Þjóðviljinn - 11.10.1989, Page 7
ERLENDAR FRETTIR
Skýrsla IISS
Varsjárbandalag
gengur úr sér
Aðildarríkiþess og einnigNatóríki draga úr útgjöld-
um til herja sinna
Enda þótt aðildarríki Nató hafi
skuldbundið sig til að auka út-
gjöld sín til hermála um 3% ár-
lega, eru fiest þeirra þegar farin
að lækka þau útgjöld, þeirra á
meðal Bandaríkin, Bretland,
Tyrkland og Noregur. Af Nató-
ríkjum hafa aðeins Danmörk,
Grikkland, Kanada og Portúgal
upp á síðkastið hækkað fjárfram-
lög til herja sinna.
Þetta kemur fram í 31. hefti
The Military Balance (Herbún-
aðarjafnvægi), riti sem Alþjóð-
astofnunin um hermálarann-
sóknir, þekkt undir skammstöf-
uninni IISS, gefur út árlega.
Stofnun þessi, sem hefur aðsetur
í Lundúnum, hefur orð á sér sem
mikill viskubrunnur um herstyrk
ríkja heims, sem og samkeppni
þeirra og samvinnu á þeim vett-
vangi.
í þessari skýrslu IISS er því
haldið fram, að kalla megi að
Varsjárbandalagið sé nú úr sög-
unni sem hernaðarbandalag,
a.m.k. miðað við það sem áður
var. Að vísu séu enn sterk tengsli
milli Sovétríkjanna annarsvegar
og hinsvegar flestra annarra
bandalagsríkja, en hinsvegar sé
hernaðarbandalag Póllands og
Ungverjalands við t.d. Austur-
Þýskaland varla orðið annað en
formið eitt. Við þetta má bæta að
Rúmenía hefur eftir sem áður
sérstöðu innan bandalagsins.
Frá því að Gorbatsjov Sovét-
ríkjaforseti tilkynnti fyrirætlanir
um einhliða niðurskurð á vígbún-
aði Sovétríkjanna í Austur-Evr-
ópu hafa öll Varsjárbandal-
agsríki að Rúmeníu frátalinni til-
kynnt að fækkað verði í herjum
þeirra. Herútgjöld Tékkóslóvak-
íu lækka um 15 af hundraði þetta
árið og Búlgaríu um 12 af hundr-
aði. Austur-Þýskaland ætlar að
lækka sín herútgjöld um einn tí-
unda til ársloka 1990. Þingið í
Ungverjalandi hefur ákveðið
lækkun herútgjalda þar um 17 af
hundraði. dþ.
Þýskalandsmál
Hafa úrslitaþýðingu
fyrir Gorbatsjov
Fyrrverandi ráðunautur Honeckers telur að einafæra leið Austur-
Þýskalands út úr ógöngunum sé að breyta sér með Vestur-Þýskaland
sem fyrirmynd. Hann álítur að eðlilegast sé að ríkin sameinist og að
ekkert eigi að þurfa að vera því til fyrirstöðu
Gangur mála í Austur-
Þýskalandi hefur ekki aðeins
grundvallarþýðingu fyrir Þýska-
land og Vestur-Evrópu. Fram-
vindan í þeim málum ræður einn-
ig að öllum líkindum úrslitum um
það, hvort nýskipan Gorbatsjovs
í Sovétríkjunum heppnast eður
ei.
Þetta álítur a.m.k. maður að
nafni Wolfgang Seiffert, sem um
árabil var ráðunautur austur-
þýsku stjórnarinnar og hafði
einkum samskipti innan efna-
hagsbandalags austurblakkarinn-
ar, Comecon, á sinni könnu. En
1978 flutti hann til Vestur-
Þýskalands og er nú prófessor við
háskólann í Kiel. Hann er sagður
einkar vel heima um þýsk og evr-
ópsk stjórn- og efnahagsmál jafnt
austan tjalds sem vestan.
Friður í hættu
Seiffert telur, að austurþýskir
ráðamenn eigi vart annars kost
en að láta undan kröfum mikils
þorra almennings í ríki sínu og
gera á því gagngerar breytingar.
Annars sé hætt við „sprengingu“ í
Austur-Þýskalandi. Slík átök
kæmu ekki aðeins illa niður á íbú-
um þess lands, heldur yrðu þau
stórhættuleg fyrir friðinn í Evr-
ópu og heiminum öllum. Til
átaka kynni að koma á landa-
mærum Austur- og Vestur-
Þýskalands, t.d. ef skotið yrði að
austan á flóttamenn, sem reyndu
að ryðjast í stríðum straumum
yfir Berlínarmúrinn. Líklegt væri
að Sovétmenn brygðust við upp-
lausnarástandi í Austur-
Þýskalandi með því að taka þar
öll völd í sínar hendur.
Jafnvel þótt þetta leiddi ekki til
meiriháttar hernaðarátaka með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum
Seiffert - „sprenging" yfirvofandi í
Austur-Þýskalandi ef ráðamenn
láta ekki undan.
myndi þetta hafa í för með sér
afturhvarf til kalda stríðsins. Af-
vopnunarviðræður austurs og
vesturs yrðu lagðar á hilluna í
áratug eða svo. Seiffert telur, að
Gorbatsjov hafi lengi óttast að til
þesskonar tíðinda kunni að
draga. Hann hafi viljað ræða
Þýskalandsmálin við Kohl sam-
bandskanslara er hann heimsótti
Vestur-Þýskaland á dögunum, en
Kohl hafi færst undan af ótta við
að styggja bandamenn sína í
Nató. Gorbatsjov gerir sér ljóst,
segir Seiffert, að upplausn í
Austur-Þýskalandi og valdataka
Sovétmanna þar myndu eyða
þeim vinsældum, sem hann nýtur
á Vesturlöndum, og leiða til þess
að íhaldsmenn yrðu ofan á í
Kreml. Til að koma í veg fyrir
þetta sé Sovétríkjaforseti reiðu-
búinn til mikillar eftirgjafar í
Þýskalandsmálum.
Seiffert telur, að fyrir Austur-
Þýskaland sé aðeins ein leið fær
út úr ógöngunum: að breyta sér í
líkingu við Vestur-Þýskaland
með sameiningu ríkjanna fyrir
augum. Það sé óhjákvæmilegt
vegna þess að grundvallarástæða
óánægjunnar í austurríkinu sé
einfaldlega sú, að íbúar þess hafi
komist að þeirri niðurstöðu að
íbúar vesturríkisins hafi það
betra en þeir. Seiffert leggur að
vísu áherslu á, að við endursam-
eininguna verði að fara að öllu
með gát, en hann telur ekki úti-
lokað að Austur-Þýskaland geti
sameinast Vestur-Þýskalandi
sem tólfta fylki þess. Sovéskar
hersveitir skuli þó verða áfram í
landinu, hvað mætti kallast eðli-
legt meðan hersveitir vesturveld-
anna væru í vesturhluta þess.
Nauðsynlegt yrði að tryggja emb-
ættismönnum ríkis og ríkisflokks
í Austur-Þýskalandi störf og eft-
irlaun í sameinuðu Þýskalandi.
Seiffert er gagnrýninn á stefnu
vesturþýsku stjórnarinnar í
Þýskalandsmálum. Hann telur að
stjórnin í Bonn vilji sem minnst
hreyfa við þeim málum uns innri
markaður Evrópubandalagsins
verði orðinn að veruleika. Þeir í
Bonn telji að þá, með Evrópu-
bandalagið á bak við sig, standi
þeir stórum betur að vígi en áður í
samningaumleitunum við
austantjaldsríki. Þetta hafi ekki
farið framhjá sovéskum ráða-
mönnum, sem séu nú ekki án
grunsemda um að Vestur-
Þjóðverjar hyggist notfæra sér
bágt ástand austurblakkarinnar
til að teygja Pólland og Ung-
verjaland inn á áhrifasvið vestur-
blakkarinnar og tryggja sér stöðu
til að ráða einir að mestu úrslitum
í Þýskalandsmálum.
dþ.
Príeyg
geimvera í
Voronezj
Geimfarlenti 27. sept. s.l. ítrjá-
garði í Voronezj, sovéskri borg
skammt frá Don, og steig út úr því
vera nokkurnveginn í manns-
mynd, en þriggja metra há og
með þrjú augu í höfðinu. Gestur
þessi var klæddur silfurlitum
klæðum og í bronslitum stígvél-
um. Augu hans skinu mjög og
máttu jarðarmenn þeir, sem
hann horfði á, sig hvergi hræra á
meðan. Hann skaut af einskonar
skammbyssu á 16 ára pilt og
hvarf sá samstundis, en birtist
aftur heill á húfi skömmu síðar er
gesturinn var floginn á brott í
geimfarinu. Þetta er samkvæmt
sovéskum blöðum, sem slógu
fréttinni verulega upp, og hafa
þau frásagnir sínar eftir sjónar-
vottum. Fleiri geimgesta kvað
hafa orðið vart í Voronezj síðustu
daga s.l. mán.
Atvinnu-
leysi 9,2%
Atvinnuleysi í Evrópubanda-
laginu nam í ágústmánuði 9,2 af
hundraði og hafði sú tala þá verið
óbreytt þrjá mánuði í röð. Heldur
hefur þó dregið úr atvinnuleysi í
bandalaginu frá því á sama tíma
s.l. ár, en þá nam það 10,1 af
hundraði.
Atvinnuleysið er sérstaklega
geigvænlegt hvað viðvíkur fólki
yngra en 25 ára, en í ágúst voru
17,8 af hundraði þess aldurs-
flokks án atvinnu. Atvinnuleysi
þessa fólks er að vísu heldur
minna en var í ágúst s.l. ár, en þá
var það 20,2 af hundraði. Mest
var atvinnuleysið í ágúst s.l, á ír-
landi, 17,1 af hundraði, og á
Spáni, 17,0 af hundraði, og í
þriðja og fjórða sæti á þessum
lista eru Ítalía og Frakkland með
11,0 og 10,2 af hundraði. Lúx-
embúrg hafði í þessum mánuði
minnst atvinnuleysi banda-
lagsríkja, 2,0 af hundraði, og
næstminnst var atvinnuleysið í
Vestur-Þýskalandi og Portúgal,
5,6 í hvoru landi.
Habsborgari
forseti
Ungverjalands?
Ottó af Habsborg, síðasti ríkis-
erfingi Austurríkis-Ungverja-
lands, tilkynnti í gær að til greina
gæti komið að hann yrði í fram-
boði í forsetakosningum, sem
fram eiga að fara í Ungverjalandi
í nóv. n.k. Ottó, sem er 76 ára og
sonur Karls fyrsta, síðasta
keisara Austurríkis og konungs
Ungverjalands, situr nú á Evróp-
uþingi fyrir kristilega demókrata í
Vestur-Þýskalandi. Smábænd-
aflokkurinn ungverski, stærstur
flokka þarlendis fyrir valdatíð
kommúnista og nú endurreistur,
kvað hafa í hyggju að bjóða Ottó
fram, fáist hann til þess, og fleiri
stjórnmálasamtök eru sögð hon-
um hlynnt.
Til hluthafa
Verslunarbanka íslands hf.
Á aðalfundi bankans 18. mars 1989 var
bankaráði heimilað að liækka hlutafé
félagsins um allt að 100 milljónir króna.
Bankaráð hefur nú ákveðið að nýta
þessa heimild og eiga hluthafar rétt til
áskriftar í réttu hlutfalli við hlutafjáreign
sína, eða 19,8%.
Forgangsréttur hluthafa rennur út 25.
október nk.
Útboðsgengi hinna nýju hlutabréfa-
hefur verið ákveðið 1.40 og er greiðslu-
frestur til 10. nóvember nk.
Sömu reglur gilda um hin nýju hlutabréf
og annað hlutafé í bankanum.
Áskriftarskrá mun liggja frammi á aðal
skrifstofu bankans, Bankastræti 5, frá 25.
september til 25. október nk. að báðum
dögum meðtöldum og verður hluthöf-
um jafhframt send áskriftarskrá.
Reykjavík, 19. september 1989.
VERSLUNARBANKI ÍSLANDS HF.
UCRSLUNRRBRNKINN
-vúutur meS þöt l
Miðvikudagur 11. október 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
YDDA F2.43/SÍA