Þjóðviljinn - 23.02.1990, Side 19

Þjóðviljinn - 23.02.1990, Side 19
Pagliacci Óperan Pagliacci (Trúðarnir) var frumsýnd í Mílanó árið 1892. Bæði tónlistin og textinn eru eftir Ruggero Leoncavallo (1858- 1919), einn af brautryðjendum raunsæisstefnunnar í ítölskum. óperubókmenntum. Leoncavallo sótti efniviðinn í mál sem faðir hans, þorpsdómari á Suður-Ítalíu hafði dæmt í, en í óperunni segir af trúðnum Canio, sem myrðir unga eiginkonu sína og elskhuga hennar í afbrýðisæði fyrir fullu fjölleikahúsi. Óperan er eina verk Leoncavallos, sem staðist hefur tímans tönn, en henni var ekki einasta frábærlega tekið á frumsýningu heldur fór hún sigurför um heiminn þegar í stað, var sýnd í Vfn sama ár og í London og New York árið eftir. Pagliacci er stutt ópera, í að- eins tveimur þáttum. Hún hefst á formála eins trúðanna, sem minnir áhorfendur á að leikar- arnir séu líka manneskjur, sem yfirleitt hylji tilfinningar sínar að baki trúðsgrímunnar. Óperan gerist á nokkrum klukkustund- um, frá því að hópur farand- leikara kemur í sveitaþorp og af- brýðisemi Canios vaknar og lýk- ur á sýningu trúðanna sama kvöld, þegar Canio missir stjórn á sér og „leikur“ og „raunveru- leiki“ renna saman í eitt, því innan óperunnar er leikið leikrit, hefðbundinn gamanleikur um ástir og framhjáhald þar sem leikið er á eiginmanninn; trúðinn Canio. Garðar Cortes fer með hlut- verk Canios, trúðsins, sem missir grímuna, Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir er kona hans, Nedda og Keith Reed Tonio, kroppinbak- ur, sem lengi hefur elskað Neddu ílaumi. Simon Keenlyside syngur hlutverk Silvios, elskhuga Neddu en Sigurður Björnsson er Harleq- uin, elskhugi Neddu á sviði far- andleikhússins og þorpsbúar eru hverja af þeim fjölda flökku- munka og veraldlegra guðs- manna, sem voru á ferðinni um Evrópu á miðöldum. Þar eru í bland dýrt kveðin ljóð og leirburður, að mestu leyti á latínu en einnig á bæði frönsku og þýsku og er þessum tungumálum jafnvel blandað saman í einu og sama ljóðinu. Efni kvæðanna er að sama skapi mismunandi, en meðal þeirra er að finna hámór- ölsk ljóð við hlið kerknisvísna, danskvæði og kvartanir yfir heimsósóma, drykkjuvísur og ástarljóð. Kór- og dansverk Orffs við kvæðin var frumflutt árið 1937 og er eina verk hans sem hefur hlotið verulegar alþjóðlegar vin- sældir. Það skiptist í þrjá megin- kafla, Vorið, A kránni og Hirð ástarinnar en byrjar og endar á ákalli til auðnugyðjunnar: O Fortuna, enda allt í heiminum hverfult og lukkuhjólið valt. Sjö dansarar úr íslenska dans- flokknum túlka verkið með kór Óperunnar og þremur einsöngv- urum, þeim Michael Jóni Clarke, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Þorg- eiri J. Andréssyni. Leikmynd og búningar eru eftir Nicolai Drag- an. - Ég sé þetta fyrir mér sem heiðna fórnarhátíð, segir Ter- ence Etheridge, leikstjóri og dansahöfundur Carmina Burana. Ég ímynda mér að munkarnir hafi komið saman á fjallstoppi á hverju vori og haldið þessa miklu helgiathöfn alla nóttina, ákallað auðnugyðjuna, sungið, drukkið og dansað og leikurinn hafi magnast eftir því sem leið á nótt- ina. Söngvarnir hafi síðan laðað að sér fleira fólk, því þarna birt- ast dansarar, fólk, sem vill taka þátt í þessu ritúali. Þetta ei í fyrsta sinn, sem ég reyni að gera nokkuð þessu líkt og reyndar í fyrsta sinn mér vitan- lega, sem Carmina Burana hefur verið sett upp á þennan hátt, þó Orff hafi ætlast til þess þegar hann skrifaði verkið að það væri bæði dansað og sungið. Ég held að menn hafi hreinlega ekki þor- að að reyna þetta fyrr, því þetta er mjög erfitt verk að syngja. Sú leið, sem yfirleitt hefur verið far- in er að láta dansarana vera fremst á sviðinu og kórinn standa í bakgrunninn, en þannig myndar verkið ekki eins mikla heild og það gerir þegar kórinn er líka á hreyfíngu. Með dansinum og hreyfingum kórsins reyni ég að ná fram þem- um kvæðanna og undirstrika tónlistina, textinn er allt of breytilegur til þess að það sé nokkurt vit í að reyna að fylgja honum. Ég vil taka fram hvað það hefur verið ánægjulegt að vinna bæði með kórnum, sem ber hitann og þungann af sýningunni og eins með Dansflokknum, ég gæti vel hugsað mér að koma hingað aftur og vinna með þeim. LG Carmina Burana er í Óperunni sett upp á nýstárlegan hátt, því kórinn, sem leikur aðalhlutverk- ið er jafnframt á hreyfingu um sviðið og undirstrikar tónlist og innihald kvæðanna með dans- hreyfingu. Carl Orff (1895-1959) mun hafa haft dans og hreyfilist í huga þegar hann samdi tónlistina við úrval kvæðanna frá Beuren, en alls eru þau safn um tvö þús- und ljóða og söngva frá miðöld- um. Ljóð þessi og kvæði voru geymd öldum saman í læstum skáp ásamt með öðrum forboðn- um bókmenntum í bókasafni klaustursins Benediktbeuern í Bavaríu við rætur Alpafjalla. Handritið fannst árið 1803, en var ekki gefið út fyrr en árið 1847 og þá gefið nafnið Carmina Bu- rana. Kvæðin eru jafn misjöfn og þau eru mörg, enda eftir fjöl- marga höfunda, sem ekki láta nafns síns getið, væntanlega ein- Söngvar munkanna laða að sér fleiri sem viljataka þátt í hátíðinni. Mynd: Kristinn. Basil Coleman: Engri nótu ofaukið kór íslensku óperunnar. Nicolai Dragan gerir leikmynd og Alex- ander Vassiliev búninga. - Þetta er geysilega gott verk, segir Basil Coleman, leikstjóri Pagliacci. - Það er stutt og hnit- miðað, aðeins fimm aðalper- sónur og engri nótu ofaukið. Þemað er klassískt, ást og hatur og sett upp á meistaralegan hátt svo á leiksviðinu renna leikur og raunveruleiki saman í eina heild. - Af fjórum karlmönnum í að- alhlutverkum er aðeins einn, sem ekki elskar Neddu. Kroppinbak- ur, sem aldrei hefur elskað öðru- vísi en úr fjarlægð velur þessa stund til að játa henni ást sína, elskhugi hennar, ungi maðurinn úr þorpinu vill að hún hlaupist á brott með sér og Canio er orðinn afbrýðisamur. Það sem gerir til- finningar Canios svo sterkar er að Nedda er á einhvern hátt hans Pygmalion. Hann hefur tekið hana að sér munaðarlausa stúlku, alið hana upp og loks gifst henni, lítur í rauninni á hana sem sína eign og er þess vegna ákaflega afbrýðisamur. Leikararnir reyna síðan að setja upp sitt venjulega leikrit, þrátt fyrir harmleikinn, sem er að gerast þeirra á meðal og allt fer úr böndum. - Þetta er í fyrsta sinn sem ég set Pagliacci upp og er ákaflega spenntur að sjá hver útkoman verður því ég hef aldrei unnið með svona lítið leiksvið fyrr. Það er alls ekki ætlað fyrir leiksýning- ar og í rauninni ótrúlegt að hægt sé að koma þar fyrir heilli óperus- ýningu. En það hefur verið mjög skemmtilegt að reyna þetta, ég hef haft góðum söngvurum og kór á að skipa. LG Harlequin (Sigurður Björnsson) heimsækir Kólumbínu (Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur) í leiknum innan óperunnar. FfTTT r:Ai?\TFi\nvnvr:rv ✓ Islenska óperan frumsýnir Carmina Burana og Pagliacci íslenska óperan frumsýnir í kvöld tvö gjörólík verk: Carmina Burana eftir Carl Orff, og óperuna Pagliacci eftir Ruggieru Leoncavallo. Carm- ina Burana (Kvæði frá Beuern) er sviðsverk fyrir kór; einsöngvara, dansara og hljómsveit og er sett upp í samvinnu við Islenska dans- flokkinn. Pagliacci (Trúðarnir) er hinsvegarópera ítveimur þáttum þar sem segir af ástum og afbrýði í hópi farandleikara. Tveir breskir leikstjórar hafa verið fengnir hingað til lands til að setja upp sýningarnar. Terence Etheridge er leikstjóri Carmina Burana og jafnframt höfundur dansa og kórhreyfinga og Basil Coleman setur upp Pagliacci. Hljómsveitarstjórar eru David Angus og Robert Stapleton og lýsingu annast Jóhann B. Pálmason. Carmina Burana Terence Etheridge: Eins og heiðin fórnarhátíð Föstudagur 23. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.