Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 22
FÍM-salurinn, Garðastræti 6, Haf-
steinn Austmann, vatnslitamyndir. Til
20.2.14-18daglega.
Galleri Borg, Eiríkur Smith, abstrakt-
ionir. Til 20.2.10-18 virka daga, 14-
18 helgar.
Gallerí Graf, Logafold 28, verk Ástu
Guðrúnar Eyvindardóttur, opn
(seinni hluti) á morgun. Lau 14-18 e/
eftirsamkomulagi.
Gallerí RV (Rekstrarvörur) Réttar-
hálsi 2, Daði Guðbjörnsson, olíu-
myndir og grafík. Til 23.2.8-17 virka
daga.
Hafnarborg, Hf, sýning í tilefni af list-
averkagjöf Eiríks Smith. Til 25.2.14-
19alladaganemaþri.
Kjarvalsstaðir, 11-18 daglega,
austursalur: Kjarval og landið, verk e/
Kjarval í eigu Rvíkurborgar.
Listasafn íslands, verk í eigu
safnsins (1945-1989). Verk nem-
enda úr Barnadeild Myndl. og hand-
íðask. íslands. Mynd mánaðarins,
Vorkoma eftir T ryggva Ólafsson,
leiðsögn er fi 13:30-13:45. Safnið er
opið 12-18 alla daga nema mán.
kaffistofa opin á sama tíma. Að-
gangur og leiðsögn ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
innalladaga11-17.
Listasafn Sigurjóns, járnmyndir
Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa
borist undanfarin ár. Lau og su 14-17,
þri 20-22.
Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og
su 11-16.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti, ÞingvallamyndirÁs-
gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16, lýkur
ífeb.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/ eftir
samkomulagi.
Slunkaríki, fsafirði, Jean-Paul
Franssens, myndlist, sýn. í tilefni að 5
ára afmæli Slunkaríkis. Til 18.2. fi-su
16-18.
SPRON, Álfabakka 14, Gunnsteinn
Gíslason, múrristur. Til 27.4.9:15-16
mán-fö.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Gunnar
örn opnar sýningu á laugardag, ein-
þrykk og skúlptúrar. Til 7. mars. 10-
18 virkadaga, 14-18helgar.
Islandsbanki, Skipagötu, Akureyri,
myndireftir Jón Eiríksson búfræði-
kandídat. Til 2. apríl.
Kaupvangsstræti 16, Akureyri,
Guðm. Ármann opnar sýningu í
vinnustofu sinni á laugardag. Opin
virka daga 16-20 og 14-20 um helgar,
til25.febrúar.
TÓNLISTIN
Kammersveit Reykjavíkur heldur
tónleika í Áskirkju á sunnudag kl. 17.
Þetta eru þriðju tónleikar sveitarinnar
á þessum vetri og flutt verða verk eftir
Beethoven og Schubert, samtíma-
mennina í Vínarborg í byrjun 19.
aldar.
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og
Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó-
leikari halda tónleika í Selfosskirkju á
laugardag kl. 16 og í félagsheimili
Hrunamanna á Flúðum á sunnudag
kl. 14.Leikin verðaverkeftirC.P.E.
Bach, Prokofjev, Bela Bartók, Árna
Björnsson og Atla Ingólfsson.
íslensk tónverkamiðstöð og Lista-
safn Sigurjóns Ólafssonar bjóða upp
á kvöldstund með tónskáldi í Lista-
safni Sigurjóns á þriðjudagskvöld,
20. febrúar, kl. 20.30. John Sþeight
verður þar í eldlínunni og talar um
tónsmíðar sínar undir yfirskriftinni Að
eins nokkrar línur. Leikin verða verk
eftir Speight og áhorfendur fá tæki-
færi til að spyrja tónskáldið spjöru-
num úr. John Speight er fæddur í
Englandi en hefur búið hér á landi
síðan 1972.
Heiti potturinn, Duus-húsi, Friðrik
Karlsson og Reynir Sigurðsson leika
su kl. 21:30.
Slagverkshópurinn Snerta heldur
síðdegistónleika í tónleikasal F. í. H.,
Rauðagerði 27, sunnudaginn 18. fe-
brúar kl. 17. Flutt verður verkið Sind-
ur fyrir fjóra slagverksleikara, eftir
Áskel Másson. Snerta vinnur að
hljóðritun verksins fyrir ríkisútvarpið
og væntanlega hljómplötu.
LEIKLISTIN
Leikfélag Akureyrar, Eyrnalangir og
annað fólk, su kl. 15. Heill sé þér
þorskur, frums. lau kl. 20:30,2. sýn.
su kl. 20:30.
Leikfélag Kópavogs, Blúndur og
blásýra, sukl.20.
Leikfélag Reykjavíkur, Ljós
heimsins, litla sviðinu í kvöld og lau kl.
20. Höll sumarlandsins, stóra sviðinu
laugardag kl. 20.Töfrasprotinn su kl.
14. Kjöt, í kvöld kl. 20.
Þjóðleikhúsið, Endurbygging, eftir
Vaclav Havel, frumsýning í kvöld kl.
20, hátíðarsýning á lau kl. 16.45 að
viðstöddum höfundi. Lítið fjölskylduf-
yrirtæki á su kl. 20.
ÍÞRÓTTIR
Sundhöll Reykjavikur verður vett-
vangur Grand Prix móts í kvöld.
Keppendur eru fæddir 1974 og eldri.
Mótið hefstkl. 19.
Unglingamót Fimleikasambands Is-
lands verður haldið í íþróttahúsinu í
Digranesi í Kópavogi á laugardag.
Keppni hefst kl. 10 f.h. Unglingamótið
er hið fjölmennasta sem haldið er i
áhaldafimleikum og eru keppendur
165fráellefufélögum. Umsjón með
mótinuöefurfimleikadeild Gerplu.
Daginn eftir verður síðan meistara-
mót í fimleikastiganum, en þar fá að-
eins að keppa þeir sem hafa náð
ákveðnum stigafjölda.
íslendingar og Svisslendingar
leika landsleik í handknattleik í
Laugardalshöll í kvöld.
HITT OG ÞETTA
Féiagsvist og gömlu dansarnir á
hverju föstudagskvöldi í T emplara-
höllinni, Tíglarnir leika fyrir dansi, allir
velkomnir.
Ferðafélag íslands, skiða-
göngunámskeið í Bláfjöllum á sunnu-
dag kl. 13. Á sama tíma verður farið í
skíðagöngu um Bláfjöll og Grinda-
skörð, og loks á sama tíma verður
gengið á fjall mánaðarins, Stóra Bolla
i Grindaskörðum.
Hvað á að gera um helgina?
Möröur Árnason
upplýsingafulltrúi
Ég ætla að lesa viðtalið við Hjalta Kristgeirsson í Nýju Helgarblaði.
Svo getur vel verið að maður reyni að koma auga á Václav Havel.
Útivist, vetrarferð á Þingvöll á sunn-
udag kl. 13 og á sama tíma verður
farið í létta skíðagöngu á Mosfells-
heiði.
Hana nú leggur upp í laugardags-
gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10 í
fyrramálið. Nýlagaðmolakaffi.
Gönguhrólfar hittast að Nóatúni 17
kl. 11.11 á laugardagsmorgun. Á
sunnudag verður opið hús í Goð-
heimum, Sigtúni 3, frá kl. 14.
Kvöld vökufélagið Ljóð og saga
heldur kvöldvöku í Skeifunni 17 á
laugardag kl. 20.30.
Norræna húsið heldur rýmingarsölu
á eldri bókum og nokkrum nýjum á
laugardag kl. 10-18 í anddyri hússins.
Jafnframt verða sýndar norrænar
kvikmyndir af myndbandi.
MÍR, kvikmyndasýn. í bíósalnum v/
Vatnsstíg 10 su kl. 16: Brautarstöð
fyrir tvo eftir, önnur myndin af þremur,
sem sýndar verða e/ Eldar Rjazanov.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Laugardagskaffi Kvennalistans
verður haldið á skrifstofu hreyfingar-
innar í fyrramálið kl. 11. Agnes
Ghaznavi sálfræðingurog bahaíi
ræðir um hvernig konur geti lagt sitt af
mörkum til samfélagsins án þess að
tapa kvenlegum eiginleikum sínum.
Sjallinn á Akureyri frumsýnir Stöðu-
na í hálfleik á laugardagskvöld. Þar er
á ferðinni skemmtidagskrá sem
byggð er á tónlistarferli Pálma Gunn-
arssonar.
Lelkmannahreyfingar innan ís-
lensku þjóðkirkjunnar halda sam-
komu í Bústaðakirkju ásunnudags-
kvöld kl. 20.30. Yfirskrift hátíðarinnar
erGuðlHvarertu?
Dr. Gunnlaugur A. Jónasson guð-
fræðingur flytur erindi í safnaðar-
heimili Neskirkju á sunnudag kl.
15.15 og fjallar um þýðingu Haralds
Níelssonar á Gamla testamentinu um
síðustu aldamót. Framhald verður
viku síðar.
Aö sitja kyrr á sama staö
J apanir fly t j a útlönd heim - með nákvæmum eftirlíkingum af heilum
borgum
Japanir eru oft sakaðir um að
vera miklir meistarar í eftirherm-
um: þeirra efnahagslega vel-
megun byggi t.d. að verulegu
leyti á því að stæla sem nákvæm-
ast það sem aðrar þjóðir hafa
gert í tækni og hönnun - og gera
eftirlíkingarnar fullkomnari og
endingarbetri en fyrirmyndirnar.
En Japanir eru líka þekktir fyrir
það, að reyna að flytja allan
heiminn til Japan ef svo mætti
segja, og skoða hann þar.
Þessi árátta er m.a. rakin til
þess að Japanir voru lengi ein-
angraðir frá öðrum og vöknuðu
upp seint með minnimáttarkennd
yfir því að aðrar þjóðir ættu sér
margt í gróinni menningu sem
þeir ættu ekki. f annan stað er
sagt sem svo, að enda þótt Japan-
ir séu nú orðnir mjög duglegir við
að ferðast, telji meðaljóninn í því
landi enn að langferðir séu hættu-
legt og varasamt tiltæki. Því vill
hann heldur ferðast til þeirra út-
landa sem hann getur skoðað
heima hjá sér.
Þykjustu-
langferð
Til dæmis um þetta má taka þá
japanska tísku að reisa eftirlik-
ingar af útlendum bæjum hér og
þar og selja að þeim aðgang: gest-
irnir þykjast svo vera í Hollandi
eða Svíþjóð. Til dæmis hefur á
suðurhluta eyjarinnar Kjúshú ris-
ið eftirlíking af sveitaþorpi í Mé-
doc, frönsku vínræktarhéraði
skammt frá Bordeaux. Menn
borga 1500 jen í aðgangseyri og fá
að mjólka kýr sjálfir og geta ljós-
myndað sig við franska ostagerð
eða vínberjatínslu. Gestunum á
að finnast að þeir hafi í raun
heimsótt franska sveit.
Vinsælt „útland" er nú risið
skammt frá borginni Obihiro á
eynni Hokkaido. Það heitir upp á
þýsku Glúckskönigsreich. Þar
eiga japanir að sannprófa hvað
Þýskaland er og stinga sér í
leiðinni ofan í sagnabrunn
Grimmsævintýranna.
Aðgöngumiðinn er látinn líkj-
ast vesturþýsku vegabréfi og er
stimplaður um leið og menn
ganga inn. Og sjá: þar rís þýskur
bær með vindmyllu og dóm-
kirkju. Þar eru ekici bara efitrlík-
ingar í orðisins venjulegu merk-
ingu: götusteinarnir eru „ekta“ -
úr gömlum götum í Berlín og
Leipzig. Tvö bindiverkshús hafa
verið keypt í Þýskalandi fyrir
mikið fé og flutt til Hokkaido:
annað þeirra er frá 1720 og er nú
elsta húsið á eynni! „Ekta“ eru
líka ungir menn sem leika Þjóð-
verja í plássinu, ganga um í leður-
stuttbuxum og láta ljósmynda sig
með japönsku gestunum: við
þetta eru þýskir unglingar á fast-
akaupi. Matur er allur á þýska
vísu, pylsur og brauð og bjór.
Aðsókn er mikil: hálf miljón
gesta á fyrstu sex mánuðum hins
þýska bæjar.
Margt er skrýtið í þessari jap-
önsku sókn eftir því sem lands-
mönnum finnst erlent og annar-
legt. Japanir eiga það til dæmis til
að gifta sig upp á kaþólska vísu og
leigja sér bæði ekta kirkjur og
ekta prest, helst útlendan - og
skiptir engu máli þótt brúðhjónin
séu bæði shintoistar. Stórverslun
í bænum Fukuoka hélt upp á 200
ára afmæli frönsku byltingarinn-
ar með því að verða sér úti um
ekta fallöxi og stilla henni út í
sýningarglugga.
Og eitt enn ætla Japanir að
gera - og nú mega íslendingar
vara sig: Þeir ætla að flytja Jóla-
sveininn, sankta Kláus, heim til
sín og geyma hann þar allt árið.
Sá sem hugmyndina átti sagði
sem svo: Enginn hefur meiri þörf
fyrir jólasveininn allt árið en jap-
önsk börn, sem eru að farast úr
streitu og samkeppni í skólanum.
Maður þessi, Masahiko Tsuga-
va, leikari og leikfangakaupmað-
ur, fann upp á því snjallaræði að
kaupa höll eina í Skotlandi,
byggða 1830, rífa hana sundur,
pakka henni í 27 gáma og flytja til
Japans. Þar átti hún að rísa sem
„fæðingarhöll Jólasveinsins" og
vera miðdepill Jólasveinapláss-
ins. En því miður: plássið á að
rísa á jarðskjálftasvæði - yfir-
völdin vilja ekki að höllin skoska
rísi þar eins og hún kemur fyrir úr
gámum, jólasveinahöllin verður
að vera úr járnbentri steinsteypu.
Og hefur enn ekki fundist lausn á
þessu máli.
áb byggði á Spiegel
„Þýski" bærinn Kóngsæluríki á Hokkaido: götusteinarnireru ekta, þeir
eru frá Berlín og Leipzig.
22 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. febrúar 1990