Þjóðviljinn - 23.02.1990, Qupperneq 7
Langflestir frambjóðenda til so-
vétþingsins í Litháen hafa lýst
því yfir að þeir vilji að ríkið segi
sig úr Sovétríkjunum og lýsi yfir
sjálfstæði. Þá greinir einungis á
um hvenær og með hvaða hætti
sjálfstæðið verði fengið.
Kosningarnar bera vott um
þær öru breytingar sem nú eiga
sér stað í Sovétríkjunum. Það er
varla eitt ár liðið síðan haldnar
voru þar í fyrsta skipti kosningar
þar sem fleiri en einn frambjóð-
andi voru um hvert sæti.
Fjölflokkakerfi
Sovétþingið í Litháen setti fyrir
nokkrum mánuðum lög þar sem
sjötta ákvæði sovésku stjórnar-
skrárinnar um valdaeinokun
kommúnistaflokksins var numið
úr gildi í Litháen.
Þingið í Litháen hefur strangt
tekið ekki vald til að nema úr
gildi stjórnarskrárákvæði sem
gilda fyrir öll Sovétríkin. Samt
leyfðu sovésk stjórnvöld Lit-
háum að komast upp með stjórn-
arskrárbreytinguna. Og nú fyrir
hálfum mánuði lýsti miðstjórn
<J í*
1". • íj 'A ■ | í i ! ■ \
Frá fjöldafundi fyrir sjálfstæði Lit-
háens.
undirrituðu samkomulag um
sjálfstæði Litháens og hálf öld frá
því að Sovétmenn innlimuðu Lit-
háen í Sovétríkin.
Miðstjórnarfélagar í Komm-
únistaflokki Litháen hafa látið í
ljós stuðning við þessa hugmynd.
Flest stjórnmálaöfl í Litháen
eru sammála um að sjálfstæðis-
takan fari fram með sem friðsam-
legustum hætti án harkalegra ár-
ekstra við Rússa sem eiga stóran
hluta allra iðnfyrirtækja í ríkinu.
Ný lög sem nú eru til umfjöll-
unar í sovéska þinginu opna Lit-
háum einmitt leiðina til að segja
sig úr Sovétríkjunum eftir lög-
legum leiðum.
Sjálfstæðiskosningar í Litháen
Fyrstufjölflokkakosningar Sovétríkjanna verða í Litháen ámorgun. Sjálfstæðiskrafa Litháa er aðalmál kosninganna
sovéska kommúnistaflokksins sig
hlynnta því að fella þetta ákvæði
stjórnarskrárinnar svo að valda-
einokun kommúnista verði af-
numin í Sovétríkjunum öllum.
Þjóðernissinnaöir
kommúnistar
Efling þjóðernissinna í Litháen
varð í fyrstu til þess að fylgið
hrundi af kommúnistum. Þeir
gripu þá til þess ráðs í desember
að segja sig úr lögum við sovéska
móðurflokkinn og lýsa yfir stofn-
un sjálfstæðs kommúnistaflokks
sem hefur sjálfstæði Litháens að
markmiði. Við það jókst fylgi
flokksins aftur í einni svipan.
Skoðanakannanir sýna að
meirhluti Litháa styður nú Algir-
das Brazauskas leiðtoga Komm-
únistaflokks Litháens og er hann
sagður vinsælasti kommúnistal-
eiðtogi Austur-Evrópu að Gor-
batsjov hugsanlega undan-
skildum.
Gorbatsjov lærir af
Litháum
Ekki er ólíklegt að Gorbatsjov
hafi ákveðið að láta slag standa
og afnema valdaeinokun Komm-
únistaflokks Sovétríkjanna eftir
að hann sá hvernig almenningur
brást við í Litháen. Hann hafi séð
að eina leiðin til að koma í veg
fyrir fylgishrun kommúnista og
pólitískt gjaldþrot væri að fylgja
fordæmi kommúnista í Litháen.
Gorbatsjov er samt ekki sáttur
við að Litháar segi alveg skilið við
Sovétríkin. Hann heimsótti Lit-
háen í janúar og reyndi að tala
um fyrir þeim en komst þá að því
að fæstum leiðtogum Litháa varð
haggað.
Gorbatsjov bauð þeim breyt-
ingar á stjórnskipan Sovétríkj-
anna sem myndu stórauka sjálf-
stæði einstakra sovétlýðvelda.
En stjórnmálaleiðtogar Litháa
hafna því flestir og segja ekkert
koma til greina annað en fullt
sjálfstæði.
Tveir kommúnista-
flokkar
Minnihlutahópur innan
Kommúnistaflokks Litháens
reyndist móttækilegur fyrir til-
boði Gorbatsjovs um takmarkað
sjálfstæði. Hann neitaði að segja
AÐ UTAN
skilið við sovéska móðurflokk-
inn.
Þessi minnihlutahópur klauf
sig úr Kommúnistaflokki Lithá-
ens og stofnaði annan kommún-
istaflokk sem er áfram deild í
Kommúnistaflokki Sovétríkj-
anna.
Enginn vafi leikur á því að
ákvörðunin um að kljúfa litáen-
ska flokkinn var tekin í samráði
við forystu sovéska kommúnista-
flokksins. Það er tímanna tákn að
fremur en að beita valdi til að
refsa leiðtogum Kommúnista-
flokks Litháens ákveða sovéskir
kommúnistar að notfæra sér fjöl-
flokkalýðræðið og keppa um hylli
kjósenda eftir leiðum lýðræðis-
ins.
Það flækir myndina enn frekar
að hinn sjálfstæði Kommúnista-
flokkur Litháens hefur ekki slitið
alveg öll tengsl við Kommúnista-
flokk Sovétríkjanna. Fulltrúar
beggja kommúnistaflokkanna,
þar á meðal Algirdas Brazauskas
formaður Kommúnistaflokks
Litháens, komu á miðstjórnar-
fund sovéska kommúnista-
flokksins í Moskvu 7. febrúar.
Frambjóöendafjöld
Ótrúlega mikill fjöldi fram-
bjóðenda býður sig fram í þessum
fyrstu fjölflokka kosningum. Þótt
ekki sé kosið um nema 141 þing-
sæti hafa 522 frambjóðendur ver-
ið skráðir samkvæmt upplýsing-
um APN-fréttastofunnar so-
vésku.
Kosið er í einmenningskjör-
dæmum og eru sumsstaðar
jafnvel fimm til tíu frambjóðend-
ur. Samkvæmt kosningareglun-
um getur því þurft að kjósa aftur
milli þeirra frambjóðenda sem
mest fylgi fengu ef enginn nær
löglegri kosningu.
Eðlilega eru langflestir fram-
bjóðendurnir Litháar en önnur
þjóðernisbrot eiga líka sína full-
trúa. Þrjátíu og tveir frambjóð-
endur eru rússneskir, þrjátíu eru
pólskir, átta eru Hvítrússar, þrír
gyðingar og einn Karaíti.
Kosningabaráttan
Sovéskir fjölmiðlar segja kosn-
ingabaráttuna mjög harða. Er-
lendir fréttamenn, sem hafa
fylgst með henni, segja að kosn-
ingabaráttuna hins vegar tiltölu-
lega rólega miðað við stjórnmála-
ólgu undanfarins árs.
Svo virðist sem almenningur í
Litháen sé farinn að þreytast eftir
eins og hálfs árs þátttöku í fjölda-
fundum og kröfugöngum fyrir
sjálfstæði. Kosningafundir hafa
verið fremur fáir og lítið er um
veggblöð.
Þetta hefur verið skýrt þannig
að flestir kjósendur hafi gert upp
hug sinn um það hvern þeir ætli
að kjósa. Enginn vafi leiki á að
sjálfstæðishreyfingin fái meiri-
hluta á þingi.
Kosningabaráttan stendur
meðal annars um það hvort
Kommúnistaflokkur sé af ein-
lægni fylgjandi fullu sjálfstæði.
Frambjóðendur smáflokkanna
halda því fram að Algirdas Braz-
auskas leiðtogi kommúnistaflok-
ksins sé tvöfaldur í roðinu. Hann
segi eitt á framboðsfundum í Lit-
háen og annað í Moskvu.
Að öðru leyti eru stefnumál
flokkanna að mestu leyti ýmis til-
brigði af jafnaðarstefnu þar sem
áhersla er lögð á ágæti blandaðs
hagkerfis.
Flokkar
Kommúnistaflokkur Litháens
tilnefndi langflesta frambjóðend-
ur. Flokkurinn býður fram 219
manns sem eru meira að segja
fleiri frambjóðendur en þingsæt-
in sem í boði eru.
Kommúnistar, sem halda
tryggð við sovéska kommúnista-
flokkinn, tilnefndu 91. Sósfal-
demókrataflokkurinn býður
fram 21 framjóðanda, Græn-
ingjaflokkurinn fjóra og Kristi-
legi demókrataflokkurinn þrjá.
Rúmlega hundrað og fimmtíu
frambjóðendur eru ekki flokks-
bundnir. Búist er við að margir
þeirra kunni að ganga í einhvern
stjórnmálaflokk eftir kosning-
arnar ef þeir ná kjöri. Afstaða
sumra frambjóðenda kommún-
ista er líka óljós og er líklegt að
sumir þeirra eigi eftir að flytja sig
á milli kommúnistaflokka.
Frambjóðendur sem berjast
fyrir sjálfstæði Litháens stofnuðu
með sér kosningabandalagið Sa-
RAGNAR
BALDURSSON
Föstudagur 23. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7
judis. Það styður að minnsta
kosti einn frambjóðanda í hverju
kjördæmi.
Sjálfstæöi á
næsta leiti
Vinni róttækir þjóðernissinnar
sigur í kosningunum má jafnvel
búast við því að litháenska þingið
setji fram ákveðna áætlun um
sjálfstæðistökun strax í sumar. Þá
eru sjötíu ár eru liðin frá því full-
trúar Sovétríkjanna og Litháa
Samkvæmt lagafrumvarpinu
getur ríki sagt sig úr Sovétsam-
bandinu ef sambandsslit eru sam-
þykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu
þar sem að minnsta kosti tveir
þriðju kjósenda greiða atkvæði.
Ákveði Litháar að fara þessa
leið má búast við að Eistlending-
ar og Lettlendingar fylgi þeim
fast á eftir. Slíkt myndi svo aftur
ýta undir sjálfstæðiskröfur ým-
issa annarra þjóða Sovétríkj-
anna.
Sögulegt
yfirlit
r
Ibúar í Litháen eru um 3,7 milj-
ónir talsins, þar af eru nokkur
hundruð þúsund rússneskir inn-
flytjendur sem vinna flestir í iðn-
aði.
Litháen nær yfir 65 þúsund
ferkílómetra svæði. Það liggur að
Eystrasalti og á landamæri að
Póllandi og sovétlýðveldunum
Lettlandi, Hvíta Rússlandi og
Rússneska sambandslýðveldinu.
Fyrstu heimildir um Litháa eru
frá árinu 1009. Þá eru þeir sagðir
hafa verð bændur, hirðingjar,
veiðimenn og góðir stríðsmenn.
Prins Mindaugas sameinaði þá í
fyrsta skipti í eitt ríki um árið
1240. Þeir áttu í langvinnum erj-
um við þýska riddara og gengu í
bandalag við pólskar, rússneskar
og tékkneskar hersveitir til að
vinna bug á þeim í mikilli orustu
árið 1410.
Litháar sameinuðust Pólverj-
um um stofnun sameiginlegs ríkis
árið 1569. Hluti Litháens var
innlimaður í Rússaveldi á átj-
ándu öld og 1816 varð allt Lithá-
en hluti af Rússlandi.
Rússar unnu kerfisbundið að
því að útmá menningarleg sér-
einkenni Litháa og aðlaga þá
Rússum. Litháenska háskólan-
um í Vilnu, sem hafði verið stofn-
aður árið 1579, var lokað árið
1832 og bannað var að prenta lit-
háenskar bækur með rómversku
letri.
í heimstyrrjöldinni fyrri var
Litháen undir yfirráðum þýskra
hersveita í þrjú ár 1914-1918. Við
lok heimstyrrjaldarinnar breidd-
ist sovéska byltingin til Litháen
og kommúnistar stofnuðu bráða-
birgðastjórn þar í nóvember
1918.
Stjórnin lýsti yfir sjálfstæði Lit-
háen. Sovéski kommúnistar féll-
ust á það í desember og Lenín
staðfesti það með undirskrift
sinni 22. desember 1918.
Kommúnistum tókst ekki að
halda völdum í Litháen. Þeim var
steypt með blóðugri byltingu
strax sumarið 1919. Sovétstjórn-
in blandaði sér ekki beint í átökin
og í júlí 1920 undirritaði hún sam-
komulag við Litháa þar sem sjálf-
stæði Litháens var viðurkennt.
Á sjálfstæðisárum Litháens
voru kommúnistar lengst af of-
sóttir, sérstaklega eftir 1926 þeg-
ar einræðisherrann Antanas
Smetona komst til valda. Leið-
togar neðanjarðarhreyfingar
kommúnista voru handteknir og
skotnir.
Þingkosningar voru haldnar
árið 1936 en Smetona hélt samt
áfram um valdataumana.
Litháen blandaðist inn í
heimstyrrjöldina síðari í mars
1939 þegar þýskir nasistar tóku
Klaipeda, einu hafnarborg Lithá-
ens herskildi. Smetona tók þann
kostinn að vinna með Þjóðverj-
um fremur en að skera upp herör
gegn þeim. Það varð Sovét-
mönnum átylla til íhlutunar.
Sovétmenn létu kjósa nýtt þing
í Litháen 21. júlí 1940 og þving-
uðu það til að sækja um inngöngu
í Sovétríkin.
í heimstyrrjöldinni síðari náðu
Þjóðverjar Litháen svo á sitt vald
með innrás í júní 1941. Þeir héldu
Litháen þar til þeir neyddust til
að hörfa fyrir gagnsókn sovéska
hersins árið 1944. Síðan hefur
Litháen verið hluti af Sovétríkj-
unum, það er jafnlengi og ísland
hefur verð sjálfstætt lýðveldi.