Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 4

Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 4
Ríkisstyrkir í nafni lýðræðisins Unnið að uppstokkun á stuðningi ríkisins við fjölmiðlun. Núverandi fyrirkomulag talsvert ólíkt norska ogsœnska styrkjakerfinu. Norð- menn og Svíar hafa gripið hressilegaframfyrir hendurnar á markaðs- öflunum Rflrisstjórnin hefur fengið í hendur áfangaskýrslu starfs- hóps sem hefur athugað mögu- legar breytingar á stuðningi rflris- ins við menningarstarfsemi og fjölmiðlun. Hópurinn hefur rætt um stofnun sjóðs, sem meðal ann- ars er ætlað að styðja prentmiðla sem eiga í rekstrarerfiðleikum. Búist er við talsverðum deilum um tillögur hópsins. Ljóst er af lestri skýrslunnar að stefnt er að verulegum breyting- um á stuðningi ríkisins við fjöl- miðlun, einkum prentmiðla. Markmið breytinganna er greini- lega að taka stjórnina af mark- aðsöflunum og koma í veg fyrir einokun stóru blaðanna á mark- aðinum. Stefna íslenskra stjórnvalda í þessum efnum hefur lengst af verið mjög óljós, en á hinum Norðurlöndunum hefur náðst nokkuð góð samstaða um að láta markaðsöflin ekki einráð um samsetningu blaðamarkaðarins. Mörg norræn blöð, einkum norsk, eru enda að verulegu leyti upp á stuðning og aðstoð ríkisins komin. íslenska ríkið annars vegar og ríkisvaldið í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku hins vegar hafast mjög ólíkt að í þess- um efnum. I öllum þessum löndum hefur verið komið upp styrkja- og stuðningskerfi fyrir blöð, en ísland sker sig úr að því leyti, að blaðastyrkir hérlendis fara í gegnum stjórnmálaflokka og nema auk þess óverulegu hlut- falli af rekstrartekjum blaðanna. Ekkert tillit er heldur tekið til markaðsstöðu. Engir beinir styrkir Eins og málum er háttað nú styður íslenska ríkið prentmiðla ekki beint. Hins vegar fá þing- flokkar „styrk til blaðaútgáfu" og til „útgáfumála samkvæmt ákvörðun þingflokka“. Á fjár- lögum þessa árs nema þessir styrkir samanlagðir 87,9 miljón- um króna. Nefnd, sem skipuð er fulltrú- um þingflokka, skiptir upphæð- inni þannig að hver flokkur fær jafnan hlut af 12,5 prósent fjár- ins, en 87,5 af hundraði skiptast á þingflokkana eftir fjölda at- kvæða. Sjálfstæðisflokkurinn fær því mest, en hinir minna eftir fylgi. Þessi óbeini styrkur ríkisins getur því minnkað verulega til einstakra blaða, ef flokkur tapar fylgi í kosningum. I ár fær Sjálfstæðisflokkurinn 24,6 miljónir, Framsóknarflokk- urinn 17,2 miljónir, Alþýðu- flokkurinn fær 13,8, Alþýðu- bandalagið 12,1 og Kvennalistinn 9,2 miljónir króna. Ráðstafað að vild Þingflokkunum er raunveru- lega frjálst að ráðstafa þessu fé að vild, því ekki er gengið eftir neinum skýringum á ráðstöfun fjárins og hún mun vera mjög misjöfn eftir flokkum. Þannig neitar Morgunblaðið því stað- fastlega að það þiggi styrk úr hendi Sjálfstæðisflokksins, svo hlutur Sjálfstæðisflokksins hlýtur að fara bæði í flokksstarf og í starfsemi landsbyggðarblaða Sj álfstæðisflokksins. Hins vegar er vitað að Þjóðvilj- inn, Tíminn og Alþýðublaðið njóta góðs af þeim hluta fjárhæð- arinnar sem kemur í hlut Alþýðu- bandalags, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Það er svo algjörlega háð vilja þingflokks hverju sinni hve mikið kemur í hlut blaðs. Hlutdeild Þjóðviljans í hlut Alþýðubanda- lagsins hefur þannig verið mjög misjöfn á undanförnum árum. Auk styrkja til þingflokkanna, kaupir ríkið 750 áskriftir að hverju blaði, en skoðanir eru skiptar um hvort það beri að telja styrk eða ekki. Morgunblaðið selur ríkinu þessar áskriftir að því tilskyldu að ekki sé um styrk að ræða og í ljósi þess er vart hægt að segja að um styrk sé að ræða til annarra blaða heldur. Einokun Norðmenn urðu fyrstir Norð- urlandabúa til þess að taka upp styrki til þess að halda lífi í blöð- um sem standa höllum fæti á markaðnum. Þeir hafa vaiið allt aðra leið en íslendingar í þessum efnum. Forsaga norska kerfisins er sú Samtök um jafnrétti I,. og félagshyggju I1’1 Frjálslyndir hægrimenn Borgaraflokkur Kvennalisti Alþýöubandalag Alþýöuflokkur Framsóknarflokkur Sjátfstæöisflokkur |2,8 Ríkisstyrkir tii útgáfumála og blaðaútgáfu stjórnmálaflokka 1990 í miljónum króna Alls: 87,8 miljónir 13,8 17,2 124,6 að á eftirstríðsárunum féllu fjöl- mörg norsk blöð frá og í kjölfar þess kom æ víðar upp staðbundin einokun. Oftast féllu blöð Verka- mannaflokksins í valinn, en hægripressan fór heldur ekki varhluta af samdrættinum. Þegar fyrir lá að markaðurinn hugðist gera enn frekara strand- högg, sáu samtök fjölmiðla sér ekki annað fært en að leita eftir stuðningi ríkisins. Nær eingöngu fjölmiðlafólk var skipað í nefnd sem fjallaði um málið og árið 1969 var komið á styrkjakerfi. Yfirlýstur tilgangur þess að koma á styrkja- og stuðningskerfi hefur alltaf verið að viðhalda bæði pólitískri og Iandfræðilegri fjölbreytni á norska blaðamark- aðinum og styrkja þannig lýðræði og eðlilega skoðanamyndun í landinu. Lýðræði og byggðastefna Norðmenn eru einhverjir ötul- ustu blaðalesendur í heimi og varla er það krummaskuð til þar í landi að ekki komi út blað. Pólit- ísk flóra norskra blaða er einnig talsvert fjölskrúðug, þótt mörg minni háttar blöð á vinstri vængn- um hafi helst úr lestinni. Styrkjakerfinu er því ekki að- eins ætlað að viðhalda pólitískri fjölbreytni. Hugmyndin á bak við styrkina byggir einnig að veru- legu leyti á byggðastefnu. Stefn- an er sú að sem víðast sé fjallað um sveitarstjórnarmál, þjóðmál og alþjóðamál. Norska kerfíð miðar einnig að því að halda blöðum ýmissa minnihlutahópa, t.d. Sama, á floti. Samísk menning á mjög undir högg að sækja og því er tai- in ástæða til þess að styrkja sér- staklega blöð Sama. Eitt helsta áhyggjuefni Norð- manna varðandi styrkjakerfið varsjálfstæði blaðanna. Einstaka raddir hafa verið uppi um að ríkið ætti að veita styrkina gegn skil- yrðum, en almenna skoðunin hefur alltaf verið á hinn veginn. Svo virðist sem menn hafi al- mennt ekki áhyggjur af því nú að sjálfstæði blaða sé ógnað þótt þau þiggi rekstrarstyrk frá ríkinu. Einn og hálfur miljarður Framfaraflokkurinn, sá flokk- ur sem er yst til hægri í norskum stjórnmálum, hefur þó lýst þeirri skoðun sinni að blöð geti ekki stundað sjálfstæða blaða- mennsku þiggi þau ríkisstyrk. Fulltrúar flokksins vilja að styr- kjakerfið verði afnumið á næstu árum, enda telja þeir að fjöl- breytni geti aðeins orðið með frjálsri samkeppni. Framfarafl- okkurinn hefur reyndar einnig verið andvígur styrkjum til starf- semi stjórnmálaflokka. Norska styrkjakerfið hefur breyst nokkuð frá upphafi. Upp- haflega var um að ræða niður- SVENSKA DAGBLADi :REDAG 9 FEBRUÁRl. * Regeringen gár om krispaket fálls litr* míl|ö)>artj«t «111 lörh«n«» - bor»«rligo lorbtírt-tlor (ör ny¥a| S0ta hmr í Otb 258 kfSM 5 O greiðslur á pappír, en nú er uppi- staðan rekstrarstyrkur, sem skiptist á milli blaða eftir sam- keppnisstöðu þeirra, upplagi, út- gáfutíðni, auglýsingahlutfalli, á- skriftarverði og fleiri atriðum. Rekstrarstyrkurinn nam nær einum og hálfum miljarði ís- lenskra króna í fyrra og skiptist á milli 121 blaðs. Þrjú blöð fengu hins vegar um þriðjung heildarstyrksins. Ar- beiderbladet (upplag 60 þúsund) fékk um 250 miljónir, Vaart Land (upplag tæplega 30 þúsund) um 120 miljónir og Dagens Næringsliv 115 miljónir íslenskra króna. Öll hafa þessi blöð höfuð- stöðvar í Ósló. Kranakerfi? Ljóst er að styrkurinn nemur háu hlutfalli af rekstrartekjum margra blaða, allt að helmingi. Norsk blöð eiga einnig kost á styrk til samdreifingar og njóta fjölmörg blöð þess. Auk þess get- ur sérstakur lánasjóður fyrir blöð veitt lán, styrki og ábyrgðir fyrir verulegum fjárhæðum. Þá er ótalið að norsk blöð eru undanþegin virðisaukaskatti á auglýsingar og lausasölu og er tal- ið að með því hafi ríkið styrkt blöðin um 4,5 miljarða íslenskra króna árið 1987. Auk alls þessa má nefna að norska ríkið veitir verulegu fjár- magni til menntunar og endur- menntunar blaðamanna. Norska kerfið hefur stundum verið kennt við krana vegna þess að styrkirnir ganga oft og tíðum sjálfkrafa til blaða ár eftir ár. Þetta er að mörgu leyti rétt, en þó eru ýmsir varnaglar slegnir. Stærstu og öflugustu blöðin njóta engra beinna styrkja, en hins veg- ar kemur undanþága frá virðis- aukaskatti þeim mjög vel. Dagens Næringsliv er dæmi um blað sem átti í erfiðleikum á tíma- bili, en hefur nú rétt úr kútnum og er farið að greiða hluthöfum sínum arð. Vegna þess var regl- unum breytt þannig að ef blöð greiða hluthöfum arð, fellur styrkurinn niður. Óháð flokkum Svíar tóku upp ríkisstyrki til blaða árið 1976 og byggja að miklu leyti á norskri fyrirmynd. Sænsk blöð eiga kost á rekstrar- styrk eftir reglum sem svipar mjög til þeirra norsku. Árið 1988 greiddi sænska ríkið um 4 milj- arða íslenskra króna í rekstrar- styrk til 77 blaða, en alls námu beinir blaðastyrkir á fimmta milj- arð íslenskra króna það sama ár. Forsendan fyrir þessum stuðn- ingi ríkisins við sænsk blöð hefur verið sú sama og í Noregi; að tryggja fjölbreytni á markaðin- um. Þannig hafa sænsk og norsk stjórnvöld gripið mjög harkalega fram fyrir hendurnar á markaðs- öflunum. Það er óhætt að full- yrða að hin pólitíska samsetning blaðaheimsins í þessum löndum væri allt önnur ef ríkisvaldið hefði ekki gripið inn í. Eflaust má finna marga van- kanta á styrkjakerfi þessara landa, en þau hafa verið í stöð- ugri endurskoðun frá upphafi. Aðalkostur norsk/sænska fyrir- komulagsins miðað við það ís- lenska er að styrkirnir eru veittir milliliðalaust og miðað við mark- aðsstöðu, en fara ekki eftir fylgi flokka sem blöðin kjósa að styðja. Starfshópurinn sem hefur það hlutverk að endurskoða stuðning 4 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur16. febrúar 1990 Blaðstyrkir í Noregi 1989 Þau sem fengu mest Arbeiderbladet Milj. Isl. kr. 248,6 Várt Land 119,3 Dagens Næringsliv 115,4 Bergens Arbeiderblad 91,7 Nationen 86,0 Arbeider-Avisa 71,6 Rogalands Avis 66,3 Fremtiden 51,5 Dagen 46,4 Klassekampen 35,2

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.