Þjóðviljinn - 16.02.1990, Blaðsíða 3
• •
Grunnskólinn
Bömin fái að borða
Svavar Gestsson: Styð tillöguframsóknarmanna um skólamáltíðir.
Kostar 100 milljónir.
Spurning hvort er verið að ákveða útgjöld á sveitarfélög
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra segir að sér þyki það
gott framlag hjá framsóknar-
mönnum að ieggja fram þingsál-
yktunartillögu um skólamáltíðir í
grunnskólum, en ályktunin kom
til umræðu á Alþingi á mánudag.
Þingsály ktunin sé til marks um að
Alþingi vilji auka framlag til
grunnskólans yfirleitt og það sé
mjög mikilvægt að átti sig á að
grunnskólinn er undirstöðustofn-
un í þjóðfélaginu.
Menntamálaráðherra sagði
Þjóðviljanum að þingsályktun-
artillagan sýndi ánægjulegan vilja
framsóknarmanna og annarra
sem styddu tillöguna, um að á
þessum málum þurfi að taka.
Svavar sagði málið fyrst og fremst
vera mjög stórt í Reykjavík.
Auðvelt væri að finna góðar fyrir-
myndir hvað varðaði skólamál-
tíðir. Kópavogskaupstaður hefði
allt frá 1982 verið með skólamál-
tíðir og kostað gæslu barna um-
fram þann kennslukvóta sem rík-
ið kostaði til.
í umræðunum á mánudag upp-
lýsti menntamálaráðherra að
kostnaðurinn við að koma skóla-
máltíðum á í grunnskólum lands-
ins væri um 100 milljónir króna. í
ljósi þess að á sama tíma og til-
lagan kemur fram stendur til að
skera niður ríkisútgjöld um rúm-
an milljarð var Svavar spurður
hvort hann teldi líkur á að til-
lagan næði fram að ganga. „Þetta
er auðvitað spurning um hvernig
þingið raðar málum í forgangs-
röð,“ sagði Svavar. Hann teldi
forgangsmál að koina á samfelld-
um skóladegi og skólamáltfðum.
Það væri pakki sem kostaði 500
milljónir króna. Augljóst væri að
vegna húsnæðismála í sumum
skólum væri ekki hægt að koma
þessu við en annars staðar væri
þetta framkvæmanlegt þannig að
hægt sé að gera þetta í áföngum,
eins og lagt væri til í frumvarpi til
nýrra grunnskólalaga sem liggur
fyrir þingflokkum stjórnarflokk-
anna.
Karvel Pálmason þingmaður
Alþýðuflokksins sagði í umræð-
unum að kostnaðurinn af skóla-
máltíðunum færi í raun á
sveitarfélögin. Svavarsagði þetta
rétt samkvæmt verkaskiptingar-
lögum. í þessu tilviki yrði því stig-
ið yfir þá markalínu sem mótuð
var með lögunum. Hann teldi að
ríkið og sveitarfélögin gætu hafið
einhvers konar samyrkjubúskap í
þessum efnum.
Ef þingsályktunartillagan
verður samþykkt má segja að Al-
þingi sé farið að ákveða útgjöld
sveitarfélaga. Svavar sagði
augljóst að menn muni koma á
næstu árum fram með tillögur á
Alþingi um verkefni sem núna
kynnu að vera á verksviði
sveitarfélaga. Spurningin væri
hvort Alþingi sæi á sama tíma
fyrir fjármunum þannig að
sveitarfélögin geti framkvæmt
þau verkefni. Langstærsta verk-
efni á komandi árum væri leik-
skólinn sem kostaði í viðbót við
það seni þegar væri hjá sveitarfé-
lögunum 1,5 milljarð króna.
Sveitarfélögin ráði ekki við það
án aðstoðar ríkisins.
Það er athyglisvert að strax á
fyrsta þingi eftir að ný verka-
skiptingarlög voru samþykkt,
skuli stærsti stjórnarflokkurinn
gera tillögu um að breyta verka-
skiptingunni, að sögn Svavars.
Vegna þess að hann gæti ekki ætl-
ast til að sveitarfélögin greiddu
þann pinkil sem Alþingi kynni að
ákveða. -hmp
Nemendur í 4. bekk X í Menntaskólanum við Sund sendu í gær
loftbelg upp og var það gert í tilefni Þorravöku. Upphaflega höfðu
nemendurnir ætlað að búa sjálfir til belginn en hættu við það og fengu
hann gefins hjá veðurstofunni á Keflavíkurflugvelli. Á myndinni eru
tveir nemendanna, þeir Hrafnkell Kárason og Kristján V. Jónsson með
belginn. Mynd Kristinn.
Atvinnuleysi
Aukning í öllum landshlutum
Sýnu mestá Austurlandi, Suðurnesjum og á höfuðborgarsvœðinu. í
Reykjavík voru 800 atvinnulausir í janúar og hafðifjölgað um 215 frá
því í desember
Atvinnulausum fjölgaði í janú-
armánuði í öllum landshlut-
um frá mánuðinum þar á undan
en sýnu mest á Austurlandi eða
um nær helming og einnig varð
umtalsverð fjölgun á Suðurnesj-
um og á höfuðborgarsvæðinu.
Á Austurlandi munar mest um
þá hálfsmánaðar stöðvun sem
varð á starfsemi fiskvinnslufyrir-
tækja á Eskifirði og á Fáskrúðs-
firði í deilu sjómanna þar við sína
viðsemjendur um hærra fiskverð
í byrjun janúar. Þá skráði fisk-
vinnslufólk sig á atvinnuleysis-
skrá í kjölfar þess að því var sagt
upp störfum. I fjórðungnum voru
atvinnulausir í janúar alls 506 og
þar af 335 konur. f desember
voru þeir hins vegar 256. Af ein-
stökum stöðum fjölgaði atvinnu-
lausum mest á Reyðarfirði á milli
mánaða eða úr 10 í 51. Á Suður-
nesjum var fjöldi atvinnulausra í
síðasta mánuði 282 og þar af 202
konur. í mánuðinum á undan
voru atvinnulausir þar 164.
Kjarasamningar
ASI mótmælir niðurskurði
RíkissjóðurskuldbundinngagnvartAtvinnuleysistryggingasjóðiog
Húsnœðisstofnun ríkisins, segir Ásmundur Stefánsson
Asmundur Stefánsson forseti
ASÍ hefur sent Steingrími
Hermannssyni forsætisráðherra
bréf, þar sem hann mótmælir
fyrirhuguðum niðurskurði á út-
gjöldum ríkissjóðs til Atvinnu-
leysistryggingasjóðs og Bygginga-
sjóðs rikisins.
Samkvæmt tillögum ríkis-
stjórnarinnar er gert ráð fyrir að
skornar verði 200 miljónir af At-
vinnuleysistryggingasjóði og 100
miljónirafByggingasjóði. Ibréfi
Ásmundar segir að nýgerður
kjarasamningar gefi ekki tilefni
til niðurskurðar af þessu tagi.
Þegar hafi verið búið að skera svo
niður framlög til Húsnæðisstofn-
unar, að augljóst sé að þau nái
ekki að mæta skuldbindingum
stofnunarinnar, og fráleitt sé að
skera niður fé til atvinnuleysis-
trygginga í því óvissuástandi, sem
nú ríki á vinnumarkaði. Þá
minnir Ásmundur á að ríkissjóð-
ur hafi axlað skuldbindingar
gagnvart báðum þessum stofnun-
um, sem haldist, þótt til niður-
skurðarins komi. Því sé hér ekki
um niðurskurð að ræða í reynd,
heldur frestun á greiðslum.
-ólg
Á höfuðborgarsvæðinu voru
1.164 manns án atvinnu í janúar
og þar af 494 konur. í Reykjavík
einni saman voru þá án atvinnu
alls 800 manns og þar af 319 kon-
ur og hafði þá atvinnulausum
fjölgað um 215 manns frá mánuð-
inum á undan.
Á Norðurlandi eystra varð
einnig umtalsverð fjölgun
atvinnulausra frá fyrra mánuði
eða úr 526 í 824. Þar af voru kon-
ur 382. Ennfremur á Suðurlandi
eða úr 284 í 410 manns. Þar af
voru konur 235. Á Vesturlandi
fjölgaði atvinnulausum úr 244 í
337 og þar af voru konur 255.
Mest var atvinnuleysið á Akra-
nesi eða 236 og hafði fiölgað um
67 frá fyrra mánuði. Á Norður-
landi vestra fjölgaði atvinnu-
lausum úr 218 í 292 og þar af kon-
ur 145. Hins vegar fjölgaði
atvinnulausum á Vestfjörðum
aðeins um 2 á milli desember og
janúar eða úr 30 í 32. Yfir helm-
ingur þeirra voru konur eða 17 og
af einstökum stöðum voru
atvinnulausir flestir á Þingeyri
eða 20 manns.
-grh
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3
Alþýðubandalagið
Kópavogi
Fyrstir
með
listann
Valþór Hlöðversson
efstur
Alþýðubandalagið í Kópavogi
ákvað á miðvikudagskvöldið
framboðslista sinni í bæjarstjórn-
arkosningunum í vor. Þeir eru
fyrsta Alþýðubandalagsfélagið
sem ákveður lista sinn.
Einsog Þjóðviljinn skýrði frá
fyrir viku eru fimm fyrstu sætin
skipuð þeim Valþóri Hlöðv-
erssyni blaðamanni, Elsu Þor-
kelsdóttur framkvæmdastjóra
Jafnréttisráðs, Ólafi Hjálm-
arssyni verkfræðingi, Birnu
Bjarnadóttur húsmóður og Þór-
unni Björnsdóttur tón-
menntakennara.
Aðrir á listanum eru í þeirri röð
sem hér fer á eftir: Ásgeir Matt-
híasson verkfræðingur, Unnur
Björnsdóttir framkvæmdastjóri,
Kristján Sveinbjörnsdóttir raf-
virkjameistari, Sigríður Hagal-
ínsdóttir kennari, Flosi Eiríksson
iðnnemi, Elísabet Sveinsdóttir
starfsmaður Snælandsskóla,
Heimir Pálsson útgáfustjóri,
Hildur Einarsdóttir bókavörður,
Björn Ólafsson verkfræðingur,
Ragna Margrét Norðdahl
menntaskólanemi, Eggert
Gautur Gunnarsson tæknifræð-
ingur, Unnur Sólrún Bragadóttir
kaupmaður, Helgi Helgason
kennari, Sigurður Jóhannsson
sjómaður, Heiður Gestsdóttir
húsmóðir, Sigurður Ragnarsson
rektor og Heiðrún Sverrisdóttir
fóstra. -Sáf
Landsvirkjun
Hækkun
frestað
Stjórn Landsvirkjunar sam-
þykkti í gær að fresta fyrirhug-
aðri sgjaldskrárhækkun fyrir-
tækisins með hliðsjón af nýgerð-
um kjarasamningum.
í fréttatilkynningu frá Lands-
virkjun segir að með þessu vilji
fyrirtækið stuðla að því að náð
verði markmiðum kjarasamn-
inga um stöðugt verðlag og gengi.
Þá er tekið fram að þessi sam-
þykkt sé gerð í trausti þess að
ekki verði lagðar skattaálögur á
fyrirtækið, sem leiði til þess að
hækka þurfi rafmagnsverð.
-Sáf
Svíþjóð
Stjómin
segir af sér
Stjórn sænskra sósíaldemo-
krata sagði af sér í gær eftir að
lagafrumvarp hennar um aðgerð-
ir í efnahagsmálum var fellt á
þingi.
Þingmenn kommúnista neit-
uðu að styðja frumvarpið sem
meðal annars fól í sér launafryst-
ingu og bann við verkföllum. Það
var felt með 190 atkvæðum gegn
153.
Thage Petersson þingforseti
bað stjórnina að sitja áfram þar
til ný stjórn hefði verið mynduð.
Ef ekki tekst að mynda nýja
stjórn verður boðað til kosninga.
Reutcr/rb