum
1970-73 og aðstoðarrektor við
leiklistarskólann þar. Hann var
leikhússtjóri við Sjónleikarhúsið
í Þórshöfn frá því 1973 og einn af
stofnendum atvinnuleikfélagsins
Grímu í Þórshöfn. Hann hefur
leikstýrt um öll Norðurlönd und-
anfarin ár, þ.á m. Skipinu í Þjóð-
leikhúsinu 1977.
Laura Joensen er ein af
fremstu leikurum Færeyinga og
meðlimur atvinnuleikhópsins
Gríma. Hún lék Nóru í Brúðu-
heimilinu í leikstjórn Sveins Ein-
arssonar á Listahátíð í Reykjavík
1985, en sú uppfærsla var frum-
flutt í Norðurlandahúsinu í Fær-
eyjum. Skrifað hefur verið um
einleik hennar í Logi, logi eldur
minn sem stórkostlegan leiksigur
í færeyskum blöðum.
Aðeins verða tvær sýningar á
þessum sérstæða leik og sæta-
fjöldi takmarkaður á Litla svið-
inu.
Miðvikudagur 7. júní 1989 ÞJÓÐVILJINN - S(ÐA 7