Þjóðviljinn - 16.02.1990, Blaðsíða 9
Innblástur úr náttúrunni
Gunnar Örn sýnir einþrykksmyndir í Nýhöfn
Ég leita samkomulags við nátt-
úruna í myndlistinni jafnt og í dag-
legu lífi, sagði Gunnar Örn mynd-
listarmaður í samtali við blaða-
mann Nýs Helgarblaðs um leið
og hann sýndi okkur einþrykks-
myndirnar sem hann hefur nú
sýningu á í Listasalnum Nýhöfn
við Hafnarstræti í Reykjavík.
Gunnar Örn er ekki lengur
Reykvíkingur, hann fluttist fyrir
fjórum árum að Kambi í Holta-
hreppi, og hann segir að sveita-
lífið og nábýlið við náttúruna
sæki æ meira á hann í myndlist-
inni.
Landið verður meira lifandi
fyrir okkur ef við ræktum það
með okkur að skoða það og upp-
lifa þá hrynjandi og kviku sem
býr í náttúrunni. Eg reyni að
endurskapa þessa hrynjandi í
myndum mínum, án þess þó að
um beina eftirlíkingu á ytri form-
um hennar sé að ræða. Þegar ég
get lesið eigin upplifun af náttú-
runni út úr myndinni eftirá, þá
finnst mér að ég sé á réttri leið, að
ég eigi heima í myndinni.
Gunnar Örn með skúlptúrum sínum.
þannig að hann teiknar beint á
plötuna með misjafnlega mikið
útþynntum prentfarva og þrykkir
svo myndina af plötunni yfir á
pappír í pressu. I sumum mynd-
unum hefur hann teiknað ofan í
þrykkið, eða notað vatnslit eða
aðra liti. Auk einþrykksmynd-
anna eru tveir skúlptúrar á sýn-
ingunni, sem eru skornir í frauð-
plast, þaktir með límdum pappír
opg málaðir. Þar gægjast fram
hin tröllslegu og goðsagna-
kenndu andlit sem við þekkjum
úr fyrri myndum Gunnars.
Sýning Gunnars Arnar í Ný-
höfn verður opnuð á iaugardag
kl. 14 og stendur til 7. mars. Sal-
urinn er opinn kl. 10-18 virka
daga og kl. 14-18 um helgar.
-ólg.
En þótt ég sæki þannig inn-
blástur í náttúruna, þá eru mynd-
ir mínar alltaf sambland af veru-
leika og skáldskap þar sem upp-
lifunin sjálf skiptir meginmáli.
Myndirnar sem Gunnar Örn
sýnir eru einþrykksmyndir, en
það merkir að hver mynd er gerð
aðeins í einu eintaki. Gunnar seg-
ist vinna myndirnar á eirplötu.
„Löðmundur'1, einþrykk eftir
Gunnar Örn.
VÁ ROEA TRÖLL /V\A'R /
$N0\A/-/V\DN5TER DElCK, TEÍNA-
FELíaUR, SK\E>ABOGiAR , BtíLSTRUÉ>
SÆT\ 03 £<3 \/EÍT EKK\ HVAD/"
BORGARu SKATT AF'ESSU*?
I « I
Föstudagur 16. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 9