Þjóðviljinn - 16.02.1990, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 16.02.1990, Blaðsíða 24
Loks verður hægt að koma í veg fyrir hrotur Hrotur leika margt hjónaband- ið grátt og geta meira að segja verið lífshættulegar. Það hlýtur því að vera fagnaðarefni ef unnt reypist að lækna þennan svefn- kvilla með einföldu munnstykki úr plasti í stað þess að menn leggi í rándýrar skurðaðgerðir. í Chicago var munnstykki þetta kynnt á tannlæknaráð- stefnu nú á dögunum. Þessi plast- útbúnaður myndar einskonar „bólu“ milli tannanna sem festir tunguna framarlega í munninum og kemur í veg fyrir að hún drag- ist aftur í munn og valdi þar hrot- uni eða jafnvel beinum önd - unartruflunum. Fjórði hver maður er talinn þjást af hrotum og eru karlmenn í meirihluta meðal þeirra. Truflað- ur andardráttur hrjótandi manna spillir svefni þeirra, eykur álag á hjarta og lungu og getur valdið háum blóðþrýstingi - fyrir nú utan reiði og æsing hjá makan- um. Það þykir mikilvægt að lækna menn af hrotum vegna þess að þær hafa tilhneigingu til að magnast með aldrinum, og gamalt fólk getur orðið fyrir háskalegum öndunartruflunum með tilheyrandi súrefnisskorti og kannski ofboði sem leiðir til hjartaáfalls. Michael Alvarez heitir upp- finningamaðurinn sem segir að munnstykkið, kallað „tunguhald- ari“, dugi mönnum í 86% tilfella. Hvert munnstykki verður að móta eftir munni hins hrotu- hrjáða og verðið er 400-1200 doll- arar og þykir ekki mikið miðað við það fé sem margir hafa eytt til að láta skera úr sér hrotumar. Helgarnámskeið fyrir fólk á öllum aldri í leikrænni tjáningu hefjast í mars. Hentar vel fólki sem vill kynnast sjálfum sér og öðrum (t.d. vinnufélögum). Innritunogupplýsingarí síma 91-27758. scm'maður semur, leikur og leikstýrir sjálíur! 15. febrúar 1990 BREYTING Á REGLUGERÐUM Læknaþjónusta Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni. 0 kr, - Fyrir viðtal á stofu læknis á dagvinnu- tíma þ.e. á milli kl 0800 og 1700. Inni- falin er ritun lyfseðils. 500 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis utan dag- vinnutíma og á helgidögum. Innifalin er ritun lyfseðils. 400 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings á dag- vinnutíma. 1000 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings utan dagvinnutíma. Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp og komur á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúss. 900 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamót- töku sjúkrahúss. 300 kr. - Elli- og örorkul ífeyrisþegar fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkra- , húss. Greiðslur fyrir rannsóknir og röntgengreiningu. 300 kr. - Fyrir hverja komu. 100 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegarfyrir hverja komu. Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu aldrei greiða samanlagt hærri fjár- hæð en kr. 3000 á einu almanaksári fyrir sérfræðilæknishjálp, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamót- töku sjúkrahúss, rannsóknir og röntgengreiningu. Allir eiga að fá kvittanir fyrir þessum greiðslum. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir. Innifalinn í greiðslu er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar. Lyfjakostnaður Greiðslur fyrir lyf. 550 kr. - Fyrir lyf af bestukaupalista. 170 kr. - Elli-og örorkulífeyrisþegarfyrirhverja lyfjaafgreiðslu af bestukaupalista. 750 kr. - Fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. 230 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfja- skammt, eða brot úr honum. Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfja- búð fást ókeypis ákveðin lyf, við tilteknum langvarandi sjúkdómum. Læknar gefa vottorð til Tryggingastofnunar ríkisins í þeim tilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. SKÝRINGAR Á FRAMKVÆMD REGLUGERÐAR NR. 62/1990 UM GREIÐSLUÞÁTTTÖKU SJÚKRATRYGGÐRA í LÆKNISHJÁLP O.FL. Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis á dagvinnutíma er sjúkl- ingi ætið að kostnaðarlausu. Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða bráðakomu eða komu skv. tímapöntun. Vegna komu til heimilis- eða heilsugæslulæknis utan dagvinnu- tima greiðir sjúklingur kr. 500 nema læknir hafi beinlínis sjálfur ákveðið að sinna læknisstarfinu utan dagvinnutima. Sjúklingur greiðir fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rann- sóknastofu heilsugæslustöðvar (ef sérstakur starfsmaður sér um rannsóknastofuna). Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) i hverri komu. Koma til sérfræðings Fyrir komu til sérfræðings og endurteknar komur til sérfræðinga greiðir sjúklingur í hvert skipti kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega). Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknastofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu. Fari sjúklingur I aðgerð og svæfingu greiðir hann aðgerðarlækni kr. 900 og svæfingalækni kr. 900 (kr. 300 + 300 fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega). Koma á slysavarðstofu Sjúklingur greiðir kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) vegna komunnar. Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknarstofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu. Rannsóknir á rannsóknarstofu Sjúklingur greiðir kr. 300 (elli og örorkulífeyrisþegar kr. 100) fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu heilsugæslustöðvar, sjúkrahúss eða annarrar stofnunar. Þótt hluti rannsóknarsýnis sé sendur annað til rannsóknar greiðir sjúklingur ekki viðbótargjald vegna þess. Sendandi sýnis skal gera grein fyrir því á rannsóknar- beiðni hvort sjúklingur sé þegar búinn að greiða vegna rannsókn- ar, sem fram fór á sýnistökustað. Röntgengreinlng Vegna hverrar komu til röntgengreiningar, á heilsugæslustöð eða annars staðar, skulu sjúklingar greiða kr. 300 (kr. 100 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega). Ekki skiptir máli hvaðan sjúklingur kemur, þ.e. frá heilsugæslulækni, heimilislækni eða sérfræðingi. Hvers kyns önnur innheimta hjá sjúklingum en að framan greinir, þ.m.t. vegna einnota vara, umbúða o.þ.h., eróleyfileg. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS ARGUS/SÍA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.