Þjóðviljinn - 23.02.1990, Page 11

Þjóðviljinn - 23.02.1990, Page 11
Heimaþjónustan er mikið ábyrgðarstarf Lára Arnórsdóttir: Mjög ánægð með hverfaskiptingu öldrunarþjón- ustunnar. Vantar ferðaþjónustu. Biðlistinn endurnýjar sig hratt Það er erfitt að tá fólk í heima- þjónustu, en við höfum verið heppin, fengið sómafólk og hald- ið því. Heimaþjónusta er ekki hátt metin í launum þrátt fyrir að þetta sé gríðarlega mikið ábyrgðar- starf. Ég ræð ekki fólk í þetta starf nema ég geti treyst því fyrir mínu eigin heimili, segir Lára Arnórs- dóttir, forstöðumaður þjónustum- iðstöðvar aldraðra í Bólstaðahlíð, við Nýtt Helgarblað. Miðstöðin í Bólstaðahlíð er ein af sex hverfamiðstöðvum, sem samkvæmt nýju skipulagi eiga að sjá um alla þjónustu við aldraða hver á sínu svæði. Þar á meðal er heimaþjónustan. Aðalkostur hverfaskiptingar- innar er sá að sögn Láru að nú geta aldraðir sótt alla þjónustu á einn stað. „Nú veit fólk hvar það á að leita þjónustunnar og á að eiga betra með að sækja hana. Við Jóhanna Lúðvígsdóttir: Ég hef verið heppin og hitt úrvalsfólk í þessu starfi. En ég vildi gjarna að ég gæti gefið því meiri tíma. kaupa minni íbúðir á vegum borgarinnar, svara þær því til að borgaríbúðirnar séu einfaldlega dýrari og þær ráði ekki við kaupin. „Eg skil vel að fólk vilji vera heima eins lengi og hægt er. En það eru eflaust mörg dæmi um að fólk ætti ekki að vera heima þótt viljann vanti ekki. Ég hef verið heppin og hitt úr- valsfólk í þessu starfi. En ég vildi gjarna að ég gæti gefið því betri tíma, þótt það sé kannski orðið hundleitt á mér,“ segir hún og brosir til Andrésar og Elísabetar. „Ég tími ekki að hætta þessu. Ég hef kynnst hressu fólki og eignast vini í gegnum starfið. Þetta fólk er orðið fullorðið, hef- ur lífsreynslu og hefur eitthvað að segja af viti. Ég get endalaust spjallað við þetta fólk og hlakka til þess að koma í heimsókn. Ég hefði ekki trúað þessu áður en ég byrjaði,“ segir Jóhanna Lúðvígs- dóttir. -gg eigum einnig að geta aukið tengs- lin við heimilin í hverfinu og fylgst betur með þörfinni. Þetta gerum við meðal annars með samráði við heimahjúkrun- ina á mánaðarlegum fundum. Ég er mjög ánægð með þetta fyrir- komulag,“ segir Lára. 20 á biðlista Hún segir 106 konur vinna við heimilishjálp á vegum miðstöðv- arinnar í Bólstaðahlíð. Þær heimsækja 260 einstaklinga í hverfinu misjafnlega oft í viku. Sumir fá aðstoð á hverjum degi, aðrir einu sinni í viku og enn aðrir hálfsmánaðarlega. Alls búa um tvö þúsund ellilíf- eyrisþegar á umsjónarsvæði mið- stöðvarinnar í Bólstaðahlíð. En hversu margir hafa sótt um heimilishjálp án þess að hafa fengið? „ Við erum með um 20 manns á biðlista, en hann er mjög hreyfanlegur og getur endurný- jað sig mjög hratt. Ég reikna með að þetta sé svipað í hinum hverf- unum. Ætli fólk bíði ekki í um það bil mánuð eftir að fá fólk til sín. Hins vegar má búast við að þeir séu til sem ættu að fá svona þjón- ustu en hafa ekki sótt um. Það er ákaflega erfitt að meta það. Lík- lega er það þannig að þeir spræk- ustu eru duglegri að leita eftir þjónustu,“ segir Lára. Tilgangurinn með heimaþjón- ustunni er að gera fólki kleift að vera heima eins lengi og það get- ur og óskar. Allir flokkar í borg- arstjórn virðast vera sammála um þetta markmið, þótt þeir leggi misjafnlega mikla áherslu á það. Það er vitaskuld mjög hagkvæmt fyrir samfélagið að aldraðir geti verið heima sem lengst, það spar- ar borginni t.d. byggingu dýrra þjónustuibúða fyriraldraða. Auk þess á það ekki við alla að fara inn á stofnanir. Ferðaþjónusta veikasti hlekkur- inn Lára segist telja að veikasti hlekkurinn í þessari þjónustu sé ferðaþjónustan, eða öllu heldur skortur á ferðaþjónustu. Þjón- ustumiðstöðvarnar bjóða öldruð- um upp á margs konar þjónustu, en það eiga ekki allir jafn auðvelt með að bera sig eftir henni. Þeir sem eiga heimangengt geta fengið hárgreiðslu, nudd, snyrtingu, mat og fleira í þjónust- umiðstöðinni. Þeir geta einnig sótt leikfimistíma, unnið við bók- band og leirgerð, farið í spilatíma og ýmislegt fleira í miðstöðinni. Minnihlutinn í borgarstjórn lagði til við gerð fjárhagsáætlunar að fimm miljónum króna yrði varið til þess að koma á ferða- þjónustu fyrir aldraða, en tillögu- nni var vísað frá. Árni Sigfússon, formaður fé'- Lára Arnórsdóttir, forstöðumaður þjónustumiðstöðvarinnar í Bólstað- ahlíð: Ég ræð ekki fólk í þetta starf nema ég geti treyst því fyrir mínu eigin heimili. lagsmálaráðs og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist viss um að slíkri þjónustu verði kom- ið á en reiknar ekki með að af því verði á þessu ári. Verið sé að vinna að könnun á þörfinni fyrir ferðaþjónustu og ekki sé ráðlegt að koma henni á fyrr en þeirri könnun verði lokið. Helgarþjónusta Að sögn Árna er einnig verið að kanna þörfina fyrir helgar- þjónustu. Hún er ekki fyrir hendi nú, en að sögn viðmælenda Nýs Helgarblaðs er talin vera þó nokkur þörf fyrir slíka þjónustu. Borgarfulltrúar Alþýðubanda- lags, Kvennalista, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, lögðu einnig til við afgreiðslu fjárhagsá- ætlunar að fimm miljónum yrði varið til þess að koma á helgar- þjónustu, en tillögunni var vísað frá á sömu forsendu og hinni fyr- ri. Árni Sigfússon segist heldur ekki eiga von á að þessari þjón- ustu verði komið á f ár. Guðrún Ágústsdóttir, vara- maður Alþýðubandalagsins í fél- agsmálaráði, telur mjög brýnt að helgarþjónustu verði komið á. Hún hefur m.a. reifað þá hug- mynd að námsfólki verði boðið að taka að sér að fara heim til aldraðra um helgar til þess að elda mat og halda þeim félags- skap. Eins og kemur fram í viðtalinu við Jóhönnu Lúðvígsdóttur búa ekki allir svo vel að eiga ættingja sem koma reglulega í heimsókn. Hún segist vera eini gesturinn sem kemur á sum þeirra heimila sem hún sækir heim. -gg Umboðsmaður ríkisskip á Eskifirði Skipaútgerð rikisins óskar að ráða umboðsmann á Eski- firði frá og með 1. april 1990. Viðkomandi þarf að hafa yfir að ráða vörugeymsluhúsnæði og tækjum til að afgreiða skipin. Umsóknarfrestur er til 10. mars 1990. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar í Reykjavík í síma 91-28822. Skipaútgerð ríkisins Til sölu einbýlishús á Selfossi Kauptilboð óskast í húseignina Grænuvellir 5, 800 Selfossi, samtals 940 m3 að stærð. Bruna- bótamat er kr. 14.157.000,-. Húsið verður til sýnis í samráði við Jón Péturs- son, umsjónarmann, sími (98) 21300. Tilboðsblöð eru afhent hjá umsjónarmanni og á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð merkt „Einbýlishús Útboð 3566/90“ skulu berast skrifstofu vorri eigi síðar en þriðju- daginn 6. mars n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS Boraartúni 7. sími 26844 Vörubílstjórafélagið Þróttur, Reykjavík auglýsir hér með eftir framboðslistum til kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs í félaginu. List- ar skulu berast á skrifstofu félagsins, Borgartúni 33, í síðasta lagi kl. 12 á hádegi mánudaginn 12 mars n.k. Kjörstjórn A Félagsráðgjafar Á Félagsmálastofnun Kópavogs eru lausar til umsóknar tvær stöður félagsráðgjafa í afleys- ingar. 1. 100% starf frá 1. maí nk. til ágústloka 1991. 2. 50% starf frá 1. maí n.k. til janúarloka 1991. Um er að ræða fjölbreytt störf. Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma. Umsóknarfrestur er til 5. mars n.k. Upplýsingar veitir deildarfulltrúi fjölskyldu- deildar í síma 45700. Félagsmálastofnun Kópavogs

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.