Þjóðviljinn - 23.02.1990, Page 8
líelgarblað
Utgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla: @68 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Símfax:68 19 35
Verð: í lausasölu 150 krónur
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla37,108 Reykjavík
Hvert skal haltia
í noirænu samstarfi?
Þaö er aö hefjast í Reykjavík þing Norðurlandaráös og
eins og fyrri daginn eru menn eitthvað aö gera gys aö
pappírsflóði og mannmergö á slíkum samkomum. Hitt er
þó meiri athygli vert: menn eru talsvert aö fjalla um þaö í
fjölmiðlum þessi misserin aö starfsemi Noröurlandaráös,
norræn samvinna yfir höfuð, sé í vissri tilvistarkreppu eins
og þaö heitir. Viti ekki vel hvað hún á til bragös aö taka í
heimi skjótra og stórfelldra breytinga.
í fyrra urðu nokkrar deilur um það í forsætisnefnd
Norðurlandaráðs hvernig taka bæri undirtilmæli og tilboð
frá Sovétríkjunum og þá sérstaklega Eystrasaltslöndun-
um, um samvinnu viö Noröurlandaráö. Því miður fór þaö
svo, að Norðmenn og Svíarvildu helst sem minnstgera-
og vísuðu til gamalla og um margt úreltra samþykkta um
þaö, að Norðurlandaráð ætti ekki aö fjalla um utanríkis-
mál.
Þessi afstaða er komin í rembihnút á okkar tímum,
þegar Norðurlandamenn velta því æ meir fyrir sér, aö þeir
séu í einskonar klemmu. Þeir hafa reynt aö standa saman
um meginatriði eins og félagslega velferð, góð lífskjör,
menningarlegan skyldleika, andstöðu við miðstýringu,
umburðarlyndi og fleira gott. Nú finnst mörgum engu
líkara en þessar brautir séu lokaðar eða ekki lengra á
þeim komist. Eigum við, spyr Christian Bundgárd til
dæmis í nýlegri grein í Nordisk Kontakt, að kjósa okkur
leið miðstýringar og óhefts markaðsbúskapar í Evrópu-
bandalaginu? Eða eigum við að reyna að byggja brú til
þeirra nýju lýðræðisríkja sem eru í sköpun í Austur-
Evrópu? En það kemuroftfram, að í þeim löndum er mjög
litið til Norðurlanda sem fyrirmyndar - þar hafi mönnum
tekist að virkja afkastagetu kapítalismans í þágu félags-
legs öryggis og það er blanda af þessu tvennu sem menn
helst vilja í Póllandi, Tékkóslóvakíu og fleiri löndum.
Christian Bundgárd ber fram merkar spurningar í grein
sinni. Hann spyr hvort menn loki ekki fyrir aukin viðskipti
og samskipti sem austurblokkin vill hafa við Norðurlönd
með því að einblína á Evrópubandalagið. Hann spyr hvort
miðstýringarhneigðir í Evrópubandalaginu gangi ekki
þvert á það að menn taki af heilum huga undir upplausn
austurblakkarinnar og undir kröfur um efnahagslegt sjálf-
stæði t.d. Eystrasaltsríkjanna. í vestri er verið að byggja
upp miðstýringarvald og skrifræði, í austri er það að
leysast upp. Hjá okkur, segir Bundgárd, er sagt að mið-
stýringarhneigðirséu afleiðing tækniþróunarog yfirburða
stórfyrirtækja og bættra samgangna. Hjá þeim er brott-
hvarf frá miðstýringu einnig talið afleiðing tækniþróunar,
einkum upplýsingatækni sem gerir ritskoðun, skrifræði
og miðstýringu hlægileg.
í þeirri grein sem nú var nefnd er mælt með því að
menn geri ekki lítið úr norrænu samstarfi. Heldur lyfti,
þvert á móti, undir það sem valkost andspænis Evrópu-
bandalagi, sem sameiginlegt útspil andspænis „innri
markaðinum" - og sem fordæmi og samstarfsform fyrir
lönd Austur-Evrópu. Það er brýnt að íslendingar hafi
þessi rök öll í huga. Við höfum síst allra ástæðu til að gera
lítið úr norrænu samstarfi: þar erum við, þrátt fyrir óhjá-
kvæmilega árekstra og argaþras stundum, í þeim félags-
skap sem best skilur okkur og okkar tilverurök. Og er
meira að segja reiðubúinn til þess að taka tölvert tillit til
okkar. Sem er meira en sagt verði í alvöru um ýmsa stærri
alþjóðaklúbba sem bráðlátir menn vilja sem fyrst kaupa
sér dýr aðgangskort að.
Fantasía sýnir í Skeifunni
Nýr íslenskur sjónleikur; Vagnadans - í leit að var 1989. Samaár sýndi hann leikverkið; Égbýðþér
hjómi, verður frumsýndur í leikhúsi Frú Emilíu von sem lifir.
sunnudaginn 25. febrúar. Þetta er nýr íslenskur Vagnadans lýsir vegferð nútímamannsins, og um
sjónleikuránorðaeftirleikhópinnFantasíuogKára leið vöxt og þroska einstaklingsins í samfélaginu.
Halldór sem jafnframt er leikstjóri. Leikendur eru átta.
Fantasía er leikhópur áhugafólks sem stofnsettur Leikhús Frú Emilíu er til húsa í Skeifunni 3c.
Helgarveðrið
Horfur á laugardag: Allhvasst suðaustanlands og snjólaust vestanlands,
suðaustan gola og léttskýjaö austlands.
Horfur á sunnudag: Allhvasst eða hvasst austanlands og snjókoma norðanlands,
norðaustan kaldi og smáél vestanlands, suðaustan kaldi og og slydduél
suðaustanlands, hæg breytileg átt og slydduél syst á landinu.
8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. febrúar 1990