Þjóðviljinn - 22.08.1989, Síða 1

Þjóðviljinn - 22.08.1989, Síða 1
Þriðjudagur 22. ágúst 1989 142. tölublað 54. árgangur Fjárlög Alþingi samþykki aukafjárveitingar Gildistímafjárlaga breytt. Ólafur Ragnar Grímsson: Ríkisstjórnin hefur samþykkt aðfjáraukalög ársins komifyrir Alþingiíhaust. Hefurekki gerst áður Ríkisstjórnin hélt sex tíma langan fund í gær þar sem far- ið var yfir atriði varðandi fjárlög næsta árs. Ólafur Ragnar Gríms- son fyármálaráðherra sagði Þjóð- viljanum að hann hefði lagt fyrir ríkisstjórnina ýtarlega greinar- gerð og tillögur varðandi fjárlag- agerðina en tillögurnar fælu í sér margar nýungar varðandi fram- kvæmd fjárlaga. Ólafur sagðist hafa lagt fyrir ríkisstjórnina tillögu um að fjár- aukalög fyrir árið í ár, yrðu lögð fyrir Alþingi strax á haustdögum og hefði sú tillaga verið samþykkt í stjórninni. „Aukafjárveitingar þessa árs verða því lagðar fyrir Alþingi," sagði Ólafur. Þing- menn gætu því tekið afstöðu til þess hvort auka ætti niður- greiðslur á landbúnaðarafurðum, auka ætti framlög til trygginga- bóta og annarra bóta og hvort Þúsundir á Rykkrokki Rykkrokk, rokkhátíðin sem haldin var við Fellahelli á laugardag, gekk mjög vel að sögn Sigurðar Sigurðssonar í Fella- helli. Hann sagði að eitthvað á bilinu 500-1000 manns hefðu ver- ið á hátíðinni framan af, en þegar líða tók á hátíðina hefðu áheyrendur verið á bilinu 4-5000. Lögreglunni barst ekki eitt ein- asta útkalla vegna Rykkrokksins, að sögn Sigurðar. Allar áætlanir hefðu gengið upp ef frá er talið að hljómsveitin Óktóber varð að boða forföll. Sigurður sagði að Rykkrokkið hefði sýnt og sannað fyrir sér, að ekkert væri því til fyrirstööu að halda rokkhátíð eins og Rykkrokk. Viljinn til að leggja eitthvað af mörkum væri allt sem þyrfti. Styrkur Tóm- stundaráðs Reykjavíkur, upp á 250 þúsund krónur, hefði nægt fyrir þeim kostnaði sem hlaust af hátíðinni. Sigurður telur að Reykjavíkur- borg ætti að hugleiða þann mögu- leika að halda rokkhátíð í Reykjavík á hverju ári. Slík hátíð yrði góð auglýsing fyrir borgina og þyrfti ekki að kosta mikið. Margar borgir héldu slíkar hátíð- ir til að vekja á sér athygli. Það mætti til að mynda hugsa sér framkvæmdina þannig að ein er- lend hljómsveit væri fengin á slíka hátíð, sem annars væri hald- ið uppi af íslenskum hljómsveit- um. Fellahellir hefði alla vega ekki getað fengið betri auglýs- ingu á sinni starfsemi en Ryk- krokkið. Rykkrokk væri betri auglýsing en 1000 auglýsinga- bæklingar. Nánar verður fjallað um Rykk- rokk á dægurmálasíðu Nýs Helg- arblaðs. -hmp ríkisvaldið ætti að styðja við atvinnulífið. Ólafur sagði raun- verulegt svigrúm vera fyrir hendi fyrir Alþingi, því ekki væri búið að eyða þessum fjármunum. Inni í fjáraukalögunum yrðu auka- fjárveitingar sem koma ættu til framkvæmda í nóvember og des- ember. Eins og kunnugt er á virðis- aukaskattur að taka við af sölu- skatti um næstu áramót. Þjóðvilj- inn hefur heimildir fyrir því að fjármálaráðherra hafi átt í við- ræðum við hina stjórnarflokkana um að tvö þrep verði á virðis- aukaskattinum, þar sem lægri álagning verði á algengustu mat- vælum. Þetta mál mun nú vera í skoðun innan Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Ólafur vildi ekki tjá sig um þetta mál, en sagði ýmsa hluti vera til umræðu innan ríkisstjórnarinnar í tengslum við fjárlagagerðina. Þá hefur Þjóðviljinn heimildir fyrir því að fjármálaráðherra vilji breyta gildistíma fjárlaga. í dag gilda fjárlög frá 1. janúar til 31. desember en talið er að Ólatur vilji að gildistíminn verði 1. júní til 31. maí. Með þessu fá alþingis- menn mun lengri tíma til að fjalla um fjárlögin, eða 4-5 mánuði og mánuður ynnist til undirbúnings á framkvæmd laganna. -hmp Það var rokk, það var þungarokk og það var sveifla á Rykkrokki. Hér sjást nokkrir af blásurum Júpíters með á nótunum. Mynd: Kristinn. Húnavatnssýsla Dómsmálaráðuneytið gagnrýnt Fróðleg skýrslafrá lögreglunni íHúnavatnssýslu. Starfsmenn dómsmálaráðuneytis gagnrýndir. Útiskemmtunin ekki dansleikur r Iskýrslu sem lögreglan í Húna- vatnssýslu hefur gert eftir úti- skemmtunina í Ilúnaveri um verslunarmannahelgina, kemur margt fróðlegt fram. M.a. hörð gagnrýni á starfsmenn dóms- málaráðuneytisins fyrir ummæli þeirra um að þeir hefðu sent Magnús Einarsson aðstoðaryfír- lögregluþjón í Reykjavík til að taka við stjórn fyrir norðan. Það er Kristján Þorbjörnsson aðalvarðstjóri sem undirritar skýrsluna og er undirbúningur að hátíðinni rakinn, svo og hátíðin sjálf. Kristján telur ástandið ekki hafa verið slæmt, en margt hafi farið úrskeiðis við samkomuhald- ið og helstu ástæðuna telur hann vera fólksfjöldann sem varð mun meiri en nokkur átti von á. Orðrétt segir í skýrslunni: „Margir hafa fundið hjá sér þörf til að lýsa ástandinu í Húnaveri og jafnvel menn sem þar komu aldrei alla helgina. Jafnvel menn úr dómsmálaráðuneytinu voru gripnir einhverri athyglissýki og voru fljótir að dæma. Og fólki var tíðrætt um ölvun. Auðvitað var þarna ölvað fólk en stærsti hlutinn voru venjulegir unglingar prúðir, snyrtilegir og vel gerðir krakkar.“ Þá segir Kristján um það hvort samkoman hafi verið þess eðlis að af henni bæri að greiða sölu- skatt: „Hver það er, sem ætlar að dæma um það hvort samkoman í Húnaveri tengdist útiskemmtun eða hvort útiskemmtunin þar tengdist tónleikum, veit ég ekki en hann er ekki öfundsverður af hlutverkinu. Samkvæmt minni skilgreiningu á orðinu dansleikur var ekki um slíka samkomu að ræða...“. Gunnar Sigurðsson lögreglu- maður nr. 1 skrifar líka skýrslu og segir þar m.a.: „Magnús Einars- son aðstoðaryfirlögregluþjónn úr Rvík hafði milligöngu um að hingað norður kæmu menn frá fíkniefnadeild lögreglunnar í Rvík og tækju við þessu máli. Eins var það von okkar að þeir dveldust eitthvað hér norðan heiða og litu á hátíðina ef þar kynnu að vera þekktir sölumenn þessa dauðansefnis. Sú von okk- ar brást hins vegar allsnarlega því þeir voru varla búnir að hemla bifreiðum sínum þegar þeir voru aftur komnir á leið suður." Þá segir Gunnar: „Um mið- nætti á laugardagskvöld voru uppgefnar tölur um selda miða 5500 en talið var að á svæðinu væru fast að 7000 manns. Mjög erfiðlega gekk að fá öruggar tölur og var eins og að þeir sem spurðir voru héldu að fyrirspyrjandinn væri með sýkingu, farið var undan í flæmingi og forðuðust fyrirspyrjandann eins og heitan eld.“ ns. Heimsmeistaramót í handbolta Tillögur HSÍ í ríkisstjóm Handknattleikssamband ís- lands hefur lagt fyrir Svavar Gestsson, menntamálaráðherra tillögur varðandi heimsmeistara- mótið í handbolta, sem á að halda á íslandi 1995. I tillögunum er gert ráð fyrir því að ný íþróttahöll verði byggð í Laugardal, norð- vestur af Laugardalshöllinni. Svavar Gestsson sagði Þjóð- viljanum, að hann myndi leggja þessar tillögur fyrir ríkisstjórnina í dag. Hann sagði að í tíð síðustu ríkisstjórnar hefðu verið gefin fyrirheit varðandi nýtt íþrótta- mannvirki í tengslum við heimsmeistaramótið. Þetta lof- orð hefði verið gefið á alþjóð- legum vettvangi, án þess að tryggt hefði verið að fjármunir væru fyrir hendi. Núverandi rík- isstjórn myndi standa við þessi fyrirheit. -hmp

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.