Þjóðviljinn - 21.10.1989, Síða 3
Hafnarfjörður
Fiskuriim seldur innanlands
*
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar vill að óunninn fiskursé ekki seldur úr
landi nema hann hafifyrst verið seldur á íslenskum markaði
ar sem fyrirsjáanlegur er
minnkandi afli íslenskra flski-
skipa og Ijóst má vera að með
auknum útflutningi á óunnum
flski eiga íslenskar flskverkunar-
stöðvar í sífellt harðnandi sam-
keppni við útlendinga um hrá-
efni, álítur hafnarstjórn að setja
beri reglur sem banna að óunninn
flskur sé fluttur úr landi nema
hann hafi fyrst verið seldur á ís-
lenskum markaði, segir í ályktun
Hafnarstjórnar Hafnarfjarðar sl.
miðvikudag.
Hafnarstjórnin telur að slíkt
muni bæta aðstöðu innlendra
fiskkaupenda, koma í veg fyrir
óhagstæðar verðsveiflur á er-
lendum mörkuðum, fjölga störf-
um hér á landi við sölu á fersk-
fiski og fljótlega leiða til þess að
íslenskir gólf- og fjarskiptamark-
aðir verði sameiginlega stærsti
fiskmarkaður Evrópu.
„Því skorar hafnarstjóm á
þingmenn Reykjaneskjördæmis
að þeir hlutist til um að gerðar
séu þær breytingar á lögum sem
þokað geta þessum málum
áleiðis.“
Þá beinir hafnarstjórnin því til
20. ársþings Hafnarsambandsins
að það setji fram kröfu um að
fisksölumálum sé komið í ofan-
greint horf.
-Sáf
Hefur grunnskólanemendum
verið boðið að koma og skoða
sýninguna og Útvarpshúsið í
leiðinni, hlusta á upplestur og
hljóðfæraslátt. Efni tengt vikunni
verður víða á dagskrám beggja
rása Útvarpsins og í Sjónvarpinu
alla næstu viku, auk þess sem
bóksalar, almennings- og skóla-
bókasöfn verða með sérstaka
barnabókakynningu. Hefur
fóstrum verið boðið að koma
með börn af dagvistarheimilum í
heimsókn á almenningsbóka-
söfnin, sögustundum verður
fjölgað og rithöfundar fengnir til
að lesa upp úr verkum sínum.
Laugardaginn 28. október, síð-
asta dag kynningarinnar, verður
svo opið hús í fjölda almennings-
bókasafna víða um land og vel
tekið á móti gestum.
Hann er einbeittur á svipinn hann Ragnar enda rétt að leggja upp í þá
miklu sjóferð sem felst í veröld bókanna.
Mynd - Kristinn.
Nauðsynlegt átak
Að sögn Sigríðar Rögnu Sig-
urðardóttur, sem sæti á í undir-
búningsnefnd Barna og bóka
fyrir hönd Ríkisútvarpsins er
kynningin vitaskuld liður í því
átaki sem nú fer fram til verndar
íslenskri tungu. Það sé mikil þörf
á að halda íslensku lesefni að
börnum nú þegar erlent efni flæði
í vaxandi mæli frá gerfihnöttum
yfir landið. Eins sé full ástæða til
að leggja áherslu á að góð lestrar-
kunnátta sé börnum nauðsynleg
til þess að þau geti nýtt sér alla þá
nýju tækni sem nú er á boðstól-
um, börn þurfi til að mynda að
vera læs til að geta farið í tölvu-
leiki og áttað sig á texta á skjá.
Sigríður segir það að vísu hafa
komið sér á óvart að sjá niður-
stöður könnunar sem hún tók
þátt í -sem meðlimur í norrænu
nefndinni Barn och kultur. Þar
var atbugað hvernig börn á aldr-
inum 10-11 ára á Norðurlöndun-
um eyddu frístundum sínum og
kom í ljós að þau lásu ótrúlega
mikið, mun meira en búist var
við. En þó sú niðurstaða hafi ver-
ið vonum framar sé full ástæða til
að vera á verði í þessum efnum.
- Við getum ekki búist við
öðru en að við þurfum að halda
áfram að beita okkur í þessu
máli, segir Sigríður. - Það þarf
að benda foreldrum á að það er
mikilvægt að þau lesi fyrir böm
sín á meðan þau eru ólæs og beini
þeim síðan inn í bókaheiminn
þegar þau eru orðin læs. Við von-
um að þetta framtak okkar verði
til góðs fyrir land og þjóð, segir
Sigríður að lokum.
Hátíðin í Útvarpshúsinu á
sunnudaginn hefst kl. 15, en þá
mun forsetí- íslands, Frú Vigdís
Finnbogadóttir ávarpa gesti og
setjaBamabókavikuna. Mennta-
málaráðherra, Svavar Gestsson
opnar sýninguna, en Atli Rafn
Sigurðsson og Birna Ósk Hans-
dóttir munu ávarpa gesti fyrir
hönd aðstandenda barnabóka-
vikunnar, kynna ræðumenn og
tónlistarfólk.
Börn, unglingar og foreldrar
þeirra em boðin velkomin á há-
tíðina, sem verður útvarpað á
Rás 1 í beinni útsendingu. Meðal
þeirra sem fram koma verður
Kór Öldutúnsskóla, Strengja-
sveit Tónlistarskóla íslenska
Suzuki-sambandsins, Skóla-
hljómsveit Mosfellsbæjar og
kunnar persónur úr Stundinni
okkar. Leiksýningar verða í
Brúðubflnum fyrir utan Útvarps-
húsið, en fyrir framan anddyri
þess leikur Hljómskálakvintett-
inn frá kl. 14:30. Bókasýningin
verður opin til kl. 18, og þar leika
börn af og til nýútgefin barnalög
Elíasar Davíðssonar fyrir sýning-
argesti.
I tilefni vikunnar efna Félag ís-
lenskra bókaútgefenda og
menntamálaráðuneytið til sam-
keppni á meðal grunnskólanema
um ritgerð, smásögu eða ljóð um
efnið ' Börn og bækur, eða
Heimur án bóka. Skilafrestur er
til 10. nóvember næstkomandi og
eru vegleg bókaverðlaun í boði.
LG
Laugardagur 21. október 1989 pJÖÐVIUINN - SÍÐA 3
Lokubúnaðurinn
Davíð lúfffar
Davíð Oddsson létfjarlœgja lokubúnaðinn á
bílastœðunum við Frímúrarahöllina eftir að
Össur Skarphéðinsson tók málið upp í borg-
arstjórn
Lokubúnaðurinn á bflastæðun-
um við Frímúrarahöllina, sem
settur var upp í samvinnu við
gatnamálastjóra, var fjarlægður í
gær upp úr hádegi, í kjölfar þess
að Össur Skarphéðinsson hafði
tekið málið upp á borgarstjórnar-
fundi á fimmtudag.
Davíð Oddsson lýsti því yfir í
gær að borgarverkfræðingur
hefði sett upp slána á kostnað
borgarinnar án þess að ráðfæra
sig við borgarstjóra. Sagði Davíð
að kostnaður við uppsetningu
lokubúnaðarins væri um 300 þús-
und krónur.
Fyrirtækið Astra selur þennan
lokubúnað og samkvæmt upplýs-
ingum Þjóðviljans kostar loku-
búnaðurinn með 100 segulkort-
um rúmar 460 þúsund krónur. Þá
mun kostnaður vegna uppsetn-
ingarinnar ekki vera undir 300
þúsundum samkvæmt heimildum
Þjóðviljans. 300 þúsundin hans
Davíðs verða því 800 þúsund
krónur.
Össur Skarphéðinsson lagði
nokkrar spurningar fyrir Davíð á
borgarstjórnarfundinum, en
hann tók málið upp undir liðnum
byggingarnefnd, en Gunnar H.
Gunnarsson hafði tekið þetta mál
upp á síðasta fundi byggingar-
nefndar einsog Þjóðviljinn
greindi frá fyrir viku.
Össur spurði m.a. hvers vegna
borgarstarfsmenn hefðu tekið
hluta af leiksvæði á bak við
Skúlagötuhúsin, sem er í um 80
m. fjarlægð frá frímúrarastæðun-
um, undir bflastæði. Davíð svar-
aði þeirri spurningu aldrei. Það
er hinsvegar ljóst að beint sam-
hengi er á milli þess að bflastæð-
unum við Frímúrarahöllina var
lokað almenningi og að leikvöll-
urinn var tekinn undir bflastæði.
Framkvæmdir við uppsetningu
lokubúnaðarins hófust annan
júní og þeim lauk 22 júní. Malar-
bflastæðin á bak við Skúlagötu-
húsin voru hinsvegar gerð 15. og
16. júní þannig að augljóst sam-
band er þar á milli.
Það kostaði 36 þúsund krónar
á ári að fá að nota bflastæðin við
Frímúrarahöllina, eða 3 þúsund
krónur á mánuði.
-Sáf
Byggingavísitala
1,2% hækkun
Vísitala byggingarkostnaðar í
október er 1,2% hærri en í sept-
ember. Síðastliðna 12 mánuði
hefur vísitalan hækkað um
24,6% en síðustu þrjá mánuði um
7% sem samsvarar 31,2% árs-
hækkun.
0,1% af hækkuninni er vegna
hækkunar á ákvæðisvinnu raf-
virkja, 0,2% vegna verðhækkun-
ar innihurða, 0,2% vegna hækk-
unar á gatnagerðargjöldum, 0,1
vegna hækkunar á eldavélum. og
0,6% vegna verðhækkunar á
ýmsum öðrum liðum.
-Sáf
HELGARRÚNTURINN
TÓNLISTINflóiryfirallabakka um þessahelgi. ídag, laugardag, kl. 16
leikur Djasssveit FÍH undir stjórn Finnans Jukka Linkola ísal FÍHað
Rauðagerði 27 og sama sveit verður á ferðinni í Heita pottinum í
Duus-húsi á sunnudagskvöld. Á morgun kennir ýmissa grasa í tónlist-
arlífinu. Kl. 16stjórnarElías DavíðssonkirkjukórÓlafsvíkurátón-
leikum á heimaslóðum, kl. 17 heldur hljómsveit Tónlistarskóla Reykja-
víkurtónleika í Háteigskirkju og um kvöldið verður mikil tónlistarhátíð á
Hótel (slandi þar sem allar helstu stjörnurnar, jafnt af klassísku sem
forgengilegu sortinni, leika listir sínarfrá kl. 21. Nú, og þeir sem viljafá
sér snúning eiga um margt að velja, þám. Hallbjörn í Glæsibæ og
StraxíFirðinum...
M YNDLIST ARUNNEN DU R ættu að nota helgina til að skoða sýning-
ar þeirra Errós á Kjarvalsstöðum og Jóns Stefánssonar í Listasafni
íslands, þe. þeirfáu sem ekkihafaþegargert það. Vestur í Garða-
stræti, (FÍM-salnum, opnar Norðlendingurinn Kristinn G. Jóhannsson
sýningu á olíumálverkum og við Skólavörðustíg verða opnaðar sýn-
ingar í tveimur galleríum, á nr. 4a sýnir Gunnar Kristinsson og á nr. 15
eru til sýnis myndir eftir Björn Geir Ingvarsson. Og Þingvallamyndirnar
hans Ásgríms standa alltaf fyrir sínu...
BORGARLEIKHÚSIÐ var opnað með pomp og pragt í gærkvöldi en
þar verðurekki framin leiklist fyrren á þriðjudag. Og í Þjóðleikhúsinu er
enginn séns á miðum á Oliver! fyrr en um næstu helgi. En á Akureyri er
verið að sýna Hús Bernörðu Alba og Nemendaleikhúsið sýnir Grímu-
leik í kvöld en þar er víst uppselt líka. Svo er hægt að sjá ísaðar gellur í
gamla Iðnó og Djöfla hjá Frú Emilíu. Og í kvöld er síðasta sýning í
Reykjavík á Brúðkaupi Fígarós í Óperunni. Flýtið ykkur að ná (miða, af
þessu máenginn missa...
HUNDAVINIR ættu að fá útrás fyrir sínar sérþarfir á sunnudag því þá
verður linnulaus sýning og keppni 218 hunda í Laugardalshöll sem
hefst kl. 9 um morguninn. Morgunhanar og göngugarpar finna eflaust
eitthvað við sitt hæfi hjá Útivist eða Ferðafélagi Islands, eða Hana nú
eða Fólagi eldri borgara. Eskfirðingarog Reyðfirðingarbúsettirí
Reykjavík ætla að drekka saman kaffi í Sóknarsalnum kl. 15 á sunnu-
dag...
TILG ANGUR LÍFSINS hefur vafist fyrir mörgum en kannski fá þeir
svar á ráðstefnu Lífs og lands í Norræna húsinu kl. 13 á morgun,
sunnudag. Tilgangur Alþýðubandalagsins með þátttöku í ríkisstjóm
skýrist líka kannski fyrir þeim sem sækja fund með ráðherrum flokks-
ins á Húsavík kl. 16 á morgun. Og svo er sjálfsagt að taka Kiwanis-
mönnum vel þegar þeir banka upp á og bjóða falan lykil til styrktar
geðsjúkum...