Þjóðviljinn - 22.11.1989, Blaðsíða 15
Tryggvi Emils-
son
verkamaðurog
rithöfundur
Að finna fortíðina
í framtíðinni
Hvað ertu að gera núna
Tryggvi?
Vegna veikinda hef ég ekki
gert mikið undanfarið og verð að
halda mig frá vinnu einhvern
tíma skv. læknisráði. Annars hef
ég verið að vinna í ættfræðinni. í
fyrra kom út eftir mig ættfræði-
bók um sjómenn og sauðabænd-
ur. Mér finnst ættfræðin
skemmtileg og held áfram með
hana þegar ég má fara að vinna
aftur. Svo lauk ég við skáldsögu í
ár sem eru 11 mannlífsmyndir.
Hún kemur þó ekki út fyrr en
seinna.
Hvað varstu að gera fyrir 10
árum?
Þá var ég að skrifa endurminn-
ingar mínar. Þær komu út í þrem-
ur bindum, einmitt á þeim árum.
Hvað gerirðu helst í frístund-
um?
Þar sem ég er hættur venjulegri
vinnu eru allar mínar stundir
frístundir, þannig að skriftirnar
stunda ég í þeim.
Segðu mér frá bókinni sem þú
ert að lesa núna.
Ég er ekki að lesa neina sér-
stakanúna. Þegaréger að vinnaí
ættfræðinni eru þetta mest ýmis
uppsláttarrit sem ég les og svo
endurminningar fólks.
Hvað lestu helst í rúminu á
kvöldin?
Ég les aldrei í rúminu. Mest
vegna þess að ég sofna um leið og
ég leggst útaf.
Hver er uppáhaldsbarnabókin
þín?
Það get ég ekki sagt. Ég held
upp á alla höfundana okkar en
varla einn framar öðrum. Það
voru engar bækur til á bernsku-
heimili mínu og sjálfur eignaðist
ég ekki bók fyrr en ég var 18 ára,
það var Tvístirni.
Hvers minnistu helst úr Biblí-
unni?
Ég las hana einu sinni alla þeg-
ar ég lá í rúminu sjúklingur. Eg
vil ekki taka neitt fram yfir ann-
að, það er margt vel sagt í þeirri
bók og góðir rithöfundar á ferð-
inni.
Hefurðu farið í leikhús í vetur?
Nei, það hef ég ekki gert. Ég er
orðinn svo slæmur í höfðinu að ég
hef ekkert gaman af að fara í
leikhús. Sjónin er heldur ekki vel
góð og þess vegna verð ég því
miður að sleppa leikhúsferðum.
Fylgistu með einhverjum
ákveðnum dagskrárliðum í út-
varpi og sjónvarpi?
Aðallega í sjónvarpi. Ég horfi
mikið á það og þar er margt gott.
En mikið af erlendu efni er ósköp
lítilfjörlegt.
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
Já, það hef ég gert. Ég gekk í
Kommúnistaflokkinn þegar hann
var stofnaður og hef svo fylgt
þeirri stefnu. Nú er ég í Alþýðu-
bandalaginu og kýs það.
Ertu ánægður með frammi-
stöðu flokksins?
Ekki kannski fyllilega, það get
ég ekki sagt. Ég fylgist að vísu
ekki eins vel með og áður, á bágt
með að mæta á fundi, en ég les
Þjóðviljann og reyni að fylgjast
með gegnum hann.
Eru til hugrakkir stjórnmála-
menn og konur?
Já, þeir eru til.
Viltu nafngreina þá?
Svavar Gestsson, hann er hug-
rakkur stjórnmálamaður.
Er landið okkar varið land eða
hernumið?
Þetta er hernumið land. Ég var
í mörg ár með í Samtökum her-
stöðvaandstæðinga, en er ekki
virkur lengur. Ef við lítum til
fortíðarinnar þá er munurinn
ekki mikill á hersetu og því sem
við höfum nú.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Ég man ekki eftir neinum sem
ég vil vera laus við.
Hvaða eiginleika þinn flnnst
þér skrítnast að aðrir kunni ekki
að meta?
Það þótti skrítið í gamla daga
að maður lét sig dreyma um að
geta gengið í skóla og menntað
sig. Þetta var dálítið sem ég hefði
viljað geta gert, en átti þess aldrei
kost. Við gengum í skóla í sex
vikur áður en ég fermdist svo að
við kynnum kverið vel áður en í
kirkjuna kom, en það var allt og
sumt.
Hvað borðarðu aldrei
Ég borða allt.
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á íslandi?
Hvergi. Mér líkar vel hér í
Reykjavík en myndi þó ekkert
hafa á móti því að búa á Akur-
eyri.
Hvernig flnnst þér þægilegast
að ferðast?
Með flugvél. Mér finnst svo
skemmtilegt að fara með flugvél.
Ég fór tvær ferðir til Rússlands.
Við í Dagsbrún söfnuðum fé og
fórum til Rússlands í 40 manna
hópferð. í annarri af þessum
ferðum var ég á 23. flokksþingi
Kommúnistaflokksins þar.
Hvert langar þig helst til að
ferðast?
Það er nú svo margt sem hefði
verið gaman að sjá, en vinnan var
alltaf svo mikil að lítill tími gafst
til ferðalaga. í sumar sem leið fór
ég til Akureyrar og bjó í íbúð sem
Dagsbrún á þar. Það var góð
ferð. En oft hef ég óskað þess að
geta ferðast meira um landið
okkar.
Hvaða bresti landans áttu erf-
iðast með að þola?
Vil sem minnst um það tala.
Þeir eru margir. Sérstaklega er
það íhaldið sem oft hefur reynst
okkur illa. Barátta okkar sósíal-
ista fyrir t.d. almennum trygging-
um var hörð og þá sýndi íhaldið
sínar verstu hliðar. Þessar hliðar
eru enn til í mörgum íslending-
num, því miður. Það er sorglegt
að hugsa til þess hve margir voru
á móti Halldóri Laxness á sínum
tíma, en fóru svo allt í einu að
kaupa bækurnar hans þegar hann
var orðinn nóbelsskáld. Þetta
fólk keypti þó aðeins bækurnar
hans, en viðurkenndi að það læsi
þær ekki. Því miður, því hann er
gott skáld.
En hvaða kosti Islendinga
metur þú mest?
Menningu okkar og menntun.
Og þá á ég við þá menntun sem
við höfum hlotið í skóla lífsins en
ekkert frekar í menntastofnun-
um. Þetta er menntun sem hefur
reynst okkur vel, og þess vegna er
sorglegt að sjá hversu lítið er
horft til fortíðarinnar á íslandi í
dag. En ég vona að enginn taki
þetta sem fordæmingu á mennta-
stofnunum, þetta er ekki meint
þannig.
Hvernig líst þér á framtíð Is-
lands og þróun stjórnmála?
Ég lít björtum augum fram á
veginn. Ég treysti íslendingum til
að vinna vel úr því sem til er, en
ítreka það sem ég sagði að það
verður að gera meira af því að líta
til fortíðarinnar en nú er gert.
Þegar fyrsta kröfugangan var far-
in í Reykjavík voru kröfurnar
m.a: Afnám laga um fátækra-
flutninga, almennar tryggingar
og átta stunda hvíld á togurum.
Verkalýðsbarátta var hörð á
þessum og árum ekki um margt
lík þeirri sem nú á sér stað. Það er
ekki barist um hlutina í dag eins
og þá var gert og ég held að það sé
bagalegt hvað flokkarnir hafa
færst mikið saman. Enginn skal
halda að íhaldið hafi breyst svo
mikið frá því sem áður var. Og
þess vegna er hollt að rifja upp
atburði liðinna áratuga og hafa til
hliðsjónar þegar litið er fram á
veginn.
Er Þjóðviljinn það málgagn
sem þú treystir tii að taka þátt í
baráttu framtíðarinnar?
Já. Yfirleitt er ég ánægður með
blaðið. Við höfum haft marga
góða ritstjóra, en ég tek undir
það að ekki sé nóg af pólitík í
blaðinu. Ég vil þó ekki vera með
nein ólæti þó að stundum sé efni í
blaðinu sem mér mislíkar.
Og að lokum....
Það var margt unnið í Verka-
lýðshreyfingunni og Sósíalista-
flokknum sem hefði átt að halda
betur áfram með. Það þarf t. d. að
efla tryggingar en því er ekki
sinnt sem skyldi. Mér verður
stundum hugsað til afreka Einars
Olgeirssonar og velti því fyrir
mér hvort það sé óraunhæft að
óska þess að íslendingar fái að
upplifa það sem við samtíðar-
menn hans fengum að upplifa. Þá
flykktist fólk í samkomusal
norður á Akureyri til að hlusta á
ræðu hans. Hann var ekki mættur
á staðinn. Ræðunni var útvarpað
og tveir menn sem áttu góð við-
tæki komu með þau á fundinn og
við hlustuðum þar á ræðu sem
hann var að flytja suður í Reykja-
vík. Ég man að þar vöknaði
m.örgum um augu við að hlusta.
Heldur þú að þetta geti endur-
tekið sig?
Guðrún
þJÓÐVILJINN
fyrir 50 árum
T elja má víst að skipið, sem
skotið var á og kveikt í úti fyrir
Hornafirði í fyrrakvöld, sé þýzka
skipið „Bertha Fischer" frá
Emden í Þýskalandi. Þegar Þjóð-
viljinn átti tal við Þorleif í Hólum
um þetta mál var skipið enn log-
andi á reki úti fyrir Hornafirði, en
um líkt leyti barst það upp á
Hringsundssker, sem liggur
nokkuð austan við Hornafjarðar-
ós, skammt frá landi. Allmikið
hefur rekið úr skipinu, og er búizt
í DAG
22. nóvember
miðvikudagur. 326. dagur ársins.
Cecilíusmessa. Sólarupprás í
Reykjavík kl. 10.18—sólarlag kl
16.09.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Líbanon. Hrafn
Oddsson lést árið 1289. SF, Soc-
ialistisk Folkeparti stofnað í Dan-
mörku 1958.
við að herskipið hafi tekið áhöfn
þess um borð og farið með hana
með sér.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lytj-
abúöa vikuna
17.-23. nóv. er í Laugavegs Apóteki og
Holts Apóteki.
Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 fridaga). Síðarnef nda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
4 12 00
Seltj.nes sími 1 84 55
Hafnarfj sími 5 11 66
Garðabær sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabilar:
Reykjavík sími 1 11 00
Kópavogur sími 1 11 00
Seltj.nes sími 1 11 00
Hafnarfj sími 5 11 00
Garðabær sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingarum
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspit-
alinn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingarum vaktlæknas.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamiö-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
. 1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftirsamkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensasdeild
Borgarspitala:virkadaga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðinvið
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spítalinmalladaga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálf ræðistöðin. Ráögjöf i sálfræðilegum
efnum. Simi 687075.
MS-félagiðÁlandi 13. Opiðvirkadagafrá
kl. 8-17. Siminner 688620. ’
Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
simi 21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðino
ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsima félags lesbía og homma á
mánudags-ogfimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhöpur um sif jaspellamál. Simi
21260allavirkadagakl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í sima 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús" krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
anr) sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið i sima 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
21. nóv. 1989
kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar........... 62.94000
Sterlingspund.............. 98.36600
Kanadadollar............... 53.81100
Dönsk króna................. 8.85860
Norskkróna.................. 9.12570
Sænsk króna................. 9.77780
Finnsktmark................ 14.78160
Franskurfranki............. 10.10920
Belgískurfranki............. 1.63970
Svissneskurfranki.......... 38.67280
Hollensktgyllini........... 30.52010
Vesturþýskt mark........... 34.44430
Ítölsklíra.................. 0.04674
Austurriskursch............. 4.88850
Portúg. Escudo.............. 0.39900
Spánskurpeseti.............. 0.53530
Japansktyen................. 0.43598
írsktpund.................. 91.05800
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 hæð4skökk
6spíra7hópur9lund
12trufla14vex15
planta 16glaðan 19
keyrir20gras21 iðju-
söm
Lóðrétt: 2 ellegar 3 Ijá
4 umrót 5 spil 7 vinnur 8
hraust 10 sárin 11
snáðar13lagleg 17
púka 19 hraði
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 lögg 4 burð 6
áma 7 haft 9 tagl 12 las-
in14spé15geð16
trega19noti20eðli21
aftri
Lóðrétt: 2 öra 3 gáta 4
bati 5 rög 7 hyskni 8
flétta 10 angaði 11 liðn-
ir 13 ske 17 rif 18ger
Miðvikudagur 22. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15