Þjóðviljinn - 16.02.1990, Side 6
Frá blaðamannafundinum í fyrradag þar sem frumvarpið um félagslegar íbúðir var kynnt. Frá vinstri sjást fyrst nefndarmennirnir Karl Steinar Guðnason og Reynir Ingibjartsson,
þá Þorgerður Benediktsdóttir lögfræðingur í félagsmálaráðuneyti, Kristín Ástgeirsdóttir ritari nefndarinnar, Ingi Valur Jóhannsson formaður nefndarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra og aðstoðarmaður hennar, Grétar Guðmundsson. Mynd: Kristinn.
Tímamót í húsnæðismálum
Þegar frumvarp Jóhönnu Sigurðardótturfélagsmálaráðherra umfé-
lagslegar íbúðabyggingar verður að lögum er loks hœgt að segja að
íslenskur almenningur hafi eitthvert val umþað hvernig hann vill ráða
fram úr sínum húsnœðismálum
í fyrradag lagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra
fram frumvarp til laga um félags-
legar íbúðabyggingar. Frum-
varpið er afrakstur af starfi
nefndar sem Jóhanna skipaði og
þótt ekki séu hnýttir allir þeir
endar sem lausir eru í íslenskum
húsnæðismálum er óhætt að fuli-
yrða að frumvarpið, verði það að
lögum, markar tímamót í þessum
málaflokki sem skiptir alla lands-
menn óendanlega miklu máli.
Á blaðamannafundi þar sem
frumvarpið var kynnt var vakin á
því sérstök athygli að aiger eining
hefði ríkt í nefndinni um öll meg-
inatriði frumvarpsins. Verður
það að teljast einsdæmi því þegar
húsnæðismál eru annarsvegar
hefur ráðamönnum tekist að vera
hreint ótrúlega ósammála, með
þeim afleiðingum að núna fyrst er
verið að stíga alvöruskref í þá átt
að jafna aðstöðu eigenda og
leigjenda. Slíkur jöfnuður er fyrir
löngu kominn í aðstoð hins opin-
bera í húsnæðismálum nágranna-
landa okkar, og gildir þá einu
hvort litið er í austur eða vestur.
Hugsanlega á samsetning
nefndarinnar sinn þátt í því
hversu mikill einhugurinn varð.
Nefndin var skipuð fulltrúum
samtaka launafólks, Húsnæðis-
stofnunar, Sambands íslenskra
sveitarfélaga, samtakanna Þak
yfir höfuðið, en í þeim eru átta
félagasamtök, og loks stjórnar-
flokkanna þriggja, þe. Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Framsóknar. Glöggir lesendur
sjá að Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur verið fjarri góðu gamni enda
hefði starfið ugglaust ekki gengið
jafnvel og raun varð á hefði Hall-
dór Blöndal komið þar nærri.
StjórnirVerkamanna-
bústaða lagðar niður
Eins og allir vita hefur verka-
lýðshreyfingin haft veruleg af-
skipti af húsnæðismálum um ára-
tuga skeið. Síðasta stórafrek
hennar var að gjörbylta húsnæð-
islánakerfinu í kjarasamningun-
um sem gerðir voru snemma árs
1986. Sú bylting náði hins vegar
einungis til almenna hlutans en sá
félagslegi varð útundan. Það er
því ekki fyrr en nú, fjórum árum
seinna, að breytingar á stuðningi
hins opinbera við félagslegar
íbúðabyggingar eru boðaðar.
Sumir hafa haldið því fram að
þetta stafi ekki síst af áhugaleysi
verkalýðsforystunnar sem hafi
einkum áhuga á að tryggja stuðn-
ing hins opinbera við almenna
húsnæðiskerfið. Sömu raddir
segja að verklýðsforystunni finn-
ist nóg að gert í félagslegum íbúð-
abyggingum þar sem starfsemi
Verkamannabústaða er, en engin
þörf sé á að byggja leiguíbúðir.
Hvort sem þessi gagnrýni á rétt
á sér eður ei er það staðreynd að
verkalýðsforystan hefur lagt
blessun sína yfir það að stjórnir
Verkamannabústaða skuli lagðar
niður og meirihlutavald yfir
byggingu félagslegra íbúða fært
til sveitarstjórna. Samkvæmt
frumvarpi Jóhönnu verða fram-
vegis starfræktar húsnæðisnefnd-
ir í hverju sveitarfélagi þar sem
sveitarstjórn skipar þrjá fulltrúa
en samtök launafólks tvo. Sú
breyting verður einnig gerð að
þessi nefnd tekur fulla fjárhags-
lega ábyrgð á byggingu félags-
legra íbúða á sínu starfssvæði.
Sveitarfélögin
fá valdið
Það sem vakir fyrir Jóhönnu og
nefndinni með þessari breytingu
og öðrum er að gera sveitarfélög-
unum auðveldara að byggja
leiguíbúðir og/eða kaupleigu-
íbúðir og koma þannig á raun-
verulegu valfrelsi fólks um það
hvort það býr í eigin húsnæði eða
öruggu leiguhúsnæði. Núgildandi
skipan þessara mála skyldar
sveitarfélögin til að leggja fram
8,5% kostnaðarverðs félagslegra
íbúða og það framlag er óaftur-
kræft. I frumvarpinu breytist
þetta þannig að sveitarfélaginu er
uppálagt að leggja fram 10%
kaupverðs í því formi að það
kaupir skuldabréf Byggingar-
sjóðs ríkisins sem endurgreiðast á
fimmtán árum. Þarna er mikil-
vægum þrándi rutt úr götu því
sveitarfélög hafa mörg hver hald-
ið að sér höndum vegna áður-
nefnds ákvæðis.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
fækka lánaflokkum Húsnæðis-
stofnunar um einn, þe. lán til út-
rýmingar heilsuspillandi húsnæð-
is verða felld undir Byggingar-
sjóð verkamanna. Þangað verður
einnig færður lánaflokkur sem
veitir lán til byggingar eða kaupa
á almennum kaupleiguíbúðum.
Eftir þessar breytingar verða fé-
lagslegar íbúðir því af þremur
gerðum: félagslegar kaupleigu-
íbúðir sem sveitarfélög eða fé-
lagasamtök geta byggt, félags-
legar eignaríbúðir sem sveitarfé-
lög geta byggt en þessi flokkur
samsvarar núverandi verka-
mannabústöðum, félagslegar
leiguíbúðir sem sveitarfélög eða
félagasamtök á borð við Búseta
geta reist. Til íbúða af þessu tagi
er gert ráð fyrir að lána 90%
byggingarkostnaðar til 43 eða 50
ára með 1,5-2% vöxtum. Loks er
að nefna almennar kaupleigu-
íbúðir sem sveitarfélög, félaga-
samtök eða fyrirtæki geta byggt
og fá lánað allt að 70% bygging-
arkostnaðar til 50 ára og 20% til
25 ára að auki ef sérstaklega
stendur á.
Hert skilyrði fyrir
íbúðarkaupum
Frumvarpið felur í sér ýmsar
fleiri breytingar á reglum um fé-
lagslegar íbúðir. Gert er ráð fyrir
að kröfur til þeirra sem kaupa fé-
lagslegar íbúðir með svipuðum
hætti og íbúðir í verkamannabú-
stöðum nú verði hertar. í fyrsta
lagi hækka vextirnir um 0,5-1%. í
öðru lagi verður hætt að lána allt
að 100% kostnaðarverðs íbúðar,
hér eftir verða kaupendur að
leggja fram amk. 10% kaupverðs
við afhendingu. í þriðja lagi verð-
ur tekið upp tekjulágmark, þe.
kaupandi verður að sýna fram á
að hann standi undir kaupunum.
Gert er ráð fyrir að greiðslugeta
kaupenda verði metin og miðað
við að húsnæðiskostnaður fari
ekki yfir þriðjung tekna. Loks
verður heimilt að endurskoða
vexti átta árum eftir lántöku og
síðan á fimm ára fresti. Komi í
ljós að kjör lántakanda hafi batn-
að verulega verða vextirnir
hækkaðir upp í 4,5% eins og á
almennum húsnæðislánum.
Hingað til hefur þeim sem ekki
geta staðið undir kaupum á íbúð í
verkamannabústöðum í raun ver-
ið sagt að éta það sem úti frýs eða
leita til félagsmálastofnunar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að
hægt verði að bjóða þeim lægst
launuðu upp á félagslegar leiguí-
búðir þar sem leigan er viðráðan-
leg. Ráðherra boðaði á fundinum
skipun nefndar með þátttöku
samtaka launafólks sem fær það
hlutverk að gera áætlun um
hvernig auka megi framboð á fé-
lagslegu húsnæði.
Raunar lagði nefndin til að
teknar yrðu upp húsaleigubætur í
því skyni að jafna aðstöðu
leigjenda og eigenda. Þeirra nytu
allir sem væru undir þeim tekju-
mörkum sem miðað er við hverju
sinni í félagslega íbúðakerfinu,
þe. ef íbúðin er ekki yfir 130
fermetrar að stærð. Gerir nefnd-
in ráð fyrir að þessar bætur yrðu
greiddar í gegnum skattakerfið
líkt og vaxtabætur til íbúðar-
eigenda. Á blaðamannafundin-
um sagði Reynir Ingibjartsson
framkvæmdastjóri Búseta að
nauðsynlegt væri að stíga slíkt
skref enda hefði það fyrir löngu
verið stigið í nágrannalöndum
okkar.
Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir
að húsaleigubætur verði teknar
upp og sagði ráðherra að sú til-
laga væri í skoðun hjá ríkisstjórn-
inni. Hún gat ekki svarað því
hvort tillaga um þær kæmi fram á
yfirstandandi þingi. Hins vegar
væri stefnt að því að afgreiða
frumvarpið um félagslegar íbúða-
byggingar fyrir þinglok í vor.
Endurskoðun
lokið
Hér hefur aðeins verið tæpt á
helstu breytingum sem frumvarp-
ið gerir ráð fyrir. Auk þeirra má
bæta við að reglur um forkaups-
rétt sveitarfélaga verður breytt,
reglur um leigu á félagslegum
eignaríbúðum verða hertar,
komið upp varasjóði til að bæta
galla á íbúðum sem fram koma
eftir að ábyrgð verktaka rennur
út, fyrning á eldra húsnæði hækki
og eftirlit Húsnæðisstofnunar
með byggingarkostnaði verði
hert.
Reynir Ingibjartsson sagði að
með tillögum nefndarinnar og
frumvarpi Jóhönnu mætti heita
að lokið væri umfangsmikilli
endurskoðun á íslenskum hús-
næðismálum. Auk þess sem nefnt
hefur verið lagði nefndin til þess
að skipulagi Húsnæðisstofnunar
yrði breytt, fækkað í stjórn henn-
ar og stofnaðar umdæmisstjórnir
í öllum kjördæmum. Umdæm-
isstjórnirnar eiga að fá það hlut-
verk að fylgjast með þörfinni
fyrir húsnæði í umdæminu, gera
áætlanir og tillögur um lán-
veitingar til félagslegra íbúða og
veita almenningi í umdæminu
ýmsa þjónustu sem nú verður að
sækja til Reykjavíkur. Er þessari
skipulagsbreytingu líkt við það
sem gerst hefur hjá Vegagerð
ríkisins og svæðisstjórnum í mál-
efnum fatlaðra. Þessar tillögur
ásamt með tillögum um endur-
skoðun húsaleigusamninga og
stofnun leigumiðlana liggja á
borði ráðherra og bíða frekari
umfjöllunar.
Að lögum í vor?
Ekki er gott að segja til um
hver kostnaðaráhrif tillagna
nefndarinnar verða en að mati
ráðuneytisins á frumvarpið ekki
að leiða til útgjaldaaukningar
fyrir ríkissjóð. „Hér er fyrst og
fremst um að ræða að nýta það
fjármagn sem fyrir hendi er í
Byggingarsjóði verkamanna með
öðrum og hagkvæmari hætti en
áður. Hækkun vaxta, hækkun
tekjumarka, afnám 100% lán-
veitinga og heimild til endur-
skoðunar vaxtakjara lántakenda
hafa í för með sér að staða bygg-
ingarsjóðs verkamanna styrkist,"
segir í greinargerð sem blaða-
mönnum var afhent í fyrradag.
Þar segir einnig að húsbréfakerf-
ið muni draga úr kostnaði ríkis-
sjóðs af almennum fasteignavið-
skiptum en með því „skapast
svigrúm til að auka framboð á fé-
lagslegu húsnæði“.
Frumvarp Jóhönnu hefur þeg-
ar hlotið samþykki helstu sam-
taka launafólks í landinu, þe. Al-
þýðusambands íslands, BSRB og
Verkamannasambands íslands,
enda er það í samræmi við fyrir-
heit sem núverandi ríkisstjórn
hefur gefið í kjarasamningum.
Með gildistöku þess verður loks
hægt að segja að íslendingar hafi
komið sér upp opinberu húsnæð-
islánakerfi sem er í einhverju
samhengi við þarfirnar. Annars
vegar er húsbréfakerfið sem ætl-
að er að fjármagna að mestu al-
menna fasteignamarkaðinn, hins
vegar stuðningur ríkisins við
byggingar og kaup á félagslegum
íbúðum. Þegar kerfið fer að virka
eftir þessum nýju lögum verður
fyrst hægt að segja með sanni að
landsmenn hafi eitthvert val um
það hvernig þeir leysa sín hús-
næðismál.
Vonandi bera þingmenn gæfu
til að renna þessu frumvarpi
mjúklega og hnökralaust í gegn-
um þingið fyrir vorið.
-ÞH
6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ. Föstudagur 16. febrúar 1990