Þjóðviljinn - 07.06.1989, Page 9
MINNING
Þorsteinn Gunnarsson
kennari
Fœddur 22. október 1917 - Dáinn 28. maí 1989
Þorsteinn Gunnarsson heyrði
ég fyrst nefndan þegar ég sem
unglingur kom til Akureyrar til
að setjast í menntaskólann þar.
Hann hafði þá fyrir nokkrum
árum lokið þar stúdentsprófi en
um hann var ennþá talað í stofn-
uninni sem einhvern galdramann
á sviði raungreinanna. Hann
hafði ekki aðeins verið nemandi
sem kunni ráð í öllum vanda
heldur hafði hann að loknu stúd-
entsprófi gerst athafna- og upp-
finningamaður og hafið vinnslu
verðmæta úr íslenskum skelja-
sandi.
Það var ekki fyrr en löngu síðar
að fundum okkar Þorsteins bar
saman á námskeiði fyrir fram-
haldsskólakennara. Hann mun
þá hafa verið kennari á Núpi í
Dýrafirði og vegur þess skóla
með slíkum blóma að öruggt
þótti að sérhver nemandi sem
þangað var sendur stæðist hið
örðuga landspróf sem var alls-
herjar inntökupróf í menntaskóla
landsins. Þetta var á þeim tíma
þegar kennarinn undirbjó ne-
mendur sína undir próf sem aðrir
sömdu og sáu um, og haldið var
fyrir alla sambærilega skóla
landsins. Hér reyndist Þorsteinn
sami galdramaðurinn og hann
hafði verið talinn á skólaárum
sínum og Núpsskóli varð sá fram-
haldsskóli sem öðrum fremur
kom nemendum gegnum það al-
vörupróf sem landsprófið var. Þá
var grasafræði eitt af því sem Þor-
steinn lagði sig eftir og sá hann
m.a. um að útvega Lystigarðin-
um á Akureyri plöntur sem ein-
ungis finnast hérlendis á Vest-
fjörðum.
Eftir fyrstu kynni okkar Þor-
steins hittumst við nokkrum sinn-
um m.a. á Akureyri þar sem
móðir hans, Sigríður Þor-
steinsdóttir, og stjúpfaðir,
Tryggvi Helgason, bjuggu. Ég og
kona mín áttum því láni að fagna
að mega telja okkur í vinahópi
þeirra.
Þorsteinn fæddist í Reykjavík
22. október 1917. Hann var elstur
af þrem sonum hjónanna Sigríðar
Þorsteinsdóttur og séra Gunnars
Benediktssonar, sem talsvert
kom við sögu í menningar- og fé-
lagslífi þjóðarinnar um miðbik
þessarar aldar. Stjúpfaðir Þor-
steins var Tryggvi Helgason, sem
lengi var forystumaður í verka-
lýðshreyfingunni á Norðurlandi.
Hann býr nú í Reykjavík, háaldr-
aður en vel ern.
Á unglingsárum sínum átti
Þorsteinn við alvarleg veikindi að
stríða og var heilt ár sjúklingur
vegna berkla í baki. Hann lauk
stúdentsprófi vorið 1939 en
vegna þröngs efnahags og síðar
stríðsins hafði hann ekki tök á að
sigla til náms fyrr en árið 1946.
En á þessum árum stofnaði hann
og rak verksmiðjuna Sindra sem
framleiddi kolsýru og kalk ásamt
Agli Sigurðssyni og Baldri
Líndal. Hann nam stærðfræði við
Háskólann í Kaupmannahöfn
árin 1946 til 1949 en sneri þá heim
og lagði stund á kennslu við
nokkra framhaldsskóla, þar af 19
ár á Núpi í Dýrafirði, en síðast við
Námsflokka Reykjavíkur. BA-
próf í stærðfræði tók hann við
Háskóla íslands 1956.
Fyrri kona Þorsteins var Birna
Magnúsdóttir frá Herjólfsstöð-
um í Skagafjarðarsýslu. Þau
skildu og varð ekki barna auðið.
Seinni kona Þorsteins var Ingunn
Guðbrandsdóttir frá Broddanesi
í Strandasýslu. Þau slitu samvist-
um en þeirra börn eru: Tryggvi,
starfsmaður hjá BYKO og Ing-
unn Sigríður, deildarstjóri í
Tölvudeild Seðlabanka íslands.
Útför Þorsteins fer fram frá
Kópavogskirkju í dag kl. 13.30.
Ég votta aðstandendum hans ein-
læga samúð mína.
Jón Hafsteinn Jónsson
Kveðja frá samstarfsfólki í
Námsflokkum Reykjavíkur.
Samskipti Námsflokka
Reykjavíkur og Þorsteins Gunn-
arssonar hófust fyrir 16 árum. Þá
vorum við að leita að heppilegri
námsbók í stærðfræði handa
nemendum Námsflokkanna og
fréttum, að vestur á Núpi við
Dýrafjörð sæti einn mesti stærð-
fræðingur landsins og hefði samið
gott námsefni fyrir nemendur, er
litla sem enga kunnáttu hefðu í
námsefni 9. bekkjar, en þyrftu að
tileinka sér það á stuttum tíma.
Við báðum Þorstein að selja okk-
ur efnið til kennslunnar og síðan
hefur námsefni Þorsteins ætíð
verið á kennsluskrá skólans.
Nokkrum árum síðar flutti
Þorsteinn með fjölskyldu sinni til
Kópavogs og kenndi stunda-
kennslu í nokkrum skólum lengst
af í Námsflokkunum eða um ára-
tug. Það kom fljótt í ljós að Þor-
steinn var fær um að kenna flestar
eða allar greinar stærðfræði, sem
kenna þurfti eða leitað var til
okkar með, enda var hann eins og
áður segir yfirburðamaður á þvf
sviði. Honum þótti gaman að
glíma við flóknar stærðfræðigátur
og ræddi þær gjarnan við þá úr
kennarahópnum sem hann sá að
skildu hvað hann var að fara, en
honum var líka eins lagið að
glíma við þá gátu, hvernig hægt
væri að láta hinn tornæmasta
nemenda skilja hin einfaldari
lögmál stærðfræðinnar og tókst
það oft harla vel.
í hópi samstarfsmanna sinna
var Þorsteinn ætíð glaður og
reifur og okkur duldist ekki, að
þar sem Þorsetinn fór, gekk góð-
ur maður, sem öllum vildi vel,
einkum þeim sem höllustum fæti
stóðu. Enginn skilji orð mín svo,
að við höfum ætíð verið sammála
eða að sú er skrifar undir þessi
orð hafi ætíð álitið Þorstein gera
rétt, en aldrei var hægt að draga
góðvild hans í efa.
Hinn 27. maí sl. héldu Náms-
flokkar Reykjavíkur upp á 50
vetra starfsafmæli sitt. Þar sökn-
uðum við Þorsteins sem ætíð
hafði verið hrókur alls fagnaðar á
gleðistundum okkar. Hann sendi
okkur þau skilaboð að hann
treysti sér ekki að koma vegna
lasleika. Hann átti ekki aftur-
kvæmt í okkar hóp. Við þökkum
Þorsteini samstarfið og vináttuna
og fjölskyldu hans sendum við
samúðarkveðjur.
Guðrún Halldórsdóttir
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Borgarmál
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins hefur ákveðið að hefja undirbúning
borgarstjórnarkosninga 1990 með hópastarfi um ákveðin málefni. Félagar
og stuðningsmenn eru eindregið hvattir til þess að taka þátt í starfinu.
Fyrstu fundir hópanna verða:
Miðvlkudaginn 14. júní:
Atvinnumál - veiturnar - jafnrétti kynjanna.
Miðvikudaginn 21. júni:
Skólamál - dagvistir - æskulýðsmál - íþróttir.
Fundirnir eru haldnir á Hverfisgötu 105, 4. hæð og hefjast kl. 20.30.
Ráðgert er að hefja starfið nú, en aðalvinnan fer fram að loknum sumar-
leyfistíma.
Alþýðubandalagið Austfjörðum
Fundir á Austurlandi
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður verður á opnum fundum á Austur-
landi á næstunni sem hér segir:
Seyðisfirði, Herðubreið, mánudaginn 12. júní kl.
20.30.
Bakkafirði, skólanum, þriðjudaginn 13. júní kl.
20.30.
Vopnafirði, Austurborg, miðvikudaginn 14. júní kl.
20.30.
Reyðarfirði, Verkalýðshúsinu, fimmtudaginn 15.
júní kl. 20.30.
Borgarfirði, Fjarðarborg, miðvikudaginn 21. júní kl.
20.30.
Eskifirði, Valhöll, fimmtudaginn 22. júní kl. 20.30.
Fundarefni: Störf Alþingis og hagsmunamál byggð-
arlaganna.
Fyrirspurnir og umræður.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
AB Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði ABK, mánudaginn 12. júní kl. 20.30
í Þinghóli.
Dagskrá: 1) Starfið framundan.
2) Önnur mál.
Stjórnin
a 1 SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS
um áfengisvahdamáuð
Aðalfundur SÁÁ
verður haldinn fimmtudaginn 15. júní 1989 kl.
20.00 að Síðumúla 3-5, Reykjavík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Hjörleifur
Gunnar Guðbjörnsson tenór-
söngvari.
Einsöngur í
Stykkishólmi
og Búðardal
Gunnar Guðbjörnsson tenór-
söngvari og Guðbjörg Sigurjóns-
dóttir píanóleikari halda tónleika
í Sty kkishólmi og Búðardal í þess-
ari viku. Tónleikarnir í Stykkis-
hólmi vérða í Félagsheimilinu í
kvöld, 7. júní ki. 20.30 en tónleik-
arnir í Búðardal annað kvöld, 8.
júní í Dalabúð og hefjast á sama
tíma.
Gunnar hefur komið víða fram
sem einsöngvari bæði með kórum
og hljómsveitum. Hann söng
hlutverk Don Ottavios í upp-
færslu íslensku óperunnar á Don
Giovanni árið 1988. Sama ár söng
hann í boði hljómsveitarstjórans
Athony Hose á óperuhátíðinni í
Buxton í Englandi. Sl. vetur hef-
ur Gunnar stundað framhalds-
nám í Berlín, en næsta vetur
hyggur hann á frekara nám í Eng-
landi. í næsta mánuði mun Gunn-
ar syngja einsöngstónleika í Bux-
ton en honum hefur einnig boðist
að synja með Velsku þjóðaróper-
unni í óperu Mozarts „Cosí fan
tutte“, að ári.
Tónleikarnir í Stykkishólmi og
Búðardal hafa að geyma fjöl-
breytta efnisskrá, íslensk, skand-
inavísk og ítölsk lög sem og óper-
ettuaríur. Miðasala er við inn-
ganginn.
Holtaskóli
Keflavík
Næsta skólaár eru lausar 4 kennarastööur m.a.
í ensku, íslensku, samfélagsfræði, stærðfræöi
og raungreinum. í skólanum eru u.þ.b. 500
nemendur frá 6. til 9. bekkjar og kennarar um
30. Einnig vantar íþróttakennara drengja.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 92-15597 og
yfirkennari í síma 92-15652.
Skólanefnd
Lausar stöður
Við Æfingaskóla Kennaraháskóla Islands eru lausar til um-
sóknar tvær stöður æfingakennara. Um er að ræða stöðu
umsjónarkennara í 7. bekk með áherslu á stærðfræði og
líffræði og staða sérkennara.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum, ásamt ítarlegum upplýsingum um náms- og
starfsferil ber að skila til menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 17. júní n.k.
Menntamálaráðuneytið,
5. júní 1989
Félag
járniðnaðarmanna
Skemmtiferð 1989
fyrir eldri félagsmenn og maka þeirra verður
farin laugardaginn 24. júní kl. 9. Ferðast verður
um Suðurland. Kvöldverður í Skíðaskálanum í
Hveradölum.
Skráning í síma 83011 milli kl. 8 og 16.
Félag járniðnaðarmanna