Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 2

Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 2
SKAÐI SKRIFAR I ROSA- GAROINUM Ég stunda hugguná óvissum tímum ERU STJÓRNMÁL STAÐLEYSA? Þeirra land (blaðamannanna) er ekki land skáldskaparins heldur staðreyndanna. Að vísu hefur blaðamennska um leið alltaf ver- ið hluti af stjórnmálaþróun í landinu. Tíminn Ég, Skaði, stend oftar en ég vildi í undar- legum útréttingum í samfélaginu. Einskonar sálgæslu, má ég segja. Til mín koma þeir sem veröldin hefur vondslega blekkt og ég reyni aö porra þá eitthvað upp mannagreyin, svo þeir lognist ekki út af í lífsbaráttunni eins og loðna í alltof köldum sjó. Mér gengur þetta vel eins og annað. Enda áttum við Jósef Stalín eitt sameiginlegt og það er það að mæður okkar töldu báðar að eiginlega hefð- um við átt að verða biskupar. Það kom mér því ekkert á óvart þótt ég sæi það á Gisla frænda mínum, þegar hann kom í kaffi í fyrrakvöld, að honum leið illa og að nú þyrfti ég að moka flór hans hjarta og sá í þaö ilmandi fræjum þess hugrekkis sem platar menn til að vilja halda áfram að lifa í þessum skítaheimi. Hvað er að Gísli minn? Það er ekkert smá, sagði Gísli. Heimurinn er í sjálfumleikakreppu. Og ég þá líka. Sjálfumleikakreppu? spurði ég. Kvur djöf- ullinn er nú það? Ég vildi að ég væri heldur kominn með iskíasinn minn aftur, sagði Gísli. Láttu ekki eins og herkerling, sagði ég. Og hvað er þesi sjálfumleikakreppa? Það er þegar enginn veit lengur hver hann er og hver hann er ekki, sagði Gísli. Þvæla er þetta maður, sagði ég. Ég veit til dæmis að við báðir erum Islendingar, greindir menn og Sjálfstæðismenn, fjall- grimm vissa fyrir því. Nei, sagði Gísli. Nei þá hvað? spurði ég. Það er engin vissa fyrir því, sagði hann. Hvers vegna ekki? spurði ég. Nú eru þessir kommúnistar í Rússlandi og annarsstaðar farnir að tala eins og skyn- samir menn, sagði Gísli. Þeir vilja engan andskotans jöfnuð sem gerir alla lata og óá- byrga. Þeir vilja samkeppni og markað og pípa á það réttlætisbrölt sem skerðir frelsið eins og ég hefi alltaf sagt. Vertu feginn, sagði ég. Ég vil að kommúnistar séu kommúnistar, sagði Gísli. Það er þeirra sjálfumleikakreppa, sagði ég. Sama er mér. Þú ert svo grunnfær, Skaði, sagði Gísli. Hvernig á ég að geta verið góður Sjálfstæð- ismaður ef að kommar hætta að vera komm- ar? ,. . Hvers vegna ekki? spurði eg Ljósið er því aðeins Ijós, að það sé um leið tn myrkursem dregur það fram að Ijósið ertil, sagði Gísli. Þú meinar það, sagði ég. Já ég meina það. Hvað er orðið mitt starf i fjörtíu ár? Var ég til einskis barinn í hausinn með spýtu af einhverjum uppivöðslukomma fyrir framan Alþingishúsið þann þrítugasta mars? Var það til einskis að ég mátti þola það að kommakerlingin hún Rósa frænka heldi úr koppnum yfir mig þegar ég var að safna undirskriftum fyrir Varið land? Nú þeg- ar allir þykjast vera elsku vinir og mega f Ijúga um allt og mynda allt og eldflaugar eru eyði- lagðar og meira að segja kafbátum lagt, þessum merkilegu skipum? Og meira að segja formaðurinn okkar, hann Þorsteinn Pálsson, ætlar að taka að sér að sameina komma og krata af því þeir kunna ekkert slíkt sjálfir frekar en annað. Á ekkert að vera til sem fólkið óttast svo það týni sér ekki í óreiðu heimsins og skilji það alminnilega að það á ekki skilið að lifa betur en það gerir? Vertu ekki að þessu voli maður, sagði ég. Aldrei mun prútt hjarta óvin skorta. Okkur leggst eitthvað til. Kínverjar til dæmis... Eg treysti nú þeim gulu skröttum mátu- lega, sagði Gísli. Þeireru mannalíklegastirtil að kalla sinn kapítalisma kommúnisma og öfugt svo enginn veit neitt. Enda segja þeir að í myrkri séu allir kettir gráir og allar konur eins. Sagðirðu konur? greip ég hugsun á lofti og bætti í hana huggunarríkum innblæstri. Já og hvað með þær? spurði Gísli Það er eitt sem þú getur treyst á hundrað prósent, sagði ég. Og hvað er það? spurði Gísli. Konurnar, sagði ég. Hvernig sem allt velt- ist mátu treysta því að þér verður aldrei blandað saman við þær í pólitískum tilvistar- kreppum heimsins. Kvennalistinn veröur alltaf kvennalistinn, það eitt er víst. EINHVERSSTAÐAR VERÐA VONDIR AÐ VERA Gorbatsjov er þar. Svavar og Stalín hér. Leiðarí Alþýóublaðsins FUNDIN MANN- ÚÐARSTEFNA? Hér koma gleðifréttir fyrir þá sem eru einmana á síðkvöldum. Hægt er að panta sér falleg rúm- föt með litmynd í líkamsstærð af fallegum karlmanni á laki og sömuleiðis koddaver með mynd. Tíminn DROTTINN VÖLD- UM SVIPTUR? Fjöldamargt ungt fólk í Hvíta- sunnusöfnuðinum er sáróánægt með að Einar J. Gíslason ætli sér að tilnefna eftirmann sinn án þess að leitað verði eftir vilja safnað- arins. Hann vísar bara í það að það sé Guðs vilji að haga málum svo, en við viljum hafa lýðræðis- lega kosningu. DV ENGATILFINN- INGASEMI HÉR! Eiga atvinnuhermenn sem slátra fólki á fullu kaupi að vera með móralska timburmenn þótt fjölgi um einn kepp í sláturtíðinni? DV VIÐEIGUMNÓG MEÐ STEINGRÍM Einar Oddur Kristjánsson kemur myndarlega við sögu (kjarasamn- inganna). En í guðanna bænum! Hlífið manninum við að verða að þjóðhetju! Ritstjórí Tímans AF ÓFRELSINU í HEIMINUM Allt er nú á suðupunkti innan bresku konungsfjölskyldunnar vegna þess að Fergie, hertoga- ynjan af Jórvík, stundar hörku- megrun. Morgunblaðið FUNDIN LEIÐTIL VELMEGUNAR Það er alveg dæmigert með ein- stæðar mæður hvað þær geta endalaust verið að láta fólk vor- kenna sér. Trúlega hafa fáir það eins gott og þær. Morgunblaðið 2 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. febrúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.